Morgunblaðið - 02.04.1995, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vinnslustöðin
Fersk
karfaflök
til Evrópu
Vestmannaeyjum. Morgunbladið.
VINNSLUSTÖÐIN í Vestmannaeyj-
um hefur gert samning um sölu á
1.000 t af ferskum karfaflökum á
Evrópumarkað og verða flökin flutt
út í gámum. Vinnslustöðin stefnir á
að minnka enn frekar útflutning á
heilum karfa en flaka hann hér heima
og flytja flökin fersk á markað.
Að sögn Úlfars Steindórssonar,
fjármálastjóra Vinnslustöðvarinnar,
fer meginhluti þessara 1.000 tonna
á Þýskaland og verður verð á flökun-
um tengt markaðsverði á ferskum
físki. Það mun því sveiflast til í sama
hlutfalli og verð á ferskfiskmörkuð-
um, en að sjálfsögðu verður verð
flakanna mun hærra.
Úlfar sagði að með þessu væru
þeir að ná framlegð heim og atvinna
myndi aukast. Hann sagði að útflutn-
ingur myndi fara eftir útliti fyrir
verð og framboði á ferskfískmörkuð-
unum ytra þar sem verð flakanna
væri tengt markaðsverðinu þar.
Úlfar sagði að þeir væru að fara
þama inn á nýjar brautir sem von-
andi myndu opna fyrir enn frekari
vinnslu hér heima og auka atvinnu
og framlegð fyrirtækisins. Hann
sagði að flökin yrðu flutt í gámum
út en Vestmannaeyjar hefðu sérstöðu
hvað svona vinnslu varðaði vegna
legu sinnar, þar sem þar væri síð-
asta viðkomuhöfn flutningaskipanna
á leið til Evrópu.
Viðar Gunnarsson bassasöngvarí
Tók að sér hlutverk Fáfnis
með litlum fyrirvara
„ÉG TÓK auðvitað
mikla áhættu.
Eflaust hafa marg-
iráhorfendur
kunnað hlutverkið
betur en ég,“ segir
Viðar Gunnarsson,
bassasöngvari í Wi-
esbaden, um söng
sinn í hlutverki
Fáfnis í óperunni
Siegfried eftir
Wagner í Frank-
furt á föstudaginn
fyrir rúmri viku.
Viðar var beðinn
um að hlaupa í
skarðið fyrir veik-
an söngvara nokkr-
um klukkstundum
fyrir sýninguna. Hann tók
áhættuna þó hann hefði aldrei
sungið hlutverkið á sviði áður.
Viðar segir að hann hafí ver-
ið beðinn um að hlaupa í skarð-
ið fyrir söngvarann um hádegi
á föstudag. „Ég hljóp beint upp
í lest og var kominn til Frank-
furt um tvöleytið. Ekki var eft-
ir neinu að bíða. Fyrst fór að-
stoðarleikstjórinn yfír hreyf-
ingar á sviðinu með mér. Síðan
var æfíng með aðstoðarhljóm-
sveitarstjóranum. Þegar því
var lokið var klukk-
an orðin rúmlega
fjögur og sýningin
byrjaði klukkan
fímm.
Ég fékk smá tíma
til að róa mig niður
og hlaupa yfír hlut-
verkið enda kemur
Fáfnir ekki inn fyrr
en í öðrum þætti,“
segir Viðar. Þó Við-
ar hafi áður verið í
hlutverki Fáfnis,
t.d. í Wiesbaden og
að hluta til á Lista-
hátíð í Reykjavík,
hefur hann ekki
lært hlutverkið
utan að því algeng-
ara er að söngvarinn sé utan-
sviðs meðan á sýningunni
stendur enda gerir Wagner ráð
fyrir að Fáfnir gæti Rínargulls-
ins inni í helli.
Viðar dregur ekki úr því að
hann hafi tekið töluverða
áhættu. Ekki síst þvi að staðið
hafí yfír sýning á öllum Nifl-
ungahringnum og slíka við-
burði sæki jafnan miklir Wagn-
erunnendur. Þeir ferðist jafn-
vel heimshornanna á milli til
að hlýða á Wagneruppfærslur
og sjálfsagt hafí margir í saln-
um kunnað hlutverkið betur en
hann. Áhorfendurnir séu harð-
ir dómendur og liggi ekki á
skoðunum sínum. Hins vegar
segir Viðar að allt hafí gengið
að óskum enda eins gott þvi
enginn hvíslari hafí verið í saln-
um til að bjarga málum ef á
hefði þurft að halda.
Viðar segir að svo virðist sem
„söngvarainflúensa" sé að
ganga í Þýskalandi. Vikuna
áður hljóp hann t.a.m. í skarðið
fyrir söngvara í Don Carlos í
Hannover.
Til Essen
Viðar hefur gert tveggja ára
samning við Aalto-óperuhúsið
í Essen frá og með haustinu.
Hann segir að óperuhúsið, sem
heitir eftir finnska arkitektin-
um og var byggt árið 1988, sé
stórglæsilegt og hljómburður-
inn frábær. Fleiri söngvarar
starfa við óperuna en óperuna
í Wiesbaden og því skapast að
sögn Viðars meiri tími til ann-
arrar vinnu, t.d. tónleika og
gestasöngs í öðrum óperum.
Viðar söng í Vídalínskirkju í
Garðabæ á laugardag en er nú
kominn aftur til Wiesbaden.
Viðar Gunnarsson
bassasöngvari
Morgunblaðið/Haukur Snorrason
Heilbrigðisráðherra á stjórnmálafundi á Isafirði
Er að reyna að verja
hagsmuní almennings
Grjót borið
í leiðigarð
MIKLAR framkvæmdir eru nú
hafnar við byggingu sjóvarna- og
leiðigarða á Austurfjöru við
Homafjörð. Suðurverk hf. sér um
framkvæmdir sem hófust
skömmu eftir seinustu áramót.
Mun grj ótgar ð u rin n auka öryggi
sjófarenda til mikilla muna en um
ósinn fer á hveijum degi gífurlegt
magn af vatni og jarðefnum. Að
undanförnu hefur verið borið
mikið gijót í uppfyllingu leiði-
garðsins, sem á að leiða straum-
inn í varanlegan farveg fyrir ós-
inn sjálfan.
----» ♦ «---
Hættumat fyr-
ir hestamenn
STJÓRN Gnýfara, hestamannafé-
lagsins í Ólafsfírði, hefur farið þess
á leit við bæjarráð að gert verði
hættumat vegna ofanflóðahættu úr
Ósbrekkufjalli ofan og norðan við
hesthúsahverfi Ólafsfirðinga.
Almannavamanefnd Ólafsfjarðar
hefur þegar óskað eftir því við Al-
mannavamanefnd ríkisins að gert
verði hættumat fyrir Ólafsfjörð og
verður hesthúsahverfið neðan Ós-
brekkufjalls inni í því mati.
„ÉG STEND í átökum við há-
launahóp og er að reyna að veija
hagsmuni almennings,“ sagði Sig-
hvatur Björgvinsson, heilbrigðis-
og tryggingaráðherra á almenn-
um stjórnmálafundi á ísafirði á
föstudagskvöld í svari við fyrir-
spurn um niðurskurð í heilbrigðis-
málum.
Fyrirspumin var borin fram af
Þorsteini Jóhannessyni, yfirlækni
á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafírði,
og beint til Guðjóns Bijánssonar,
framkvæmdastjóra FSÍ, en hann
er fjórði maður á lista Alþýðu-
flokksins í kjördæminu.
Reyni að veija
almannahagsmuni
Sighvatur tók að sér að svara
fyrirspurninni og sagði um deiluna
við sérfræðinga um tilvísunarkerf-
ið: „Aðeins þessi eini hálaunahópur
á hömlulausan aðgang að opinberu
fé. Engir aðrir ríkisstarfsmenn
geta gengið með þeim hætti í sjóði
landsmanna. Ég er að reyna að
veija almannahagsmuni fyrir þess-
um hálaunahópum og ég átti ekki
von á að fá menn í bakið, en fyrst
svo er verð ég að standa það af
mér og ég veit að maður eins og
forseti bæjarstjórnar á ísafirði,
Þorsteinn Jóhannesson, mun að
sjálfsögðu standa við hlið mér,
maður sem hefur fengið stóraukn-
ar fjárveitingar til sinnar stofnunar
á sama tíma og aðrir hafa þurft
að lenda i niðurskurði," sagði hann
ennfremur.
Sighvatur sagði í samtali við
Morgunblaðið að sérfræðingarnir
væru alltaf með einhveijar yfirlýs-
ingar. „Þeir voru lengi með yfírlýs-
ingar um það að ég hefði brotið
fullt af lögum og voru komnir með
álitsgerð um það. Þegar ég óskaði
síðan eftir því að fá álitsgerðina
til að kynna mér hana, þá neituðu
þeir mér um hana.
Síðan sögðust þeir ætla að
stefna mér, ég sagði að það væri
hið besta mál, því þá myndu dóm-
stólar skera úr. Þá sögðust þeir
vera hættir við að stefna mér af
því að ég vildi sjálfur fá stefnu.
Þeir haga sér eins og krakkar.
Við fengum frá þeim útreikninga
þar sem þeir drógu í efa að það
yrði sparnaður af tilvísunarkerf-
inu.
Við sendum þá til umsagnar hjá
fjórum aðilum, til Verk- og kerfís-
fræðistofnunarinnar, til fjármála-
ráðuneytisins, til Tryggingastofn-
unar ríkisins og til Hagsýslustofn-
unar ríkisins og allir þessir aðilar
staðfesta okkar útreikninga og að
það sem þeir byggja sína útreikn-
inga á, sé sambland af mistökum
og röngum fullyrðingum," sagði
Sighvatur.
Fjárbændur á fallanda
fæti
►Margvíslegir erfiðleikar steðja
að fslenskum sauðfjárbændum
vegna ört vaxandi framleiðslu- og
sölusamdráttar./lO
Helför á höfunum
►Grálúðudeila Evrópusambands-
ins og Kanada hefur enn á ný
vakið athygli á meintri rányrkju
Spánverja á heimshöfunum./13
Ný Súðavík
►Nú er hafinn undirbúningur að
nýrri byggð í Súðavík. /18
Vltrlngarnir þrír
►Sigurvegaramir úr spuminga-
keppni framhaldsskólanema teknir
tali./20
Úr kjötinu í bílana
►í Viðskiptum og atvinnulífí á
sunnudegi er rætt við Baldur Ág-
ústsson hjá Bflaleigu Akureyrar.
/22
Galli í erfðageni
krabbameinsvaldur
►í hinu virta bandaríska fagtíma-
riti Cancer Reserch birtist nýverið
grein um krabbameinsrannsóknir
dr. Jórannar Erlu Eyfjörð./24
B
► 1-36
Bara tvö ein
►Hvað gefur lífínu gildi þegar
menn era hættir að vinna? Ahuga-
mál, ferðalög, fjölskyldan eða vin-
ir? Aslaug Guðmundsdóttir og
Haraldur Guðmundsson segja frá
reynslu sinni./l
Draugabær
► Að detta úr út kortinu heitir
ferðabók Indveijans Pico Iyer, sem
fínnst sérlega gaman að ferðast
til sérkennilegra staða./5
Ævíntýralegur sam-
leikur
►Equitana - heimssýning hesta-
íþróttanna býður upp á einhveijar
glæsilegustu og fjölbreyttustu
hestasýningar sem getur að
líta./18
Kúba
►Leiklistarmennirnir Brynja
Benediktsdóttir og Erlingur Gísla-
son vora á nokkra vikna ferðalagi
á Kúbu til að skoða mannlífíð og
ieikhúsin./20
Gump verðurtil
►Það tók níu ár að fá menn í
draumaverksmiðjunni til að fram-
leiða Forrest Gump./34
BÍLAR
► 1-4
Búnaöur fyrir syfjaða
ökumenn
►Toyota hefur kynnt tækninýj-
ung sem er ætluð að draga úr
þeirri hættu að ökumenn sofni
undirstýri./l
Reynsluakstur
► Handskiptur Twingo, auðveldur
í meðförum. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Velvakandi
Leiðari 28 Fólk I ftéttum
Heigispjall 28 Bíó/dans
Reykjavíkurbréf 28 Iþréttir
Minningar 32 Útvarp/sjónvarp
Myndasogur 40 Dagbék/veður
Brids 40 Mannlifsstr.
Stjörnuspá 40 Dægurtónlist
Skák 40 Kvikmyndir
Bréf til blaðsins 40
INNLENDAR FRÉTTIR-
2—4—8—BAK
ERLENDAR FRÉTTIR;
1-4-6
42
44
46
50
52
55
lOb
12b
14b