Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSlCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Flug-
freyjum
gert
tilboð
SAMNINGAFUNDUR var haldinn
í kjaradeilu Flugfreyjufélags ís-
lands og Flugleiða í gær.
Að sögn Sigríðar Ástu Áma-
dóttur, formanns samninganefnd-
ar flugfreyja, lagði samninganefnd
Flugleiða fram formlegt tilboð til
lausnar deilunni, en nýr fundur
hefur verið boðaður hjá sáttasemj-
ara í dag, laugardag, kl. 14.
Of snemmt að segja til um
lausn deilunnar
Sigríður Ásta sagði að þetta
væri fyrsta formlega tilboðið sem
fram hefði komið. Hún vildi ekki
segja hvað í því fælist, enda ættu
flugfreyjur eftir að fara vandlega
yfir það. Þá sagði hún einnig of
snemmt að segja til um hvort von
væri til að deilan leystist áður en
þriggja daga verkfall flugfreyja
hefst á þriðjudag.
Davíð segist vonast
eftir þáttaskilum
Húsavík. Morgunblaðid.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði á stjórnmálafundi á Hótel
Húsavík í gærkvöldi að hann vonaði
að þáttaskil væru komin í kennara-
deilunni. Davíð sagðist vera að taka
áhættu með því að beina þeim til-
mælum til ríkissáttasemjara að
leggja fram sáttatillögu til að brjót-
ast út út vítahringnum.
Sjálfur sagðist hann ekki hafa
hugmynd um hvað sáttasemjari
myndi leggja til, en sagðist ekki
hafa tekið þetta skref, hefði han
taliö að kennarar væru því andvígir.
„Ég bind vonir við að sáttasemj-
ari finni leið sem sé millivegur, sem
við getum samþykkt beggja megin
borðsins, kannski með hundshaus
báðir aðilar. Davíð sagði að deilan
hefði verið komin í algera sjálfheldu
og ef ekki fyndis lausn vissi enginn
hvar henni myndi ljúka.
Stjórnarmyndun gæti tekið
þrjá mánuði
Hann sagðist taka undir með Jóni
Baldvin Hannibalssyni um það, að
allar líkur væru á að stjórnarmynd-
unarviðræður eftir kosningar myndu
dragast mjög á langinn, gætu tekið
þijá mánuði, og vitnaði til nýjustu
skoðanakannana í því sambandi. „Á
þeim tíma leysa menn engin verk-
föll,“ sagði hann.
KRÖFUGANGA nemenda hindraði umferð á gatnamótum Hverf-
isgötu, Kalkofnsvegar og Lækjargötu.
Viðskipti Sambands íslenzkra samvinnufélaga við erlenda banka
Skuldasöfnun 2,5 milljarð-
ar án vitundar Landsbanka
Morgunblaðið/Sverrir
Nemendur
kreflast
aðgerða
NEMENDUR framhaldsskóla og
sérskóla á höfuðborgarsvæðinu
efndu til kröfugöngu í gær, til að
knýja á um lausn kennaradeilunn-
ar. Nemendurnir sögðu róttækra
aðgerða þörf, nú þegar verkfall
kennara hefur staðið í 5 vikur.
Gengið var í 250-300 manna hópi
frá Kjarvalsstöðum að sljórnar-
ráðshúsinu við Lækjargötu og
fjármálaráðuneytinu. I farar-
broddi gengu nemendur með
borða á milli sín, sem á stóð „Hug-
arfarsbreytingu!“, en á kröfu-
spjöldum mátti meðal annars lesa
„Oflugt menntakerfi er verð-
mætasköpun" og „Ríkið er
ábyrgt". Fyrir framan Sljórnar-
ráðshúsið köstuðu nemendur
námsbókum í hrúgu og helltu
bensíni yfir. Lögreglan hindraði
þá hins vegar í að kveikja í bál-
kestinum. Nemendur hindruðu
umferð við Stjórnarráðshúsið um
stund. Fyrir utan fjármálaráðu-
neytið talaði Friðrik Sophusson,
fjármálaráðherra, til nemend-
anna. Að því loknu gekk fjórðung-
ur hópsins að skrifstofu rikissátta-
semjara, þar sem málsaðilar
ræddu við þá.
Yfirdráttur í Landsbanka og Samvinnu-
banka 8,5 milljarðar í árslok 1989
SAMBAND íslenzkra samvinnufé-
laga hafði safnað 2,5 milljörðum í
skuldum við erlenda viðskiptabanka
án þess að aðalviðskiptabanki Sam-
bandsins á íslandi, Landsbanki ís-
lands, hefði hugmynd um fyrr en í
júlímánuði árið 1990, þegar Ham-
brosbanki í London skýrði forráða-
mönnum Landsbankans frá skulda-
stöðu Sambandsins erlendis. Sam-
band íslenzkra samvinnufélaga
hafði rúmlega 4 milljarða króna
yfirdrátt í Landsbankanum í árslok
1989 en forráðamönnum bankans
var ókunnugt um, að Sambandið
hafði einnig um 4,4 milljarða yfir-
drátt í Samvinnubankanum, þar til
samningaviðræður hófust um kaup
Landsbankans á Samvinnubankan-
um.
Þessar upplýsingar og aðrar
koma fram í fjögurra greina flokki,
sem birtist í Morgunblaðinu í dag,
á morgun, sunnudag, og nk. þriðju-
dag og miðvikudag um endalok
Sambandsins, sem um áratugaskeið
var umsyifamesta viðskiptasam-
steypa á íslandi.
I fyrstu greininni, sem birtist í
Morgunblaðinu í dag, er frá því
skýrt, að bankastjórn Landsbank-
ans hafi sett á stofn sérstakan
vinnuhóp þriggja ungra manna
sumarið 1992, sem hafi lokað sig
inni í herbergi í Sambandshúsinu
við Kirkjusand með tölvur og síma
og unnið myrkranna á milli við að
greina skuldastöðu Sambandsins,
eignastöðu þess og skulda- og
eignastöðu allra dótturfyrirtækja
Sambandsins. Upplýsingasöfnun
þessa vinnuhóps varð svo grundvöll-
urinn að aðgerðum bankastjórnar
Landsbankans til þess að leysa upp
þessa miklu viðskiptasamsteypu án
þess, að bankinn yrði fyrir milljarða
tjóni og ísland fyrir miklum álits-
hnekki á erlendum fjármálamörk-
uðum.
■ Endalok Sambandsins/16-18
Sáttatillaga
um helgina
„Eftir að mér bárust tilmæli frá
forsætisráðherra um að leggja
fram sáttatillögu í kjaradeilu
kennara og ríkisins, hef ég átt
viðræður við samningsaðila og
þeir orðið ásáttir um að reynd
verði sú leið,“ segir í orðsendingu,
sem Þórir Einarsson sáttasemjari
ríkisins sendi frá sér síðdegis í
gær. „Eg hef því ákveðið að vinna
að gerð sáttatillögu, sem lögð
verði fyrir samninganefndirnar til
samþykktar eða synjunar. Er til-
lögunnar að vænta um helgina."