Morgunblaðið - 09.02.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. FBBRÚAR 1995 39
FRÉTTIR
Stöðumælagjöld
standi undir kostnaði
VEGNA fréttaflutnings að undan-
fömu um tillögur til breytinga á
gjaldskrá Bílastæðasjóðs er nauð-
synlegt að fram komi að markmið
breytinganna er fyrst og fremst að
fjölga „virkum" skammtímastæð-
um þar sem þörfin er mest, við
Laugaveg og í Kvos, segir í frétta-
tilkynningu frá Stefáni Haralds-
syni, framkvæmdastjóra Bílastæða-
sjóðs.
Auk þess tendur til að laga þjón-
ustu Reykjavíkurborgar á þessu
sviði að nútíma verslunarháttum
með þvi að beita gjaldskyldunni til
útvegunar skammtímastæða fyrir
viðskiptavini miðbæjarins til kl. 18
mánudaga til föstudaga og á versl-
unartíma á laugardögum.
Gjaldskrárbreytingin nær til
rúmlega 400 bílastæða af um 2.800
gjaldskyldum stæðum í miðborg-
inni. Engin breyting verður gerð á
tímagjaldi á um 2.400 bílastæðum
við stöðumæla í hliðargötum, miða-
mæla og í bílahúsum og verður lögð
áhersla á að kynna staðsetningu
■ DREGIÐ var í fyrra sinn í
AEG-KRAFT leik Efnaverk-
smiðjunnar Sjafnar 25. janúar
sl. Til að taka þátt í leiknum
þurftu þátttakendur að klippa
strikamerkingar af KRAFT-
þvottaduftspakka og senda til
Sjafnart en alls bárust hátt í 1.000
miðar. í vinninga voru ein AEG-
þvottavél og 5 AEG-kaffivélar.
Hinir heppnu vinningshafar voru
Sigrún Jóhnnasdóttir, Bugðu-
læk 6, Reykjavík, er hlaut þvotta-
þeirra og notkun svo allir sem vilja
njóta bílastæða á „gamla verðinu"
geti það hindrunarlaust.
Með framkvæmd tilagnanna yrðu
sköpuð enn betri skilyrði' fyrir upp-
byggingu atvinnustarfsemi í mið-
borginni. Auðveldara verður að fá
bílastæði „við dyrnar" eftir breyt-
ingarnar og notendur þeirra verða
ef til vill í enn meira mæli fólk sem
leggur megináherslu á hraða, góða
þjónustu og greiðan aðgang að
blómlegu mannlífí í aðlaðandi mið-
borg.
Auknar tekjur af rekstri bíla-
stæða munu duga til að greiða
skuldir Bílastæðasjóðs niður um 30
milljónir króna á árinu 1995 og er
þá gert ráð fyrir að í árslok verði
heildarskuldir sjóðsins um 800
milljónir. Fyrirhugaðar breytingar
eru þannig í anda þeirrar stefnu
að notendur þjónustunnar greiði
kostnaðinn við hann án niður-
greiðslna úr sameiginlegum sjóði
Reykvíkinga.
vélina, en kaffivélar hlutu Þóra
Jónsdóttir, Reykjaheiðarvegi 10,
Húsavík, Halla Einarsdóttir,
Dalsgerði ld, Akureyri, Hrafn-
hildur Magnúsdóttir, Æsufelli
7, Reykjavík, Páll Helgi Buch,
Einarsstöðum, Reykjahverfi, S.-
Þing. og Bára Ólsen, Beykilundi
3, Akureyri. Vinningar voru af-
hentir vinningshöfum föstudaginn
27. janúar hjá Sjöfn í Garðabæ.
Dregið verður í seinna skiptið 28.
febrúar nk.
■ VINALÍNU Rauða kross ís-
lands var á dögunum færður að
gjöf litprentari. Nýherji hf. gaf
þessa gjöf sem er að andvirði u.þ.b.
50.000 kr. Þetta er í annað sinn
sem Nýheiji hf. styrkir Vinalínuna
með gjöf því áður höfðu þeir gefið
Vinalínunni tölvu. Á myndinni sést
framkvæmdastjóri Nýheija, Erling
Ásgeirsson (t.v.), afhenda formanni
Vinalínunnar, Þorfinni Guðbjarts-
syni, prentarann.
■ FRAMSÓKNARMENN í
Reykjaneskjördæmi hafa opnað
aðalkosningaskrifstofu sína_í Bæjar-
hrauni 22 í Hafnarfirði. í febrúar
verður kosningaskrifstofan opin
virka daga kl. 16-20 og á laugar-
dögum kl. 10-16. Kosningastjóri er
Arinbjöm Vilþjálmsson, arkitekt.
Bréfdúfusýning
í FJÖLSKYLDU- og húsdýra-
garðinum í Laugardal mun Bréf-
dúfufélag Reylqavíkur standa að
bréfdúfnasýningu laugardaginn
11. febrúar og sunnudaginn 12.
febrúar.
í fréttatilkynningu segir að á
sýningunni verði dæmdar helstu
kappflugsdúfur landsins. Keppt
verður til verðlauna í fjóram
flokkum og verða fuglamir
dæmdir eftir alþjóðlegum stöðl-
um. Sérstök sýning verður á eldri
keppnisfuglum og verðlauna-
gripir í íþróttinni verða einnig
til sýnis.
Sýningin verður haldin í nýja
hreindýrahúsinu í Húsdýragarð-
inum laugardaginn frá kl. 15-18
og sunnudaginn frá kl. 10-18.
Foreldrar hafa áhyggj-
ur af verkfalli kennara
SAMFOK, Samband foreldrafélaga í grunnskólum Reykjavíkur, skorar
á samninganefndir ríkis og kennarafélaga að ljúka kjarasamningum hið
fyrsta. Á sijómarfundi samtakanna komu fram alvarlegar áhyggjur af
yfírvofandi verkfalli kennara og var eftirfarandi ályktun samþykkt:
„Samfok (Samband foreldrafélaga
í grunnskólum Reykjavíkur) leggur
ríka áherslu á að ekki komi til
verkfalls í skólum landsins. Til
þess að koma í veg fyrir verkfall
þarf að ganga frá samningum við
kennara fyrir 17. febrúar nk. Sam-
fok skorar því á samninganefndir
ríkis og kennarafélaga að ganga
af einurð til viðræðna og ljúka
samningum hið fyrsta.
Á foreldrum hvílir sú lagalega
skylda að senda börn sín í skóla.
Stjórnvöldum ber því að halda skól-
um landsins starfandi. Kröfur for-
eldra um úrbætur í skólamálum
eru raunverulegar. Hæst ber kröf-
una um aukin gæði í skólastarfí.
og einsetinn grunnskóla með
lengdum skóladegi. Sterk sam-
staða er orðin um réttmæti þeirrar
kröfu. Ein af forsendunum fyrir
einsetnum skóla er að vinnutími
kennara sé skilgreindur upp á nýtt
og til þess að þróun í skólamálum
geti haldið áfram á íslandi er nauð-
synlegt að endurskoða hlutverk og
starf kennarans.
Samfok leggur ríka áherslu á
að það sé ekki á úrræðalista for-
eldra bama í grunnskóla að þau
séu alein heima. Falli niður kennsla
í skólum mun það hafa ófyrirséðar
afleiðingar fyrir allt skólastarf en
einnig víðtæk áhrif á alla aðra
starfsemi í landinu.
Samfok biður samninganefndir
ríkis og kennarafélaga að semja í
tæka tíð og tryggja þannig nem-
endum að skólaganga þeirra verði
með eðlilegum hætti.“
200 landar á Stones
UM 200 íslendingar verða á tón-
leikum Rolling Stones í Kaup-
mannahöfn 11. júní nk. á vegum
Samvinnuferða Landsýnar.
Allir miðar í ferðina seldust upp
á einum degi en tekist hefur að
útvega nokkra miða. og gistingu
til viðbótar. Þeir verða seldir á
næstu dögum en verðið er rúmlega
40 þús. kr. á mann. Flogið er til
Kaupmannahafnar 10. júní og
heim aftur 12. júní.
Gríðarlegur áhugi hefur verið á
tónleikaferðum á vegum Sam-
vinnuferða Landsýnar og næsta
ferð verður til Parísar á tónleika
Eric Claptons 21. apríl nk. Verð á
mann í þeirri ferð er 43 þús. kr.
Tónleikar með REM í Englandi
verða svo 30. júlí.
Fyrirlesari
frá Svíþjóð
í heimsókn
JOHNNY Fog-
lander frá söfn-
uðinum Livets Ord
í Uppsölum, Sví-
)jóð, verður gest-
ur safnaðarins
Orðs lífsins í
Reykjavík dagana
10.-12. febrúar.
Hann heldur fjöl-
skyldunámskeið
föstudaginn 10. febrúar kl. 20 sem
höfðar bæði til einstaklinga og
hjóna og almennar samkomur verða
með honum laugardaginn 11. febr-
úar kl. 20.30 og sunnudaginn 12.
febrúar kl. 11.
Johnny hefur verið einn af föst-
um kennurum biblíuskólans Livets
Ord Bibelcenter í Uppscilum frá
stofnun skólans. Þar eru íslending-
ar við nám núna og margir hafa
sótt skólann í gegnum árin.
Hann hefur einnig skrifað bæk-
umar Réttlæti og Veldu réttan
maka sem komið hafa út á sænsku.
Einnig ferðast hann mikið, bæði í
Svíþjóð og til annarra landa til að
kenna og predika.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfír á Grensásvegi 8, Reykja-
vík.
-----» ♦ 4-----
Landssamtökin
heimili og skóli
Aðalfundur
haldinn í kvöld '
HEIMILI og skóli, ein stærstu hags-
munasamtök barna og unglinga,
standa þessa dagana fyrir bama-
og unglingaviku sem stendur til 12.
febrúar.
í kvöld, fímmtudaginn 9. febr-
úar, verður haldinn aðalfundur
Heimilis og skóla. Á fundinum verð-
ur vettvangur fyrir foreldra til að
móta stefnu og styrkja samstöðuna.
Fundurinn verður haldinn í Litlu
Brekku við Lækjargötu kl. 20.30
undir yfírskriftinni Foreldrar, hvert
viljum við stefna?
» ♦ ♦----
Stálujeppa
LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir
eftir númerslausum rauðum jeppa
með grárri rönd á hliðum, sem stol-
ið var frá húsi við Dalshraun þar í
bæ aðfaranótt þriðjudags.
Um er að ræða jeppa af gerðinni
GMC Jimmy, árgerið 1973. Verið
var að gera bílinn upp og var hann
óökufær og þykir því ljóst að hann
hafi verið dreginn á brott frá stæði
sínu við Dalshraun.
Lögreglan óskar eftir að komast
í samband við þá sem hafa orðið
þessa bíls varir síðan.
Johnny
Foglander
BBIPS
Ums jón Arnór G .
Ragnarsson
Dagskrá
Bridshátíðar
BRIDSHÁTÍÐ verður sett kl. 9.00
föstudagskvöldið 10. febrúar. Tví-
menningskeppnina, sem er Hip-
Hop tvímenningur með þátttöku
72 para, þijár 30 spila lotur alls
90 spil, hefst að lokinni setningu
og verður spilað til 24.00 á föstu-
dagskvöld. Klukkan 11.00 á laug-
ardagsmorgun efst önnur lota sem
stendur til 15.30 og þá er klukku-
tíma matarhlé og spilamennska
hefst aftur kl. 16.30 og tvímenn-
ingskeppninni lýkur kl. 21.00.
Verðlaunaafhending verður að lok-
inni sveitakeppninni, mánudags-
kvöldið 13. febrúar, kl. 20.00. Þrjú
efstu pörin fá verðlaunagripi til
eignar og átta efstu pörin hljóta
peningaverðlaun;
1. verðlaun 2.900 $ — 2. verðlaun
2.000 $ — 3. verðlaun 1.400 $ —
4. verðlaun 1.000 $ — 5. verðlaun
600 $ — 6. verðlaun 400 $ —
7. verðlaun 200 $ - 8. verðlaun
100 $ — Samtals 8.600 $
Opna Flugleiðamótið í sveita-
keppni hefst kl. 13.00 sunnudaginn
12. febrúar. Spilaðar verða 10
umferðir með 10 spila leikjum.
Sveitum verður raðað saman eftir
Monradfyrirkomulagi, þ.e. sveitir
með svipaðan stigafjölda eigast við.
Sex umferðir verða spilaðar á
sunnudag með matarhléi eftir 4
umferðir kl. 19, og byijað á ný kl.
20.30. Sveitakeppninni verður
haldið áfram kl. 13.00 mánudaginn
14. febrúar og spilaðar fjórar síð-
ustu umferðirnar. Spilamennsku
lýkur kl. 19.15 og verður verð-
launaafhending fyrir báðar keppn-
imar kl. 20.00.
Fyrirliðar sveitanna fá í upphafí
móts eyðublöð þar sem úrslit hverr-
ar umferðar em skráð og er áríð-
andi að þessum eyðublöðum sé
skilað til keppnisstjóra um leið og
Úrslitin hafa verið reiknuð út til
þess að hægt sé að birta stöðu í
mótinu. Á þessi blöð em einnig
færð gullstig spilaranna og em
fyrirliðar beðnir að merkja greini-
lega hveijir spiluðu viðkomandi leik
og muna að setja kennitölur allra
spilaranna á blaðið.
Efsta sveitin fær verðlaunagripi
til eignar og varðveitir Flugleiða-
bikarinn næsta árið. Að auki hljóta
fímm efstu sveitimar peningaverð-
laun;
1. verðlaun 2.800 $ — 2. verðlaun
1.800 $ — 3. verðlaun 1.000 $ —
4. verðlaun 600 $ — 5. verðlaun
200 $ — Samtals 6.400 $
Valdir leikir úr Opna Flugleiða-
mótinu verð sýndir á sýningartöflu
í Audiatorium. Tilkynnt verður
jafnóðum hvaða sveitir eigast við
í töfluleikjum og fer það eftir stöðu
i mótinu. Áhorfendum er einnig
heimilt að horfa á við spilaborðin
í opnum sal en þeir em vinsamlega
minntir á að fara eftir settum regl-
um.
Reykingar eða önnur tóbaks-
neysla er ekki leyfð í spilasölunum.
Keppnisstjórar á Bridshátíð eru
Kristján Hauksson, Sveinn R. Ei-
ríksson og Einar Guðmundsson.
Reiknimeistarar em Sveinn R. Ei-
ríksson og Kristján Hauksson.
Mótsstjóri er Elín Bjarnadóttir.
Bridsfélagið Muninn
Sandgerði
Einu kvöldi er ólokið í sveita-
keppni sem staðið hefir yfir hjá
félaginu. Spilað er eftir Monrad,
tveir 14 spila leikir á kvöldi.
Staða efstu sveita:
Jón Erlingsson hf. 79
Hraðlestin 67
Guðjón Óskarsson 62
Svala Pálsdóttir 62
Tveir x tveir 62
Haffang 61
Bjöm Dúason 60
Aðaltvímenningur vetrarins
hefst 15. febrúar. Keppnisstjóri er
ísleifur Gíslason.