Morgunblaðið - 02.04.1995, Side 8
8 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yfirlýsing frá Svani
Kristjánssyni
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Svani
Kristjánssyni prófessor:
í Morgunblaðinu í gær voru
höfð eftir mér orð er ég Iét falla
á fundi stjórnmálasamtakanna
Þjóðvaka þann 30. mars síðastlið-
inn, en þar hafði ég verið beðinn
að tala sem stjórnmálafræðingur.
Ég hef orðið var við að orð mín
eru almennt skilin sem gagnrýni
á Þjóðvaka og vil því hér með setja
þau i rétt samherigi.
Stjómmálaflokkar á íslandi
gefa afar sjaldan út yfirlýsingar
um hvað taki við eftir kosningar.
Kjósendur hafa engin áhrif á sam-
setningu ríkisstjórna því þeir vita
ekki hvaða afstöðu flokkamir hafa
í þeim efnum. Svigrúm flokkanna
er þó mikið, enda tilgangurinn sá,
en stefna þeirra verður kannski
að sama skapi óljós.
Forysta Þjóðvaka minnkaði
svigrúm sitt í þessari kosningabar-
áttu með yfírlýsingu sinni um að
samtökin vildu ekki fara í ríkis-
stjórn með Sjálfstæðisflokknum
að kosningum loknum. Á hinn
bóginn er stefna Þjóðvaka skýrari
fyrir vikið. Ljóst er nákvæmlega
hvað mun ekki taka við eftir kosn-
ingar. Með yfirlýsingunni hefur
Þjóðvaki dregið mjög úr svigrúmi
sínu, en að sama skapi aukið svig-
rúm kjósenda. í lýðræðisþjóðfélagi
hlýtur hið síðarnefnda að vega
þyngra.
UA veiðir og
vinnur rækju
VEIÐAR og vinnsla á rækju hófst í
ársbyijun hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa en slík starfsemi hefur ekki
verið reynd hjá félaginu áður að því
er fram kemur í ÚA-fréttum.
Gert er ráð fyrir að Svalbakur
EA-2 verði hluta af árinu á rækju-
veiðum enda skipið sérstaklega út-
búið til slíkra veiða, fullkomin rækju-
vinnsla er um borð, öflugir lausfryst-
ar og það er sérstaklega styrkt til
veiða í ís. Þá er það búið sam-
byggðri flottrolls- og togvindu sem
gerir því kleift að draga tvö troll.
Vonir eru bundnar við rækjuveiðar
á Dohrnbanka, utan kvóta, en þar
er að fínna stærstu og verðmestu
rækjuna.
Fulltrúi japanska fyrirtækisins
Nitcero, eins stærsta fískinnflytjanda
landsins, fór með Svalbak í fyrsta
rækjutúrinn og lýsti hann áhuga á
að kaupa alla rækjuframleiðslu ÚA.
Þú getur treyst Fagor
WL Glæsilegar
Fagor þvottavélar hafa sannað
ágæti sitt hérlendis sem og
víðar í Evrópu.Fjöldi
ánægðra viðskiptavina
er okkar besta
viðurkenning. ,
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
tt-U44 Kr.4/.9UU,- stgr.
Munalán, Visa og Euro-raftgrei&slur
l'VOI J AVH.Ai: I l'l’l'VOITAVI'I.AK III.WNART I.KI K.l I.ISKAPAK SJONVl'ÍRP MVNDHANII.ST/1.KI
Ný rannsóknadeild hjá Vegagerðinni
Fáum ýmislegt
í gegnum EES-
samninginn
Rannsókna- og þróun-
arsvið Vegagerðar
ríkisins er nýtt af
nálinni'og heyrir beint und-
ir vegamálastjóra. Deildin
annast rekstur rannsókna-
stofu Vegagerðarinnar og
ráðgjöf til annarra deilda
og umdæma í jarðfræði og
jarðtækni, auk sam6kipta
við erlenda rannsóknarað-
ila.
- Við hvaða lönd á
deildin helst samstarf?
„Það eru fyrst og fremst
Norðurlöndin, ekki síst
Noregur því við höfum mik-
ið notað norska vegagerð-
arstaðla. Norðurlöndin
skiptast einnig mikið á
tæknilegum upplýsingum
og höfum við fengið mikla
aðstoð frá þeim gegnum árin.“
- Hvað greinir okkur helst frá
þeim í vegagerð?
„í fyrsta lagi eru færri sem
nota vegina og síðan eru það loft-
lagsaðstæður. Við erum með frost
í vegum sem ekki er í stórum hluta
Evrópu og því eru allt aðrar að-
ferðir notaðar við að hanna þá og
byggja. Það er einnig dýrara því
nota þarf vandaðri efni.“
- Hvað með samstarf við Evr-
ópusambandið?
„Við höfum skuldbundið okkur
til þess að taka upp ESB-staðla í
gegnum EES, til dæmis hvað
varðar öxulþunga og fieira. Staðl-
arnir eru frábrugðnir okkar að
ýmsu leyti og síðan eru aðrar próf-
unaraðferðir notaðar á efni til
vegagerðar. Einnig má nefna nýj-
ar reglur um leyfilegan þunga
ökutækja. Þar er um að ræða
hærri þyngd á hvem öxul, en lægri
heildarþunga alls ökutækisins á
móti.“
- Þjónar það einhverjum til-
gangi öðrum en að standa við
samninginn?
„Þetta er eitt af því sem við
verðum að taka upp. Við verðum
að geta tekið við ökutækjum og
sent ökutæki héðan sem eru lögleg
í Evrópu ef menn fara út í vöru-
flutningá milli landa með Nor-
rænu. Við bara aðlögum okkur
þessu. Sumt teljum við til bóta og
annað ef til vill ekki.“
„Við teijum að við fáum ýmis-
legt í gegnum samninginn. Það
eru gífurlega miklir peningar lagð-
ir í þróunarvinnu, til dæmis hvað
varðar sjálfvirkar upplýsingar til
vegfarenda. Það er mikil vinna í
gangi niðri í Evrópu um
það sem við munum
geta nýtt okkur.“
- Vegagerðin hefur
verið ásökuð nýverið
um að vera úr takti við
tímann. Er von á bættri upplýs-
ingamiðlun til vegfarenda?
„Við erum farnir að skoða þá
hluti. Til dæmis upplýsingamiðlun
í gegnum farsímakerfi. Einnig er
talað um að í framtíðinni verði í
öllum flutningabílum litlar tölvur
| sem geta tekið við upplýsingum
beint á skjá eða sent inn í okkar
miðstöðvar. Menn séu því alltaf
meðvitaðir um ástand vegakerfis-
ins, hvort sem um er að ræða
ófærð, viðgerðir eða vatnsflóð.
Það eru ekki mörg ár í að slíkt
komist í gagnið.
Einnig er rætt um tækjabúnað
sem auðveldað gæti snjómoksturs-
mönnum að finna vegi í miklum
snjóþyngslum, til dæmis einhvers
konar skynjara í malbikinu eða
meðfram vegum. Á síðustu vikum
hefur reyndar komið í Ijós að við
► HREINN Haraldsson er
verkefnisstjóri vegna fram-
kvæmda við Vestfjarðagöng
og framkvæmdastjóri rann-
sókna- og þróunarsviðs Vega-
gerðar ríkisins. Hreinn fædd-
ist 24. júní 1949 og varð stúd-
entfráMR 1971. Arið 1974
lauk hann BS-prófi í jarðfræði
frá HÍ og doktorsprófi frá
Uppsalaháskóla í Sviþjóð 1981.
Hreinn hóf störf hjá Vega-
gerðinn strax að loknu námi
og tók við núverandi starfi í
nóvember 1994. Hann er
kvæntur Ólöfu Ernu Adams-
dóttur stjórnarráðsfulltrúa og
erum framar mörgum öðrum þjóð-
um hvað varðar upplýsingar um
veðurfar við vegi, t.d. í gegnum
textavarpið."
- Hver eru helstu verkefni sem
blasa við í náinni framtíð?
„Það er fyrst og fremst að
leggja slitlög og byggja vegi upp
úr landi þar sem þeir eru niður-
grafnir. Síðan er næsta skref að
leysa vandamál vegna stærri far-
artálma, með því að gera fleiri
göng gegnum fjöll eða byggja
fleiri brýr. Vestfjarðagöngin eru
eitt dæmið. Síðan má nefna þrösk-
ulda frá Neskaupstað, Seyðisfírði
og Vopnafirði yfir í almenna vega-
kerfið, loks Siglufjörð og Akur-
eyri.
Menn hafa skoðað möguleika á
jarðgöngum í stað fjallvega og
búið er að gera tillögur þótt engar
ákvarðanir hafi verið teknar.
Austfjarðagöng eru væntanlega
þau næstu sem gerð
verða og greidd af rík-
inu. Þar er um að ræða
þrenn göng, 16-17
kílómetra, til að losna
við Oddsskarð og Pjarð-
arheiði."
- Hvað á eftir að gera í Vest-
ljarðagöngum ?
„Það má líkja því sem búið er
við fokhelt hús. Það á eftir að
styrkja bergið endanlega, leggja
mikið af frárennslislögnum,
byggja veg í botn ganganna og
leggja á hann slitlag, setja plötur
í loft þar sem vatnsleki er til að
vísa því frá akbrautinni, setja
merkingar og öryggisbúnað á borð
við neyðarsíma, loftræstikerfi, lýs-
ingu og ýmislegt fleira. Næsta
vetur verður leyfð umferð um
göngin þótt slitlag verði ekki kom-
ið á. Þau verða ekki vígð endan-
lega fyrr en síðsumars 1996.
Reyndar er opið tvisvar á dag á
vissum tímum til Suðureyrar því
búið er að vinna heldur meira í
þeim hluta ganganna."
Miðlun upp-
lýsinga um
farsíma