Morgunblaðið - 02.04.1995, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚTVALIIM SKIPULAGSTILLAGA
>JW II H,
* trmfm
Vwikiw M
•tyfTU
. r*M*3 jv»*nrfr*lú nwi
«t #r? »*«n»
UMHVERFI BYGGÐAR
nAttúruleoar FORSEMOUR
SKJÓLMYNOANOI AOUEHÓIR 00 QÓNOUTKNOSL
M. 1:2000
NÝ SÚÐAVÍK, heildarskipulag. Lengst t.h. er Eyrardalstorfan, gamla Eyrardalsbýlið og þyrping smábýla ásamt aðstöðu fyrir hestamenn. Opna svæðið fyrir miðri mynd er
álagabletturinn Arnarhóll. Neðst er kirkjan og lengst til vinstri er Langeyrin, þar sem útivistarsvæði er fyrirhugað. Gömlu, aðfluttu húsin eru næst þjóðveginum og við Þorpsgötuna.
I
i
t
í.
I
I
NY SUÐAVIK ‘
*
Gylfi Sigurður Jóhann Stefán
Guðjónsson Sigurðsson Thors
Nú er hafínn undir-
búningur að nýrri
byggð í Súðavík, sem
grundvallast mun á
samkeppnistillögu
sem valin var af sér-
stakri dómnefnd ný-
lega. Guðrún Guð-
laugsdóttir ræddi
við Gylfa Guðjónsson
og Sigurð Jóhann
Sigurðsson, arkitekta
og Stefán Thors
skipulagsstjóra, for-
mann dómnefndar,
um hina nýju skipu-
lagstillögu.
ARKITEKTARNIR Gylfi
Guðjónsson og Sigurður
Jóhann Jóhannsson áttu
tillögu þá sem hlut-
skörpust varð í umræddri sam-
keppni, en samstarfsmaður þeirra
var Pétur Jónsson landslagsarkti-
tekt.„Umhverfi Súðavíkur er um-
gjörð að þessari nýju byggð. Við
leituðumst við að skapa heildstæða
mynd byggðar og umhverfis og
var mjög hugað að því að skapa
sem mest skjól, jafnt að sumri sem
vetri,“ sögðu þeir Gylfi og Sigurð-
ur Jóhann arkitektar. „Það gerum
við með snjógrindum, snjógirðing-
um, skjólbeltum og járðvegsmön-
um, en hið síðastnefnda eru uppg-
ræddar hæðir. í heild munu þessar
ráðstafanir draga verulega úr
áhrifum vinda og skafrennings,
þannig að snjóþyngsli yerði minni
innan byggðarinnar. I tillögunni
er tekið sérstaklega tillit til álaga-
bletts, svokallaðs Arnarhóls, sem
myndar í skipulaginu einskonar
grænt lunga í byggðinni. Þá er séð
fyrir góðum göngutengslum við
aðliggjandi útivistarsvæði, gilið,
fjallið, fjöruna og Langeyrina."
Þeir Gylfi og Sigurður kváðust
hafa haft það að meginstefnu við
skipulag byggðar í Súðavík að láta
hana rísa á túnunum sunnan býlis-
YFIRBRAGÐ fyrirhugaðs miðsvæðis, neðst er kirkjan, efst er gamla félagsheimilið.
ins Eyrardals, þar sem landhalli
er lítill og ætla má að góðir mögu-
leikar séu á hagkvæmri uppbygg-
ingu. „Við erum með strangari
skipulagsskilmála næst miðkjarna
byggðarinnar, þar sem sérstaklega
er mikilvægt að vel takist til með
byggingar. Þar er verið að flétta
saman gömlu, aðfluttu húsunum
°g nýjum húsum sem ætlast er til
að líkist þeim gömlu hvað varðar
form og byggingarefni. Gömlu
húsin sem flutt verða úr gömlu
Súðavík á svæðið fá alveg sérstak-
ar lóðir samkvæmt skipulaginu.
Við vorum með myndir af þeim
öllum og tókum tillit til þeirra við
gerð skipulagsins," sögðu arkitekt-
arnir.
Að sögn Gylfa og Sigurðar er
gert ráð fyrir um 90 íbúðum í
skipulaginu, ásamt framtíðar-
byggð, það sem hægt á að vera
að koma fyrir um 50 íbúðum til
viðbótar. Talsvert var rætt um að
færa gamla þjóðveginn sem liggur
í gegnum svæðið sem hinni nýju
byggð hefur verið úthlutað.
Áhersla var þó lögð á að ekki yrði
hreyft við þjóðveginum og gengur
því tillaga arkitektana út frá
óbreyttri legu þjóðvegar.
Gamla kirkjan í Súðavík stendur
austan þjóðvegar, en samkvæmt
tillögunni er leitast við að tengja
hana nýju byggðinni á ýmsan hátt,
rn.a. með sjónrænum tengslum, svo
sem að hægt er að horfa frá
kirkjutorginu upp að stjórnsýslu-
torginu og einnig að einu falleg-
asta, aðflutta húsinu í bænum.
Miðkjarninn í nýju Súðavík er stað-
i
i
!