Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 61 BRÉF TIL BLAÐSINS Að eldast eða ekki eldast Athugasemd við Staksteina Frá Steingrími St. Th. Sigurðssyni: I EINU leikriti Shakespeares sjálf- um Hamlet — Amlóða — en svo kallast hetjan á íslenzku, segir höf- undur eða lætur hann hetjuna mæla af munni fram: „Að vera eða ekki vera — það er þessi spuming. Mun drengilegra að þola illar auðnu, gijótflug og örvar eða taka vopn sín í móti hafsjó hörmunganna og gjöra svo enda á þeim valdi.“ Já, þetta er dapurlega kveðið og getur ekki kallazt óður til lífsins, svo sannarlega ekki. Hins vegar hefur það gerzt undanfarið um hríð, að fólk sem hefur bætt við sig mörgum árum hefur öðlazt vissa hamingju með dásamlegri tækni, sem stunduð er undir leiðsögn al- vöru manns, Sigurðar nokkurs Guð- mundssonar. Jón Ragnarsson hótel- stjóri átti þessa hugmynd að lyfta elstu kynslóð íslendinga upp með gleði og leikjum í Hótelranni sínum, þar á austurslóðum þ.e.a.s. Hótel Ork, sem hefur svo mikið uppá að bjóða að útlendingar eru farnir að halda þarna ráðstefnur æ ofaní æ og famir að skrifa um, hve þetta umtalaða gistihús býður uppá hátt kröfustig í hvers kyns hótelhaldi, hvort sem um er að ræða herberg- in, sundlaugina, heitu pottana, tækjasalinn, gufubaðið, hár- greiðslustofuna, snyrtistofuna, músikina, (þrír píanóleikarar allir músíklærðir spila á hveijum degi alls kyns músik sem lyftir hjörtum gesta). Og gestirnir koma í hópum. Svokallaðir eldri borgarar að norð- an, sunnan, austan og vestan. Þeir Söfnun fyr- ir Cherno- byl-börnin STOFNAÐUR hefur verið Minningarsjóður Höllu Bach- mann, kristniboða. Söfnun- arféð mun renna óskipt til barnanna í Hvíta- Rússlandi, sem eiga um sárt að binda vegna af- leiðinga Halla Bachmann Chernobyl- kjamorku- slyssins. Halla Bachmann starfaði víðs vegar um heim- inn, síðast í Minsk í Hvíta- Rússlandi, þar sem hún kenndi rússneskum gyðing- um hebresku, ensku og frönsku. Halla lést af völdum krabbameins í ágúst sl. en hún hefði orðið sjötug í sept- ember nk. Vinir og ættingjar Höllu standa að söfnuninni en öllum sem vilja gefa til Chernobyl- barnanna er frjálst að leggja inn á Kjörbók Landsbanka 101-05-280420. koma með eftirvæntingu eins og í ævintýraleit, og þeir finna ævintýr- ið þarna og fmna jafnvel hamingj- una og finna aftur lífsgleðina og lífslöngunina, sem í ýmsum tilfell- um hefur verið horfin hjá mörgu af þessu fólki. Hver fæddi þessa hugmynd af sér? Hugmyndina um að skemmta roskna fólkinu í bak og fyrir. Eng- inn annar en Jón Ragnarsson hótel- haldari, sem hefur meiri reynslu af hótelrekstri og mannlegum sam- skiptum en margur núlifandi íslend- ingur. Hann er svissneskt og amer- síkt þjálfaður í sinni grein og er einkar laginn við að virkja falda orku í gömlum sálum. Einhver kall- aði hann fimleikamann í bissness. Það var enginn annar en Björgvin Jónsson útgerðarmaður og athafna- maður frá Eyrabakka sem gisti á Hótel Örk. Hann dáðist að stjórnun- arhæfileikum Jóns. En stjórnun (business administration) er skyldu- námsgrein við bandaríska háskóla. Dagurinn er tekinn snemma á þessum sælunnar reit. Árbítur er betri en víðast annars staðar, hollur úr hófi fram og að honum loknum eru léttar æfingar stundaðar sem minna óneitanlega á hreyfingar kattarins. Von bráðar kemur glampi í augun á gamla fólkinu, sérstak- lega konunum sem hafa bersýnilega yngst. Sundið, gönguferðir og kynningarferðir. Og að kveldi er slegið upp dansiballi undir dynjandi músík, og sjá allir þeysa út á gólf.’ STEINGRÍMUR ST.TH. SIGURÐSSON, Roðgúl II, Stokkseyri. Frá Herði Jóhannessyni: LAUGARDAGINN 18. mars sl. birtist í Morgunblaðinu lítil grein í dálkinum Staksteinar þar sem m.a. er fjallað um Rannsóknarlög- reglu ríkisins. í greininni er röng og villandi staðhæfing og vil ég koma á framfæri við ritstjórn blaðsins athugasemdum vegna þessa. Greinin hefst á fullyrðingu um að hjá Rannsóknarlögreglu ríkis- ins starfi einn maður að bruggmál- um. Þetta er rangt. Það er enginn maður hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins sem sinnir svokölluðum bruggmálum vegna þess að þeim er sinnt af öðrum deildum lögregl- unnar, nefnilega lögreglunni í hveiju lögregluumdæmi. Þessari fullyrðingu fylgir önnur; að tugir stöðumælavarða sinni eftirliti með bílstjórum. Það má vera að það sé rétt. í grein Morg- unblaðsins er loks haft eftir dag- blaðinu Degi á Akureyri að þetta sé dæmigerð íslensk forgangsröð- un. Sá sem les þessa grein hlýtur að mega skilja hana þannig að yfirvöld leggi enga áherslu á bruggmálin en margfalt meira sé lagt í að elta uppi þá sem ekki greiða í stöðumæla. Þessi mynd sem Morgunblaðið dregur upp er svo langt frá raunveruleikanum að ekki verður hjá því komist að gera athugasemd og benda á hið rétta í málinu. Löggæsla og rannsóknir brota- mála eru viðfangsefni lögreglunn- ar í landinu. Innan lögreglunnar er viðhöfð ákveðin verkaskipting sem ekki er ástæða til að tíunda hér frekar. Hvað varðar bruggmál er um að ræða brot á áfengislögum og rannsókn slíkra mála er við- fangsefni lögreglunnar í hveiju umdæmi. Þegar fór að bera á landabrugg- un og sölu í þeirri hrinu sem stað- ið hefur undanfarna mánuði hafði lögreglan í Reykjavík afskipti af fyrstu málunum og kom það m.a. í hlut lögreglumanna í Breiðholts- stöð að vinna að þeim. Mörg mál voru upplýst. Síðan hafa komið upp fleiri mál. Lögreglan í Hafnar- firði og Kópavogi hefur upplýst og rannsakað bruggmál og ef ég man rétt hefur komið upp brugg- mál í Keflavík sem lögreglan þar í bæ rannsakaði. Svo mikil áhersla er lögð á þessi mál að fíkniefna- deild lögreglunnar í Reykjavík hefur verið falið að fara með bruggmál í því umdæmi og hefur svo verið undanfarna mánuði — og voru verkefnin þar þó ærin fyrir. Það væri því nær að segja að tugir lögreglumanna sinni þess- um málum en ekki aðeins einn maður eins og Morgunblaðið held- ur fram. Það sem er villandi í grein Morgunblaðsins er að tengja rann- sóknir bruggmála við fjölda stöðu- mælavarða í Reykjavík. Það hlýtur að vera öllum ljóst að stöðumæla- verðir eru ekki lögreglumenn og að stöðumælavarslan er ekki lög- reglumál og því ekki á vegum lög- reglunnar. Bfiastæðasjóður Reykjavíkur- borgar rekur bflageymslur og stöðumæla í borginni og stöðu- mælaverðir eru starfsmenn bíla- stæðasjóðs og koma lögreglu ekk- ert við. Það kann að vera að einhveijum þyki of lítið að gert af hálfu lög- reglu þegar bruggmál eru annars vegar og að starfsmenn bílastæða- sjóðs gangi of hart fram í álagn- ingu og innheimtu leigugjalda af bílastæðum. Ef Morgunblaðið hef- ur skoðun á þeim málefnum getur blaðið gert grein fyrir henni, hvort sem hún er vitlaus eða ekki að mati annarra. Ef Morgunblaðið hins vegar er að birta frétt um málið er það lágmarkskrafa að fréttin sé rétt. Frétt Morgunblaðsins þess efnis að aðeins einn maður sinni brugg- málum hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins er röng og blaðið hefur ekkert gert til að afla upplýsinga um málið en notast við óstaðfestar heimildir. HÖRÐUR JÓHANNESSON, yfirlögregluþjónn. SIEMENS Siemens RS 252R6 • Geislaspilari • Tvöfalt segulbandstæki • Alvöruútvarp • 2x25 W • Gæðahátalarar • Fullkomin fjarstýring ALLT ÞETTA , FYRIR AÐEINS KR.: < Stórskemmtilegc á stórskemmtile Siemens RS 251R6 • Geislaspilari • Tvöfalt segulbandstæki • Alvöruútvarp • 2x 10 W • Gæðahátalarar ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS KR.: SMITH & NORLAND Nóatúni 4 • Sími 628300 Framsókn '95 Halldór Asgrímsson verður á ferð um Vestfjarðakjördæmi f/rir hádegi í dag og á fundi Háskólans á Akureyri í Háskólabíói síóaegis. Hann veróur í kjördæmisþætti Austurlands í sjónvarpinu kl.13 á sunnudag og á ReyÖarfirSi um kvöldiS. A mánudag verÓur hann á framboSsfundi á EgilsstöÓum kl. 20.30. B Framsóknarflokkurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.