Morgunblaðið - 09.02.1995, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N U A UGL YSINGAR
Hársnyrtistofa
óskar eftir hárskera, hárgreiðslusveini
eða hárgreiðslumeistara.
Upplýsingar gefur Jón í síma 623338
á daginn og í síma 670901 á kvöldin.
PÓSTUR OG SÍMI
óskar að ráða sem fyrst tölvunarfræðing á
háskólastigi eða kerfisfræðing frá Tölvuhá-
skóla Verzlunarskólans eða með sambæri-
lega menntun. Starfsreynsla æskileg.
Starfsmaðurinn verður með í þróun og upp-
byggingu gagnaforrita fyrir símaskrá
í samvinnu við aðra.
Leitað er að samviskusömum, nákvæmum
og samvinnuþýðum starfsmanni.
Umsóknir berist til starfsmannadeildar Pósts
og síma, Landssímahúsinu við Austurvöll,
þar sem frekari upplýsingar verða veittar.
Tölvumaður
DHL Hraðflutningar er hluti af stærstu
hraðflutningakeðju milli landa í heiminum,
en þjónustan nær til 221 lands. Að tryggja
skjóta og örugga þjónustu er sameiginlegt
markmið þeirra 33.000 starfsmanna er
starfa á þess vegum víðs vegar í heiminum.
Til að ná settu takmarki er notaður öflugur
tölvubúnaður til að tryggja góðan árangur.
Við leitum að ungum, þjónustulunduðum
tölvumanni til að leysa vandamál í og við-
halda kerfum fyrirtækisins, sem:
- getur tekið þátt í uppbyggingu tölvudeildar,
- er sjálfstæður, öruggur, kraftmikill og
skipulagður,
- hefur staðfesta þekkingu á IBM S/36 tölv-
um og umhverfi,
- hefur einhverja þekkingu á UNIX stýrikerfi,
- er vanur bókhaldskerfum,
- er með góða reynslu af PC tölvum,
- hefur góða enskukunnáttu,
- getur byrjað sem fyrst.
DHL býður þér starf við uppbyggingu nýrrar
tölvudeildar undir UNIX stýrikerfi, hjá kraft-
miklu fyrirtæki, þar sem þú færð möguleika
á að starfa með mest vaxandi aðflutninga-
keðju heimsins.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Umsóknin skal send til Ráðningarþjónustu
Hagvangs hf., Skeifunni 19, 108 Reykjavík,
merkt: „Tölvustjóri", fyrir 18. febrúar nk.
WORLDW/DE EXPRESS
VIÐ STÖNDUM VIÐ SKULDBINDINGAR ÞÍNAR
R AÐ AUGL YSINGAR
Hársnyrtistofa
Mjög góð hársnyrtistofa með aðstöðu fyrir
snyrtistofu á svæði 101 til sölu.
Upplýsingar í síma 621583 milli kl. 19 og 21.
Skattframtal -
skattútreikningur
Veitum framtalsþjónustu til einstaklinga og
rekstraraðila við framtalsgerð 1995.
Tölvuvædd þjónusta. Skattútreikningur fylgir
með greinargerð um tekjuskatt, útsvar, eign-
arskatt, barnabætur, barnabótarauka, vaxta-
bætur og útreikning yfir væntanlega stöðu
eftir álagningu. 20 ára reynsla. Sækjum um
frest ef með þarf. Pantið tíma strax.
Tölvubókhald,
Síðumúla 9 (fyrirofan Málog menningu),
108 Reykjavík, sími 689242, fax 682388.
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Réttarfars- og stjórnskipunarnef nd
Sjálfstæðisflokksins
Siðferði í stjórnmálum -
grundvöllur lýðræðis
Almennur fundur verður í kvöld í Valhöll
kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Stjórnmál - lög - siðferði.
Frummælandi: Sigurður Líndal,
prófessor.
2. Siöferði almennings.
Frummælandi: Stefán Ólafsson,
prófessor.
3. Er til pólitískt siðgæði?
Frummælandi: Gunnar Jóhann
Birgisson, héraðsdómslögmaður.
Fundarstjóri: Lára Margrét Ragnarsdóttir, alþingismaður.
Stjornin.
liriMDAI.IUK
F U S
Framtfðarhorfur
í menntamálum
( kvöld, fimmtudagskvöldið 9. febrúar, kl. 20.30 verður fundur á
vegum Heimdallar f.u.s., um framtíðarhorfur i menntamálum í Val-
höll, Háaleitisbraut 1. Á þessum fundi verður reynt að fá svör við
spurningum á borð við hvert stefni í íslenskum menntamálum, hver
þróunin verði I uppbyggingu menntakerfis landsins, hvort ríkisvaldið
auðveldi nám þegna landsins um of, hvort langskólagengnir íslend-
ingar séu að verða of margir, hversu umfangsmikið starfssvið H(
eigi að vera og hvort menntunin sé i samræmi við þarfir atvinnulífsins?
Frummælendur verða Jón Erlendsson, yfirverkfræðingur, Páll Kr.
Pálsson, framkvæmdastjóri og Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
dósent við Háskóla (slands.
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins
Málfundafélagið Sleipnir, Akureyri
Fundur
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins og Málfundafélagið Sleipnir á
Akureyri halda sameiginlegan fund laugardaginn 11. febrúar 1995
kl. 14.00 í Glerárgötu 32, Akureyri.
Fundarefni: Staðan í kjaramálum.
Framsögumenn: Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur og Elínbjörg Magnúsdóttir, varaformaður fisk-
vinnsludeildar Verkamannasambands (slands.
Fundarstjóri: Anna Blöndal.
Allir velkomnir.
Til leigu við Faxafen
200 fm gott verslunarhúsnæði. Rýminu fylg-
ir réttur á auglýsingaskilti á áberandi stað
við Miklubraut og Faxafen.
Sanngjörn leiga. Laust strax.
Upplýsingar í síma 587 8830.
70-100 fm verslunar-
húsnæði óskast til leigu
Óskum eftir 70-100 fm verslunarhúsnæði á
Laugavegi eða í Bankastræti.
Góð fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Upplýsingar í síma 553-1665 frá kl. 18-22.
jlýsingar
I.O.O.F. 11 = 17602098 =Bk.
□ HL(N 5995020919 VI 2 Frl
St. St. 5995020919 VII
I.O.O.F. 5 = 17629872 = F.R.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvist í kvöld, fimmtudaginn
9. febrúar. Byrjum að spila
kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir.
Fjallið
mannræktar-
stöð,
Sogavegi 108,
2. hæð,
sími 882722.
Opið hús
í kvöld kl. 20.30. Kynning á starfs-
fólki Fjallsins. Ókeypis aögangur.
Aðalfundur
Heimilis og skóla
veröur haldinn í Litlu Brekku
(Lækjarbrekku) í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
' Grensásvegi 8
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir! Fjölskyldunám-
skeið annað kvöld með Johnny
Foglander.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Fræðsluvaka kl. 20.30. Reyki,
nýöld, spíritismi, Mikaelsfræði,
hvað segir Guðsorð um þetta?
Gréta Sigurðardóttir heldur fyrir-
lestur og segir frá reynslu sinni
í þessum efnum, hvernig Guð
leiddi hana úr myrkrinu til Ijóss-
ins. Allir velkomnir.
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi
Safnaðaruppbygging
og frjálst kristilegt
leikmannastarf
Fundur I kvöld kl. 20.30 í AD
KFUM við Holtaveg. Umsjón
hefur sr. Örn Bárður Jónsson.
Allir karlmenn velkomnir.
Sálarrann-
sóknafélagið
Geislinn
Aðalfundur
sálarrannsóknarfélagsins
Geislans verður haldinn I húsi
félagsins á Faxabraut 2, Keflavík,
15. febrúar kl. 21.
Fundarefnl: Venjuleg aðalfund-
arstörf. - Kosning formanns og
gjaldkera. - önnur mál.
Stjórnin.