Morgunblaðið - 02.04.1995, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
78. TBL. 83. ÁRG.
SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Gáta úr Gull-
eyjunni leyst
RÁÐGÁTAN um söng sjóræningjanna
í Gulleyjunni eftir Robert Louis Steven-
son hefur nú loksins verið leyst. Les-
endur skáldsögunnar hafa lengi velt
fyrir sér merkingu vísunnar sem hefst
svo: „Fimmtán menn á dauðs manns
kistu, hæ, hó, hó og rommflaska með!“
Stevenson gaf ekki neinar skýringar á
henni sjálfur, en hann lést árið 1894.
Greint er frá lausn-
inni í nýjasta hefti
Geographical, sem
Konunglega land-
fræðifélagið í Bret-
landi gefur út. Land-
könnuðurinn Quentin
van Marle skýrir þar
frá því að Dauðs
manns kista sé ein af
bresku Jómfrúreyjun-
um.
Van Marle segir sönginn vísa til sögu
frá 18. öld. Sjóræninginn Edward
Teach, sem var nefndur „Svartskegg-
ur“, hafi refsað áhöfn sinni með því
að skilja hana eftir á eyðieyjunni Dauðs
manns kistu eftir að skipverjarnir
höfðu gert uppreisn gegn honum.
Teach lét hvern skipverja fá högg-
sverð og rommflösku í von um að þeir
myndu drepa hver annan. Þegar hann
sneri aftur mánuði síðar voru hins veg-
ar fimmtán skipverjanna enn á lífi.
Þetta skýrir vísuna alla:
Fimmtán menn á dauðs manns kistu,
hæ, hó, hó og rommflaska með!
Drykkur og djöfullinn drápu hina,
hæ, hó, hó og rommflaska með!
Dauðs manns kista er aðeins 250
fermetrar og þar er engan mat að hafa,
að sögn landkönnuðarins. Þar eru að-
eins pelíkanar, eðlur, óætir krabbar,
óeitraðir snákar - og moskitóflugur.
Van Marle uppgötvaði söguna um
sjóræningjana þegar hann rannsakaði
sögu og þjóðsagnir Jómfrúreyja.
Fjáðum rottu-
bana vikið frá
AUÐUGUM Breta, Martin Williams,
hefur verið vikið frá sem rottubana
Doncaster-borgar vegna launadeilu
sem snýst um 10 pund, rúmar þúsund
krónur. Maðurinn er 44 ára og einn
af fimm erfingjum móður sinnar, sem
skildi eftir sig jafnvirði 1,2 milljarða
króna. Hann hafði þegið sem svarar
22.000 krónum á viku fyrir starfið og
honum var sagt upp á þeirri forsendu
að hann hefði tekið of langan matar-
tíma. „Eg er vel stæður og hvers vegna
ætti ég að hafa fé af borginni?" sagði
Williams, sem kvaðst hafa unnið sem
meindýraeyðir í fjórtán ár vegna þess
að hann hefði mikið yndi af starfinu.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Vetrarstillur á Núpsstað
GAMLI bærinn á Núpsstað, austast í Fljótshverfi. Fyrir ofan bæinn og spírur er gnæfa við loft. Einn drangurinn heitir Hella og spáð
eru móbergshamrar en innan um basaltlög, sem mynda víða turna var í Krukksspá að hann myndi einhvem tíma hrynja yfir bæinn.
2.800 manns
falla í Alsír
Túnis. Reuter.
HERINN í Alsír hefur drepið 2.800 skæruliða
í tveggja vikna hernaðaraðgerðum gegn her-
skárri múslimahreyfingu, að sögn alsírska
dagblaðsins Liberte í gær.
Blaðið sagði að herinn hefði ennfremur tek-
ið til fanga 200 skæruliða sem hefðu reynt
að steypa stjórn landsins.
Alsírska fréttastofan APS hafði eftir embætt-
ismönnum að herinn hefði næstum brotið skæru-
liða í Vopnuðu múslimahreyfingunni á bak aft-
ur. Þetta er í fyrsta sinn sem fréttastofan skýr-
ir frá hemaðaraðgerðunum, sem að sögn als-
írskra dagblaða hafa staðið í tvær vikur.
Fámennir hópar eftir
„í austurhluta landsins hafa vígi hermdar-
verkamannanna því sem næst verið þurrkuð
út, þannig að aðeins fámennir hópar eru eft-
ir,“ hafði fréttastofan eftir dagblaðinu L’Auth-
entique.
Alls hafa um 40.000 manns beðið bana í
stríðinu frá árinu 1992 þegar ákveðið var að
aflýsa kosningum til að koma í veg fyrir að
íslamska frelsisfylkingin (FIS) kæmist til
valda.
Anwar Haddam, fulltrúi FIS í Washington,
sagði í gær að stjórn Alsírs yrði að fallast á
friðartillögur stjórnarandstöðunnar, sem
kynntar voru í Róm í janúar. Ella myndu blóðs-
úthellingarnar og „heilagt stríð“ múslima fyr-
ir íslömsku ríki halda áfram.
„Við föllumst ekki á neinar tilslakanir varð-
andi trú okkar,“ sagði Haddam. „Við bemm
ekki ábyrgð á drápum á saklausu fólki vegna
þess við höfum hvatt til þess að þeim linni.“
Abdullah Jaballah, fulltrúi al-Nahda, hóf-
sams flokks múslima, sagði að stjórnarand-
staðan hefði lagt til í Róm að reynt yrði að
binda enda á stríðið í áföngum. Hann hvatti
til þess að pólitískir fangar yrðu látnir lausir,
þeirra á meðal leiðtogar FIS svo þeir gætu
tekið þátt friðarviðræðum. Hann skoraði enn-
fremur á FIS að hætta árásum á útlendinga
og opinberar byggingar.
Grálúðudeilan
Spánveijar
óánægðir
Brussel. Reuter.
MINNI líkur vom taldar á því í gær að
samkomulag næðist á næstunni í deilu
Spánveija og Kanadamanna um grálúðu-
veiðarnar utan við kanadísku landhelgina.
Spánveijar sögðust óánægðir með nýjar
kröfur sem Kanadamenn hafa lagt fram.
Javier Elorza, sendiherra Spánar hjá
Evrópusambandinu, kvaðst mjög svart-
sýnn á að lausn væri í sjónmáli. Kanada-
menn vildu að eftirlitsmenn yrðu í hveiju
skipi og að þeir fengju heimild til að sekta
togara um leið og þeir yrðu staðnir að
brotum á fiskveiðireglum. Kanadamenn
hefðu ennfremur boðið Spánveijum 32%
heildaraflans á miðunum, sem Spánveijar
teldu of lítið.
Elorza sagði þó að Kanadamenn hefðu
fallist á nokkrar tilslakanir. Þeir hefðu
léð máls á að afnema lög sem kveða á
um að Kanadamenn hafi yfirráð yfir mið-
um utan landhelginnar þar sem fiskstofn-
ar eru í hættu. Kanadastjórn hefði einnig
boðist til þess að endurgreiða trygging-
arfé, sem útgerð spænska togarans Estai
greiddi eftir töku hans, og skaðabætur.
ÚR KJÖTINU
ÍBÍLANA
wsnmxmamiSr
Á SUNNUDEGI
24
GALLI í ERFÐAGENI
KRABBAMEINSVALDUR
FJÁR-
BJENDUR
A
FALLANDA
FJETI
BARA
TVÖ
EIN
B