Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Halldór Skemmtistað pakkað inn Héraðsdómur Reykjavíkur Subway má selja bata HÉRAÐSDÓMUR felldi í gær úr gfildi lögbann sem eigandi Hlöllabáta hafði fengið sett við því að skyndibitastaðurinn Subway seldi brauðlokur sínar undir heitinu kafbátar. Jafn- framt felldi Héraðsdómur úr gildi skráningu Hlöllabáta á vörumerkinu „bátar“. Hlöðver Sigurðsson eigandi Hlöllabáta hafði í október sl. fengið lögbannið sett á að Subway seldi brauðlokur sínar undir heitinu kafbátar þar sem hann taldi með því gengið á rétt þann sem hann hefði öðl- ast með því að hafa fengið heitið bátar skrásett sem vöru- merki. Stjaman hf., félagið sem rekur skyndibitastað Subway hélt uppi vömum og krafðist þess jafnframt að skráning á vörumerkinu bátar hjá vöm- merkjaskrá yrði ógilt. Héraðsdómur Reykjavíkur tók allar kröfur lögmanns Subway, Gísla Baldurs Garð- arssonar hrl., til greina og var Hlöðver Sigurðsson dæmdur til að greiða 140.000 krónur í málskostnað. Ekki hætta áruglingi í rökstuðningi Sigríðar Ing- varsdóttur héraðsdómara segir m.a. að ekki verði séð að villst verði á þeim vömm eða heitum sem um ræðir þannig að hætta sé á mglingi á söluvömm Hlöllabáta annars vegar og Subway hins vegar. Því verði krafa um bann við notkun Subway á orðinu bátar, einu sér eða sem hluta af nafni á söluvömr, ekki tekin til greina. Því var staðfestingu lögbanns- ins hafnað. Vömmerkjaskráningin var felld úr gildi með tilvísun til álits íslenskrar málstöðvar en þar kemur fram að líta megi svo á að orðið bátur sé í ís- lensku máli haft um matvæli ýmiss konar sem líkist báti í útliti, svo sem dekkjabátar, appelsínubátar eða einfaldlega bátar. Verði að telja að orðið bátar hafi svo almenna merk- ingu að það sé ekki nothæft til að greina vörar Hlöllabáta frá vömm annarra. SKEMMTISTAÐURINN Déjá Vu í Bankastræti á eins árs afmæli um þessar mundir. Af því tilefni var skemmtistaðnum pakkað inn í umbúðapappír, líkt og afmælis- gjöf. Ekki varð þó af því að gest- ir staðarins fengju gluggað í MUNUR sá sem er á samkeppnis- stöðu ríkisviðskiptabanka og einka- banka verður ekki að fullu jafnaður nema gengið verði svo langt að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög og selja hlutaféð úr hendi ríkissjóðs. Þetta kemur fram i greinargerð Seðlabankans um sam- keppnisstöðu viðskiptabankanna sem nýlega leit dagsins ljós. í greinargerðinni er sérstaklega fjallað um þijá þætti sem talið er að hafí hvað mest áhrif á sam- keppnistöðuna, þ.e. ríkisábyrgðir, mismunandi skattlagningu og mis- munandi arðsemiskröfur. Fram kemur að samkeppnisstaðan er mis- munandi milli rfldsviðskiptabanka og einkabanka hvað varðar hvem þessara þátta. í sumum tilfellum hallar á einkabanka en í öðmm á ríkisviðskiptabanka. Þannig hafa ríkisviðskiptabankamir betri að- gang að erlendum lánum á hag- stæðum kjömm en einkabankamir „pakkann", því lögregla og slökkvilið mættu á staðinn og tóku umbúðirnar af húsinu sakir eldhættu. Að sögn skemmtana- stjórans Kristjáns Jónssonar eða „Kidda Bigfoot“, eins af eigend- um staðarins, tók innpökkunin og sömuleiðis er aðstaða einka- banka verri ef litlar sem engar arð- semiskröfur em gerðar til ríkisvið- skiptabanka. Aftur á móti er skattaleg staða einkabanka betri en ríkisviðskiptabanka. í niðurstöðum skýrslunnar er bent á nokkrar leiðir til að stuðla að meiri jöfnuði í samkeppnisstöð- unni ef ekki þyki raunhæft á þessu stigi að breyta ríkisviðskiptabönk- unum í hlutafélög og selja hluta- bréfín. Þær leiðir sem skýrsluhöfundar telja mögulegar fela í fyrsta lagi i sér að sjálfkrafa ábyrgð á skuld- bindingum ríkisviðskiptabankanna verði afnumin. Skuldbindingar, sem nú séu í gildi, haldi þó ríkisábyrgð út líftíma. sinn. í öðm lagi er talið koma til greina átta klukkustundir, en ekki tók nema 20 mínútur að taka utan af „pakkanum". Að sögn Krist- jáns átti að ríkja taumlaus gleði í „pakkanum". Ekki vitum við hversu mikil gleðin varð, en víst er að hún var umbúðalaus. að bæði ríkisviðskiptabönkum og einkabönkum verði gefínn kostur á að kaupa ríkisábyrgð vegna lengri lána. Annar kostur er talinn sá að einungis ríkisviðskiptabönkum verði gefínn kostur á að kaupa rfkis- ábyrgð á lengri lánum en reynt verði að haga gjaldtöku (verðlagn- ingu) vegna ríkisábyrgðarinnar með þeim hætti að gjaldið jafngildi því óhagræði sem einkabankar verða fyrir vegna takmarkana á mögu- leikum til töku langtímalána. Ljóst þykir þó að slík verðlagning sé ýmsum erfíðleikum háð. Draga megi þó úr óvissu um raunvirði óhagræðisins á hverjum tíma með því t.d. að gefa einkabönkunum kost á að gera langtíma vaxta- skiptasamninga við ríkið fyrir milli- göngu Seðlabankans. Handleggs- brutu jafnaldra TVEIR 10-12 ára gamlir drengir veittust í fyrradag að tíu ára göml- um dreng með þeim afleiðingum að hann handleggsbrotnaði, tennur í honum losnuðu og hann hlaut áverka á vör. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu tóku drengirnir þrír tal saman við verslanamiðstöðina Hólagarð í Breiðholti síðdegis á miðvikudag. Eitthvað kastaðist í kekki með þeim og þeir fóm að uppnefna hver ann- an. Þá tók einn drengjanna sig til og veittist að 10 ára drengnum með spýtu og lamdi hann nokkram sinnum. Hann slapp inn á mynd- bandaleigu og gerði starfsstúlka þar lögreglu viðvart. Drengurinn var fluttur á slysa- deild þar sem í ljós kom að hann var handleggsbrotinn, með lausar tennur í efri góm og áverka á vör. Ófundnir Árangurslaus leit var gerð að drengjunum tveimur á miðvikudag og síðdegis í gær var enn ekki vit- að hveijir þeir vom. Drengurinn kannaðist við þá í sjón en þekkti þá ekki. Breyting í hlutafélög í þriðja lagi er bent á þá leið að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög eða breyta hluta af eigin fé ríkisviðskiptabanka í stofnfé sem fengi sömu skattalegu meðhöndlun og hlutafé. Á meðan hlutafé/stofnfé viðskiptabanka sé að vemlegu leyti í eigu ríkissjóðs þurfí að ákveða hlutfall þess af heildar eigin fé nokkm lægra en þjá einkabanka. Fjórða leiðin er sú að gerð sé arðsemiskrafa til viðskiptabanka í eigu ríkisins svo og krafa um arð- greiðslu sem sé sambærileg við það sem tíðkast hjá einkabanka. Um leið þurfí hins vegar að tryggja jafn- an aðgang ríkisviðskiptabankanna og einkabankanna að nýju eigin fé. Þetta mætti t.d. gera með þeim hætti að heimila ríkisviðskiptabönk- unum að bjóða út nýtt eigið fé/hlutafé og taka víkjandi lán á almennum markaði. Ný greinargerð Seðlabankans um muninn á samkeppnisstöðu ríkis- og einkabanka Jöfn samkeppnisstaða næst aðeins með einkavæðingu Tillögur um hlutafélagavæðingu, breyt- ingar á ríkisábyrgð og arðsemiskröfu Morgunblaöið/Jón Svavareson 150 ára leikafmæli LEIKARARNIR Róbert Amfinns- son, Gunnar Eyjólfsson og Bald- vin Halldórsson héldu upp á 50 ára leikafmæli sín á fimmtudag. Sama kvöld tók Gunnar þátt í uppfærslu á Sögu úr vesturbæn- um og Róbert lék í söngleiknum Taktu lagið, Lóa. Þar voru þeir hylltir í lok sýninga. Hér eru Róbert, Stefán Bald- ursson og Gunnar í afmælishófi að sýningu lokinni. Heimild til að skuldbreyta húsnæðislánum rýmkuð RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að auka við heimildir Húsnæðisstofnun- ar ríkisins til skuldbreytinga vegna vanskila í húsnæðiskerfmu. Veittar verða til þess verkefnis 200 milljón- ir króna til viðbótar við þær 300 milljónir sem veittar vom til þess síðla árs 1993. Af þeirri heimild eru enn eftir 55 milljónir króna þannig að samanlagt eru um 255 milljónir króna til ráðstöfunar til þessa verk- efnjs. Á blaðamannafundi sem Rann- veig Guðmundsdóttir, félagsmála- ráðherra, efndi til af þessu tilefni með fulltrúa Húsnæðisstofnunar kom fram að ákvæði í reglugerð um skuldbreytingar á lánum á vegum Byggingasjóðs ríkisins frá 19. októ- ber 1993 var svo þröngt að ekki var hægt að bregðast við umsóknum allra þeirra sem sóttu um skuld- breytingu þó ástæða væri til. Eins og ákvæðið hljóðaði var eingöngu hægt að sækja um skuldbreytingu ef tekjur höfðu lækkað verulega, en nú er einnig hægt að taka tillit til þess ef greiðslugeta hefur minnkað af óviðráðanlegum ástæðum eða ef greiðslubyrði lána hefur þyngst vegna ófyrirséðra atvika. 1.206 umsóknir afgreiddar Fram kom að frá því í október 1993 og til síðustu áramóta höfðu Húsnæðisstofnun borist 1.460 um- sóknir um skuldbreytingu á lánum og 15. mars síðastliðinn höfðu 1.206 umsóknir hlotið afgreiðslu, en þá biðu afgreiðslu 300-400 umsóknir. Af þeim umsóknum sem afgreiddar höfðu verið höfðu um 800 fengið skuldbreytingu á vanskilum sínum af húsnæðislánum og er meðaltal upphæða skuldbreytinga í kringum 300 þúsund krónur. Grétar Guðmundsson, þjónustu- stjóri Húspæðisstofnunar ríkisins, sagðist gera ráð fyrir að sú fjárveit- ing sem kæmi til viðbótar þeim 55 milljónum sem ekki hefði verið veitt til skuldbreytinga myndi duga út árið miðað við reynsluna til þessa. Jafnframt þessu hefur Húsnæðis- stofnun verið heimilað að ráða tíma- bundið í stöður sex nýrra ráðgjafa til að flýta fyrir afgreiðslu umsókna. Jafnframt er gert ráð fyrir að betur verði hægt að sinna fyrirbyggjandi aðgerðum og hægt verði með ráð- gjöf að grípa í taumana það tíman- lega að síður þurfí að koma til skuld- breytinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.