Morgunblaðið - 25.03.1995, Page 8

Morgunblaðið - 25.03.1995, Page 8
8 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Akureyri: ' Vetraríþróttamiðstöð formlega opnuð í dag Vetraríþpöttamiðslöð Islands, VMl, verður formlega stofnuð f dag, laugardaginn 18. mars, á Akureyri að viðstöddum Ólafi G. Einarssyni, Akureyri er eini rétti staðurinn. Hér stendur ekkert upp úr sem þarf að varast nema kirkjut- urnarnir, elskurnar mínar . . . Styrkveitingar borgarráðs árið 1995 Rúmar 40 milljónir til 35 félaga o g samtaka BORGARRÁÐ hefur samþykkt að styrkja 35 félög og samtök um sam- tals 40.075.086 krónur árið 1995. Hæstu styrki fá KFUM og KFUK, fimm milljónir í byggingarstyrk, Karlakór Reykjavíkur sömuleiðis fimm milljónir í byggingarstyrk og MS-félag íslands fær 4,8 milljónir í byggingarstyrk. Bj örgunars veitir Meðal styrkþega er Slysavarna- deildin Ingólfur sem fær rúmlega 2,3 millj. í rekstrar- og byggingar- Kasparov kemur í dag GARRÍJ Kasparov, heimsmeistari í skák, er væntanlegur til landsins í dag á vegum Sjónvarpsins. Hann verður hér fram á mánudag. Kasparov mun í dag tefla blindskák við Helga Áss Grét- arsson, heims- meistara yngri skákmanna. Sú skák verður sýnd í Sjónvarpinu um páskana. Á morgun klukkan 14 mun Kasparov halda fyrirlestur fyrir börn og unglinga í Faxafeni 12, en nú stendur einmitt yfir sveitakeppni grunnskóla í skák. Á sunnudagskvöld kl. 22.10 hefst alþjóðlegt mót í atskák og verður því sjónvarpað beint. Auk heims- meistarans taka stórmeistararnir Helgi Ólafsson, Hannes H. Stefáns- son og Jóhann Hjartarson þátt í mótinu. styrk, Hjálparsveit skáta í Reykja- vík, sem fær 471.046 krónur í rekstrarstyrk, Slysavamafélag ís- lands sem fær 663.945 krónur vegna fasteignaskatta, Landsbjörg, landssamband björgunarsveita, fær 552.888 krónur vegna fasteigna- skatta og Björgunarhundasveit ís- lands fær 25.500 krónur, vegna leyfísgjalda fyrir þrjá hunda. íbúasamtök Fimm íbúasamtök fá_ styrki: Framfarafélag Seláss og Árbæjar- hverfis fær 50 þús., Ibúasamtök Suðurhlíða fá 25 þús., íbúasamtök Grafarvogs fá 50 þús., íbúasamtök Litla-Skeijafjarðar fá 25 þús. og íbúasamtök Ártúnsholts fá 25 þús. Önnur félagsstarfsemi í flokknum önnur félagastarfsemi • og sérstök verkefni eru Neytendafé- lag höfuðborgarsvæðisins sem fær 550 þús. vegna kvörtunar- og leið- beiningarþjónustu, Kvenfélagið Hringurinn fær 150 þús., Félag eldri borgara fær 1,1 millj., Landssam- band Gideonfélaga á íslandi fær 100 þús. krónur og Vesturgata 3 hf., Hlaðvarpinn, fær tæpar 1,4 millj. vegna fjögurra verkefna. Kvennaheimilið Hallveigarstaðir fær 509.859 krónur, Samband ís- lenskra kristniboðsfélaga fær 200 þús., Viðeyingafélagið í Reykjavík fær 100 þús., Ferðaleikhúsið fær 100 þús. og Leigjendasamtökin fá 500 þús. Stúdentaráð Háskóla ís- lands fær 250 þús., Landssamtök áhugafólks um flogaveiki fá 100 þús. og Norræna félagið í Reykja- vík fær 100 þús. Byggingarstyrkir Byggingarstyrk fær Tónlistarfé- lagið, vegna viðgerða á skólahúsi 1,5 rnillj., KFUM og KFUK fá fimm millj. vegna nýbyggingar við Holta- veg. Heildarkostnaður áætlast 117 millj. og 27 millj. vegna breytinga á eldra húsnæði. Fram kemur að árið 1991 veitti borgarsjóður 5 millj. í styrk og síðan 15 millj. árlega á árunum 1992 til 1994. Skógarmenn KFUM fá eina millj- ón í byggingarstyrk vegna íþrótta- húss í Vatnaskógi. Deildin fékk fyrst sérstaka styrkveitingu árið 1986, 200 þús., en árin 1993 og 1994 var styrkurinn tvær milljónir. íþróttafélag fatlaða fær 4,1 millj. til framkvæmda við íþróttahúsið við Sigtún. Islenskir ungtemplarar fá 1,2 millj. til kaupa á húsnæði. Fram kemur að félagið hefur notið styrks úr borgarsjóði í mörg ár, seinast 180 þús. árin 1991 til 1993. Á ár- inu 1994 var styrkurinn hækkaður í 1,2 millj. Þá hefur borgarráð sam- þykkt að taka upp viðræður við fulltrúa ungtemplara vegna rekstr- arstyrks til samtakanna. Nokkur skátafélög fá styrki til að byggja eða kaupa húsnæði. Landsamband íslenskra aksturs- íþróttafélaga fær 300 þús. krónur en félagið hefur verið styrkt um sömu upphæð síðustu fjögur ár. Félagsmál Kattavinafélag íslands fær 500 þús. krónur. Fram kemur að heild- arfjárveiting til félagsins hefur verið rúmar 3,2 millj. á árunum 1983 til 1994. Karlakór Reykjavíkur fær 5 millj. ■ byggingarstyrk, Blindrafélagið fær 4 millj. í byggingarstyrk en félagið hefur áður verið styrkt með tveggja millj. króna framlagi. Loks fær MS-félag íslands 4,8 millj. í bygg- ingarstyrk en þar af eru 800 þús. vegna snjóbræðslukerfis við hús fé- lagsins. Garry Kasparov. Niðurskurður vofir yfir slökkviliðinu Sparnaður leiðir til verri þjónustu Hrólfur Jónsson Þ HRÓLFUR Jónsson Heilbrigðisráðuneyt- ið hefur sagt upp samningi við Reykjavíkurborg þess efn- ið að ríkið greiði 100 millj- ónir á ári vegna sjúkra- flutninga í höfuðborginni. Slökkviliðsmenn annast þessa flutninga og hefur heilbrigðisráðuneytið leit- að eftir samstarfi við Rauða krossinn um sjúkra- flutninga á landinu öllu og stendur til að spara 50 milljónir árlega í þeim málaflokki. - Er hægt að spara í starfsemi slökkviliðsins? „Gunnar Scheving Thorsteinsson verkfræð- ingur gerði úttekt nýlega á sjúkraflutningum á höf- uðborgarsvæðinu og einn- ig hefur Garðar Vilhjálmsson hjá Hagsýslu ríkisins farið í saumana á starfseminni. Það liggur því fýrir að reksturinn er mjög hag- kvæmur íjárhagslega eins og hann er núna. Það kostar 278 milljónir á ári að reka slökkviliðið. Menn eru kannski að deila um það hvað sjúkraflutningarnir séu stór þáttur í starfseminni en við teljum að það liggi fyrir með ótví- ræðum hætti því samkvæmt gerðardómi á ríkið að borga rúm- ar 100 milljónir vegna þeirra, en við sinnum 70% af sjúkraflutn- ingum á landinu. Það skiptir okk- ur ekki máli í sjálfu sér hvort samið er við ríkið eða Rauða krossinn en ef á að spara í þess- um rekstri tel ég að það verði ekki gert með öðrum hætti en að draga úr þeirri þjónustu sem verið er að veita í dag. Auk þess er mjög gott samstarf við Borg- arspítalann og Reykjavíkurdeild Rauða krossins sem hefur séð okkur fyrir tækjum. Við erum með sjö til átta bíla.“ - Hvað sinna margir slökkvi- liðsmenn sjúkraflutningum á dag? „Það eru tveir menn á hveijum bíl. Á daginn erum við með þrjá sjúkrabíla og tvo á nóttunni. Þeg- ar koma álagspunktar köllum við til fleiri bíla og menn.“ - Væri hægt að aðskilja sjúkraflutninga frá öðrum rekstri? „Það er hægt að aðskilja þetta en það myndi þýða aukinn kostn- að. Við erum með slökkviliðs- menn á vakt allan sólarhringinn sem hægt er að setja í sjúkra- flutninga ef þannig ber við. Ef þetta væri rekið ann- ars staðar þyrfti að hafa tíu menn a vakt í einu því það er ekki hægt að bjóða Reyk- víkingum annað en að hafa fimm sjúkrabíla til taks í einu. Það þýðir 40 starfs- menn, lágmark. Síðan þarf að fá fólk til að sinna símaþjónustu, viðgerðarþjónustu, þvotti á bílun- um og sótthreinsun, auk skrif- stofuhalds og stjórnunar. Ég segi að þetta verði dýrara ef veita á sömu þjónustu og einnig gæti þetta þýtt lengri útkallstíma." - Hvað eru mörg útköll á sól- arhring vegna sjúkraflutninga? „Það eru að meðaltali 30 á sólarhring. Stundum fara þau upp í 50-60, þannig að það koma miklir álagspunktar. Einnig má nefna að ef stórslys verður getum slökkviliðsstjóri í Reykjavík fæddist 24. febrúar 1955 í Reykjavík. Foreldrar hans eru Jón Jóhann Magnússon hús- gagnasmiður frá Innri- Fagradal i Saurbæjarhreppi í Dalasýslu og Sigrún Siguijóns- dóttir húsmóðir frá Hólmavík. Maki Hrólfs er Ingibjörg Stein- unn Sverrisdóttir bókasafns- fræðingur og börn þeirra eru Sigrún Inga, Steinunn Björg og Ragnar Jón. Hrólfur varð slökkviliðsstjóri árið 1991. við sent út 15 menn sem allir hafa tilskilda þjálfun.“ - Veikir það ekki slökkviliðið að sinna þessu að auki? „Nei, ef við tæmum slökkvi- stöðvarnar vegna slyss er kölluð út aukavakt. Hún er kannski tíu mínútur að koma sér á stöðina en líkurnar á bruna á þessum tíu mínútum eru hverfandi. Að vísu getur það gerst en það myndi kosta óhemju peninga að koma alveg í veg fyrir það. Ef þessi áhætta væri ekki tekin gæti það kostað meira en tjón af völdum bruna í Reykjavík." - Hversu margir brunar verða á ári? „Við erum með um 1.000 út- köll á ári og þar af eru slökktir eldar um 200 sinnum. Afgangur- inn telst síðan annars konar út- köll því við erum farnir að gera miklu meira en að vera slökkvi- lið. Við sinnum umferðarslysum ef fólk situr fast, einnig þegar flæðir inn til fólks. Við sinnum mengunarslysum en áður fyrr var öllu skolað niður niðurföll. Einnig höfum við stofnað landflokk sem sinnir sjúkraílutningum utan vega og vinnum að undirbúningi fyrir kaf- araþjálfun starfs- manna. Það kostar gífurlega fjármuni að vera með menn á vakt allan sólarhringinn. Það eykur því hagkvæmnina að geta nýtt þá í fleiri og fleiri hlut- verk.“ - Hvernig er hægt að leysa þetta? „Það er ekki hægt að skera niður og ef ætti að gera það myndum við ekki vilja sinna þessu starfi. Til þess að geta gert það þarf Reykjavíkurborg að greiða stærri hluta af sjúkraflutningun- um, þótt það sé hlutverk ríkisins að standa straum af kostnaði vegna þeirra.“ Þrjátíu útköll vegna sjúkra- flutninga á sólarhring

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.