Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Vortónleikar Fóst- bræðra í Langholts- og Digraneskirkju V ORTÓNLEIKAR Karlakórsins Fóstbræðra verða haldnir á næst- unni í Langholtskirkju og Digranes- kirkju. Kórinn heldur fema tónleika og verða þeir sem hér segir: 28. mars kl. 20.30 í Langholts- kirkju. 29. mars kl. 20.30 í Langholts- kirkju. 30. mars kl. 20.30 í Digranes- kirkju. 1 . apríl kl. 15.30 í Langholts- kirkju. Söngstjóri kórsins er Ámi Harð- arson, tónlistarmaður, sem hefur verið fastráðinn stjómandi kórsins síðustu árin. Píanóleik með kórnum annast Lára Rafnsdóttir, sem hefur margoft komið fram með kórnum bæði hér heima og erlendis. Efnisskrá tónleikanna verður fjölbreytt. Flutt verða þjóðlög eftir eldri og yngri íslensk tónskáld, auk nokkurra sænskra og norskra þjóð- laga. Einnig flytur kórinn þijár bænir Heilags Franz frá Assisi eft- ir franska tónskáldið Francis Poul- enc. Þessi lagaflokkur hefur ekki áður verið fluttur hér á landi. Loka- kafli tónleikanna er m.a. kórar úr óperunum Töfraflautunni eftir Moz- art, Rigoletto eftir G. Verdi og Fast eftir C. Gounod. Einsöngvarar á tónleikunum em óperusöngvar- arnir Kolbeinn Ketilsson og Þorgeir Andrésson. Kolbeinn syngur með kómum á fyrstu tveimur tónleikun- um en Þorgeir á þeim tveimur síð- ari. Þeir munu einnig flytja á tón- leikunum óperuaríu við píanóleik Láru Rafnsdóttur. Kolbeinn flytur aríuna Saubertöne úr Töfraflaut- unni og Þorgeir aríuna Amor ti vi- eta úr Fedora eftir U. Giordano. LISTIR BRESKIR tónlistarmenn og tón- skáld undir nafninu „Salford Soundworks“ halda tónleika í Norræna húsinu mánudaginn 27. mars kl. 20.30. Þarna munu kennararnir og tónskáldin Jonty Stockdale, sem leikur á sópran- og alt-saxófóna, Stan Hawkins, pianóleikari og Derek Scott, sem leikur á pianó og synthesizer leika nýjar tónsmíðar sínar ásamt nemendum frá Salford College, þeim Lars Jakobsen, bassagítarista og Ágústi Sveins- syni, slagverksleikara. Sá síðast- nefndi er Islendingur, sem að undanförnu hefur stundað nám við Salford College. Tónleikar Salford Soundworks í Norræna húsinu Heimsókn þessi er liður í sam- starfi Salford College við Tón- listarskólann í Reykjavík í svo- kölluðu Erasmus-neti, en auk þeirra eru í netinu tónlistar- deildir háskóla í fleiri löndum. Fyrir tveimur árum kom hingað til tónleikahalds frábær málm- blásarasveit frá sama skóla og í fyrra sendi skólinn mjög góða djasshljómsveit. Á efnisskrá tónleikanna eru eins og áður sagði verk eftir þá Stockdale, Hawkins og Scott, en hér er um að ræða nútimatónlist mep vissri „sveiflu". Á sunnudeginum mun „Sal- ford Soundworks" halda tón- leika í sal Tónlistarskólans í Reykjavík fyrir nemendur og kennara. Aðgangur að tónleikum þess- um er ókeypis og öllum heimill. Tónlist fyrir alla SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands heldur tónleika í Kópavogi, Grindavík, á Akranesi, Selfossi og i Keflavík, þar sem leikið er fyrir bæjarfélögin á Suðumesjum. Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari. Einleikari og kynnir: Jónas Ingi- mundarson. Kórar á viðkomandi stöðum taka þátt í tónleikunum, einsöngvari með kór Fjölbrauta- skóla Suðurlands er Kristjana Stefánsdóttir. Á efnisskrá eru verk eftir Dvor- ák, Smetana Britten, Liszt, Franck, Rodger/Hammerstein, Jón Ásgeirsson, Atla H. Sveinsson og Skúla Halldórsson. Upphafíð að Tónlist fyrrir alla er átak sem stofnað var til árið 1992 af skóla- og bæjaryfirvöldum á Selfossi í þeim tilgangi að gefa nemendum grunn- og framhalds- skóla kost á að hlusta á lifandi tónlist sem valin er með þann ald- urshóp sérstaklega í huga. Aðal- hvatamaður að verkefninu var Jónas Ingimundarson píanóleikari og hefur hann verið aðalskipu- leggjandi þess frá byijun. Það er skemmst frá því að segja að þetta átak tókst frábærlega vel og á síðasta skólaári bættust í hópinn skólayfirvöld á Akranesi og í Kópavogi og í ár eru bæjarfélögin orðin fimm sem standa að Tónlist fyrir alla. Verkefnið er skipulagt sem tónleikaröð, sem hefst í sept- ember ár hvert, þar sem helstu tónlistarmenn þjóðarinnar koma fram en, endahnúturinn á tón- leikaröðina rekur Sinfóníuhlóm- sveitin. Áætlað var að hljómsveitin léki á tvennum skólatónleikum og einum almennum tónleikum á við- komandi stöðum en vegna verk- falls kennara getur ekki orðið af skólatónleikunum en almennir tónleikar verða, og er aðgangur er ókeypis fyrir nemendur grunn- og framhaldsskóla. Petri Jónas Sakari Ingimundarson Tónleikarnir verða sem hér seg- ir: Kópavogur, laugardag 25. mars kl. 14 - íþróttahúsinu Smára. Selfoss mánudag 27. mars kl. 20 - íþróttahús Sólvallaskóla. Akra- nes, þriðjudag 28. mars kl. 20 - íþróttahúsið Vesturgötu. Grinda- vík, miðvikudag 29. mars kl. 20 - íþróttahús Grindavíkur. Keflavík, fimmtudag 30. mars kl. 20 - íþróttahúsið Sunnubraut. HEILBRIGÐISRADUniEYTIÐ heldur því fram að tilvísanaskyldan muni spara ríkissjóði 120 milljónir á ári ÞETTA E r-------------------------- Ráðuneytið sleppir því vísvitandi að reikna með kostnaði við að byggja og reka heilsuaæslustöðvarnar. Allur sá kostnaður fellur á skattboraarana. Tilvísanaskyldan mun kosta ríkissjóð á annað hundrað milljónir króna á ári EFTIRTALDIR LÆKNAR MUNfJ EKKI STARFA SAMKVÆMT TILVíSANA SKYLD U. LYFLÆKNAR Andrés Sigvaldason Asgeir Böðvarsson Birgir Guðjótisson Einar Oddsson Guðjón Lárusson Gunnar Valtýsson Ari Jóhannesson Asgeir Jónsson Bjarni Þjóðleijsson Friðrik E. Yngvason Guðmundur I. Eyjólfsson Hallgrimur Guðjónsson AmiJ. Geirsson Ásgeir Theódórs Björn Magnússon Friðþjójur Björtisson Guðttiundur Oddsson Haraldur Briem Árni Kristinsson Astráður Hreiðarsson Davíð Gtslason Gestur Þorgeirsson Guðmundur Þorgeirsson Helgi Jónsson Árni T. Ragnarssoti Benedikt Guðbrandsson Einar Baldvinssoii Gizur Gottskálksson Gunnar Sigurðsson Helgi Valditnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.