Morgunblaðið - 09.02.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995 9
FRÉTTIR
Héraðsdómur dæmir STEF í hag í máli gegn Háskólabíói
Greiðsla vegna réttar höf-
undar kvikmyndatónlistar
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt Háskólabíó til að greiða
STEF, Samtökum tónskálda og eig-
enda flutningsréttar, fyrir hönd
Sigurðar Rúnars Jónssonar, 357
þúsund krónur með dráttarvöxtum
í greiðslur fyrir flutning tónlistar í
kvikmyndinni Karlakórinn Hekla,
sem sýnd var í bíóinu frá desember
1992 til júní 1993. Til þessa hefur
kvikmyndahúsið aðeins greitt fyrir
flutning tónlistar í erlendum kvik-
myndum.
Sigurður Rúnar tók að sér að
semja tónlist í kvikmyndina og fékk
Útflutning-
ur hrossa
eykstenn
FLUTT voru út 2.758 hross á árinu
1993. Þetta er umtalsverð aukning
frá árinu áður þegar flutt voru út
2.485 hross. Söluaukning er á öllum
mörkuðum, en eins og undanfarin
ára fer um helmingur hrossanna til
Þýskalands.
Útflutningur á hrossum hefur
aukist ár frá ári síðustu ár. Að
mati Félags hrossabænda er orðið
nauðsynlegt að stuðla að markaðs-
setningu í Þýskalandi þar sem
kaupendur kalli á meiri kennslu í
meðferð hrossanna.
Svíar halda sláturskatti
Við inngöngu Svíþjóðar í lagðist
18% tollur á hross sem flutt eru til
Svíþjóðar, en það er sami tollur og
greiddur hefur verið af hrossum
sem flutt hafa verið til Þýskalands.
Félag hrossabænda er afar óánægt
með að Svíar skuli ekki hafa fellt
niður sláturskatt á hvert hross við
inngöngu í ESB, en skatturinn
þekkist hvergi innan ESB.
Félagið er einnig óánægt með
að við tilkomu GATT-samkomu-
lagsins hafi Norðmenn hækkað
sláturskatt úr 400 norskum krónur
á hest í 15.000 norskar krónur.
Félagið telur að hér sé um hreina
viðskiptahindrun af hálfu Norð-
manna að ræða sem íslendingar
hljóti að mótmæla.
greitt fyrir samningu hennar frá
framleiðanda myndarinnar, sem
jafnframt fékk heimild til að taka
hana upp á kvikmyndafilmur. í
samningi framleiðandans, Kvik-
myndafélagsins Umba, við Há-
skólabíó um sýningu kvikmynd-
arinnar var hins vegar ekkert kveð-
ið á um greiðslur til Sigurðar Rún-
ars fyrir flutning tónlistar í kvik-
myndinni.
Eingöngu rétt til að taka upp
Sigurður Rúnar Jónsson hélt því
fram að hann hefði eingöngu fram-
selt Umba rétt til að taka tónlistina
upp á filmu en ekki rétt til að flytja
tónlistina opinberlega, hvorki í
kvikmyndahúsum né annars staðar
og það staðfesti Kvikmyndafélagið
Umbi fyrir sitt leyti.
Sigurður byggði m.a. sinn rétt á
því að STEF hafi með samningi við
Félag kvikmyndahúsaeigenda veitt
kvikmyndahúsaeigendum heimild
til að flytja opinberlega hvert það
tónverk sem STEF fari með flutn-
ingsrétt að gegn endurgjaldi sem
nemi 1,4% af tekjum af aðgöngu-
miðasölu að frádregnum opinberum
gjöldum. Aðgangseyrir að Karla-
kórnum Heklu nam alls 25,5 millj-
ónum króna og samkvæmt þvi
bæri honum 357 þúsund krónur
vegna flutnings hennar í kvik-
myndahúsinu.
Aldrei áður greitt vegna
íslenskrar mýndar
Fyrir hönd Háskólabíós var hald-
ið fram að samningur STEFs og
kvikmyndahúsaeigenda, sem gerð-
ur var 1958, hefði aðeins tekið til
erlendra kvikmynda, enda gerður á
tíma þegar framleiðsla íslenskra
kvikmynda var nánast óþekkt og
venja hafi verið að greiða ekki gjöld
vegna flutnings tónlistar í íslensk-
um kvikmyndum.
Frá 1980 hafi Háskólabíó sýnt
10 íslenskar kvikmyndir en aldrei
greitt höfundi vegna tónlistarflutn-
ings.
I niðurstöðum Helga I. Jónssonar
héraðsdómara var krafa STEFs
fyrir hönd Sigurðar Rúnars tekin
til greina og niðurstaðan m.a. rök-
studd með vísan til þess að fyrir
liggi að í samningi hans og Kvik-
myndafélagsins Umba hafi félagið
ekki gert tilkall til flutningsréttar
heldur hafi báðir aðilar litið svo á
að þau gjöld skyldu renna til höf-
undar og greiðast af þeim er seldu
aðgangseyri að kvikmyndinni.
Réttur innlendra ekki lakari
í samningi Félags kvikmynda-
húsaeigenda og STEFs séu skýlaus
ákvæði um heimild til flutnings tón-
verka í kvikmyndum án þess að
greint sé á milli íslenskra og er-
lendra kvikmynda.
Enda þótt nefndur samningur
hafi verið gerður áður en verulega
fór að kveða að innlendri kvik-
myndagerð sé það álit dómsins að
fráleitt sé að ætla að höfundar tón-
listar í íslenskum kvikmyndum eigi
að búa við lakari kjör en höfundar
tónlistar í erlendum kvikmyndum.
Auk kröfunnar, 357 þúsund krón-
ur, sem ber dráttarvexti, var Há-
skólabíó dæmt til að greiða 120
þúsund kr. í málskostnað.
-kjarnimálsins!
Nýjar, franskar vordragtir
Verð frá kr. 18.200
sími 622230
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14
Útsala - útsala
Komdu og prúttaðu
Við auglýsum ekki aukaafslátt og ekki
heldur verðhrun, heldur bjóðum við þér
að prútta.
Kafft á könnunni. Opld á laugard. kl. 10-16
nm
Eiðistorgi 13. 2. hæð,
yfir almenningstorginu,
sími 552-3970.
LAURA ASHLEY
Vömlistinn
1995
er kominn. Verð 480 kr.
Laugavegi 99, sími 16646.
Hljomsveitin STJÖRNIN
Grétar Örvars & Sigga Beinteins
Gulli Helga skemmtir
Gestasöng varar:
Björgvin Halldórsson og Bjarni Ara.
Miðaverð aðeins kr. 800.
Nýjung tyrir gesti Hátel íslands!
Barðapantanir á dansleikinn
i sima B87111 eftir kl. 20.00.
HOTELIÆAND
IVJawiarls o g
Sólarperlur sem geisla af glefli, **
náttúrufegurfl ug skemmtilegu mannlifi.
Marmarjs á Tyrklandsströndum hefur allt að
bjóða sem sólþyrstir íslendingar geta óskað sér og að auki
heilan menningarheim með glaestum fornminjum og merkri sögu.
BROTTFARARDAGAR: 25. maí; 1., 8. júní; 3., 10., 17. ágúst.
Kos er draumaeyja allra ferðalanga, töfraheimur sem er
grískari en allt sem er grískt. ,
BROTTFARARDAGAR: 21., 28. maí; 4. júní; 6., 13., 20., 27. ágúst; 3. september
Munið að Ijóka fjfrir 13.fBlji’úar
M lönd fjd’ir stafni"
Mnð einkasamuiuui við Spies uii Tjiereliuru
uefast nýir ferðamöuuleikar.
-Þar sem er ijainan þar erum virt.
5PJE5 Tjœreborg ^
ÚRVAL ÚTSÝN
Lá)!múla 4: sími 569 9300,
Hafnarfirði: stmi 565 23 66, Keflavik: sími 11353,
Selfossi: stmi 21666, Akureyri: stmi 2 50 00
- og bjá umboðsmömium um laná alll.
Meöalverfl fra;
68.263 kn
mann m.v. hjon oij 2 lioi
2-11 ára. i 2 vikur.
*lnnlfalið:
Flug, gisting og flugvallarskattar.
eítii sýningu Bjöigvins Halldóiss.