Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 23 Hundamatur frá Fóðurblöndunni KAPPI er hundamat- ur sem Fóðurblandan hf. setti nýlega á markað. í KAPPA eru öll næringarefni fyrir hunda eldri en 3 mán- aða. Hráefnin eru að- allega valdar kornteg- undir, kjötmjöl úr nautaskrokkum og innmat frá Afurðasölu Borgamess, íslenskt loðnumjöl, þurrkað við lágt hitastig til að tryggja gæði og loðnulýsi ríkt af omega-3 fitusýrum auk vítamína, stein- efna og ýmissa snefilefna. Fóðurblandan hf. hefur framleitt dýrafóður fyrir íslenskan landbúnað í 30 ár. Að sögn Dereks Mundell, Ráölagður dagskammtur fyrir fullvaxna hunda gTÖmm 1-5 kg bollar Dverghundar, t.d. Pug, Papillion 30-135 'A-l'/. 5-10 kg Smáhundar, t.d. Poodle, Terrier 135-225 1 */.-2'/. 10-25 kg Meðalstórir hundar, t.d. íslenski fjárhund- 225-425 urinn, Springer Spaniel 2 '/.-4'/. 25-35 kg Stórir hundar, t.d. Labrador, 425-600 Golden Retriever, Séfer, Setter, Collie 4'/.-6 35-50 kg Mjðg stórir hundar, t.d. St. Bemharð, 600-800 Biard, Nýfundna- landshundur 6-8 1 bolli=100g gæðastjóra, fer fram- leiðslan fram í tölvu- væddu og lokuðu kerfi, sem tryggir ná- kvæma vigtun og blöndun hráefna. „Vöruþróun KAPPA hófst fyrir tveimur árum. Við sóttum þekkingu til bandarísks næringar- fræðings, sem hefur sérhæft sig í gælu- dýramat og hefur mikla reynslu. Undir handleiðslu hans bjuggu tveir fóð- urfræðingar okkar til þurrmat fyrir hunda og var prótein- innihald og orkugildi valið með til- liti til að uppfylla þarfir flestra heimilishunda. Þegar við vorum orðin ánægð með hráefnavalið og útlit vörunnar hófum við fóðurtilraunir á 30 hund- um í eigu Veiðistjóraembættisins. Þeir fengu eingöngu KAPPA í 18 mánuði. Þeim virtist líka kosturinn vel og að nokkrum vikum liðnum höfðu menn orð á hve feldurinn væri orðinn fallegur," segir Derek Mundell. Síðastliðið ár seldi Fóðurblandan KAPPA í 20 kg pokum beint frá verksmiðjunni, en nú hefur Nathan & Olsen hafið dreifingu á 4 kg pokum í verslanir. Talið er að inni- haldið endist meðalstórum hundi í tvær vikur. Upplýsingar á pokunum og í bæklingi eru á íslensku. Pok- arnir eru dagstimplaðir og innihald- ið hefur 6 mánaða geymsluþol. Slíkt segir Derek Mundell að sé til að tryggja ferskleikann en á innflutt- um hundamat sé erfitt að standast slíkar kröfur. Mælt er með að KAPPA-pokarnir séu geymdir á svölum, þurrum stað og helst í lok- uðu íláti. POKARNIR eru dagstimplaðir og hafa 6 mánaða geymsluþol. Islensk kjötsúpa sem bollasúpa í TILEFNI 50 ára lýð- veldisafmælis á íslandi á síðasta ári og vegna fjölda fyrirspurna hef- ur TORO sett á mark- að íslenska kjötsúpu sem bollasúpu. Umsjón með vöru- þróun og bragðprófun hafði Sigurvin Gunn- arsson matreiðslu- meistari, en hönnun umbúða annaðist Hilmar Guðjónsson. Pakkamir eru skreyttir myndum frá öllum lands- hornum og á framhlið- inni er mynd af Horn- bjargi. Leiðbeiningar á um- búðum eru á íslensku og ensku. í fréttatil- kynningu segir að ís- lenska kjötsúpan sé kjamgóð og þægileg máltíð sem auðvelt sé að grípa til t.d. á vinnustað og í ferða- laginu. Sölu- og dreifingaraðili er John Lindsay hf. Endurbætur á asma- lyfinu Ventolin MARGIR íslenskir astmasjúkling- ar nota asmalyfin Ventolin eða Proventil. Bandarískt fyrirtæki, Sepracor, hefur nú fengið einka- leyfi á endurbótum lyfsins en sala lyfsins nemur rúmum milljarði bandaríkjadala á ári. Albuterol er efni sem kemur fyrir í tveimur myndum og efnin eru svo náskyld að efnaformúlan er sú sama en spegilmynd annars getur ekki fallið í hina. Eru slík efni kölluð handhverfur á íslensku. Hin mismunandi form lyfsins em kölluð (R) albuterol og (S) albute- rol eftir því um hvora handhverf- una er að ræða. Efnafræðilega er erfitt að aðgreina spegilmyndir því efnaeiginleikar eru þeir sömu að öllu leyti utan einn. Fyrirtækið Sepracor hefur nú fundið leið til að aðgreina og ein- angra efnin og rannsóknir hafa sýnt að einungis fyrri handhverfan (R) er virk sem asmalyf en hitt efnið (S) er ekki skaðlaust með öllu eins og álitið var heldur getur það aukið andþyngsli og unnið gegn virkni R-formsins. Þar sem Ventolin hefur hingað til haft bæði R og S formið í jafn- miklu magni hefur það ekki haft eins góða virkni og æskilegt væri. daVerði framleiðsla á hreinu hand- hverfunni ekki þeim mun dýrari er þess vænst að í framtíðinni komi á markað lyf, sem einungis inniheldur R-efnið. Uppskrift vikunnar Þrjátíu bollur í bollukökunni HELGA Konráðsdóttir, matreiðslukennari, fylgist með að rétt sé að bakstrinum staðið. NEMENDUR Hússtjómarskólans í Reykjavík vora nokkuð sammála um að mæla með bolluköku með sesamfræjum þegar til þeirra var leitað með uppskrift vikunnar að þessu sinni. Bollukakan hafði verið bökuð þar oftar en einu sinni enda góð bæði með mat og sem kaffi- meðlæti. Helga Konráðsdóttir, matreiðslukennari Hússtjómar- skólans, sagði að uppskriftin dygði í um 30 bollur og er hana að finna í kennslubókinni Við matreiðum eftir þær Bryndísi Steinþórsdóttur og Önnu Gísladóttur. Bollukaka meó sesamfræi 9 dl hveiti eða hveiti og aðrar korntegundir 3 msk. hveitiklíð 5 tsk. þurrger tsk. salt 3 tsk. púðursykur eða sykur 1 dl mjólk 2 dl heitt vatn _________2 egg_________ 5 msk. motarolía Setjið 6 dl af hveitinu, hveitiklíð- ið, þurrgerið, saltið og sykurinn í skál og hrærið vel. Þeytið eggin lauslega saman og takið eina msk. frá til að pensla bollurnar eftir lyftingu. Blandið heitu vatni og mjólk. Vökvinn á að vera ylvolgur. Hrærið honum saman við mjölblönduna ásamt eggjunum og matarolíunni. Stráið dálitlu af hveitinu, sem eftir er, yfir deigið og leggið þurrt stykki yfir skálina. Látið deigið lyfta sér við yl í um 10 mín., t.d. í volgu vatnsbaði. Hrærið og hnoðið deigið með því sem eftir er af mjölinu. Deigið á að vera lint, en mótanlegt. Hnoðið deigið í lengjur og skiptið í meðal- stóra bita. Mótið bollur og raðið þeim í smurt mót eða á plötu með bökun- arpappír. Best er að byija frá miðju með eina bollu og raða síðan í kring með dálitlu millibili þannig að bollumar renni aðeins saman við lyftinguna. Móta má stakar bollur úr hluta deigsins og baka þær með kökunni. Stillið ofninn á 200 gráður. Lát- ið bollumar lyfta sér við yl í 10 mínútur og leggið stykki yfír á meðan. Smyijið bollumar með egg- inu, sem tekið var frá og stráið sesamfræjum yfír. Bakið við 200 gráðu hita í miðj- um ofni í um 15 mín. Leggið stykki yfír bollukökuna á meðan hún er að kólna eftir baksturinn. Þá verð- ur hún mýkri. laugardag og sunnudag kl. 14-16. Kynning á High Desert blómafrjókornum Gissur Guðmundsson verður í Blómavali um helgina og ræðir við fólk umsérstakan árangur af neyslu High Desert blómafrjókorna. Áhugafólk um afurðir hunangsflugunnar eru hvattir til að koma og hitta Gissur kl. 14-16. ÚRKLIPPA úr norska blaðinu Verdens Gang, þar sem greint er frá þeim undra- áhrifum sem afurðir býflugunnar höfðu á Gissur Guðmundsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.