Morgunblaðið - 09.02.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995 31
AÐSENDAR GREINAR
Góður skilningur og
skjót viðbrögð
Páll B.
Ingimarsson
Tilefni
HUGMYNDIR fé-
lagsmálaráðuneytisins
að flytja rekstur
þriggja sambýla og
skammtímavistunar
einhverfra yfir á svæð-
isskrifstofur um mál-
efni fatlaðra.
Jákvæð þróun
í þjónustu
einhverfra
Jákvæð þróun hefur
átt sér stað í fjölþættri
þjónustu við ein-
hverfa, sem spannar
allt líf þeirra. Má þar
nefna greiningu fötlunarinnar, sér-
hæfða meðferð á heilbrigðisstofn-
un, leikskóla, skammtímavistun,
sérdeildir og sérskóla á grunnskóla-
stigi, sambýli og atvinnumál. Þjón-
usta við einhverfa felur auk þess í
sér símenntun og þjálfun fyrir þá
einhverfa sem eldri eru og starfs-
fólk sem vinnur með þeim, tóm-
stundir, sértæka heilbrigðisþjón-
ustu, foreldrasamstarf og stuðning
við foreldra og aðra aðstandendur.
Með aukinni þekkingu og reynslu
á einhverfu hefur skilningur á
málefnum einhverfra vaxið meðal
þeirra sem tengjast þessari fötlun.
Ekki er hægt að líta fram hjá
þeirri staðreynd að ár hvert má
gera ráð fyrir að fjögur börn að
meðaltali greinist með einhverfu.
Umfang og margbreytileiki þjón-
ustunnar við einhverfa eykst. Slíkt
krefst stöðugt aukinnar þjónustu
og ekki síst samhæfingar allra
þeirra aðila sem vinna að málefn-
um einhverfra, ásamt skýrari
markmiðslýsinga og framtíðará-
ætlana.
Framtíðarstefna í málefnum
einhverfra
Umsjónarfélag einhverfra hefur
margítrekað við félagsmálaráðu-
neytið nauðsyn þess að marka
skýra framtíðarstefnu í málefnum
einhverfra. Forsenda slíkrar
stefnumótunar er m.a. heildarút-
tekt á stöðu einhverfra á íslandi í
dag og áætluð þjónustuþörf ein-
hverfra í nánustu framtíð. Samtím-
is hefur Umsjónarfélagið lagt
þunga áherslu skipan nefndar, sem
sæi um framkvæmd málsins.
Framtíð þriggja sambýla og
skammtímavistunar fyrir
einhverfa
Allt frá stofnun Umsjónarfélags
einhverfra 1977 hafa samskiptin
við félagmálaráðuneytið nást und-
antekningalaust verið með ágæt-
um. Skilningur Umsjónarfélagsins
á slíkum samskiptum er m.a. sá
að allar mikilvægar ákvarðanir er
varða málefni einhverfra séu tekn-
ar með vitund og vilja Umsjónarfé-
lags einhverfra og að undangeng-
inni ítarlegri umræðu milli þessara
aðila.
Eitt af samvinnuverkefnum
Umsjónarfélags einhverfra og fé-
lagsmálaráðuneytisins voru hug-
myndir ráðuneytisins um að færa
rekstur þriggja sambýla einhverfra
(í Reykjavík og á Seltjamarnesi)
undir svæðisskrifstofu um málefni
fatlaðra í Reykjavík og á Reykja-
nesi. Nánast samhliða var unnið
að samsvarandi flutningi reksturs
skammtímavistunar einhverfra (í
Reykjavík), þar sem Styrktarfélag
vangefinna sér um reksturinn.
Verði rekstri ofangreindra sam-
býla og skammtímavistunar ein-
hverfra falin svæðisskrifstofum um
málefni fatlaðra, óttast Umsjónar-
félag einhverfra að dregið verði
verulega úr áhrifum og tengslum
félagsins varðandi málefni þeirra
einhverfu einstaklinga sem hlut
eiga að máli. Auk þess telur félaer-
ið mikla hættu á ein-
hverfa veði sett undir
sama hatt og margs-
konar gerólík fötlun
og að þjónustan dreif-
ist á fleiri aðila. Svæð-
isskrifstofur eru stað-
settar víða um land.
Við slíkar aðstæður
yrði mjög erfitt að
veija, viðhalda og þróa
þá þekkingu og
reynslu á einhverfu,
sem byggist m.a. á
þrotlausu starfi
áhugasamra einstakl-
inga og hópa. Ótti og
áhyggjur Umsjónarfé-
lags einhverfra verða að skoðast í
ljósi þess að einhverfan er mjög
sértæk fötlun og torskilin. Öll þjón-
usta við einhverfa einstaklinga
krefst mikillar þekkingar, ná-
kvæmni, natni og reynslu. Þá telur
félagið mjög brýnt og eðlilegt að
ítarleg umræða fari fram um svo
Ég þakka félagsmála-
ráðherra afdráttarlausa
afgreiðslu málsins, segir
Páll B. Ingimarsson,
formaður Umsjónarfé-
lags einhverfra.
mikilvæga ákvarðanatöku sem yf-
irtaka svæðisskrifstofa á rekstri
þriggja sambýla og skammtíma-
vistunar fyrir einhverfa er.
Mál sambýlanna var sett í nefnd
skipaða fulltrúum félagsmálaráðu-
neytisins, svæðisskrifstofu um mál-
efni fatlaðra í Reykjavík og Um-
sjónarfélags einhverfra. Fljótlega
varð fulltrúi Umsjónarféiagsins
ljóst að félagsmálaráðuneytið virt-
ist vera búið að taka ákvörðun um
að færa rekstur sambýla og
skammtímavistunar einhverfra yfir
á svæðisskrifstofu - án vitundar
og samþykkis Umsjónarfélags ein-
hverfra. Um leið og þetta var ljóst
mótmælti Umsjónarfélagið
kröftuglega. Auk þess kom fram á
svipuðum tíma einróma ósk for-
eldra barna er nýta sér skamm-
tímavistun einhverfra um að
Styrktarfélag vangefinna sæi
áfram um reksturinn þar.
Eftir ítarlega umfjöliun fór Um-
sjónarfélag einhverfra þess á leit
við félagsmálaráðherra að fyrir-
huguðum breytingum yrði slegið á
irest. Það var fulltrúum félagsins
mikið fagnaðarefni er félagsmála-
ráðherrann, Rannveig Guðmunds-
dóttir, sýndi málefninu mikinn
skilning og tók þá afdráttarlausu
ákvörðun að fresta tilfærslu á
rekstri þriggja sambýla og skamm-
tímavistunar einhverfra yfir á
svæðisskrifstofu um óákveðinn
tíma.
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til félagsmálaráðherra fyrir
afdráttarlausa afgreiðslu málsins,
þar sem virt voru rök og áhyggjur
Umsjónarfélags einhverfra. Vissu-
lega er slíkur skilningur og stuðn-
ingur hvatning til frekari baráttu
fyrir alla einhverfa hér 'á landi.
Höfundur er formaður
Umsjónarfélags einhverfra.
AIG AIG A8G .
i M& ÁIG AEG AiG AEG ÁiG A£G AEG ASG ASG
AEG AEG AEG
AEG
i VelSö®
S ^étáOTa"'
◄ P/UM
Eldavél
Competence
5000 F-w:
60 cm -Undir
-og yfirhiti,
blástursofn,
blástursgrill, grill,
geymsluskúffa.
Verb kr. 65.415/
Undirborbsofn -
Competence 200 E - w.:
Undir- og yfirhiti, og grill.
Verð áður kr. 45.800,-
verb nú kr. 31.477,-
Þvottavél
Lavamat 920
VinduhraSi
700/1000 + áfanga
-vindingu,tekur 5 kg.,
sér hitavalrofi, sérstök
ullarforskrift, orku
-sparnaSar forskrift,
UKS kerfi (jafnar tau
í tromlu fyrir vindingu),
sér hnappur
fyrir viSbótar
skolun, orku-
notkun
2,0 kwst
á lengsta
kerfi
Verb kr. 85.914,-
BRÆÐURNIR
5)] ÖRMSSONHF
Uppþvottavél
Favorit 473 w
4 þvottakerfi
AQUA system
Fyrir 12 manns
VerS kr. 72.796,-
KæÍiskápur,
KS. 7231
nettólítrar, kælir 302 L,
orkunotkun 0,6 kwst
á 24 tímum heeS 155,
breidd 60, dýpt 60
VerS kr.68.322,-
Nýja KRAFT þvottaefnib
frá SJÖFN fylgir hverri vél,
taktu þátt í AEG-KRAFT leiknum I
■
ÞVOTTAVÉLUM
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi.
Guöni Hallgrfmsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal
Vestfiröir: RafbúÖ Jónasar Þór.PatreksfirÖI.
Rafverk, Ðolungarvlk.Straumur.lsafiröi.
Noröurland: Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavfk.
Kf, V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.
Skagfirölngabúð.Sauöárkróki. KEA byggingavörur,
Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvlk. Kf. Þingeyinga, Húsavík.
Urö, Raufarhöfn.
Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum.
Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi. Stál, Seyöisfiröi.
Verslunin Vík, Neskaupsstaö.
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn
Suöurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli.
Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell, Keflavik. Rafborg, Grindavík. FIT, Hafnarfiröl
Lágmúla 8, Sími 38820
EG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG
LUXUS
TERMÓ
Borgar fyrir
eina en
færð tvær!