Morgunblaðið - 25.03.1995, Síða 20

Morgunblaðið - 25.03.1995, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Sjóvá-Almennar með 259 milljóna hagnað HAGNAÐUR Sjóvár-Almennra trygginga hf. á síðasta ári var alls um 259 milljónir samanborið við um 195 milljónir á árinu 1993. Þessa bætta afkomu rekur félagið til fækkunar tjóna, jákvæðrar þró- unar á mati tjóna frá fyrri árum, bættra tjónavarna, betra áhættu- mats við tryggingatöku og aðhalds í rekstri. Viðskiptavinir félagsins munu njóta góðs af þessum bata því ákveðið var fyrr á þessu ári að lækka iðgjöld til einstaklinga um hátt á annað hundrað millijón- ir. Þar að auki er fyrirhugað að endurgreiða í maí nk. viðskiptavin- um í svonefndum Stofni sem upp- fylla skilyrði um fjölda vátrygg- inga, góða tjónareynslu og skilvísi 10% af iðgjöldum vegna ársins 1994, samkvæmt frétt frá félag- inu. Tjón ársins námu 3.095 milljónum Iðgjöld ársins hjá Sjóvá- Almennum námu alls 3.822 millj- ónum og hækkuðu um 3% milli ára. Tjón ársins námu 3.095 millj- ónum og lækkuðu um 3% milli ára. Eigin iðgjöld námu 2.596 Afkoman í fyrra sú besta frá stofnun fé- lagsins, m.a. vegna fækkunar tjóna milljónum og lækkuðu um 1% frá fyrra ári. Eigin tjón námu 2.417 milljónum og lækkuðu um 10% frá fyrra ári. Þá námu umboðslauna- tekjur umfram umboðslaunagjöld um 86 milljónum og er það um 42% hækkun frá fyrra ári. Skrifstofu- og stjómunarkostn- aður nam alls um 479 milljónum og hækkaði um 3% milli ára en hlutfall skrifstofukostnaðar af ið- gjöldum var óbreytt milli ára eða um 12,5%. Hreinar fjármunatekjur námu alls 616 milljónum og lækk- uðu um 17% milli ára. Eigin trygg- ingasjóður í hlutfalli við eigin ið- gjöld nam 287% en var 259% árið áður. „Þetta er besta afkoma félags- ins frá stofnun Sjóvár-Almennra,“ sagði Einar Sveinsson, fram- kvæmdastjóri í samtali við Morgunblaðið. „Afkoman hefur verið að batna síðastliðin þijú ár og það má segja að þetta sé eðli- legt framhald af okkar vinnu und- anfarin ár. Við erum byijuð að njóta árangurs þess erfiðis." Iðgjöld félagsins endurskoðuð Einar sagði aðspurður að auk betri afkomu hefði tekist að styrkja tryggingarsjóðina um 635 milljónir eða um 9%. Þannig hefði sjóðurinn staðið í um 7.459 millj- ónum um áramótin. „Við höfum einnig látið einstaklinga njóta þess að afkoman hefur batnað með lækkun iðgjalda og endurgreiðsl- um. Þá má geta þess að við höfum verið að fara í gegnum okkar við- skiptamannahóp í atvinnurekstri og endurskoðað iðgjöld,“ sagði Einar. Eigið fé félagins nam alls 1.063 milljónum og hækkaði um 23% milli ára. Eiginijárhlutfall í árslok var 10%. Á aðalfundi sem haldinn verður nk. föstudag 31. mars verður lagt til að greiddur verði 10% arður til hluthafa á árinu 1995. Úr rekstri Sjóvár-Almennra trygginga hf. Hagnaður á núvirði (1994) 69 76 Árið 1994 -80 milljónir Skipting iðgjalda og tjóna eftir tryggingagreinum Afkoma greina sem hlutfall af bókfærðum iðgjöldum Eignatryggingar Skipa-, fiug- og farmtr. Ökutækjatryggingar Frjálsar ábyrgðartr. Slysa- og sjúkratr. Innlendar endurtr. Erlendar endurtr. Allar tryggingagreinar 1.642 1.627 Milljónir króna 12 □Iðgjöld [135 □ Tjón 3.822 millj. 3.095 miílj. Iðgjöld Tjón H+7,7 3+6,8 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Comið og skoðið nýuppsettar innréttingar hjá okkur AUGARDAGI kl. 10-16 IOG SUlUDAGl staðgreiðsluafsláttur af baðinnréttingum næstu viku Gásar Borgartúni 29, Reykjavík s: 562 76 66 og 562 76 67 Fax: 562 76 68 Hækkun á hrá- olíu og annarri hrávöru London. Reuter. Reykjavík semur við Visa BORGARSTJÓRINN í Reykja- vík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, undirritaði í gær rammasamning við Visa Island um aukin rafræn greiðslukortaviðskipti borgar- stofnana og borgarfyrirtækja. Þá hefur VISA náð samkomulagi við Gjaldheimtuna í Reykjavík um að framvegis verði unnt að greiða fasteignagjöld með sjálf- virkum og reglubundnum hætti með boðgreiðslum, en gjalddög- um þeirra hefur nú verið fjölgað úr þremur í sex. HAGNAÐUR varð af rekstri Síldarvmnslunnar hf. á Neskaup- stað í fyrra sem nam 119 milljón- um króna, en árið 1993 nam hagn- aður félagsins 50 milljónum. Rekstrartekjur Síldarvinnslunnar hækkuðu um 26% á milli ára og námu 2.703 milljónum árið 1994. Veltan fór í fyrsta sinn yfir 3 milljarða, var 3.064 milljónir. Finnbogi Jónsson fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar sagði að búist hefði verið um 90 milljóna hagnaði í fyrra, þannig að afkoman hefði farið fram úr væntingum. Ein ástæðan fyrir því hefði verið betra rekstrarumhverfi og stöðugt verðlag, en einnig varð veruleg aukning á rækjuveiðum, en 1994 var fyrsta heila árið sem hinn nýi rækjufrystitogari Síldar- vinnslunnar, Blængur NK-117, var í rekstri. Finnbogi sagði að loðnuvertíðin hefði einnig komið vel út, sérstaklega fyrri hluta árs- ins, en einnig hefði orðið aukning VERÐ á ýmissi hrávöru frá málm- um til olíu hækkaði í vikunni og hár flutningskostnaður bendir til þess að uppsveiflunni í heiminum sé ekki lokið. Tal um vígbúnað írana við Persaflóa stuðlaði að því að verð á hráolíu hækkaði um rúmlega einn dollar. Eftirspurn var einnig mikil eftir sumri hrávöru þrátt á síldveiði, þar sem 3.000 tonn voru veidd úr norsk-íslenska síldarstofninum í júní. Aflaverðmæti jókst um 60% Síldarvinnslan var með 5 skip í rekstri á árinu og nam heildarafli þeirra rúmum 57.000 tonnum, sem er 9% aukning frá fyrra ári, en aflaverðmæti jókst mun meira eða um 60%, úr 772 milljónum í 1.239 milljónir. Fryst rækja skilaði 13% af tekjum Síldarvinnslunnar í fyrra, en aðrar frystar afurðir 40%. Hlutur loðnumjöls og lýsis var 26%, saltsíldar 8% og saltfísks 6%. Bókfært eigið fé Síldarvinnsl- unnar um síðustu áramót nam 594 milljónum króna og arðsemi eigin ijár var 24%. Árið 1994 störfuðu að meðaltali 360 starfsmenn hjá fyrirtækinu. Aðalfundur Síldarvinnsalunnr verður haldinn 1. apríl næstkom- anai. fyrir bendingar um að uppsveiflan hafi náð hámarki. Hagfræðingar segja þó að þar sem umsvif Japana aukist lítið og teikn séu á lofti um að draga muni úr uppsveiflu í Bandaríkjun- um sé mikil hækkun á verði hrá- vöru ólíkleg. Staða HRÁOLÍU var jákvæð í vikunni. Meintur vígbúnaður ír- ana og olíuverkfall í Kúveit vöktu ugg um öryggi olíuflutninga frá Miðausturlöndum. Olíubirgðir í Bandaríkjunum eru litlar og stað- greiðsluverð á Norðursjávarolíu hækkaði um 1.20 dollara í 17.60 tunnan. Verð á GULLI var stöðugt, en PALLADÍUM hækkaði enn, í 175.85 únsan, sem er hæsta verð síðan 1989. Verð á KOPAR fór aftur yfír 2,900 dollara tonnið og aðrir undirstöðumálmar eins og Á1 og NlkKEL treystu einnig stöðu sína. Lítil verðbreyting varð á KAFFI, en KAKÓ lækkaði í inn- an við 950 pund tonnið, lægsta verð í ár. Framreiknaðir samningar um verð á HVEITI leiddu til hækkun- ar í Chicago á sama tíma og mikl- ir hitar voru í Texas og Ástralíu, en lönd sem flytja inn kaffí og urðu fyrir barðinu á verðhækkun- um í fyrra voru treg til að kaupa. Verð á frönsku hveiti lækkaði í 119 dollara tonnið, eða um 22% miðað við hámarksverð í fýrra. SYKUR hækkaði vegna mikillar aftrspurnar frá Rússlandi og Kína. Um miðjan mánuðinn hafði verðið ekki verið lægra það sem af er árinu. Hagnaður Síldar- vinnslunnar 119 milljónir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.