Morgunblaðið - 02.04.1995, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 02.04.1995, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ I DAG SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995 43 ORÐABÓKIIM Að hníga í gras MJÖG getur verið vandasamt að fara með gamla málshætti, orð- tök eða ýmis föst orða- sambönd, svo að hugs- unin brenglist ekki, þannig að allt annað komi fram en segja átti. Hitt er aftur á móti vel skiljanlegt, að fjöl- miðlamenn vilji freista þess að gera annars oft heldur fábreytt orðalag svolítið áhrifamikið með ýmsum orðtökum. Sizt skal það lastað. En hér geta leynzt ýmsir pyttir, sem auðvelt er að detta ofan í, ef ekki er gætt fyllstu vark- árni. Þetta henti nýlega íþróttafréttaritara og það í tvöföldum skiln- ingi. Hann var að greina frá úrslitum í leik enskra knatt- spyrnuliða og sagði, að annað þeirra hefði orðið að lúta í gras fyrir hinu. Ja, fyrr mátti nú rota en dauðrota. Hér er alltaf talað um að hníga í gras, ekki lúta í gras, enda þetta í upphafi komið úr bardagamáli og merkir beinlínis að falla eða deyja í orustu, sbr. hníga að velli, hníga í valinn. Vonandi hafa allir liðsmenn staðið aftur upp lítt sár- ir eða ósárir, svo að hér var tekið heldur djúpt í árinni. Líklegt má telja, að fréttaritarinn hafi óbeint haft í huga orð- takið að lúta í iægra haldi, en það er einmitt haft um það að bíða lægra hlut. Því miður var þessu tvennu ruglað saman, svo að í reynd hefðu orðið hrikaleg úrslit kappleiksins, ef orð hans hefðu verið tekin bókstaflega. —J.A.J. Q /"iÁRA afmæli. Þriðju- Ol/daginn 4. apríl nk. verður áttræð Elín Kon- ráðsdóttir frá Isafirði. Hún býður öllum vinum og ættingjum í kaffi á afmælis- daginn milli kl. 16 og 19 að Hraunholti, Dalshrauni 15, Hafnarfirði og vonast til að sjá sem flesta. ^/"|ÁRA afmæli. í dag, | ijsunnudaginn 2. apríl, er sjötug Katrín Eiríks- dóttir. Eiginmaður hennar er Sveinn Guðlaugsson. Þau verða að heiman í dag. p' ÁRA afmæli. í dag, OOsunnudaginn 2. apríl er fimmtíu og fimm ára Guðríður Svava Alfons- dóttir, fyrrverandi um- boðsmaður Morgunblaðs- ins, Ólafsbraut 56, Ólafs- vík. Eiginmaður hennar er Finnur Gærdbo. Þau hjón- in verða að heiman. p'rvÁRA afmæli. Á O vJmorgun, mánudaginn 3. apríl, verður fimmtugur Eiríkur Guðnason, Seðla- bankastjóri. Kona hans er Þorgerður Guðfinnsdótt- ir, kennari. Þau hjónin taka á móti gestum í Akog- es salnum, Sigtúni 3, kl. 17-19 á morgun, afmælis- daginn. Pennavinir SEXTÁN ára japönsk stúlka með áhuga á tónlist o.fl.: Hiromi Nakajima, 1224 Aihara-machi, Machida-shi, Tokyo, 194-02 Japan. Tuttugu og tveggja ára ít- alskur piltur vill skrifast á við stúlkur á ensku, frönsku eða ítölsku: Romano Andrea, Via Monti di Prima- valle 194, 00100 Roma, Italy. TUTTUGU og fjögurra ára Ghanastúlka með ýmiss konar áhugamál: Jesse Doomson jr., P.O. Box 361, Agona Swedru, Ghana. RÚBÍNBRÚÐKAUP. í dag, sunnudaginn 2. apríl eiga hjónin María Ingólfsdóttir og Halldór Valdimarsson, Kjartansgötu 7, Borgarnesi fjörutíu ára brúðkaupsaf- mæli. SKAK Umsjón Margeir Pétursson ÞESSI staða kom upp á Amber-mótinu í Mónakó sem nú er haldið í fjórða sinn. Hollenskur auðkýfingur heldur mótið eftir eigin kerfi, sem er mjög nýstárlegt. Tefldar eru blindskákir og atskákir. Margir fremstu skák- menn heims taka þátt á mótinu. Þessi staða kom upp í atskák Rússanna Vladímirs Kramnik(2.715) og Anatólís Karpov (2.765), FIDE-heims- meistara, sem hafði svart og átti leik. Sjá stöðumynd 43. — Dxc4! 44. bxc4 — Rdxf4! 45; exf4 — Bxe4 46. Rcl — Bc2 og Kramnik gafst upp. S blindskák þeirra sigraði Kramnik hins vegar. Staðan eftir 4 skákir: 1.-3. Anand, Kamsky og Karpov 3 v., 4. Júdit Polgar 2'/i v. 5.-9. Ljubojevic, Ivantsjúk, Shirov, Kramnik og Nikolic 2 v. 10. Piket l'/2 v. 11. Lautier 1 v. 12. Nunn 0 v. Þeir Anand og Kamsky hafa unnið báðar blindskákir sínar, en Karpov er sá eini sem hefur unnið báðar at- skákimar. Hver keppandi mun tefla 22 skákir. Síðasta umferð NM fer fram í dag kl. 13 á Hótel Loftleiðum. Árnað heilla STJÖRNUSPÁ cftir Franccs Brakc HRUTUR Afmælisbarn dagsins: Þú hefur áhuga á stjórnmál- um ogkannt vel við þig í sviðsljósinu. Hrútur (21. mars - 19. apríl) ** Það ríkir glaumur og gleði hjá vinahópnúm í dag og þú nýtur þess að fá að skemmta þér og blanda geði við aðra. Naut (20. apríl - 20. maí) Ævintýraþráin nær töktim á þér og þú notar tækifærið til að skreppa á ókunnar slóðir. Sumir eignast nýja tóm- stundaiðju. Tvíburar (21.maí-20.júní) Þú ert með hugann við fjár- málin og þarft að koma bók- haldinu í lag. Ef með þarf ættir þú að leita aðstoðar endurskoðanda. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú kemst að því að einhver sem þú kynntist nýlega er ekki allur þar sem hann er séður svo þú þarft að fara að öllu með gát. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Gerðu innkaup árdegis því það getur verið vandræðalegt að eiga ekkert í ísskápnum ef óvænta gesti ber að garði. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú verð talsverðum tíma í að gera hreint heima og losa þig við óþarfa drasl úr geymsl- unni, og þú gleðst yfir góðum árangri. Vog (23. sept. - 22. október) Gefðu þér tíma í dag til að undirbúa komandi vinnuviku. Það verður i mörgu að snúast og þú verður að skipuleggja tíma þinn vel. Sþorddreki (23. okt. - 21. nóvember) 9)|j0 Reyndu að blanda geði við aðra og taka þátt í því sem þeir eru að gera í dag. Þú skemmtir þér vel og fjöl- skylduböndin styrkjast. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) m Ef þú minnist þess að þú færð ekki öllu ráðið verður þetta góður dagur. En fram- koma vinar getur valdið þér vonbrigðum. Steingeit (22. des. - 19.janúar) m Hugsaðu um eigin hag og vellíðan. Þú gætir til dæmis keypt þér hlut sem þig hefur lengi langað til að eignast. Vatnsberi (20.janúar- 18. febrúar) Bjartsýni ríkir h]á þér í dag og þú hlakkar til komandi vinnuviku. En varastu óþarfa fjjótfæmi sem getur leitt til mistaka. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) 'tSí Þú ert ekki vel hress og þarfn- ast meiri hvíldar en þú hefur fengið undanfarið. Ástvinur er sérlega umhyggjusamur í kvöld. Stjörnusþána á að lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. "... ég er nú búinn aö eiga þær þrjáir, og þær hafa reynst þannig að það kemur bara ekkert annað til greina..." " ...sonur okkar ráðlagði okkur að kaupa Honda og við ákváðum að prófa. Og við sjáum svo sannalega ekki eftir því..." "...Af þvi aö mér finnst hann fallegur, þægilegur og á mjög góöu verði..." Honda á íslandi - Vatnagarðar 24 - S: 568-9900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.