Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Súkkulaði- og hafrakex: Hvaða tegundir borðar þú? 10 20 30 40 50 60 70% Homeblest Maryland SnapJacks Homewheat Hobnobs Burtons Smellur Annað kex Homeblest vinsæl- asta súkkulaðikexið HOMEBLEST er langvinsælasta súkkulaði- og hafrakexið á mark- aðnum, skv. niðurstöðum neyslu- könnunar, sem Félagsvísindastofn- un HÍ gerði fyrir Morgunblaðið, en um 31% aðspurðra sögðust borða það oftast og um 25% stundum. Næst kemur Maryland, en það sögðust um 8% borða oftast og 13% stundum. Um 16% sögðust aldrei borða þessa fæðutegund, en 3,9% aðspurðra sögðust borða súkkulaði- kex daglega. 21,5% kváðust borða súkkulaðikex tvisvar til þrisvar í mánuði, 19% vikulega og 17,4% tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Hægt að leigja kransakökumót FERMINGAR hefjast senn og marg- ir hugsa sér að hafa kransaköku á borðum. Skal á að bent að þeir sem ekki eiga kransakökuform geta ef þeir kaupa ekki formin leigt þau. Hægt er að leigja hefðbundin 18 hringja kransakökuform hjá versl- uninni Pipar og salti. Mótin eru leigð í nokkra daga og kostar það 300 krónur. Þar er líka hægt að leigja þriggja hæða stand fyrir veislutertur og er leigan 500 krónur. Formin eru síðan seld í mörgum búsáhaldaverslunum og eftir laus- lega könnun virðast þau kosta frá 2.500 krónum og upp í rúmlega 4.000 krónur. Sum eru húðuð að innan, önnur ekki. Potturinn og pannan í 13 ár í DAG laugardag heldur veitinga- húsið Potturinn og pannan í Nóat- úni upp á 13 ára afmæli sitt og verður í tilefni þess boðið upp á ýmsa klassíska rétti sem hafa hald- ist á matseðlinum frá upphafi og verða þeir á sérstöku tilboðsverði. Gildir þetta einnig á sunnudag og er ætlunin að gestir fái ósvikna afmælisijómatertu í eftirrétt. Potturinn og pannan er vinsæll staður hjá fjölskyldufólki, m.a. vegna þess að þar er sérstakt leik- herbergi fyrir börn og á sumrin koma ferðamenn einnig mikið á staðinn auk annarra gesta. Kútutjald Svefnpokar 3-4 manna Fermingarverð kr. 7.900 0° kr. 5.500 -10° kr. 7.900 ðapakki inninpi^rl Elan skíði Alpina skíðaskór Salomon skíðabindingar Elan stafir S?Ö7T ■^L EIGANi LEIGANI ÚTIVISTARBÚÐIN við Umferðarmiðstöðina, símar 19800 og 13072. Páskaliljumar að koma PÁSKALILJUR koma í verslanir í næstu viku, bæði afskornar og í pottum. Blómaheildsalar gera ráð fyrir um 100 þúsund afskornum blómum oghugsanlega kringum 5.000.Í mold. Pottablómin eru frekarlítil og bæði höfð í skreytingar og látin standa eins og þau eru. Verð á þeim gæti orðið nálægt 800 krónum fyrir pottinn meðan stykkið af páskaliljum gæti kostað 150 til 160 krónur út úr búð. Líklegt verð á búnti með 7 liljum er svo 700 til 900 krónur. Blómin eru þá heldur minni en fyrsta flokkun og raunar meira en þriðjungur þess sem selt er af páskaliljum. Mest er keypt frá pálmasunnudegi og fram á sjálfa páskahelgina, þótt margir vilji páskaliljur eða önnúr gul blóm vikumar kringum hátíðina. Páskaliljulaukar eru fluttir inn frá Hollandi á haust- in og geymdir í kæli yfir veturinn. Þeir eru svo teknir inn tveim eða þrem vikur áður en þarf að skera blóm- in. Mest er ræktað í Biskupstungum og Hveragerði og næstum eingöngu gular liljur. Ofurlítið kemur líka af hvítasunnuliljum með rauðgulri innri krónu og hvít- um krónublöðum. En almennt eru gul blóm vinsæl þessar vikumar og fram í maí og stærsti dreifingaraðil- inn, Blómamiðstöðin, selur til dæmis mikið af gulum rósum og pottablómum eins og krysi og pokablómi. Miðstöðin býður nú jafnframt í fyrsta sinn lítil gul sólblóm í pottum. Blómasalan er annar milliliður ræktar og sölu og þar selst ásamt páskaliljum og gulum rósum töluvert af gulum gerbemm og fresíum um þesar mundir. í pottum hafa gular krysantemum verið vinsælar á þess- um árstíma og af innfluttum blómum er helst að nefna gular nellikur og forsithu-greinar. Blómasalan tekur væntanlega 20-30 þúsund afskom- ar páskaliljur inn og Blómamiðstöðin 60-80.000 stykki. Óli Valur Hansson er páskaliljusérfræðingur miðstöðv- arinnar. Hann segir páskaliljumar standa í 5 daga til viku ef þær eru hafðar í stofuhita allan sólarhringinn. Ef þær em hins vegar settar í kulda á næturnar, 4-5 gráður, geti þær enst mun lengur. Óli Valur segir best að hafa páskaliljurnar sér í vasa, því þykkur safi úr stilkunum geti haft slæm áhrif á önnur blóm. Því megi reyndar draga úr með því að dýfa liljustilkunum rétt aðeins í sjóðandi vatn til að loka sárunum. Best er að setja liljurnar í volgt vatn með endingar- efni sem fæst í blómabúðum eða þá gömlu aðferðinni aspiríni eða annarri sem Óli Valur segir ágæt: Sykur- mola og nokkmm ediksdropum. Þannig sýrist vatnið, bakteríumyndun minnkar og blómin halda umhverfinu vorlegu og litríku lengur. A Islendingar með í Burda saumak ÍSLENDINGAR geta nú í fyrsta skipti tekið þátt í Burda fatasaums- keppni en keppnin er haldin í sam- vinnu við tímaritið Heimsmynd. í fyrra tóku einstaklingar frá sextán þjóðlöndum þátt í keppninni sem að þessu sinni er haldin í Triest á Ítalíu. Aenne Burda gaf út fyrsta snið- blaðið árið 1950 og hefur sennilega ekki grunað að 45 árum síðar yrði það gefið út í yfír 4 milljónum ein- taka í 125 löndum. Umrædd fatasaumskeppni hefur verið við lýði síðan 1982 en verðlaun era veitt fyrir best hönnuðu og , saumuðu samstæðufötin (dress) sem ! saumuð em af áhugafólki. Allt áhugafólk sem saumar heima getur tekið þátt í undankeppninni sem haldin verður í Reykjavík í júní en þá verða valdir fulltrúar íslands sem halda síðan til Triest í haust. Fagfólk hefur ekki rétt til þátttöku og keppt verður í tveimur flokkum, Angele Ritshard-Vassali frá Sviss, sigurvegari frá í fyrra. byijendaflokki þ.e.a.s. fyrir fólk sem hefur saumað 2 ár eða skemur og í flokki lengra kominna í saumaskap. Þegar dæmt er um bestu flíkumar er m.a. tekið tillit til tísku, heild- arsvips og vandaðs frágangs. Þeir sem vilja vera með eiga að senda tvær myndir af sér í fötum sem þeir hafa saumað fyrir 10. maí næst- komandi og með upplýsingum um nafn, heimilisfang, síma og hversu mörg ár viðkomandi hefur saumað. Evrópskt hár með afrískri áferð ÞESSAR myndir birtust í tímaritinu Hair and fashion en það er Torfi Geirmundsson sem greiddi stúlkunum. Tilefni birtingarinnar er verðlaunaafhending World Masters Awards í New York fyrir skemmstu þar sem Torfi tók við sérstökum heiðursverðlaunum. Förðun og aðra aðstoð veitti María Björk Traustadóttir og Harald- ur Diego tók myndirnar. Vörulistar hjá Pöntun- arfélaginu Á næstunni eða þann 6. apríl næst- komandi opnar Pöntunarfélagið HBD við Skúlagötu 63. Hægt verður að panta þar vömr úr ýmsum pöntun- arlistum s.s. sænska listanum Ellos, Motherc- are og ameríska Sears vörulistan- um. Ekki verður rekin verslun í tengslum við starfsemi vöm- listanna ólíkt því sem fram til þessa hefur tíðkast hérlendis. Að sögn full- trúa fyrirtækisins Hólmgeirs Bald- urssonar, er til- gangurinn að bjóða í staðinn fjölbreytt vöraúr- val úr listum hvaðan sem er úr heiminum. Hólmgeir, sem áður var annar eiganda Atlantis h.f. sem var með JCPenney og Se- ars, segir að rekstrinum hafí verið breytt og nú taki hann að sér Sears umboðið og bæti við ýmsum nýjum póstlistum. Við opnun verða of- angreindir þrír listar í boði, en á næstunni bætast fleiri í hópinn, þekktur undir- fatalisti, vöralisti með rúmteppi og gardínur, sérstakur tískufatnaður frá Ellos, myndbanda- listi sem gefur möguleika á að panta yfir 25.000 titla frá Bretlandi og pöntunarlisti sem hefur 35.000 geisladiskatitla á boðstólum. Þá era væntanlegir amerískir fata- listar og nokkrir evrópskir til viðbót- ar. Innan skamms verður hægt að panta úr þýskum föndurlista líka en «sá listi hefur að geyma ógrynni af fönd- urefni og öðru sem þarf í alls- kyns föndur og skraut.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.