Morgunblaðið - 17.03.1995, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Haraldur Sumarliðason gefur kost á sér í bankaráð
Islandsbanka auk Orra Vigfússonar
Pétur H. Blöndal hættir
íbankaráðinu
PÉTUR H. Blöndal, sem hlaut yfir-
burðakosningu í bankaráð íslands-
banka hf. á aðalfundi félagsins í
fyrra, hefur ákveðið að gefa ekki
aftur kost á sér í kjöri til banka-
ráðs á aðalfundinum 27. mars nk.
Haraldur Sumarliðason, formaður
Samtaka iðnaðarins, hyggst hins
vegar gefa kost á sér, sem og Orri
Vigfússon eins og Morgunblaðið
skýrði frá í gær.
„Ég tel það ekki samrýmast
grundvallarreglum mínum að sitja
bæði í bankaráði og á þingi,“ sagði
Pétur í samtali við Morgunblaðið,
en hann hafnaði í áttunda sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík sl. haust.
„Sem þingmaður mun ég íjalla
um mörg mál sem munu snerta
íslaridsbanka beint og óbeint. Meðal
annars má þar nefna einkavæðingu
ríkisbankanna, hvað eigi að gera
við fjárfestingarlánasjóði, t.d. hvort
eigi að sameina þá bönkunum,
þ.m.t. Íslandsbanka."
Pétur á sæti í stjómum annarra
hlutafélaga, s.s. Sæplasts og Tölvu-
samskipta, og mun ekki segja af
sér stjómarstörfum þar. Hann segir
allt of fáa þingmenn vera í tengslum
við atvinnulífið. Með setu í banka-
ráði jafnhliða þingmennsku sé hins
vegar ekki hægt að koma í veg
fyrir hagsmunaárekstra.
Aðspurður hvemig hann mæti
árangurinn eftir árs setu í banka-
ráði Islandsbanka sagði Pétur: „Ég
einsetti mér í upghafi að ná fram
þremur málum. í fyrsta lagi að
bankinn skipti á Holiday Inn og
Sambandshusinu enda þótti mér
fáránlegt að flytja starfsemina í
hótelið. Þetta gekk eftir. Hins vegar
tókst mér ekki að ná fram sam-
stöðu í bankaráði um nýtt skipurit
bankans þar sem ég vildi hafa einn
skipstjóra í brúnni sem hefði vald
til þess að ráða menn í aðrar stjórn-
unarstöður og reka eftir þörfum."
Pétur sagði að þriðja markmiðið
sem hann hefði sett sér hefði held-
ur ekki náðst, enda hefði það ekki
verið eins raunhæft og hin tvö.
„Það hamlar bankakerfinu hvað
bankamir eru litlir, t.d. er eigið fé
íslandsbanka á við þrjár Guggur
(Guðbjörg ÍS) og hann getur ekki
ráðið við nema meðalstór fisk-
vinnslufyrirtæki. Ég gerði mér von-
ir um að Fiskveiðasjóður og Iðn-
lánasjóður yrðu sameinaðir og inn-
limaðir í íslandsbanka á þann hátt
að það yrði skipt á rekstrinum og
hlutabréfum í bankanum,“ sagði
Pétur.
Iðnaðurinn fái fulltrúa
„Eftir stofnun Samtaka iðnaðar-
ins þykir okkur eðlilegt að þau eigi
fulltrúa í bankaráði Islandsbanka,
enda er iðnaðurinn stór í íslensku
atvinnulífi," segir Haraldur Sumar-
liðason, formaður Samtaka iðnaðar-
ins, sem hefur ákveðið að gefa kost
á sér í kjöri til bankaráðs íslands-
banka. Þar með er ljóst að kosið
verður í bankaráðið því Orri Vigfús-
son gefur einnig kost á sér.
Núverandi bankaráðsmenn ís-
iandsbanka eru auk Péturs H. Blön-
dals Kristján Ragnarsson, banka-
ráðsformaður, Magnús Geirsson,
Öm Friðriksson, Guðmundur H.
Garðarsson, Einar Sveinsson og
Sveinn Valfells.
Kaðlinum beitt
á snjóinn
VÍÐA á landinu eru snjóalög
að sliga húsþök og húseigendur
taka sér skóflu í hönd til að
létta af mesta farginu. í Ölpun-
um nota menn aðrar aðferðir
við burstahús. Þar streklga
tveir menn nælonkaðal á milli
sín og er annar uppi á þakinu
en hinn á jörðu niðri. Kaðalinn
nota þeir til að skera í snjóinn
og falla stórar hengjur fram
af þakinu þegar vel tekst til.
Sá sem er á jörðu niðri þarf
auðvitað að gæta þess að verða
ekki undir snjónum.
Morgunblaðið/Bergþóra Sigurðardóttir
AAA verðlaunin veitt í dag
Fjallað um sam-
vinnu auglýsenda
og auglýsingastofa
ISLENSKI markaðs-
klúbburinn, ÍMARK,
er félagsskapur ein-
staklinga í markaðs- og
stjómunarstörfum. Klúb-
burinn hefur árlega und-
anfarin átta ár veitt verð-
laun fyrir athyglisverð-
ustu auglýsingu ársins og
hefur verðlaunaafhend-
ingin farið fram við hátíð-
lega athöfn, síðustu árin í
Borgarleikhúsinu.
í fyrra var tekið upp á
þeirri nýbreytni að halda
sérstakan markaðsdag í
tengslum við verðlaunaaf-
hendinguna og svo er
einnig nú. Námsstefna um
samvinnu auglýsenda og
auglýsingastofa er í dag í
Borgarleikhúsinu og
stendur dagskráin frá kl.
10.00-15.00. Hálftíma síðar hefst
síðan verðlaunaafhending fyrir
athyglisverðustu auglýsingu árs-
ins_ 1994.
í íslenska markaðsklúbbnum
eru á þriðja hundrað manns, allt
virkir meðlimir, að sögn Boga
Þórs Siguroddssonar, formanns
klúbbsins. Hann segir að mark-
miðið sé ekki að hafa sem flesta
meðlimi, heldur að þeir séu allir
virkir í því starfi sem fari fram
innan félagsins.
„ÍMARK er vettvangur þar
sem markaðsfólk hittist og ber
saman bækur sínar. Markmiðið
er að auka veg og virðingu mark-
aðsfræðinnar hér á landi,“ segir
Bogi og bætir við að vegur
klúbbsins hafi vaxið hægt og síg-
andi undanfarin ár.
Meðal þess _ starfs sem unnið
er á vegum íslenska markaðs-
klúbbsins má nefna fjölda morg-
un- og hádegisverðarfunda, þar
sem ýmist er farið ofan í kjölinn
á fræðilegum málefnum eða þá
að ýmis hitamál eru brotintil
mergjar. „Það eru annars vegar
sjálf fræðin og hins vegar mál-
efni líðandi stundar sem eru rædd
á þessum fundum sem við reynum
að halda minnst einu sinni í mán-
uði,“ segir Bogi. „Þá heldur
ÍMARK 1-2 námsstefnur á hveiju
ári þar sem hin ýmsu málefni eru
tekin fyrir.“
Þið hafið líka verið að veita
markaðsverðlaun, ekki rétt?
„Jú, undanfarin fjögur ár hefur
íslenski markaðsklúbburinn veitt
ákveðin markaðsverðlaun sem í
ár fóru til aðila í ferðamálum.
Hápunkturinn í starfi okkar er
hins vegar AAA hátíðin, þ.e. þeg-
ar verðlaun eru veitt fyrir athygl-
isverðustu auglýsingu---------
ársins. Þau veittum við
fyrst árið 1987 fyrir
árið 1986 og undanfar-
in ár hefur hátíðin verið
haldin við húsfylli í
Borgarleikhúsinu.
Vegna þessara vinsælda kom upp
sú hugmynd í fyrra að útvíkka
þetta og halda árlega sérstakan
íslenskan markaðsdag."
Verðlaun fyrir athyglisverð-
ustu auglýsingu ársins eru veitt
í átta flokkum; dagblaðaauglýs-
ingum, tímaritaauglýsingum,
umhverfísgrafík, útsendiefni,
herferðum, vöru- og firmamerkj-
um, sjónvarpsauglýsingum og
útvarpsauglýsingum auk þess
sem óvenjulegasta auglýsingin
er verðlaunuð. Auglýsingamar,
sem koma til greina í hveijum
flokki, voru kynntar í viðskipta-
blaði Morgunblaðsins 9. mars sl.
Bogi Þór Siguroddsson
/
► Bogi Þór Siguroddsson er
fæddur 19. nóvember 1959.
Hann lauk stúdentsprófi frá
MH árið 1979 og B.Ed prófi
frá Kennaraháskóla íslands
1984. Árið 1987 lauk Bogi
meistaraprófi í rekstrarhag-
fræði frá Rutgers University í
Bandaríkjunum. Bogi hóf
starfsferil sinn að loknu námi
í markaðsdeild Eimskips. Árin
1988-1993 starfaði hann við
kennslu og markaðstengd
verkefni og tók síðan við starfi
forstöðumanns heildsölu neyt-
endavöru Hans Petersen árið
1993. Bogi er höfundur mark-
aðsfræðibókarinnar Sigur í
samkeppni sem kom út árið
1993 auk þess sem hann hefur
verið formaður ÍMARKS frá
1994. Bogi er kvæntur Lindu
Björk Ólafsdóttur lyfjafræð-
ingi og á hann tvo stráka, 12
og 2 ára gamla.
Val athyglis-
verðustu aug-
lýsingarinnar
hápunkturinn
Hvernig er svo dagskráin hjá
ykkur markaðsfólkinu á þessum
hátíðardegi ykkar?
„Hún er mjög áhugaverð og
efnið á námsstefnunni ætti að
höfða til allra. Auglýsingar
byggja á samspili þess sem aug-
lýsir og auglýsingastofunnar og
það eru margar skoðanir á því
hvernig sú samvinna eigi að vera.
Við höfum fengið til liðs við okk-
ur íslenska fyrirlesara til að fjalla
um samvinnu auglýsenda og aug-
lýsingastofa út frá mismunandi
sjónarhornum. Við erum með
fulltrúa frá stórri auglýsinga-
stofu sem veitir svokallaða alhliða
þjónustu og fulltrúa
frá lítilli auglýsinga-
stofu. Fulltrúi frá
fyrirtæki sem hefur
alla tíð skipt við
ákveðna auglýsinga-
—— stofu flytur erindi, svo
og fulltrúi fyrirtækis sem hefur
nýtt sér þjónustu margra,“ sagði
Bogi.
Aðalgestur auglýsingahátíðar-
innar að þessu sinni er Chris
Clark frá auglýsingastofunni Sa-
atchi & Saatchi í London, einni
þekktustu auglýsingastofu
heims. „Clark hefur unnið við
auglýsingar í 12 ár, en í 6 ár þár
á undan sat hann hinum megin
við borðið, þar sem hann sá um
auglýsingamál hjá Levi Strauss.
Clark ætlar að fjalla um viðfangs-
efni námsstefnunnar út frá eigin
reynslu í alþjóðlegu viðskiptaum-
hverfí," segir Bogi Þór.