Morgunblaðið - 10.03.1995, Side 20
YDDA F69.24/SÍA
20 FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
SAGA
í Grillinu
- margrétta
ævintýri
fyrir ungt fólk
á öllum aldri
föstudaginn
10. mars
Nú er tækifærið komið
að bregða sér
í Griilið á Sögu og upplifa
spennandi sælkerakvöld.
Sigorður Hall
verður á staðnum
og spjallar við gesti en hann ásamt
Ragnari Wessman
annast matseldina
og hin vinsæla hljómsrveit
Skárra en ekkert
Ieikur ljúfa tónlist fyrir matargesti.
í boði er fjögurra rétta máltíð ásamt
fordrykkfyriraðeins 2.900 JtT.
Komið og upplifið ævintýralegt
kvöld í Grillinu, góðan mat
og Ijúfá lifándi tónlist.
Fordrykkur
Ravioli fyllt gæsaparfáit,
með madeirasósu og
tómatkjöti
eða
Grænn spergill og
humar í Sautemsósu
Svepparagout í volgri
sherty vinaigrette
Léttsaltaður hunangs
braseráður lambahryggur
með rósmarínsoði og
rifHuðu rótargrænmeti
eða
Franskur fiskipottur
„Pot-au-feu de poisson“
Sablé með perum
og Sabayon sósu
Pantanir í síma 552 5033
-þín sagal
BJÖRN Nörgaard „Sofandi maðurinn" Tré, blaðasilfur, brons og járn, 115x87, 1986-87.
Loksins
MYNPOST
Hafnarborg
og Listasafn
Sigurjóns Óiafssonar
FRÁ PRIMITÍVISMA TIL
POSTMÓDERNISMA
FIMM NORRÆNIR
MYNDHÖGGVARAR
Opið milli 12 og 18 alla daga. Lokað
þriðjudaga. Til 20. mars. Aðgangur
100 kr. Sýningarskrá 1.000 kr.
ÞAÐ er ekki vonum oftar sem við
hér á útskerinu fáum hingað yfirlit
af framsækinni norrænni höggmynd-
alist. Komi slíkt fyrir gefur það okk-
ur tækifæri til að leggja hlutlægt
mat á ýmislegt sem gerst hefur og
er að gerast á vettvanginum í „sam-
tímalist", sem telst marka tímabilið
frá stríðslokum og fram á daginn í
dag.
Yfírleitt fáum við þrælstaðlaðar og
miðstýrðar sýningar, sem eru í tak-
mörkuðu samræmi við raunveruleik-
ann og kynna viðhorf mjög þröngs
hóps, sem aðhyllist aðfengna og ein-
angraða hugmyndafræði dagsins,
lætur sér í léttu rúmi liggja hvað
áður hafí gerst. Það kemur svo ekki
málinu alltaf við hvort um mikla bóga
er að ræða í listinni, heldur skiptir
öllu, að samhengið í framþróuninni
komi rétt til skila og að skoðandinn
sé með á nótunum.
Og hvernig sem menn líta annars
á höggmyndalist á Norðurlöndum,
er sýningin „Frá primitívisma til
postmódemisma" ákaflega skilvirk
um ákveðinn þátt samtímalistar, jafn-
vel þótt ýmsir sem þekkja vel til í
norrænni myndlist kunni að sakna
margra snjallra myndhöggvara. Upp
í huga minn koma strax Danirnir
Henri Heerup og Erik Tommesen, en
hér var um að ræða að velja einung-
is einn listamann frá hverju landi,
og er sýningin sett upp í tengslum
við norrænu menningarhátíðina „Sól-
stafí“ vegna jrings Norðurlandaráðs
í Reykjavík. Eg gæti kafað dýpra og
nefnt marga snjalla myndhöggvara
frá hinum Norðurlöndunum, en tæpi
rétt á þessu til að árétta hve þekking
íslenzkra myndlistarmanna og list-
njótenda er takmörkuð á norrænni
höggmyndalist og myndlist yfírleitt.
Það er af meiru að taka í nor-
rænni myndlist en flestir átta sig á,
og er miður að hlutlæg kynning á
norrænum listamönnum innbyrðis
skuli ekki vera mun umfangsmeiri.
Þá hafa menn undanfarið haft tæki-
færi til að kynnast list hins fjölhæfa
Svend Wiig Hansen í Norræna hús-
inu, og telst það drjúg viðbót.
Framtakið er ótvírætt hið mikil-
verðasta um langt skeið og þannig
kom ekki önnur fyrirsögn til greina
en „Loksins", er ég sneri mér að þvi
að gera því skil.
Allir eru listamennirnir fímm mjög
vel þekktir í heimalöndum sínum og
flestir enn umdeildir, og fyrir utan
Sigurjón Ólafsson þekkja hérlendir
einungis til Mauno Hartmanns af sjón
og raun, en sérstæð verk hans vöktu
drjúga athygli á sýningu Norræna
listabandalagsins á Kjarvalsstöðum
1972. Auðvitað munu ýmsir íslenzkir
myndlistarmenn kannast við Danann
Björn Nörgaard, eða eiga í að
minnsta að gera það, þvi hann er
einn mikilvirkasti myndlistarmaður á
Norðurlöndum, og að auk prófessor
við listakademíuna í Kaupmanna-
höfn. Margfrægur og eftirminnilegur
telst gemingur hans „Hestafórn" frá
1970.
Norðmanninn Gunnar Torvund
kannast vafalítið færri við, og ef ein-
hveijir þekkja til Svíans Bror Hjorth,
munu þeir trúlega ekki hafa gert sér
grein fyrir af hvaða gráðu hann var
sem myndhöggvari.
Og þar sem lögð er svo mikil
áhersla á myndlist Brors Hjorts
(1894-1968), er rétt að snúa sér
fyrst að honum, ekki síst vegna þess
að hér er um að ræða menntaðan
nævista (eða prímatívista, ef menn
vilja heldur), en það er án efa dálítið
sem margur á erfítt með að meðtaka
hér á landi. Yfírleitt halda menn
nævista sjálflærða viðvaninga, en það
er alls ekki rétt í öllum tilvikum, og
ýmsir t.d. hinn mikli málari og nævi-
sti Henri Rousseau (1844-1910)
hafði vald á óviðjafnlegri tækni. Má
rekja það til þess, að hann var vinur
ýmissa mestu núlistamanna Parísar-
skólans í upphafí aldarinnar, og mun
hafa tileinkað sér sitthvað af hand-
bragði þeirra svo og fyrri tíma mál-
ara.
Á þeim árum sem ég var að taka
út myndrænan þroska voru menn
eins og Bror Hjorth ekki í sérlega
miklu áliti meðal ungra og þóttu ekki
í takt við alþjóðlega strauma. En
hann var einmitt og á sinn hátt að
gera það sama og Edvard Munch sem
samræmdi erlenda núlistastrauma
myndefnum frá heimaslóðum. Mun-
urinn fólst í öðru upplagi og breyttum
viðhorfum ásamt því að áhugi núlista-
manna á list frumstæðra var á
brennidepli er Hjorth nam og vann í
París, en árin þar urðu níu
(1921-30). Hann sótti skóla hins frá-
bæra myndhöggvara Antoine Bour-
delle og einn af skólabræðrum hans
var enginn annar en Svisslendingur-
inn Alberto Giacometti. Ýmislegt var
líkt með þeim, t.d. máluðu þeir báð-
ir, en þegar heimahagarnir í Dalboda
í Mið-Svíþjóð seiddu Hjort til sín varð
París starfsvettvangur Giacomettis.
Þó ekki séu nema ellefu verk eftir
Hjorth á sýningunum kemur fjöl-
hæfni hans vel í ljós og það er slá-
andi hve vel hann kann til verka í
marmarahöggi og tréskurði. Mál-
verkin eru hins vegar hijúfari í út-
færslu, en þau afhjúpa kannski betur
en allt annað hið nævska eðli per-
sónuleika hans, sem kemur fallega
fram í myndinni „Leikandi drengur
og hlustandi hundur" (10). Tel ég
mikilvægt að menn taki vel eftir þess-
um sérstæða listamanni og vona ég
að mér gefist tækifæri til að fjalla
sérstaklega um hann innan tíðar.
Sennilega eru hin stærri verk
Mauno Hartmanns (f. 1930) full lík
því sem hann sýndi hér 1972, að
undanskildum myndunum á Sigur-
jónssafni sem eru af nýrri gerð, en
ungir myndhöggvarar geta vafalítið
margt af honum lært, en eins og hjá
Bror Hjort eru þetta minningar um
sveitalíf að viðbættum hefðum í með-
ferð viðarins, en tré hefur um árþús-
undir verið dæmigert efni í finnsku
lífsferli. Hartmann vinnur með fyll-
ingu viðarins og hægfara hrömun
hans. Sameinar minni úr fínnskum
veruleik nútímalegum vinnubrögðum
í skúlptúrlist og gerir það á þann veg
að verkin eins og vega salt milli hins
hlutlæga og óhlutlæga. Hartmann er
hins vegar enginn nævisti og er mjög
meðvitaður um hefðir og stílbrot í
seinni tíma list og vinnur út frá þeim
grunni. Hér er þannig komin eins
konar Iofgjörð til ættjarðarinnar færð
í núlistarbúning.
Björn Nörgaard (f. 1947) er mjög
„ÁSTARATRIÐI 11“ . Máluð
lágmynd í tré 187x57, 1936.
fjölhæfur listamaður, sem hefur ekki
einungis unnið að gerð höggmynda
og ýmissa aðskiljanlegra muna, held-
ur einnig staðið að gerningum, leik-
rænum uppstillingum, og kvikmynd-
um auk þess sem hann vinnur nú að
miklu glitvefnaðarverkefni fyrir
Riddarasalinn í Kristjánsborgarhöll.
Hann er þannig einn af þeim sem
hafa hendurnar fullar af verkefnum
enda mun hann kunna að nálgast
þau. Verk hans á sýningunni gerði
hann í Berlín 1986-87, en þar dvald-
ist hann sem styrkþegi DAAD og
fylgdi vegsemdinni vinnustofa í Kre-
uzberg. Þar hefur Nörgaard látið
hendur standa fram úr ermum, því
að hinir stóru skúlptúrar hans í tré
og ýmsum öðrum efnum eru miklir
um sig og bera vott um þróttmikil
átök og stórhuga listamann.
Gunnar Torvund (f. 1948), er auk
Nörgaard, sá sem hugtakið postmód-
emisti á helst við, því hann ferðast
um ýmis tímabil listsögunnar og
kannar sameiginlega arfleifð smíðis-
gripa, sem hann umformar og gefur
margræðar skírskotanir á nútímavís.
Hann vinur að veggskúlptúrum,
veggskjöldum, mannamyndum og
tekur að sér stórar opinberar skreyt-
ingar, og frekar en margur núlista-
maðurinn vílar hann sér ekki við að
taka að sér trúarleg verkefni. Verk
hans „Gelgjuskeið með físibelg“ (Sig-
urjónssafn) er mjög áhugavert og
dæmigert fyrir vinnubrögð póstmód-
emista.
Okkar eigin Sigurjón Ólafsson
stendur sterkt í þessum hópi með
sína upprunalegu formkennd og und-
irstrikar stöðu sína meðal fmmheija
nýrra viðhorfa á Norðurlöndum.
Hann ætti að vera óþarfi að kynna,
en minna má sérstaklega á, að meðan
að á sýningunni stendur er Siguijóns-
safn á Laugarnesnu opið alla daga
nema þriðjudaga frá 12-18.
Vegleg sýningarskráin er framúr-
skarandi hönnun og skilvirk eftir því
og ættu sem flestir að nálgast hana.
Það sem er helst til ásteytingar
er parkettgólfið í Hafnarborg sem
leikur of stórt hlutverk og einkum
er speglunin í þvi tmflandi. Þá hefðu
smærri myndir listamannanna gjarn-
an mátt prýða veggi, því að rýmið
er full tómlegt og á það einkum við
innri salinn. Þetta á þó alls ekki við
um Siguijónssafn, þar sem innileikinn
ræður ríkjum og gólf er sérhannað
fyrir höggmyndir.
Bragi Ásgeirsson
Síðustu
sýningar
á Oleanna
NÚ um helgina verða síðustu
sýningar á leikritinu Oleanna,
eftir David Mamet, sem sýnt
er á Litla sviði Þjóðleikhússins.
Síðustu sýningar em í kvöld og
sunnudagskvöld.
í kynningu segir: „Ung
stúlka í háskólanámi leitar ásjár
kennara síns þegar hún sér
fram á að falla á mikilvægu
prófí. Hann á von á stöðuveit-
ingu og aukinni velgengni, hún
sér hins vegar fram á að margra
ára strit fari í vaskinn. Sam-
skipti þeirra taka smátt og
smátt á sig ófyrirséða mynd og
áhorfendur standa frammi fyrir
áleitnum spurningum um sam-
skipti kynjanna, kynferðislega
áreitni og misbeitingu valds.“
Elva Osk Ólafsdóttir fer með
hlutverk háskólanemans og Jó-
hann Sigurðarson leikur kenn-
arann. Leikstjóri er Þórhallur
Sigurðsson.
JÓHANN Sigurðarson
í hlutverki kennarans.
Lóuþrælar
í Fella- og
Hólakirkju
Hvaramstan^a. Morgunblaðið.
KARLAKORINN Lóuþrælar úr
Vestur-Húnavatnssýslu heldur
tónleika í Fella- og Hólakirkju
laugardaginn 11. mars kl. 17.
Kórinn sem er að mestu skip-
aður bændum úr héraðinu,
heldur upp á 10 ára afmæli sitt
um þessar mundir. Hann hefur
af því tilefni gefið út geisladisk
með 20 lögum og syngur Ing-
veldur Hjaltested sópransöng-
kona einsöng í þrem þeirra. Hún
syngur einsöng með kórnum á
tónleikunum, ásamt Guðmundi
Þorbergssyni.
Á tónleikunum kemur einnig
fram sönghópurinn Sandlóur,
en þær eru flestar eiginkonur
kórfélaga.
Sýningu
Kristínar
að ljúka
NÚ ERU
síðustu sýn-
ingardagar
á verkum
Kristínar
Andrésdótt-
ur í Borgar-
kringlunni,
bak við stig-
ann.
Kristín
sýnir bæði ný og eldri akrýlmál-
verk, teikningar og krítarmynd-
ir.
Kristín útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1987.
Þýskur lista-
maður sýnir í
Gallerí Gangi
UM þessar mundir stendur yfír
sýning á verkum Karin Kneffel
í Ganginum, Rekagranda 8,
Reykjavík. Karin Kneffel er
þýskur listamaður sem býr og
starfar í Dússeldorf í Þýska-
landi.
Sýningin er opin daglega eða
eftir samkomulagi.
Kristín
Andrésdóttir