Morgunblaðið - 02.04.1995, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 26/3 - 1/4
► Jóhannes Nordal stjórn-
arformaður Landsvirkjun-
ar segir að stórfelld breyt-
ing hafi orðið í þróun i
orkufrekum iðnaði og að
nú sé rétti tíminn til að
semja um nýja stóriðju.
Stækkun álversins og járn-
blendiverksmiðjunnar séu
vænlegustu kostimir.
► Sérfræðilæknar hafa
ákveðið að stefna heil-
brigðisráðherra vegna til-
vísanakerfísins en munu þó
reyna fram yfir kosningar
að vinna að því að fá reglu-
gerð um tilvísanir hnekkt.
Aðilar málsins hafa vísað
útreikningum hvors annars
á bug.
► Forsætisráðherra hvet-
ur til þess að leitað sé sátta
í deilunni um tilvisanakerf-
ið og telur ekki óeðlilegt
að gildistöku þess sé fre-
stað á meðan. Hann segir
meirihluta þingflokks sjálf-
stæðismanna hafa fallist á
rök sérfræðilækna gegn
kerfínu. Formaður Alþýðu-
flokksins telur yfirlýsingn
forsætisráðherra bera vott
um lítinn stuðning við heil-
brigðisráðherra sem sé að
framfylgja mótaðri stefnu
ríkisstjórnarinnar allrar.
► Olíufélagið hf. og Skelj-
ungur hf. tilkynntu í vik-
unni að framvegis bjóðist
viðskiptavinum þeirra að
dæla sjálfir bensíni á bíla
sína á ákveðnum bensín-
stöðvum og greiða lægra
verð fyrir. Annir voru á
bensínstöðvunum og segja
félögin breytinguna hafa
fallið í góðan jarðveg hjá
neytendum.
► Valsmenn urðu fslands-
meistarar í handknattleik
karla þriðja árið í röð eftir
að hafa sigrað KA í fímm
leikja úrslitaviðureign.
Verkfalli
kennara lokið
KENNSLA hófst að nýju í grunn- og
framhaldsskólum á fímmtudag eftir
að samninganefndir kennara og ríkis-
ins höfðu samþykkt sáttatillögu sem
ríkissáttasemjari lagði fram. Kjara-
samningur á grundvelli tillögunnar,
sem gildir til tveggja ára, var undirrit-
aður á miðvikudag og er talinn fela
í sér 15% beina launahækkun og lægri
kennsluskyldu sem metin er tii 4-5%
kjarabótar. Launagjöld ríkissjóðs
hækka um 1.400 milljónir á ári í stað
1.200 milljóna samkvæmt fyrra til-
boði samninganefndar ríkisins. Verk-
fall stóð til föstudagskvölds i Verslun-
arskóla íslands þar sem ágreiningur
var um ráðningarréttindi kennara.
Öryggisgæsla í
verkfalli flugfreyja
FLUGFREYJUR, sem efndu til verk-
falls frá þriðjudegi til fímmtudags,
gripu til aðgerða til að hefta innan-
landsflug Flugleiða á miðvikudag og
koma þannig í veg fyrir að um 20
menn í stjórnunarstöðum frá félaginu
gengju í störf þeirra. Flugleiðir höfðu
þjálfað helstu stjómendur til að sinna
öryggisgæslu um borð í vélum félags-
ins í því skyni að halda uppi flugi í
verkfallinu. Flugfreyjur telja að að-
eins 4-5 yfírmenn þeirra hafí haft
heimild til að ganga í störfin. Deiluað-
ilamir em á öndverðum meiði varð-
andi lögmæti þessara aðgerða flug-
freyja. Talsverð röskun varð á flugi
meðan á verkfalli flugfreyja stóð en
félagið hélt þó uppi millilandaflugi og
innanlandsflugi samkvæmt sérstakri
neyðaráætlun.
Fimm bjargað
FIMM manns, áhöfnum tveggja trillu-
báta, var bjargað heilum á húfí um
borð í Farsæl GK frá Grindavík eftir
að trillurnar sukku um átta sjómílur
suður af Krísuvíkurbjargi á mánu-
dagskvöld.
59 farast þegar þota
hrapar í Rúmeníu
59 MANNS biðu bana á föstudag þeg-
ar farþegaþota af gerðinni Airbus í
eigu rúmenska flugfélagsins Tarom
hrapaði um þrem mínútum eftir flug-
tak nálægt Búkarest. Rúmensk yfír-
völd sögðu að enginn hefði komist af.
Að sögn flugfélagsins voru 49 farþeg-
ar um borð, auk tíu manna áhafnar.
Þotan var á leiðinni til Brussel og far-
þegamir flestir belgískir. Sjónarvottur
sagði að sprenging hefði orðið í aftur-
hluta þotunnar áður en hún hrapaði
og gífurleg sprenging varð einnig þeg-
ar þotan skall til jarðar. Þotan gjö-
reyðilagðist.
ERLENT
BRIAN Tobin heldur á lofti
undirmáls-grálúðu úr afla
spænsks togara.
Spánverjar hefja
grálúðuveiðar á ný
SPÆNSKU togaramir á grálúðumið-
unum við Kanada hófu veiðar að nýju
á þriðjudag undir vemdarvæng varð-
skips. Breska stjórnin kvaðst ætla að
beita neitunarvaldi gegn hugsanlegri
tillögu innan Evrópusambandsins um
refsiaðgerðir gegn Kanada vegna deil-
unnar og skoraði á Spánveija og
Kanadamenn að lægja öldurnar meðan
viðræður færu fram.
► RÚSSAR sögðust á
föstudag hafa náð bænum
Shali í Tsjetsjníju á sitt vald,
en bærinn var síðasta mikil-
væga vígi tsjetsjenskra her-
manna í uppreisnarhérað-
inu. Rússar hafa nú um 80%
héraðsins á valdi sínu og
Oleg Soskovets, aðstoðar-
forsætisráðherra Rúss-
lands, sagði að hernaðarað-
gerðunum yrði nú hætt.
ALLTað 15.000 tyrk-
neskir hermenn hófu stór-
sókn gegn kúrdískum skær-
uliðum í austurhluta Tyrk-
lands á fimmtudag og að
sögn tyrkneskra embættis-
manna verða hernaðarað-
gerðimar álíka umfangs-
miklar og innrásin í Norður-
írak.
► Stjóra múslima í Bosníu
kvaðst á miðvikudag vera
að íhuga að fjölga hermönn-
um sínum í 200.000 og taldi
nægan mannafla f 400.000
manna lið. Sljómin réð fólki
frá þvi að nota fölsuð vega-
bréf til að komast úr landi
og sleppa þannig við her-
þjónustu.
HENRY Kissinger, fyrr-
verandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hvatti til
þess á miðvikudag að stofn-
uð yrðu Fríverslunarsamtök
N orður-Atlantshaf sríkj a í
þvf skyni að binda þau nán-
ari böndum og koma í veg
fyrir ágreining. Hann hvatti
til viðræðna milli Bandaríkj-
anna og Evrópulanda um
málið en sagði ekkert um
hvort hann hefði aðildarríki
Atlantshafsbandalagsins
sérstaklega f huga.
FRÉTTIR
Söluaðilar síma- og fjarskiptabúnaðar ósáttir við uppstokkun hjá P&S
„I hróplegn ósam-
ræmi við úrskurð
Samkeppnisráðs“
SAMTÖK seljenda síma- og fjar-
skiptabúnaðar hafa ákveðið
að leita til Samkeppnisstofn-
unar vegna þeirrar ákvörðunar Pósts
og síma að stofna nýtt aðalsvið utan
um þann fjarskiptarekstur sem er
eða getur orðið í beinni samkeppni
við aðra aðila á markaðinum. Krist-
ján Gíslason framkvæmdastjóri Rad-
íómiðunar hf. hefur þegar sent stofn-
uninni fyrirspurn varðandi þessa
ráðstöfun.
Síðastliðið haust óskaði Sam-
keppnisráð eftir aðskilnaði sölu-
deildar P&S frá annarri starfsemi
sem nýtur einkaleyfísverndar til að
fyrirbyggja að síðarnefndi rekstur-
inn greiði niður viðskipti með not-
endabúnað. Úrskurður þessi var til-
kominn vegna kæru Kristjáns í
Radíómiðun hf.
„Stofnun þessa sk. samkeppnis-
sviðs er í hróplegu ósamræmi við
úrskurð Samkeppnisráðs og ég tel
að samgönguráðherra hafi með
reglugerð um þetta fyrirkomulag,
hunsað gjörsamlega niðurstöður
ráðsins og sýnt svo ekki verður um
villst að einkafyrirtækin á markaði
fyrir notendabúnað eiga ekki að fá
að búa við jöfn samkeppnisskil-
yrði,“ segir Kristján.
Langt í virka samkeppni
Hann kveðst telja að ráðherra
beri alfarið ábyrgð á reglugerð um
þetta mál, en P&S hafi þó of sterk
ítök í ráðuneytinu að hans mati.
„Með þessari niðurstöðu er seljend-
um notendabúnaðar gefíð langt
nef, vinna þeirra og allur minn
málarekstur þegar ég kærði til
Samkeppnisstofnunar á sínum
tíma, er til einskis ef að Samkeppn-
isráð lætur þessa uppstokkun við-
gangast," segir Kristján.
Hann kveðst telja að væri virkri
samkeppni í rekstri farsímakerfa
komið á, myndi það nægja til að
jafna hlut annarra seljenda síma-
og fjarskiptabúnaðar. Hins vegar
sé langt í að virkri samkeppni verði
komið á fót á þessum vettvangi.
„Samkeppnissviðið nýja er ekki
sjálfstætt hlutafélag eins og gerist
erlendis, heldur deild innan P&S
sem fær afhent á silfurfati alla
uppbyggingu P&S á þessu sviði sér
að kostnaðarlausu og þarf ekki að
afskrifa neitt, á meðan rekstraraðil-
ar nýs símakerfis þyrftu að hefja
íjárfestingar frá byrjun og afskrífa
í samræmi við það. Menn þurfa að
hugsa glæfralega til að leggja í
Samtök seljenda síma-
og ijarskiptabúnaðar og
Kristján Gíslason fram-
kvæmdastjóri Radíómið-
unar hf. vilja að Sam-
keppnisstofnun kanni
nýtt fyrirkomulag hjá
P&S, sem Kristján segir
gefa einkafyrirtækjum á
þessu sviði langt nef.
slíka samkeppni," segir hann.
Þórður Gíslason formaður SFF
segir að eins og málin horfí við í
dag, fái samkeppnissviðið nýja
rekstur NMT-farsímakerfisins og
GSM-farsímakerfisins til umráða
auk rekstur boðkerfis og kaup og
sölu notendabúnaðar o.fl., og sé
fyrir vikið í lófa lagt að lækka verð
farsímatækja til að kaupa sem
flesta viðskiptavini og afla sér tekna
á þann hátt. Þetta þýði að allir
aðrir sem standa að sölu viðkom-
andi fjarskiptatækja í dag, séu mjög
illa settir.
„Væru hins vegar annar aðili á
markaðinum sem ræki GSM-sím-
stöð og dreifíkerfi, væri komin til
sögu samkeppni sem hjálpaði okkur
að selja inn á kerfín hjá hvorum
fyrir sig, í stað þess að P&S sé einn
í aðstöðu til að lækka verð tækj-
anna til að geta selt inn á sitt kerfi,“
segir Þórður.
A ábyrgð ráðherra
„En á meðan ekki er um að ræða
virka samkeppni á sviði rekstrar
farsímastöðva eins og GSM og
NMT, verður að aðgreina sölu not-
endabúnaðar frá öðrum rekstri hið
fyrsta. Tekjur af rekstri þessara
kerfa hjá P&S nam um 450 milljón-
um króna í fyrra og það er ljóst í
mínum huga að þetta nýja svið
muni greiða niður verð notendabún-
aðar með hagnaði sínum af símkerf-
unum, eins og verið hefur til þessa.
Samgönguráðherra ber ábyrgð á
þessu ástandi á meðan hann auglýs-
ir ekki eftir eða gefur út leyfisbréf
handa öðrum rekstraraðilum og
skapi þannig grundvöli fyrir virka
samkeppni,“ segir Kristján.
Samkeppnisráð óskaði á sínum
tíma eftir stofnun sérstaks fyrir-
tækis um rekstur með notendabún-
að. Kveðst Þórður telja að óskum
ráðsins hafí ekki verið hlítt sem
skildi við umstokkunina nú, þar sem
fyrirtækið hafí enn ríkið að bak-
hjarli sem gjörbreyti stöðu þess á
t.d lánamarkaði og við myndun við-
skiptasambanda, greiði ekki sömu
skatta og almenn hlutafélög og
hefji rekstur sinn með 90 starfs-
mönnum, veltu upp á 1,3 milljarða
króna og margháttuð markaðs-
tengsl.
„Við fögnum vitaskuld aðskilnað-
inum en nýja sviðið fær hluta af
rekstri P&S yfir til sín í upphafi
rekstrar, þannig að í raun standa
aðrir samkeppnisaðilar í sömu spor-
um og áður,“ segir Þórður.
Hlutafélagið NAT sótti í lok sein-
asta árs um leyfi til samgönguráðu-
neytis til að setja upp og starf-
rækja GSM-símstöð og dreifikerfi,
en P&S hefur ekki lengur einkarétt
á slíkum rekstri, auk þess sem
nægilega margar fjarskiptarásir
eru til staðar fyrir annað kerfi.
Siguijón Asbjömsson fram-
kvæmdastjóri NAT hf. segir að
hluthafar fyrirtækisins séu orðnir
nokkuð langeygir eftir svari og telji
tímabært að stjórnvöld svari um-
sókn fyrirtækisins.
Öll skilyrði í lagi
„Við teljum óeðlilegt að rekstrar-
aðilar símkerfa selji símtæki og
annan notendabúnað, og ef við
fengjum rekstrarleyfí myndum við
að sjálfsögðu draga okkur út af
þeim notendabúnaðarmarkaði sem
við emm nú á meðan beðið er eftir
að stjómvöld veiti leyfi eða auglýsi
það laust.
Það er algjör firra að P&S selji
þennan notendabúnað og má helst
líkja við að Vatnsveitan byði tilboð
á blöndunartækjum og baðkerum.
Við fögnum mjög því skrefí sam-
gönguráðherra að framkvæma
þessa uppstokkun hjá P&S og telj-
um jafnframt að nú séu öll skilyrði
uppfyllt til samkeppnisrekstrar á
GSM-sviðinu,“ segir Siguijón.
Að NAT standa fyrirtækin Sím-
virkinn-Símtæki hf., REFEX hf. og
lcecraft hf., en þau eru í nánu sam-
starfí við bandarískt símafyrirtæki
sem útvegar þeim m.a. símtæki eins
og sakir standa. Siguijón segir að
fyrirtækið kunni þó að semja við
aðra aðila, og nú standi viðræður
yfir við erlend fyrirtæki önnur.
k
i