Morgunblaðið - 25.03.1995, Side 1
96 SÍÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
71. TBL. 83. ÁRG. LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Dalai Lama
Japans-
ferðinni
mótmælt
Pekinff. Reuter.
STJORN Kína mótmælti í gær þeirri
ákvörðun Japana að leyfa útlægum
leiðtoga Tíbeta, Dalai Lama, að
heimsækja landið
um mánaðamótin.
Sagði í yfirlýs-
ingu Peking-
stjómarinnar að
vonandi myndu
Japanar setja góð
samskipti ríkj-
anna tveggja ofar
öllu; Dalai Lama
hygðist nota Jap-
ansdvölina til að
ýta undir sundrungu kínverska ríkis-
ins.
Kínverjar réðu Tíbet öldum saman
og kommúnistar treystu þegar tök
sín á landinu er þeir tóku völdin í
Kína um miðbik aldarinnar. Upp-
reisn Tíbeta var kæfð í blóði 1959
og flýði Dalai Lama, sem er bæði
trúarlegur og veraldlegur leiðtogi
þjóðarinnar, þá til Indlands ásamt
þúsundum stuðningsmanna sinna.
Hann fékk friðarverðlaun Nóbels
árið 1989.
Dalai Lama
Herferð gegn munkum
Stjórnvöld í Peking segja að mikl-
ar framfarir hafi orðið í Tíbet undir
þeirra stjórn en þess má geta að
íjöldi Kínveija hefur flust til landsins
og eru þeir nú orðnir fleiri en inn-
fæddir. Fyrir tveim vikum hrúndu
yfirvöld úr vör herferð gegn munk-
um og klaustrum í Tíbet en íbúamir
eru einlægir búddatrúarmenn. Fjöldi
munka verður takmarkaður með lög-
um og sækja verður um leyfi fyrir
nýjum mustemm.
Ciller hvetur til alþjóðlegrar lausnar á átökunum í Norður-írak
Tyrkir sagð-
ír ráðast á
þorp Kúrda
Zakho, Ankara, Dergele. Reuter, The Daily Telegraph.
KÚRDAR sökuðu í gær Tyrki um
að hafa gert sprengjuárásir á nokk-
ur þorp þeirra í Norður-írak. Þeir
sögðu að hús hefðu eyðilagst og
að minnsta kosti einn íbúi þorpsins
Dergele særst. Talsmenn tyrkneska
hersins neita þessum ásökunum og
fullyrða að engir óbreyttir borgarar
hafi látið lífið eða særst í árásum
þeirra á skæruliða. Tansu Ciller,
forsætisráðherra Tyrklands, hvatti
til þess að fundin yrði lausn á al-
þjóðavettvangi til að koma í veg
fyrir að skæruliðar Kúrda nýttu sér
ástandið sem skapast hefur í Norð-
ur-írak eftir Persaflóastyrjöldina.
Ciller sagði í samtali við BBC-
útvarpið að ef ekki væri vilji til
þess að tyrkneskir hermenn vernd-
uðu saklausa borgara yrði að koma
til alþjóðleg lausn á vandanum.
Evrópusambandið yrði að veita
Tyrkjum aðstoð við að stöðva árás-
ir Kúrda yfir landamærin við Norð-
ur-írak.
Kúrdar óttast um líf sitt
Kúrdar segja tyrkneska herinn
hafa gert árásir á að minnsta kosti
tíu þorp. Óttast Kúrdar í Norður-
írak mjög um líf sitt, segjast enga
trú hafa á því að Tyrkir ætli einung-
is að ráðast gegn skæruliðum, held-
ur sé ætlun þeirra að kúga Kúrda
rétt eins og Saddam Hussein, leið-
togi íraks, gerði fyrir Persaflóa-
styijöldina. Fulltrúar Sameinuðu
þjóðanna, sem hafa eftirlit með
Norður-írak, óttast að haldi aðgerð-
ir Tyrkja áfram snúist Kúrdar gegn
gæsluliðum frá Frakklandi, Banda-
ríkjunum og Bretlandi.
Tyrkneskir hermenn hafa viður-
kennt að fjölmargir skæruliðar hafi
flúið stöðvar sínar þegar þeir höfðu
veður af liðsflutningum tyrkneska
hersins til landamæranna, sem ekki
hefðu átt að fara fram hjá neinum
á svæðinu.
Mikil valdabarátta ríkir á svæð-
inu og er talið að ein aðalfylking
Kúrda í Norður-írak, Lýðræðis-
flokkur Kúrdistans, hafí lofað
Tyrkjum samvinnu. Þess í stað
mjmdu þeir veita flokknum áðstoð.
Ásökunum Þjóðveija neitað
Talsmenn tyrkneska utanríkis-
ráðuneytisins neituðu í gær fréttum
þess efnis að Tyrkir hefðu brotið
skilmála um notkun vopna frá
Þýskalandi með því að beita þeim
í árásum á Kúrda. Þjóðveijar hafa
útvegað Tyrkjum fjölda vopna, sem
áður voru eign austur-þýska hers-
ins, gegn því að þau verði einungis
notuð til landvama en ekki til að
leysa innanríkisátök.
Reuter
KÍJRDAR hrópa vígorð við byggingu ráðhen*aráðs Evrópusam-
bandsins í Brussel í gær og mótmæla innrás Tyrkja í Norður-írak.
Rússar spá hag-
vexti á næsta ári
Moskvu. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Rússlandi ætla að
auka aðhald með opinberum út-
gjöldum og herða róðurinn gegn
verðbólgunni. Þau leggja hins vegar
áherslu á, að engin trygging sé
fyrir snöggum umskiptum til hins
betra í efnahagslífinu.
„Efnahagslífið er að ná jafnvægi
en batamerkin eru ekki mikil enn,“
sagði Víktor Tsjernomyrdín, for-
sætisráðherra Rússlands, á fundi
með ráðherrum og leiðtogum ein-
stakra héraða í Kreml í gær. „Við
getum þó og verðum að snúa dæm-
inu við á þessu ári.“
Tölum ekki treystandi
Samkvæmt spám rússneskra
stjórnvalda mun hagvöxtur heíjast
á næsta ári, verðbólgan fara niður
í eitt eða tvö prósent á mánuði og
erlend fjárfesting aukast.
Þjóðarframleiðsla í Rússlandi
hefur minnkað mikið á síðustu árum
en margir benda á, að tölum um
samdráttinn sé alls ekki treystandi.
Þær séu miðaðar við upplýsingar,
sem hafi verið skáldskapur og búinn
Reuter
TSJERNOMYRDÍN og Jeltsín
á fundi i Kreml í gær.
til í því skyni, að áætlanir stæðust
á pappírnum, en nú væri aftur mik-
ið um, að verksmiðjustjórar þættust
framleiða minna en þeir gerðu til
að sleppa við skatta.
Vísindamenn finna upp nýtt efni til að lækna beinbrot
Boston. Morgunblaðið.
VÍSINDAMENN hafa fundið
upp nýtt efni, sem kalla mætti
beinlím og nota má til að lækna
beinbrot á svipstundu. Beinlim-
inu er sprautað inn í brotin
bein og það harðnar þar á tíu
mínútum. Efni þetta gæti spar-
að sjúklingum ómældar þján-
ingar og stytt sjúkrahúsvist,
auk þess sem þessi aðferð er
miklu ódýrari.
Nýja efnið nefnist Norian
SRS og er hugarfóstur Brents
R. Constantz, sérfræðings í
kristallafræði. Efnið er nánast
nákvæmlega eins og bein i sam-
setningu og er því bundið sömu
lögmálum endurnýjunar og
venjulegt bein. Það nær sama
styrkleika og bein á tólf
klukkustundum og nokkrum
mánuðum eftir að því hefur
verið beitt hefur það vikið fyr-
ir venjulegu beini.
Engin ónæmisviðbrögð
Annar kostur við beinlímið
er að það vekur engin ónæmis-
viðbrögð og reynir líkaminn
þvi ekki að hafna því eins og
iðulega gerist þegar annarleg-
um efnum er komið fyrir í hon-
um.
Beinlím
í stað
gifsis
Efnið er nú notað til reynslu
í tólf sjúkrahúsum í Bandaríkj-
unum en það hefur verið á
markaði í Hollandi í sex mán-
uði.
Beinlímið var kynnt í grein
í hinu virta vísindatímariti
Science, sem kom út í gær.
„Þetta er mjög spennandi,"
sagði Jesse B. Jupiter, læknir
við Massachusetts General
Hospital og einn höfunda grein-
arinnar.
Ef allt er sem sýnist mun
efnið valda byltingu í meðferð
beinbrota. Þegar beinlímið er
til að mynda notað til að lækna
úlnliðsbrot er hægt að sprauta
efninu inn í brotið með hjálp
gegnumlýsingar og þarf ekki
einu sinni skurðaðgerð. Efnið
heldur beinunum á sínum stað
á meðan beinið grær og er það
sterkt að aðeins mun þurfa
spelku, en ekki gifs.
Jupiter sagði þetta stóran
kost því gifs leiddi til stirðleika
og vöðvarýrnunar, sem oft tæki
marga mánuði að vinna upp í
sjúkrameðferð.
Talið er að beinlímið geti
komið í stað nagla og platna
sem notaðar eru nú til að lækna
beinbrot, að því er fram kom
í Wall Street Journal í gær.