Morgunblaðið - 02.04.1995, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 02.04.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995 9 FRÉTTIR Lögmaður nokkurra Súðvíkinga Rannsókn á snjó- flóðavörnum og upp lýsingar um söfnun ARNMUNDUR Backman hrl. hefur fyrir hönd fjögurra Súðvíkinga, sem misstu nána ættingja og eigur í snjó- flóðinu 16. janúar sl., ritað dóms- málaráðuneyti bréf þar sem lýst er óánægju með ýmislegt varðandi snjó- flóðavarnir og viðbúnað ásamt að- gerðum þeim sem á eftir fylgdu og óskað rannsóknar á því hvort al- mannavamalög hafi verið brotin eða hvort forða hefði mátt áfallinu með öflugri viðvörun og betra eftirliti. I bréfinu segir að fyrir hönd um- bjóðenda sinna óski lögmaðurinn þess að fram fari sérstök rannsókn á skipulagi snjóflóðavarna á svæð- inu, hvernig fylgst var með hættum af snjóalögum, hvernig staðið var að viðvörun til bæjarbúa daginn eða dagana fyrir snjóflóðið og að endingu hvernig staðið var að hjálparstarfi og hreinsun með sérstöku tilliti til að persónulegar eigur sumra umbjóðenda lögmannsins hafi full- komlega glatast við þær aðgerðir. Rannsóknaróskin sé á því byggð að dómsmáiaráðherra er æðsti maður almannavarna í landinu og að brot á almannavarnalögum varði sektum eða varðhaldi nema þyngri refsing sé við lögð í öðrum lögum. „Með þessari ósk er ekki verið að halda því fram að lögin um almanna- varnir hafi verið brotin í þeim mæli að varði sektum eða varðhaldi. Hins vegar telja umbjóðendur mínir fulia þörf á að rannsaka nokkur grundvall- aratriði þessa máls, ef niðurstaðan gæti orðið til eftirbreytni. Það sem skiptir meginmáli í þessu sambandi er hins vegar það, hvort lögunum var fylgt og hvort forða hefði mátt þessu skelfilega áfalli með öflugri viðvörun og betra eftirliti," segir í bréfí lögmannsins. í bréfinu til Péturs Kr. Hafstein formanns stjórnar sjóðsins Samhug- ar í verki segir að ijóst sé að umbjóð- endur lögmannsins hafi verulega hagsmuni af því að vita hvaða al- mennar reglur liggi til grundvallar úthlutun úr sjóðnum 1. mars og hvaða reglur eigi að gilda um ráð- stöfun fjármunanna og þess sem eft- ir stendur. Yfirlit um greiddan kostnað „Það er auðvitað ljóst að tjón þeirra sem í þessum ósköpum lentu er misjafnt af ýmsum ástæðum en þá lágmarkskröfu verður að gera í þessu sambandi að öllum séu ljósar þær reglur sem byggt er á og jafn- vel að þeir sem fyrir tjóninu urðu hafi tillögurétt um ráðstöfun fjár- ins,“ segir í bréfínu þar sem þess er óskað að upplýst verði hvernig íjár- munum sjóðsins hefur verið varið til þessa. Lögmaðurinn óskar eftir að fá yfirlit um eign sjóðsins, ráðstöfun fjármuna og þar með yfir kostnað sem greiddur hefur verið og yfír þær reglur sem sjóðurinn hefur sett sér. Þegar þessi gögn liggja fyrir kveðst lögmaðurinn munu koma sjónarmið- um umbjóðenda sinna á framfæri við nefndina. Glæsilegt Kanarítilboð 24. maí í 3 vikur frá kr. 47.800 Aðeins 10 hús Við bjóðum nú glæsilegt kynningartilboð á einn vinsælasta gististaðinn í sumar fyrir farþega okkar, Sonora Golf, falleg smáhýsi í hjarta Maspalomas. Stór og fallegur garður með gestamóttökuu, sundlaug, og veitingastað. Örstutt að fara í Tívolí, Faro 2 verslunarmiðstöðina og vatnagarðinn. Kanaríferðir okkar í sumar hafa fengið frábærar viðtökur. Bókaðu meðan enn er laust. Verð kr. m.v. hjón með 2 börn, 2-14 ára. 47.800 59.960 HEIMSFERÐIR Verð kr. m.v. 2 í húsi, Sönora Golf. Innifalið í verði: Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli erlendis, flugvallarskattar og forfallagjöld. Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 624600. Fossháls I IIORcykjavík Simi 634000 Til hamingju meðSAAB Globus hf. óskar Bílheimum hf. til hamingju með SAAB umboðið. Jafnframt þakkar Globus hf. SAAB eigendum viðskiptin á liðnum árum. Vonar Globus hf. að SAAB eigendur muni snúa sértil Bílheima hf. í framtíðinni. Bílheimar hf. munu kappkosta að veita SAAB eigendum þá bestu þjónustu sem völ er á. Verður stefnt að því að bjóða vel búnar SAAB bifreiðar á góðu verði innan skamms. Sala nýrra SAAB bifreiða og viðgerðaþjónusta verður að Fosshálsi 1, sími 563 4000. Varahlutadeild SAAB verður að Sævarhöfða 2, sími 567 4000. G/obus

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.