Morgunblaðið - 25.03.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 11
FRÉTTIR
Tryggingayfirlækni vikið úr stöðu sinni
„Eg ætla að leita réttar
tnins fyrir dómstólum“
JÚLÍUSI Valssyni tryggingayfir-
lækni var í gær vikið úr stöðu sinni
vegna skattalagabrota. Segir í
uppsagnarbréfi frá heilbrigðisráð-
herra að Júlíus sé óverðugur til
að gegna stöðunni.
„Að undangenginni ítarlegri
athugun gagna málsins og að
fengnu áliti embættis ríkislög-
manns er það.mat ráðuneytisins
að þér fullnægið ekki lengur skil-
yrðum 3. gr. laga um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins til
að gegna stöðu tryggingayfir-
læknis. Ráðuneytið telur að með
skattalagabrotum yðar vegna
tekjuáranna 1990 og 1991 hafið
þér sýnt af yður athæfi sem telst
óhæfilegt, ósæmilegt og ósam-
rýmanlegt stöðu yðar. Með sekt-
argerð dómara í Héraðsdómi
Reykjavíkur hinn 27. febrúar sl.
hefur því verið slegið föstu fyrir
dómi að þér hafið gerst sekur um
þann refsiverða verknað sem að
mati ráðuneytisins gerir yður
óverðugan að gegna stöðu trygg-
ingayfirlæknis," segir í uppsagn-
arbréfinu.
Sighvatur Björgvinsson
heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra segir í
samtali við Pál Þór-
hallsson að ekki hafí
verið annað veijandi en
víkja tryggingayf-
irlækni úr stöðu sinni
og minnir á að fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra
hafí verið legið mjög á
hálsi fyrir að styðjast
ekki við ábendingar
ríkislögmanns.
- ÞAÐ felst í áliti ríkislögmanns
að þér sé heimilt að víkja trygg-
ingayfirlækni úr stöðu. Hvað réð
því að þú ákvaðst að stíga þetta
skref?
„I fyrra áliti núverandi ríkislög-
Júlíus var kvaddur á fund ráðu-
neytismanna í gærmorgun. Var
honum afhent uppsagnarbréf að
viðstöddum Páli Sigurðssyni ráðu-
neytisstjóra í heilbrigðisráðuneyt-
inu, Guðjóni Magnússyni skrif-
stofustjóra og Dögg Pálsdóttur
lögfræðingi ráðuneytisins. Sig-
hvatur Björgvinsson heilbrigðis-
og tryggingaráðherra var á kosn-
ingaferðalagi um Vestfirði. „Ég
ætla að leita réttar míns fyrir dóm-
stólum,“ sagði Júlíus aðspurður
um það hvað tæki nú við hjá hon-
um. „Staðan verður væntanlega
auglýst og hver veit nema maður
sæki um.“
Júlíus stóð annars í ströngu í
gær því þegar hann hafði tekið
við uppsagnarbréfinu og meðtekið
stuðningsyfirlýsingar samstarfs-
manna lá leiðin upp á fæðingar-
deild með barnshafandi eiginkonu
sinni.
Mótmæli samstarfsfólks
Júlíusar
Margt starfsfólk Trygginga-
stofnunar er óánægt með uppsögn
Júlíusar. Voru tvær deildir, lækna-
manns og áliti forvera hans kom
fram að um væri að ræða mjög
alvarlegt brot. Miðað við forsögu
málsins, þar sem fyrrverandi ráð-
herra var legið mjög á hálsi fyrir
að hafa ekki stuðst við ábendingar
ríkislögmanns, þá taldi ég ekki
annað veijandi en að stíga þetta
skref. En ríkislögmaður segir
reyndar miklu meira en að mér
sé heimilt að gera þetta.“
- Það sem ég var að ýja að var
að þú hefðir samt átt val.
„Ég taldi það ekki vera, ekki
miðað við það sem áður var geng-
ið, og ekki miðað við það sem
sagt var í áliti ríkislögmanns,
bæði núverandi og fyrrverandi, um
það hversu alvarleg þessi brot teld-
ust vera.“
- Nú nýtur Júlíus mikils trausts
samstarfsfólks.
deild og stjúkratryggingadeild,
lokaðar frá kl. 11 í jgær vegna
fundar starfsmanna. A fundinum
var einróma samþykkt svohljóð-
andi ályktun: „Fundur starfs-
manna í Tryggingastofnun ríkisins
haldinn 24. mars 1995 lýsir yfir
fullum stuðningi við Júlíus Valsson
fráfarandi tiyggingayfírlækni.
Júlíus Valsson hefur á engan hátt
gerst brotlegur í starfi sínu sem
tryggingayfírlæknir og uppsögnin
því ómakleg. Fundurinn fordæmir
vinnubrögð yfirvalds heilbrigðis-
og tryggingamála og telur að með
þessum aðgerðum hafi starfsemi
stofnunarinnar verið stefnt í
voða.“
Taka verður hart
á skattsvikum
Karl Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins, var
spurður í gær hvort hann væri
sáttur við ákvörðun ráðherra. „Það
er ekkert spurningin um það hvað
ég sé sáttur við. Þessi atburður
hefur átt sér stað og ekki dugir
annað fyrir tryggingastofnun en
að horfa fram á við. Júlíus var
„Hann nýtur mikils trausts.
Hann hefur mikið álit bæði hjá
samstarfsfólki og hjá sjúklingum.
Honum er ekki vikið úr starfí fyr-
ir að hafa ekki staðið sig sem
skyldi sem tryggingayfirlæknir
heldur vegna þess að samkvæmt
áliti ríkislögmanns eru skattalaga-
brot hans svo alvarleg."
- Þýðir þetta að menn sem ger-
ast sekir um skattundandrátt eigi
ekki að gegna opinberum embætt-
um þar sem viss ábyrgð fylgir?
„Ég reikna með að þessu máli
sé ekki lokið og Júlíus leiti eftir
því hjá dómstólum hvort það hafi
verið rétt og eðlilega að þessu
staðið. Þá kemur í hlut ríkislög-
manns að veija ríkið fyrir þeirri
málshöfðan. Hann segir sjálfur að
það sé alveg ótvírætt að þetta sé
meira en fullnægjandi ástæða til
frábær starfsmaður, allra manna
hugljúfi, mannlegur í samskiptum
og vinsæll í stofnuninni. Auðvitað
saknar maður slíks manns. Hitt
er annað að ég geri mér grein
fyrir því að taka verður hart á
skattsvikum. Ég gagnrýni hins
vegar hversu málsmeðferð hefur
tekið langan tíma. Ég er þess full-
viss að Júlíus hefði ekki sótt um
þetta starf hefði hann gert sér
grein fyrir því að þetta yrði dóms-
mál.“
Líkt og að missa
ættingja
Karl Steinar var spurður hvort
hann hefði samþykkt lokun deilda
hjá tryggingastofnun í gær vegna
starfsmannafunda. „Nei, eðlilega
ekki, enda ekki að því spurður.
Viðbrögð fólksins sem hefur um-
gengist Júlíus eru líkt og það hafi
misst náinn ættingja og þau mark-
ast af því.“ Aðspurður hvort þetta
myndi draga einhvern dilk á eftir
sér, sagði forstjórinn: „Ég vil koma
því á framfæri að fólki ber að sinna
sinni vinnuskyldu, en ég er ekki
refsiglaður maður.“
að víkja manninum úr starfi án
þess að skaðabótaskylda stofnist.
Ef sú verður niðurstaða dómstóla
er verið að setja mjög ákveðnar
reglur um þá embættismenn ríkis-
ins sem hafa fjárreiður með hönd-
um.“
- Mun þetta mál ekki hafa nein-
ar afleiðingar fyrir þá sem gáfu á
sínum tíma álit til ráðherra á
starfshæfi Júlíusar?
„Þessir menn hafa ekki gefíð
mér neitt álit og ekki hegðað sér
með óeðlilegum hætti gagnvart
mér. Ég minni á að, að þeirra eig-
in sögn, þá höfðu þeir verið full-
vissaðir um að þessum málum
væri lokið. Þeir stóðu í þeirri trú
er þeir fjölluðu um umsóknina.
Júlíus gerði það líka, en ríkislög-
maður segir að hann hafi ekki
haft neitt tilefni til þess.“
- Kannaðir þú eitthvað það sem
sagði í áliti ríkislögmanns að það
hefði verið orðrómur í ráðuneytinu
um skattamál Júlíusar þegar hann
fékk stöðuna?
„Nei, það getur verið orðrómur
um hitt og þetta, en ráðuneytið
er ekki umsagnaraðili. Sá aðili sem
hefði átt að kanna slíkan orðróm
hefði verið umsagnaraðilinn.“
Álit ríkislögmanns
Ráðherra
óbundinn af
kröfugerð í
ákæruskjali
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA, Sig-
hvatur Björgvinsson, fékk nýtt
álit ríkislögmanns áður en hann
tók ákvörðun um afdrif Júlíusar
Valssonar tryggingayfirlæknis.
Þar er tekin afstaða til bréfs lög-
manns Júlíusar, Andra Árnasonar
hrl., sem ráðherrann fékk fyrr í
vikunni. Niðurstaða er sú að bréf
Andra Árnasonar fyrir hönd Júl-
iusar breyti engu í þvi áliti sem
ríkislögmaður setti fram hinn 15.
mars sl. um starfshæfi trygginga-
yfirlæknis.
Ríkislögmaður segist ósammála
þeirri túlkun Andrá Árnasonar að
ráðherra sé bundinn af því hvort
í ákæruskjali sé gerð krafa um að
refsiverður verknaður varði stöðu-
missi skv. 1. mgr. 68. gr. almennra
hegningarlaga, en eins og kunnugt
er var höfðað opinbert mál gegn
Júlíusi fyrir skattundandrátt árin
1990 og 1991. Andri hafði haldið
því fram að fyrst saksóknari kaus
að krefjast ekki sviptingar embætt-
is i málinu gegn Júlíusi sem höfðað
var eftir að hann varð trygginga-
yfirlæknir þá ætti ráðherra ekki
að endurskoða það mat. Ríkislög-
maður segir að skoðun Andra eigi
sér enga stoð í framkvæmd eða í
umfjöllun í þeim dómum, sem
gengið hafi um bótakröfur starfs-
manna, sem vikið hefur verið úr
starfi vegna gruns eða sönnunar
um refsiverða háttsemi.
Lagaheimild fyrir hendi
„Þá er embætti ríkislögmanns
ósammála þeirri túlkun lögmanns-
ins, að lagaheimild skorti til frá-
vikningar úr starfi. Samkvæmt 3.
gr. laga um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins er það starfs-
gengisskilyrði sett, að starfsmað-
ur hafi ekki hlotið dóm fyrir refsi-
verðan verknað, sem geri hann
óverðugan til að gegna stöðunni
og samkvæmt 2. tl. 4. gr. sömu
laga má veita lausn úr stöðu, ef
starfsmaður fullnægir ekki lengur
skilyrðum 3. gr. laganna. Þegar
mál er svo vaxið, að brot er að
fullu upplýst, ákvörðun um refs-
ingu hefur verið tekin og eðli
brotsins er slíkt, að það bendi til
siðferðisannmarka, sem gera
starfsmann óverðugan til að
gegna stöðu sinni, verður þessi
heimild virk,“ segir í álitinu.
Mat ráðherra
Ríkislögmaður beinir loks þeim
orðum til ráðherra, að fyrir honum
liggi nú að leggja mat á þau lög-
fræðilegu sjónarmið og skýringar
sem fyrir honum liggja og taka
ákvörðun um, hvort brot trygg-
ingayfirlæknis á skattalögum sé
með þeim hætti, að hann þyki ekki
lengur verður stöðu sinnar.
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra um uppsögn tryggingayfirlæknis
Annað var
ekki veriandi
FRÁ undirrituninni. F.v. Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri Visa, Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra, Júlíus Sæberg Ólafsson forsljóri Ríkiskaupa, Leifur Steinn Elísson, Andri Hrólfsson,
Haukur Ingibergsson og Ástráður Guðmundsson.
Ríkissjóður semur
við Visa ísland
FJÁRMÁLARÁÐHERRA undir-
ritaði í gær samning við Visa
ísland um rafræn greiðslu-
kortaviðskipti. Samningurinn
nær til allra ríkisfyrirtækja og
stofnana sem gera eðagert
hafa samning við Visa Island
um viðtöku greiðslna með Visa
electron debet- eða kreditkort-
um, auk rað- og boðgreiðslna,
að því er segir.í frétt frá fjár-
málaráðuneytinu.
Tilgangurinn með samningn-
um er að veita ríkisstofnunum
nýja möguleika til að bæt þjón-
ustu sína og auka fjölbreytni við
móttöku greiðslna. Ríkiskaup
annast framkvæmd samningsins
fyrir hönd fjármálaráðuneytis-
ins og mun stofnunin á næstunni
kynna sanminginn og þá mögu-
leika sem hann veitir ráðuneyt-
um og ríkisstofnunum.
Sainkvæmt upplýsingum frá
Visa fslandi tekur samningur-
inn ekki til Pósts og síma. En
einnig hefur náðst samkomulag
við Gjaldheimtuna um viðtöku
debetkorta og innheimtu fast-
eignagjalda með boðgreiðslum
og kenuir það til framkvæmda
innaíi tíðar.