Morgunblaðið - 03.02.1995, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
h
AÐSENDAR GREINAR
Efnahagsbati á
traustum gnrnni
Teikn á lofti
EINS OG fram hefur komið að
undanförnu er nú margt sem bend-
ir til að efnahagslægðin sem varað
hefur síðan 1988 sé að renna sitt
skeið á enda. Þjóðhagsstofnun gerir
ráð fyrir tæplega 2 prósenta aukn-
ingu í landsframleiðslu á árinu sem
var að líða og í ár er áætlað að
hagvöxtur verði 1,4 prósent. Verð-
mæti útflutnings hefur aukist veru-
lega á síðustu árum, viðskiptajöfn-
uður við önnur lönd er hagstæður
og heildarvelta í atvinnulífínu sam-
kvæmt virðisaukaskattskýrslum er
um 7,5 prósent meiri á fýrstu tíu
mánuðum ársins 1994 en hún var
á sama tíma árið á undan.
Þrátt fýrir batamerkin er of
snemmt að afskrifa efnahagslægð-
ina. Ýmis teikn eru á lofti um að
jafnvægið standi veikum fótum.
Ekki má mikið útaf bera til að
grundvelli frekari efnahagsbata á
næstu árum sé raskað með alvar-
legum afleiðingum fyrir þjóðarbúið.
Þá má gera ráð fyrir áframhaldandi
hagvaxtarleysi og vandséð er
hvemig atvinnulífið fær staðið und-
ir væntingum um verulegan fjölda
nýrra starfa og aukna hagsæld.
Forsendur áframhaldandi
efnahagsbata
Áframhald batans og hagvöxtur
næstu árin kemur til með að ráðast
af því hvernig tekst að viðhalda
stöðugleika og hagstæðum rekstr-
arskilyrðum. Niðurstaða komandi
kjarasamninga ræður miklu í þeim
efnum en auk þess getur árangur
sveiflujöfnunar í hag-
stjórnarskyni skipt
sköpum. íslendingar
standa því í vissum
skilningi á tímamótum.
Brátt fæst úr því skor-
ið hvort okkur tekst að
verja stöðugleikann og
festa hann í sessi eða
hvort árangurinn renn-
ur út í sandinn vegna
óbilgirni í kröfugerð og
skorts á fyrirhyggju.
Því má ljóst vera að
þýðingarmikil og brýn
viðfangsefni bíða úr-
lausnar.
íslendingar eru van-
ir miklum sviptingum
í þjóðhagsstærðum.
Landsframleiðslan getur til að
mynda aukist um 9 prósent eitt
árið og dregist saman það næsta,
eins og raunin var árin 1987 og
1988. Verðbólga hefur lengst af
verið mikil þar til síðustu ár og
skilyrði innlendra fyrirtækja til
samkeppni við innflutning og á er-
lendum markaði afar sveiflukénnd.
Það hefur gert þeim erfitt um vik
að fóta sig og ná traustri stöðu.
Umskipti í þjóðarbúskapnum
hafa venjulega átt rætur sínar að
rekja til snöggra breytinga í afla-
brögðum og fiskverði. Þegar vel
árar í sjávarútvegi gengur bylgja
verðhækkana yfir hagkerfíð með
þeim afleiðingum að samkeppnis-
staða annarra útflutnings- og sam-
keppnisgreina versnar án þess að
það eigi sér forsendur í rekstri
þeirra eða að þær fái nokkuð við
því gert. Innlendur
kostnaður hækkar að
tiltölu við erlendan,
jafnvel svo að útgerð
og vinnsla hafa ekki
getað nýtt sér aukinn
afla og hærra verð til
að bæta afkomu og
styrkja eiginQárstöðu,
hvað þá þær greinar
sem hafa búið við
óbreyttar forsendur í
sínum rekstri en þurfa
samt að lúta versnandi
samkeppnisskilyrðum.
Efnahagsbatinn hefur
þannig jafnan verið illa
nýttur. Tilraunum til
að halda genginu föstu
þrátt fyrir kostnaðar-
hækkanir er ætlað að halda aftur
af þenslu innanlands með því að
beina eftirspurn frá innlendri fram-
Ieiðslu að innflutningi. Þessi stefna
hefur ítrekað haft alvarlegar afleið-
ingar fýrir viðskiptajöfnuð og er-
lenda skuldastöðu eins og dæmin
sanna. Það er margreynt að þessi
aðferð er misráðin og í stað hennar
þarf að koma virk sveiflujöfnun,
sem færir hluta af tekjuauka vegna
bætt árferðis í sjóð til mögru ár-
anna og hindrar þannig að skriður
komist á almennar verðhækkanir
til tjóns fyrir þjóðarbúið.
Nú má færa fyrir því gild rök
að auðlindir sjávar verði ekki sú
mikla uppspretta hagvaxtar sem
þær hafa verið lengst af þótt hlut-
fallslegt mikilvægi í þjóðarbúskapn-
um haldi áfram að vera verulegt.
Ofnýting auðlindarinnar undan-
Þorsteinn M.
Jónsson
gagnvecor'
í’“vRl«*
VEGUR
FJALLKONUVEÖUR
VESTOKLANDSVEgj&^
IRBRÚN
REYKJAVI
LANG-
HOLTSVEGl
\STRENGUR
3AVEGUR
\«{|<AABRAUT
SUDURHÓLAR
HÁAUmSBRAUT
\6yS3ADAVEGUR y
STCKKJARBAKKT
jAD^RSEtg
MÆTURVAGM
- lausn á vanda nátthrafna
Oft hefur verið bent á nauösyn þess a& þeir
sem búa í úthverfum og eru seint á ferli í
miöbænum komist klakklaust heim til sín.
Næturvagnar SVR eru gó& lausn á þessum vanda.
Leið 125ferfrá Kalkofnsvegi kl. 2:00 og 3:00
í Bústaða- og Breiðholtshverfi.
Næturvagnarnir aka aöeins á föstudags- og
laugardagskvöldum. Fargjald er kr. 200 í
reiðufé. Farmiöar og græn kort gilda ekki.
Gó&a heimferb - meb strætó!
Leið 130ekurfrá Hverfisgötu viö Stjórnar-
ráðshúsiö kl. 2:00 og 3:00 og fer um
Sundin, Árbæ og Grafarvog.
LÆKJARTORG - BÚSTAÐIR - SEL - FELL
LÆKJARTORG - SUND - ÁRBÆR - GRAFARVOGUR
HVBRRFISCATA
VIÐ STJÓRNARRÁÐ
PSoiM 03:00 ►
LEIÐ 125
HVERFISGATA
VIÐ STJÓRNARRÁÐ
l- 02.00 03:00
LEIÐ 130
gengin ár gerir það að verkum að
stilla verður veiði mjög í hóf á
næstu árum með hægfara aukningu
þegar fiskstofnarnir fara að eflast.
Tækniframfarir í veiðum og vinnslu
hafa þar að auki í för með sér að
færri hendur þarf til að skila sama
magni og því er ósennilegt að mörg
ný störf verði til í sjávarútvegi þeg-
ar fram líður. Við þurfum því í
auknum mæli að beina athyglinni
að öðrum greinum til atvinnusköp-
unar og hagvaxtar.
Nýjar áherslur í hagstjórn
Það er því annarskonar efna-
hagsbati sem íslendingar þurfa að
leita eftir þegar fram í sækir. Hann
þarf að byggja á öðrum forsendum
en gilt hafa til þessa með aukinni
áherslu á jöfn og góð starfsskilyrði
fýrir allt atvinnulíf og fráhvarfi frá
sérstakri atvinnugreinastefnu.
Hagstjórn sem miðast við eina at-
vinnugrein í krafti hlutfallslegs
Ef innlendur kostnaður
rýkur upp fer efnahags-
batinn og samkeppnis-
staðan fyrir lítið, segir
Þorsteinn M. Jónsson,
sem varar við röskun á
núverandi stöðugleika í
efnahagslífinu.
mikilvægis hefur í reynd verið öðr-
um atvinnugreinum fjötur um fót
og skert getu þeirra til vaxtar og
þróunar. Með nýjum áherslum í
stjórn efnahagsmála fær öll at-
vinnustarfsemi tækifæri á jafnrétt-
isgrundvelli, svigrúm og vinnufrið
til að bæta hag sinn og færa út
kvíarnar, auk þess sem hagnýting
tækifæra og nýr atvinnurekstur á
auðveldar uppdráttar. Slík efna-
hagsstefna hefur ekki verið reynd
til þrautar á íslandi. Skilningur
hefur verið af skornum skammti
en áherslubreyting er löngu tíma-
bær. Það er ekki hlutverk stjórn-
valda að ákveða hvað sé vænlegt
og hvað ekki eða gera einni atvinnu-
grein hærra undir höfði en öðrum.
Stjórnvöldum ber að leggja höfuð-
áherslu á að varðveita stöðugleik-
ann og viðhalda góðum rekstrar-
skilyrðum en láta markaðsöfl og
frumkvöðla um hitt.
Við verðum að vera þess meðvit-
ÖRYGGIS OG
GÆSLUKERFI
FRÁ ELBEX
SPARIÐ TÍMA FÉ
OG FYRIRHÖFN
og skapiö öruggari
vinnu og rekstur meö
ELBEX sjónvarpskerfi.
Svart hvítt eöa í lit,
úti og inni kerfi.
Engin lausn er of
flókin fyrir ELBEX.
Kynnið ykkur möguleikana.
Einar Farestveit & co hf.
Borgartúni 28 ® 5622901 og 5622900
uð að nokkur ár í atvinnusögunni
er ekki langur tími. Eðli málsins
samkvæmt tekur tíma að venjast
breyttum forsendum og fá traust á
að nýjar og betri aðstæður séu
áreiðanlegar. Engu að síður hefur
á þeim skamma tíma stöðugleika
og hagstæðra rekstrarskilyrða sem
nú er liðinn náðst mikilsverður
árangur í atvinnulífínu og varnar-
sigrar hafa unnist. Það lofar góðu
um frekari árangur ef við fetum
áfram veg skynslegra væntinga og
efnahagsstjórnunar.
Gróska í útflutningi
Nú sjást víða dæmi um grósku
í útflutningsframleiðslu íslendinga.
Hagstæð rekstrarskilyrði hafa
greitt götuna til aukinnar sóknar.
Ferðaþjónusta til að mynda er í
miklum blóma auk þess sem vöruút-
flutningur hefur aukist verulega.
Þess eru nokkur dæmi að íslensk
iðnfyrirtæki, sem áður hafa fram-
leitt aðeins fyrir heimamarkað, hafa
látið til skarar skríða á undanförn-
um misserum og hafið útflutning á
afurðum sínum. Kostnaður innan-
lands í samanburði við kostnað í
samkeppnislöndunum hefur þróast
innlendum framleiðendum í hag og
gert þeim kleift að róa á ný mið
og bjóða vöru sína á samkeppnis-
hæfu verði. Þótt þetta sé enn ekki
í stórum stíl þá eru hér á ferð vaxt-
arbroddar sem ber að hlúa að. í
þessu leynast mörg tækifæri sem
geta þegar fram líða stundir fært
verulega björg í bú.
Ef þess verður gætt að halda
góðum samkeppnisskilyrðum í horf-
inu má búast við frekari markaðs-
sókn og landvinningum hjá íslensk-
um útflytjendum vöru og þjónustu.
Auk þess tryggir það þann árangur
sem þegar hefur náðst. Á hinn bóg-
inn, ef við leyfum röskun á starfs-
skilyrðum þannig að kostnaðarhlut-
föll rjúki upp með gamla laginu um
leið eða áður en skriður er kominn
á efnahagsbatann, þá fer árangur-
inn fyrir lítið. Við gætum þá átt
von á að missa markaði sem við
höfum náð, í sumum tilfellum með
ærinni fyrirhöfn. Jafnframt fer for-
görðum einstakt tækifæri til að
skjóta traustum stoðum undir efna-
hagsstarfsemina og óvíst er hvenær
atvinnulífið nær aftur viðunandi
stöðu. Það er því lykilatriði þegar
fram líður að halda verðlagsþróun
hér á landi í skefjum. Kostnaður
má ekki hækka meira hér en í helstu
samkeppnislöndum.
Mikilvægi þrautseigju
Islendingar mega ekki heykjast
á þeirri fyrirætlan að standa vörð
um stöðugleikann. Við þurfum að
ná víðtækri sátt um hvemig þjóðar-
búskapnum er best borgið og með
hvaða hætti unnt er að viðhalda
hagstæðum rekstrarskilyrðum. Á
því byggist von okkar um traustan
efnahagsbata, ný störf og bætt líf-
skör í framtíðinni.
Höfundur er hagfræðingur
Samtaka iðnaðarins.
Haqstætt
verð
SINDRI
- sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 ■ SÍMI562 72 22
wiol
Miðstöðvardælur
i
t
i
i
t
>
í
!
i
i
t
i
Í
i
i
l
i
i
l
t-
i
I
i
i
Í
Í
i
i
i