Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 35 Hallinn var 12,5% af heildartekj- um ríkissjóðs 1991, en um 6,8% á síðasta ári. • Kaupmáttur ráðstöfunar- tekna hefur aukist en hann rým- aði um 12,7% í tíð síðustu ríkis- stjómar. • Lækkun matarskatts hefur leitt til þess að matarverð hefur lækkað um 4% að minnsta kosti. • Erlend skuldasöfnun hefur verið stöðvuð og mun þjóðin greiða niður erlendar skuldir á þessu ári, eins og þrjú síðustu ár. Brýnt að halda uppbyggingunni áfram Vegna þess árangurs sem ríkis- stjórnin hefur náð undanfarin ár er, undirforystu Sjálfstæðisflokks, hægt að hefja sókn til bættra lífs- kjara. Kostirnir í komandi kosn- ingum em ótvíræðir. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur tryggt þjóðinni bættan hagvöxt og betri tíma framundan. Það er tvímælalaust brýnasta verkefni okkar að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið og tryggja að þjóðin fái notið ávaxta erfiðis síns á und- anförnum árum. Það er afar mikil- vægt að þeim efnahagslega ávinn- ingi, sem er innan seilingar, verði ekki fórnað á altari sundrungar og óeiningar vinstri flokkanna. Eftir kosningar verður að taka við tveggja flokka ríkisstjórn með að- ild Sjálfstæðisflokksins en ekki þriggja eða fjögurra flokka vinstri stjórn. Höfundur er mennta- málaráðherra. hafa lagt sigt fram um að kaupa vinnu kennara á sem lægstu verði. Aðgerðaleysi menntamálaráðherra Er menntun þjóðarinnar í raun og veru svo lítils virði að ekki skipti máli þótt margra vikna hlé sé gert á kennslu? Það lítur ekki út fyrir að menntamálráðherra hafi miklar áhyggjur þar sem lítið hefur til hans heyrst í margar vik- ur. Það ætti að vera honum kapps- mál að koma hér á öflugu og góðu menntakerfi og beijast fyrir auknu gildi menntunar. Hvenær ætlar yfirmaður menntamála á íslandi að skerast í leikinn og beijast fyr- ir sitt fólk, kennara og nemendur í landinu? Nemendur orðnir óþolinmóðir Eins og staðan er í dag hafa margir nemendur ákveðið að hætta námi og séð hag sínum betur borgið með því að fara út á vinnumarkaðinn. Nemendur eru harla vonlitlir um lausnir á meðan ekkert jákvætt heyrist af samn- ingaviðræðum. Því er ekki nema von að margir velti því fyrir sér hvað verður gert til úrlausnar ef verkfall leysist á næstu dögum. Þeim mun lengur sem verkfallið varir því erfiðara verður að vinna úr þeim vandamálum sem hafa skapast. Ljóst er að erfitt verður fyrir menntamálaráðuneytið ásamt kennurum og nemendum að detta niður á eina lausn sem allir geta sætt sig við. Við sættum okkur ekki við að hagsmunir 60.000 nemenda séu lítilsvirtir á þann hátt sem nú hef- ur verið gert. Við krefjumst þess að ríkisstjórnin geri betur og marki sér ákveðnari stefnu í menntamálum. Guðrún Tinna Ólafsdóttir, inspector scholae MR Tjörvi Bjarnason, forseti MH Daníel Svavarsson, formaður Félags framhaldsskólanema Snorri F. Dónaldsson, formaður MK Þórhallur Ágústsson, drmaður MS Þórir Karl Jónasson, formaður IR Hreinn Sigurðsson, formaður INSÍ Sæmundur Valdimarsson, formaður Kvennaskólanum. Alþjóðavið- skiptastofnunin Á SÍÐUSTU dögum nýliðins árs heimilaði Alþingi ríkisstjórninni að fullgilda samkomu- Iagið um stofnun Al- þjóðaviðskiptastofnun- arinnar (WTO) sem tók til starfa 1. janúar sl. Þar með gat ísland gerst stofnaðili að WTO sem vissulega ber að fagna. Stofnun Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar er merkur áfangi í sögu heimsviðskiptanna, en til þessa hefur umræða um hana verið afar tak- mörkuð hér á landi, ef undan er skilin umræða um land- búnaðarsamninginn, sem er einn af mörgum samningum sem WTO á að hafa eftirlit með. Aðdragandi stofnunar WTO Við stofnun Sameinuðu þjóðanna á sínum tíma voru uppi hugmyndir um að setja á stofn þijár aðrar ná- tengdar stofnanir sem var ætlað það hlutverk að stuðla að alþjóðlegri efnahags- og viðskiptasamvinnu á vegum S.þ. Þessar stofnanir voru Alþjóðabankinn, Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn og Alþjóðaviðskiptastofn- unin. Tvær fyrrnefndu stofnanirnar komust á legg en erfiðleikum reynd- ist bundið að koma Alþjóðavið- skiptastofnuninni á fót. Til að tryggja frelsi í viðskiptum milli landa var gerður bráðabirgðasamn- ingur 1947, GATT samningurinn svokallaði. Honum var ekki ætlaður langur líftími eða þar til samningar um Alþjóðaviðskiptastofnunina tækjust. Hins vegar liðu 47 ár þar til að það gerðist, en 1. janúar sl. tók Álþjóðaviðskiptastofnunin, WTO, til starfa eins og áður sagði. Miklar vonir eru bundnar við stofnunina, ekki síst af hálfu þróun- arlandanna. Nú eiga yfir 125 ríki aðild að WTO og fer aðildarríkjun- um stöðugt fjölgandi. Um hvað fjallar WTO samningurinn? Gamli GATT samningurinn fjall- aði einungis um vöruviðskipti, en með stofnun Alþjóðaviðskiptastófn- unarinnar verður samningur um þann hluta heimsviðskiptanna ein- ungis einn af mörgum samningum sem undir stofnunina heyra. Sérstakir samn- ingar hafa nú verið gerðir um þjónustuvið- skipti (GATS) og hug- verkaréttindi, en það hlýtur að teljast mikið framfaraspor að hafa náð samningum um þessa þætti alþjóðavið- skipta. í samræmi við þessi verkefnasvið verða stofnuð þijú ráð innan stofnunarinnar, þ.e. fyrir vöruviðskipti, þjónustuviðskipti og hugverkaréttindi og mynda þau meginstoðir hinnar nýju stofnunar. Auk þess fylgja fleiri sérsamning- ar með, t.d. fjallar einn samning- urinn um viðskipti með landbúnað- arvörur, annar um tæknilegar við- skiptahindranir o.fl. Meginregla GATT samningsins er hin svokallaða „bestukjararegla". Samkvæmt henni verða samnings- aðilar að veita öllum samningsaðil- um sömu viðskiptakjör, þ.e. bannað er að bjóða einu ríki betri markaðs- aðgang en öðru. Þessi regla er þó ekki með öllu undantekningalaus. Ávinningur Aðalávinningur WTO samnings- ins eru víðtækar tollalækkanir, sem munu leiða til lægra vöruverðs fyr- ir neytendur, auka hagvöxt og at- vinnustig, ef rétt er á málum hald- ið. Mikilvægt er að milliríkjavið- skipti fari eftir samræmdum og ljós- um reglum. Útfærð eru ákvæði um lausn deilumála, en þeim þætti var mjög ábótavant í gamla GATT samningnum. Fyrir smærri ríki skiptir samningur þessi miklu máli, þar sem það eru einkum þau ríki sem verða fyrir barðinu á alls kyns viðskiptahindrunum sem stærri þjóðimar semja um sín á milli. Ekki þarf að fjölyrða um hag ís- lands af samkomulagi sem þessu. Forsenda fyrir búsetu í landinu er viðskipti okkar við umheiminn og því er okkur afar mikilvægt að þau viðskipti gangi sem greiðast fyrir sig, bæði til og frá landinu. Staðlar og umhverfismál Einn þeirra samninga sem er hluti af WTO samningnum er samn- Vel upplýstir neytendur eru, að mati Birnu Hreiðarsdóttur, besta tryfffflngin fyrir því að staðið sé við gerða samninga sem þá varða. ingurinn um tæknilegar viðskipta- hindranir, sem fyrr sagði. Með hon- um viðurkenna aðildarríki mikil- vægi alþjóðastaðla til að greiða fýr- ir viðskiptum milli landa. Þau skuld- binda sig til að tryggja þátttöku landa sinna í Alþjóðasambandi staðlaráða (ISO), Alþjóðaraftækni- ráðinu (IEC) og upplýsingakerfinu ISONET. Af hálfu Staðlaráðs ís- lands hefur verið leitað eftir afstöðu stjórnvalda til efnda á þessum hluta samningsins, en svör hafa ekki bor- ist._ Á vegum ISO fer nú fram mikil vinna í tengslum við stöðlun í um- hverfismálum, en sakir fjárskorts hefur Staðlaráð íslands ekki getað tekið þátt í þessu starfi. Áhersla er lögð á stjórnkerfi fyr- ir fyrirtæki sem vilja draga úr skað- legum áhrifum á umhverfið, vinna mat á umhverfisáhrifum og grein- ingu á þeim frá hönnun vöru til förgunar. Einnig er unnið að stöðl- um sem eiga að gilda um umhverfis- merkingar. Þau fyrirtæki sem geta sýnt fram á að þau vinni samkvæmt alþjóða- stöðlum standa betur að vígi í sam- keppni en önnur. Fyrir neytendur skiptir sú vitneskja sífellt meira máli við kaup á vöru að gætt sé umhverfissjónarmiða við fram- leiðsluna. Það ánægjulega við þessa þróun er að framleiðslukostnaður á slíkri vöru er í mörgum tilvikum lægri en ella. Ef árangur á að nást í að efla útflutning á lífrænt rækt- aðri framleiðslu verður að fylgja alþjóðastöðlum við framleiðsluna. Tómt mál er að tala um að búa til séríslenska staðla fyrir þessa vöru, þeir hafa einfaldlega ekki sama vægi og alþjóðastaðlar og munu ekki ná þeim tilgangi sem stefnt er að. Mun vænlegra til árangurs Birna Hreiðarsdóttir er fyrir ísland að taka virkan þátt í mótun alþjóðastaðla á sviði um- hverfismála. Fjármagn, sem veitt er í undirbúningsstarf vegna þessa málaflokks, mun örugglega skila sér margfalt er fram líða stundir. Með WTO samningum er gert ráð fyrir stórauknum alþjóðaviðskiptum sem muni leiða til aukningar heims- tekna, sem hleypur á hundruðum milljarða Bandaríkjadala á ári, þeg- ar samningurinn verður að fullu kominn til framkvæmda árið 2005. Þær raddir hafa heyrst að þessi auknu viðskipti muni ganga of nærri lífríki jarðar og leiða til óbæt- anlegra umhverfisspjalla. Við at- hugun á samningnum kemur hins vegar í ljós að þar er ekkert sem kemur í veg fyrir að umhverfis- verndarsjónarmiða sé að fullu gætt. Reyndin hefur verið sú að eftir því sem þjóðir þróast efnahagslega gæta þær betur að umhverfisvernd- arsjónarmiðum. Aukinn hagvöxtur og virk umhverfisvernd geta því hæglega átt samleið. Auk þess ber að nefna að stærsti vaxtarbroddur- inn verði í viðskiptum á þjónustu- sviðinu, en þar koma auðlindar jarð- ar takmarkað við sögu. Stjórnvöld og neytendur Það vill allt of oft brenna við að stjórnvöld hér á landi skrifi undir alþjóðasamninga með pompi og prakt og láti síðan þar við sitja. Með tilkomu Alþjóðaviðskiptastofn- unarinnar verður hins vegar virkt eftirlitskerfi með framkvæmd samningsins sett í gang. Óneitan- lega væri meiri bragur á því að standa að fullu við samningana en að fá endalausar athugasemdir um nauðsynlegar lágmarks efndir eins og reyndin hefur verið með ýmsa aðra alþjððasamninga. Vel upplýstir neytendur eru besta tryggingin fyrir því að staðið sé við gerða samninga sem þá varða. Því hlýtur það að vera metnaðarmál stjórnvalda að kynna efni samn- ingsins og þau markmið sem stefnt er að með gerð hans. í því sam- bandi ber að hafa í huga að reynsla okkar íslendinga af því að afnema viðskiptahöft hefur ætíð reynst þjóðinni heillaspor. Aldrei er hægt að skapa fleiri störf með innflutn- ingshöftum en tapast á móti, reynslan sýnir undantekningalaust að frelsi í viðskiptum milli landa skapar störf og lækkar vöruverð. Alþjóðaviðskiptastofnunin er sett á fót til hagsbóta fyrir almenning um heim allan og nú er að vona að ís- lensk stjórnvöld beri gæfu til þess að efna samninginn eftir bestu getu þannig að full sæmd sé af. Höfundur situr í stjórn Staðlaráðs Islands og er formaður starfshóps á vegum Neytendasamtakanna um neytendur og staðla. Bætt kjör, betri skóli! OPf BERAST kjör kennara í tal manna á meðal og þá ekki síst núna í þeirra kjarabar- áttu. Fólk veltir fyrir sér 40 mínútum í klukkustund, lengd vinnudags með börn- unum, „löngu“ sum- arfríi o.s.frv. Niðurstað- an í umræðunni verður oft sú að kennarar eru taldir skila styttri vinnuviku en aðrir þjóðfélagshópar. Gott væri að þeir sem halda slíku fram kynntu sér málin til hlítar og segðu svo sitt álit. Margir gera sér ekki grein fyrir að starfið felst í fleiru en beinni kennslu, s.s. samstarfi við aðra kennara, samstarfi við foreldra, und- irbúningi kennslu, úrvinnslu verk- efna, endurmenntun o.fl. Vinnu- skylda kennara er nákvæmlega út- færð og er rúmlega 45 klukkustund- ir á viku á starfstíma skóla. Greidd- ar eru 40 stundir á starfstíma skóla en þær rúmlega 5 stundir sem eftir liggja eru greiddar um sumartímann sem dagvinna. Þannig vinn- um við hluta af sumr- inu af okkur auk þess að undirbúa kennsluna með ýmsum hætti fyrir næsta skólaár. Síðan eigum við reyndar sum- arfrí í júlí. Viljum mannsæmandi kjör Kennarar eru ekki að fara fram á annað en mannsæmandi kjör í kjarabaráttu sinni núna sem endra- nær. Við viljum geta „framfleytt“ okkur á launum fyrir það starf sem við sinnum í samfélaginu, þannig höldum við höfði. Það hlýtur einhvers staðar að vera pottur brotinn í „rekstri" sam- félagsins ef ekki eru tök á að hafa kjör kennara í lagi því íslendingar Þjóðin hefur hreinlega ekki efni á því, sefflr + * Aslaug O. Harðardótt- ir, að borga kennurum smánarleg laun. hafa löngum lagt mikla áherslu á gott menntakerfi í „stefnuyfirlýsing- um“ sínum. Þjóðin hefur hreinlega ekki efni á því að borga kennurum smánarleg laun þannig að þeir þurfi stöðugt að hafa áhyggjur af því hvort endar nái saman til- að mæta grunnþörfum. Með þær áhyggjur getum við ekki sinnt starfi okkar eins og best verður á kosið, það er ljóst, og þá er æska landsins í húfi, þ.e. framtíð þjóðarinnar. Tími framkvæmdanna runninn upp Við kennarar erum búnir að fá nóg af fögrum fyrirheitum ráða- manna um bætt skólastarf og þar með talin bætt kjör kennara í land- inu. Nú er komið að tíma fram- kvæmdanna á því fagra svo við getum verið góð fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir. Hættum að tala í hringi og búa til skýrslur, fram- kvæmum heldur það sem búið er að tala um því um það er víðtæk samstaða. Sjáum hlutina í samhengi Launakjör fólksins í landinu hafa afgerandi áhrif á líðan þess. Þess vegna verða þau að vera mannsæm- andi, þ.e. að lágmarkslaun séu mið- uð við framfærslukostnað. Það er því löngu tímabært fyrir ráðamenn þjóðarinnar að hefjast handa við að sjá hlutina í samhengi og hætta að etja launahópum saman í stað þess að sameina þá. Bætt kjör kenn- ara og annarra launamanna leiða örugglega af sér betri skóla fyrir börnin okkar, um það er engin spurning. Höfundur er grunnskólakennari. Áslaug Ó. Harðardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.