Morgunblaðið - 09.02.1995, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________IMEYTEIMPUR___________________________
Vísir að verðstríði milli sölutuma og pylsusala í miðbæ Reykjavíkur
PYLSA úr pylsusjoppu er ekki endilega eins og
sú sem keypt er úti í búð.
, Morgunblaðið/Árni Sæberg
I MIÐBÆ Reykjavíkur er pylsuverð sums staðar komið í 99 krónur.
Pylsuverð lækkar víða
Pylsa í brauði er sums staðar komin í 99 krón-
ur. Brynja Tomer heyrði hljóðið í pylsusölum
og spurði talsmenn Sláturfélags Suðurlands
hvers vegna ekki væru sömu pylsur í matvöru-
búðum og pylsusjoppum.
VERÐ á pylsum í brauði
hefur frekar lækkað en
hækkað að undanfömu
og í miðbæ Reykjavíkur
má segja að vísir sé að verðstríði
milli sölutuma og pylsusala. í sam-
tali við eigendur kom fram að pylsu-
sala hefði dregist saman að undan-
fömu og með því að lækka pylsu-
verð eða halda því óbreyttu mánuð-
um og jafnvel árum saman vildu
þeir hvetja til aukinnar neyslu.
Sumum pylsusölum var hjartans
mál að koma því á framfæri að
þeir seldu pylsur með „ekta“ göm,
en þótt flestir bæti einhveijum
bragðgjöfum í soðvatnið, vildu
fæstir gefa upp hvert „leyndarmál-
ið“ væri. Meðal þeirra sem selja
pylsur með „ekta göm“ eru pylsu-
vagninn Bæjarins bestu við
Tryggvagötu, Svarti svanurinn við
Hlemm, Ömólfur að Snorrabraut
48 og sölutuminn Lækur að Lækj-
argötu 2.
Óbreytt verð
Ámm saman hefur pylsan kostað
130 kr. í Svarta svaninum við
Hlemm, en á Bæjarins bestu og í
Læk er hún seld á 140 krónur.
Reyndar hækkar pylsuverð í 150
kr. á nætuma í Læk. Pylsan kostar
140 kr. í sölutuminum Hafnar-
stræti. í sölutuminum Velli, Aust-
urstræti 8 hefur pylsan kostað 120
kr. síðustu mánuði og stendur ekki
til að lækka verðið. í Fröken
Reykjavik í Austurstræti 24 kostar
hún 100 kr. og hefur verð verið
óbreytt sl. 2 ár. 2 ár. Auk tómats-
ósu og sígilds meðlætis em á boð-
stólum aðrar sósur, kokteil, chili,
salsa og taco-sósa.
Þeir hafa lækkað
í Ömólfi, Snorrabraut 48, var
pylsuverð lækkað úr 140 kr. í 99
kr. fyrir rúmum þremur vikum og
segir eigandinn, Svavar Njarðarson
að hann vilji með því höfða til yngri
aldurshópa. Hann kveðst hafa orðið
var við að pylsusala hefði færst til
þeirra sem seldu þær á lægra verði.
„Salan hefur aukist um helming hjá
mér eftir að ég lækkaði verðið. Ef
mikið pylsumagn fer um suðupott-
inn, verður suðuvatn betra og pyls-
urnar líka. Þess vegna sel ég bæði
betri og ódýrari pylsur nú en áð-
ur.“ í Pylsuvagninum í Austur-
stræti er pylsuverð einnig 99 kr.
og á skilti á vagninum kemur fram
að um tilboð er að ræða. Nánast
beint á móti Pylsuvagninum er
Fröken Reykjavík með pylsur sínar
á 100 kr. og handan homsins, í Læk
við Lækjargötu, er verðið orðið 40%
hærra.
Pylsa og gos
í söluturninum Grettisgötu 64
kostar pylsa 130 kr. en sé keyptur
'/2 lítri af Pepsi með kostar það
samtals 150 kr. og í Sölutuminum
Hringbraut 14, Hafnarfirði kostar
pylsa og '/2 lítri af kók 180 kr.
Ekta görn
Ari Guðmundsson eigandi sölu-
tumsins Læks við Lækjargötu segir
að pylsur með ekta göm, eins og
hann selur, dragi betur í sig kraft
sem bætt er í suðuvatnið. Hann
segir að ein leið til að sjá hvort
ekta göm heldur kjötfarsinu saman
sé að skoða hvort pylsa er bein eða
bogin. „Pylsur með ekta göm bogna
við suðu en hinar haldast beinar."
Auðunn Hinriksson eigandi
Svarta svansins segir ekta görn á
pylsum gera gæfumuninn. „Hinar
em seigari og því erfiðara að bíta
þær í sundur." Hann segist engan
kraft setja í suðuvatnið. „Ég sel
mjög mikið af pylsum og suðuvatn-
ið dregur í sig pylsubragð, sem
skilar sér aftur í pylsur sem soðnar
eru yfir daginn.“
Aðrar pylsur í matvörubúðum
Hjá Sláturfélagi Suðurlands
fékkst staðfest að pylsur með nátt-
úrulegri lambagörn, eins og sumir
pylsusalar stæra sig af, eru ekki
seldar í neytendapakkningum í
matvömverslunum.
Finnur Árnason markaðsstjóri
hjá SS var spurður hvers vegna
kaupendum væri mismunað með
þessum hætti.
„Slátmn er minni nú en áður og
íslenskar lambagarnir nægja ekki
fyrir alla pylsuframleiðslu fyrirtæk-
isins. Við kaupum inn tilbúnar garn-
ir, sem framleiddar em úr eggja-
hvítuefnum úr nautshúð. Þær em
notaðar fyrir pylsur sem fara í neyt-
endaumbúðir. Kjötfylling í þeim og
hinum, sem hafa íslenska lamba-
göm er nákvæmlega eins, en með
því að nota innfluttu garnirnar get-
um við tryggt jöfn gæði og staðlaða
framleiðslu árið um kring. Áður en
görn er notuð utan um pylsu fer
hún í gegnum mikla véla- og efna-
hreinsun, sem gerir að verkum að
eftir verður örþunn og náttúruleg
himna.“
Þróun í framleiðslu
Finnur segir að fyrir tveimur
árum, þegar byijað var að nota til-
búnar erlendar gamir hafí ýmsir
byijunarörðugleikar komið í ljós.
„Sumar þóttu til dæmis of seigar,
en mikil þróun hefur orðið í fram-
leiðslu á eggjahvítugörnum og nú-
orðið er vart greinanlegur nokkur
munur á þeim og lambagörnum.“
Sláturfélag Suðurlands er stærsti
pylsuframleiðandinn hér á landi og
framleiðir þijár gerðir af Vínarpyls-
um, með lambagöm fyrir pylsusala,
með eggjahvítugörn fyrir matvöru-
verslanir og einnig rauðar pylsur
fyrir matvömverslanir. Steinþór
Skúlason forstjóri S.S. segir að
sama kjötfylling sé notuð í allár
þessar pylsutegundir og þótt nánast
enginn munur sé á lambagörn og
eggjahvítugörn, séu eiginleikamir
ólíkir.
Munur á ekta og óekta
„Almennt þykir fínna að nota
náttúrulega afurð en tilbúna og því
má segja að pylsa með lambagörn
sé fínni. Lambagörn hefur þá kosti
fyrst og fremst að þola að liggja
lengi í vatni, en það skiptir miklu
meira máli í pylsusjoppu en í heima-
húsi. Gallinn við lambagamir er
aðallega að þær em breytilegar,
eins og aðrar náttúrulegar vömr.
Framleiðsla á lambagörn getur því
aldrei verið algerlega stöðluð. Okk-
ur finnst nauðsynlegt að pylsur í
neytendaumbúðum séu alltaf eins
og þess vegna henta eggjahvítu-
gamir betur fyrir þann markað."
' tilboðin
KJÖT & FISKUR QILDIR FRÁ 9. TIL 16. FEBRÚAR
Lambahryggur kg 558 kr-1
Folalda beikon buff 319 kr.
Svínahnakki ísneiðum 695 kr.l
Súrmaturífötum 895 kr.
jl 0 stk. lítil Prins Póló 195 kr.l
5 stk. stór Prins Póló 195 kr.
6 x 200 g Maryland kex 499 kr.j
Bakalon baunir400g 37 kr.
10-11 BÚÐIRNAR QILDIR FRÁ 9. TIL 16. FEBRÚAR Lambalæri og hryggur kg 548 fcr.i
Úrvals kindabjúgu kg 485 kr.
Borgarnes skinka kg 798 krl
Tiíboðs franskar kart. 700 g 99 kr.
Emmessís Daim 11 258 H
Fyrirtaks lasagne 750 g 368 kr.
Freyju bombur 115 kr.]
Panténe sjampó + hárnæring 2 stk. 399 kr.
FJARÐARKAUP
_________OILPm FKÁ 9.-10. FEBUÚAB
Lambaframpartur kg 298 kr.
Úrb. iambaframpartur kg ~ ^798107
Kindabjúgu kg 398 kr.
Svínaskinka kg 798 kr.
Pizzur 600 fl ' ~ 189 kr.
Svinakótelettur (frosnar) kg 699 kr.
Súkkulaðihafrakex 250 g 77 kr.
Blómkál kg ~ 99 kr.
BÓIMUS
Sérvara f Holtagörðum
Bost skálar3stk.
179 kr.
Brauðgéýmslukassi
Taukörfur verð frá
Hillur 3 stk. með hjóium
Eldhúsrúllustandur
Barnaherðatré 10 stk.
Blómaúöabrúsí
TungsperurlOstk.
697 kr.
297 kr.
459 kr.
59 kr.
159 kr.
275 kr.
399 kr.
Sjófryst ýsuflök
HAGKAUP er með sjófryst ýsuflök á
tilboðsverði, kílóið kostar 289 krónur.
Blómkálskílóið er selt á 77 krónur í
Fjarðarkaupum og lambahrygg er
hægt að kaupa í Bónus á
489 krónur kílóið. Þeir
sem vilja kaupa skinku
á tilboðsverði geta Iagt
leið sína í 10-11 búð því
þar kostar kíló-
ið af Borg-
farnes
skinku 798
krónur.
BÓNUS
GILDIR FRÁ 9. TIL 16. FEBRÚAR
299 kr.j
blandað hakk lamba/nauta kg 439 kr.
Gunnars kleinuhringir 4 stk. 95 k'r.]
Saítsburgerpylsa kg 299 kr.
Saltaðfoladakjöt kg 249 kr.i
Lambahryggir D1 a kg 489 kr.
Bónus appelsín 21 85
J. tekex2 pakkar 67 kr.
GARÐAKAUP QILDIR TIL 12. FEBRÚAR
Kuldagallar XXL 4.800 kr.j
Palmolive sjampó 3 gerðir 300 mí 219 kr.
' Hreinsuð svið 279 kr. |
Folaldahakk kg 230 kr.
Luxussveppir475g 79 kr.
UncleBen’spastasósa&Barillaspagh. 199 kr.
HAGKAUP Skeifunnl, Akureyri, Njerðvfk, Kringlunni - QILDIR FRÁ 9. TIL 16. FEBRÚAR matvara
Hagkaups grape 21 Marska sjófryst ýsuflök kg "~89 kr.j 289 kr.
Paxorasp 140g 45 kr.!
Spænskir tómatar kg. 139 kr.
Hollenskt kínakál kg 129 kr.
MS skyr, 3 tegundir 500 g 129 kr.
Brink súkkulaðikremkex 250 g 59 kr.i
11-11 BUÐIRNAR
QILDIR FRÁ 9. TIL 16. FEBRÚAR
Krydduð hálf lambalæri kg. 698!
Goða sveitabjúgu kg 298 kr.
I Swiss Míss heitur sukkuíaöidfykkur 567 g339 kr.
Everyday spaghetti í dós 420 g 39 kr.
Eldhúsrúilur 4 stk. 159 kr.
Surna kaffi 400 g 248 kr.
Pepsi Cöla 21 119 kr.
RÚMFATALAGERINN
Þvottapokar 1 stk. 29 kr.j
Handklæði 1 stk. 150 kr.
Herrasökkar, i par 199 kr.j
Pílukast 1.500 kr.
KASKO KEFLAVÍK HELGARTILBOÐ
F: -. . _ ___ 1
Lambahryggurkg 599 kr.
Everyday þvottaefni 1.2 kg Everyday bakaðar baunir 420 g 119 k>Tj 37 kr.
[Everyday spaghetti 410 g 35 kr.j
Éveryday handsápur 6 stk. 69 kr.
Salernisrúllur16stk. 278 kr.j
Opal trítlar 200 g 129 kr.
SKAGAVER AKRANESI HELQARTILBOÐ
[Engjaþykkni 45 kr. |
Rauð epli kg 95 kr.
Mandarínur 99 kr.; Þantene-Pio-v sjampó og hárnæring 2 gi.469 kr.
[ Rúllutertubrauð 139 kr.j
Iþróttasokkar, 5 pör 440 kr.
;Jogginggallar3litir 2,990 kr.j
ÞÍN VERSLUN Plúsmarkaðir Grafarvogl, Grímsbæ og Straumnesl, 10/10 Hraunbæ, SuAurveri og Norðurbrún, Austurver, Brelðholtskjör, Garðakaup, Melabúðin, Hornið, Selfossl, og Sunnukjör. VIKUTILBOÐ 9. TIL16. FEBRÚAR
Goöa-saltkjöt2fl. 249 kr.l
Samsölu-hvítlauksbrauð, fín og gróf Emmess 10stk. 95 195 kr.
Vanillustangir Emmess 10 stk. 275 krl
Óska-jógúrt með ávöxtum 180 g 35 kr.
j Mentadent tannkrem og bursti 239 kr.j
Nýmjólk og léttmjólk 11 57 kr.