Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 49 PÝÞAGÓRAS; þéttasta hljómsveit kvöldsins. Reykj avíkur- rokk TÓNLIST Tónabær MÚSÍKTILRAUNIR Músíktilraunir, hb'ómsveitakeppni Tónabæjar, annað undanúrslita- kvöld af fjórum. Þátt tóku Pétur, Stillborn, Weghefyll, Tempest, Richter, 3 Monkeys, Kolka og Pýþagóras. 23. mars. ÁRLEGAR músíktilraunir standa nú í Tónabæ og á fimmtu- dagskvöld var annað tilrauna- kvöld af fjórum. Að þessu sinni voru tilraunasveitirnar allar utan ein úr Reykjavík og nágrenni og flestar sungu á ensku, sem segir sitt um frumleika. Hljómsveitin Pétur var fyrst á svið og byijaði með látum. Fyrsta lag sveitarinnar var þó ekki öflugt og þó mjög hafi borið á fyrirtaks gítarleikara sveitarinnar, vantaði nokkuð upp á laglínu og sam- hengi. í öðru lagi sveitarinnar small allt saman, en þriðja lagið var heldur þunnt pönk. Næsta sveit, Stillbom, byijaði með engu minni látum og hélt samfelldri keyrslu í lögunum þremur, þó frumleiki hafi verið af skornum skammti. Veiki hlekkurinn var söngurinn og liðsmenn verða að grípa til ráðstafana í þeim efnum áður en lengra er haldið. Þriðja lag sveitarinnar var dægilegur slagari. Þriðja tilraunasveitin, Weghefyll, tók einnig þátt í síð- ustu Músíktilraunum, en kom nú fram með nýjan söngvara. Hann átti sína spretti, en fór líka stund- um út af sporinu. Sérstaklega var annað lag sveitarinnar vel heppn- að. Fjórða sveit kvöldsins og sú síðasta fyrir hlé var Tempest. Sú var ekki sannfærandi og lögin héngu illa saman og ljóst að Tem- pest á nokkuð í land. Eftir hlé komu á svið Hvolsvell- ingamir í Richter. Þeir léku stuð- tónlist og vom ágætlega þéttir, sérstaklega var bassaleikari sveit- arinnar öflugur. Þrátt fyrir það og góða takta gítarleikara sveitar- innar vantaði nokkuð upp á í lag- asmíðum, en þriðja lagið stóð uppúr. 3 Monkeys kom næst á svið og breytti um tempó og stemmningu, enda liðsmenn vopn- aðir harmonikku og kassagítar. Fyrsta lag sveitarinnar var ekki merkilegt og málvilla í viðlaginu, a.m.k. hljómaði það svo. Annað lagið, sem fjallaði um Áma John- sen, var öllu skárra, en ekki gott samt. Þriðja lag sveitarinnar, sem harmonikkuleikarinn söng að mestu einn, var sérkennilega lé- legt með þunnum texta. Kolka leysti 3 Monkeys af og var öllu meiri hamagangur þar á ferð. Sveitin var greinilega á heima- velli og hamaðist sem mest hún mátti með góðum árangri. Loka- sveitin var svo Pýþagóras. Sú tók reyndar þátt í síðustu tilraunum einnig og kom vel undirbúin og þétt til leiks með söngvara. Sveit- in var áberandi þéttasta hljóm- sveit kvöldsins og samæfing góð. Söngvari sveitarinnar er líka vel efnilegur, en liðsmenn þurfa að leggja meiri rækt við lagasmíðar og einnig að gera texta sönglegri. Úrslit kvöldsins urðu að Weg- hefyll sigraði örugglega og Kolka varð í öðra sæti. Árni Matthíasson STILLBORN; stefnulaus keyrsla. RICHTER, Hvolsvellingar í stuði. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir PÉTUR; góður gítar. TEMPEST; á nokkuð í land. 3 MONKEYS; breytt um tempó og stemmningu. BRIPS llmsjón Arnór G. Ragnarsson Bridskvöld byrjenda Sl. þriðjudag, 21. mars, var brids- kvöld byijenda og var spilaður eins kvölds tvímenningur að vanda. Úrslit kvöldsins urðu þannig: NS-riðill: Álfheiður Gísladóttir - Pálmi Gunnarsson 150 Svanhvít Jakobsdóttir - Stefán Hjaltalín 139 HallgrimurMarkússon-AriJónsson 136 AV-riðill: GunnarSigurðsson-JónasBaldursson 157 Markús Úlfsson - Agnar Guðjónsson 154 RannveigLund-HrefnaSiguijónsdóttir 135 Á hveijum þriðjudegi kl. 19.30 gengst Bridssamband Islands fyrir spilakvöldi sem ætluð eru byijendum og bridsspilurum sem ekki hafa neina keppnisreynslu að ráði. Spilaður er ávallt eins kvölds tvímenningur og spilað er í húsnæði BSÍ í Þönglabakka 1, 3. hæð, í Mjóddinni. Bridsfélag Reykjavíkur Sl. miðvikudag, 22. mars, var spil- aður eins kvölds einmenningur og mættu alls 40 spilarar til leiks. Spilað- ur var barómeter í fimm riðlum og urðu úrslit kvöldsins eftirfarandi: Hallgrímur Hallgrimsson 316 ErlendurJónsson 312 Júlíus Snorrason 310 JónStefánsson 308 Erla Siguijónsdóttir 305 PállValdimarsson 304 VignirHauksson 278 Guðbjöm Þórðarson 275 Næstu þijú miðvikudagskvöld verða spilaðir sjálfstæðir tví- menningar þar sem tvö bestu kvöldin hvers pars telja til verð- launa. Spilað er í húsi BSÍ í Þönglabakka 1, 3. hæð, og hefst spilamennskan kl. 19.30. Bridsfélag Hafnarfjarðar Sl. mánudag, 20. mars, var spilað annað kvöldið af þremur í Listabrids og er staðan eftirfarandi: Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjörnsson 78 Guðbrandur Sigurbergs. - Friðþjófur Einarss. 52 BöðvarGuðmundsson-SæmundurBjömsson 43 Jón Gíslason — Júlíana Gísladóttir 23 Hæstu skor kvöldsins hlutu: Guðbrandur Sigurbergs. - Friðþjófur Einarsson 54 Böðvar Guðmundsson - Sæmundur Bjömsson 35 Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson 22 Jón Gíslason—Júlíana Gísladóttir 22 Bridsdeild Húnvetninga Miðvikudag 22. mars voru síðustu umferðir í Baromoter. Úrslit kvöldsins: HalldórMagnússon-GuðjónJónsson 26 Eðvarð Hallgrimsson - Guðlaugur Sveinsson 17 Valdimar Jóhannsson - SigurþórÞorgrimsson 14 Lokastaða í barometer: Halldór Magnússon - Guðjón Jónsson 52 EðvarðHallgrimsson-GuðlaugurSveinsson 39 Baldur Ásgeirsson - Hermann Jónsson 23 Kári Siguijónsson - Eysteinn Einarsson 22 Aðalbjöm Benediktsson - Jóhannes Guðmanns. 7 Nk. miðvikudag 29. mars er eins kvölds tvímenningur. Skráning á staðnum og hefst spilamennska kl. 19.30 í Húnabúð, Skeifunni 17. Jþróttafólk vantar talsnumn á Alþingi IArnor Gubjohnsen, atvinnumaður í knattspyrnu I Erna Björq Sigurbarclóttir, fr|alsíþróttakona Árni Fribleífsson, handknattleiks- mabur Bryndís Olafsdóttir, Islandsmeistari í sundi SEinar Þorvarbarson, abst. landslibsþjálfari Linda karla i Stefánsdóttir, landslibskona í körfuknattleik I Stefán R. Pálsson, Islandsmeistari i tennis Amþmður Karlsdóttir skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík Amþrúður Karlsdóttir styður okkur- Við styðjum hana
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.