Morgunblaðið - 02.04.1995, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 02.04.1995, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FJÁRBÆNDUR Á FALLANDA FÆTI Margvíslegir erfíðleikar steðja aðíslenskum sauðflárbændum vegna ört vaxandi fram- leiðslu- og sölusamdráttar. Jóhanna Ing- varsdóttir leitaði skýringa á því hvers vegna sauðfjárbændur eru nú við hungur- mörkin á meðan ýmsar aðrar greinar í land- búnaði virðast spjara sig og það án þess mikla opinbera stuðnings, sem sauðfjár- bændur og kúabændur sitja einir að. Þróun á verði til framleiðenda búvara 1980-1994 Einingaverð á verðiagi 1994, y í Kr/kg, i. uppreiknað með framfærsluvísitölu 7 ^ / MjóllT 1980 '81 '82 '83 '84 1985 '86 '87 '88 '89 1990 '91 '92 '93 '94 Ó MÖRGUM sé til efs að landbúnaður á íslandi sé þjóðhagslega hagkvæm- ur, er staða bænda nokk- uð mismunandi eftir búgreinum. Þannig hafa sauðfjárbændur orðið fyrir allt að þriðjungs framleiðslu- skerðingu og allt að helmings tekju- rýmun á undanförnum íjórum árum og eru, að eigin sögn, við hungur- mörkin enda finnast mörg dæmi um sauðfjárbændur, sem eru að komast í þrot. Á sama tíma hafa kjúkl- inga-, eggja-, nautgripa- og kúa- bændur orðið fyrir nokkurri tekju- rýmun, en þó ekki í nærri því eins miklum mæli og sauðfjárbændur. Hinsvegar virðast svínabændur standa nokkuð vel að vígi. Þrátt fyrir að verð til þeirra hafi lækkað um 23% á undanfömum fjórum árum, hafa þeir mætt þeirri verð- lækkun með aukinni hagræðingu og vömþróun, sem skilað hefur 24% söluaukningu á sama tíma. Sauð- fjárrækt og mjólkurframleiðsla em hinsvegar einu búgreinamar, sem njóta stuðnings af opinbem fé, en þurfa hinsvegar að sæta fram- leiðslustýringu. Beinir ríkisstyrkir til búvömfram- leiðslunnar nema á fjárlögum ársins 1995 alls 4.694 milljónum kr. Stuðn- ingshlutfallið við sauðfjárrækt mið- ast við 50% af reiknuðum fram- leiðslukostnaði við kjötið sem sam- svarar 44% af reiknuðum heild- artekjum sauðfjárbúa, þar sem reiknað er með að kjötið skili 90% teknanna. Beingreiðslur til kúa- bænda nema 47,1% af reiknuðu framleiðsluverði mjólkur. Vegna sauðfjárframleiðslunnar greiðir rík- issjóður í ár 1.637 milljónir kr. í formi beingreiðslna til bænda, 250 milljónir í niðurgreiðslur á ull og gæmr og 290 milljónir í vaxta- og geymslukostnað. Beinar greiðslur til mjólkurframleiðenda nema 2.502 milljónum kr. auk 15 milljóna vegna Afleysingaþjónustu kúabænda sem er umsamin fjárhæð og kemur í síð- asta sinn til greiðslu í ár. Auk þessa renna 165 milljónir kr. úr ríkissjóði á árinu í Lífeyrissjóð bænda. 33% niðurskurður Þegar búvömsamningurinn, sem nú er í gildi, var gerður á vormánuð- um 1991 og nær til 1998, vom þá þegar mörg sauðfjárbú orðin allt of lítil og gáfu ekki af sér þær tekjur, sem nauðsynlegar *vom til fram- færslu. Að sögn Halldórs Blöndal, landbúnaðarráðherra, tók samning- urinn ekki nægilega á þeirri erfiðu stöðu, sem þá var orðin meðal sauðfjárbænda, heldur var í honum gert ráð fyrir uppkaupum, sem ekki hafa gengið eftir sem skyldi, m.a. vegna þess að bændur hafa ekki séð fram á atvinnumöguleika annars staðar auk þess sem þeir eiga marg- ir hveijir erfitt með að sætta sig við að jarðir þeirra hverfi úr ábúð. Síðan hefur allt að 33% flatur niður- skurður, þar sem hann hefur verið mestur, dunið á sauðfjárbændum sem þýtt hefur 30-50% tekjurýmun á undanfömum fjómm ámm. Íslenskir sauðfjárbændur hafa sent frá sér „neyðarkall“ sökum fjárhagserfiðleika og lýsa eftir nýrri stefnumótun enda megi þeir vart við frekari „kollsteypum" þrátt fyrir að mörgum milljörðum hafi verið varið af fé skattborgaranna þeim til handa á umliðnum ámm. Sauð- fjárbændur telja að sú 900 milljóna kr. skuldbreyting, sem boðuð hefur verið í Stofnlánadeild landbúnaðar- ins og kemur fleimm til góða en sauðfjárbændum einum saman, muni greiða úr fyrir sumum, en eftir standi talsverður hópur bænda, sem muni þurfa sérstaka aðstoð, ýmist til að hætta búskap, leita nauðasamninga eða annarra mögu- leika, sem meta verði í hverju tilviki fyrir sig. Atvinnuleysi Ari Teitsson, nýkjörinn formaður Bændasamtaka íslands, segir sam- drátt í sauðfjárframleiðslu til kom- inn vegna minnkandi innanlands- neyslu og því að með gerð búvöm- samnings 1991 hafi verið ákveðið að hætta stuðningi við útflutning. Hann segir samdrátt í sauðfjárfram- leiðslu liggja á bilinu 30-40% á und- anförnum fjórum ámm sem sé allt önnur stærðargráða en aðrar bú- greinar hafi þurft að glíma við nema hvað miklar sveiflur hafi orðið í loð- dýrarækt af allt öðmm ástæðum. Ari segir að í því erfiða atvinnu- ástandi, sem hér hafi ríkt, hafi bændur ekki haft að annarri atvinnu að hverfa og því fremur kosið að búa áfram við minnkandi fram- Ieiðslu og minnkandi tekjur frekar en við algjört atvinnuleysi. Bændur þurfa í reynd að segja sig frá búskap til þess að njóta greiðslna úr Atvinnuleysistrygg- ingasjóði þrátt fyrir að hafa greitt tryggingagjald frá árinu 1991. Aft- ur á móti em nú uppi hugmyndir um að heimila öðm hjóna að segja sig frá búskap til þess að komast á bætur þar sem að sýnt þykir að afkoma margra búa dugar ekki lengur til framfærslu, en skv. heim- ildum Morgunblaðsins ríkir mikil andstaða gagnvart þessum hug- myndum innan veggja fjármála- ráðuneytis. Verð til bænda Afkoma landbúnaðarins hefur versnað jafnt og þétt frá árinu 1980 og hefur samdrátturinn orðið lang- mestur í framleiðslu kindakjöts enda hafði sú framleiðsla aukist mest áratuginn á undan. Frá upphafi > búvörusamnings- tímans hefur orðið 10% skerðing á framleiðendaverði til sauðijárbænda auk þess sem þeir hafa tekið á sig 5% aukaverðskerðingu vegna erfiðr- ar birgðastöðu á sama tíma og salan hefur dregist saman um 9%. Fram- leiðendaverð til kúabænda hefur dregist saman um 5% á meðan sala á mjólk og mjólkurafurðum hefur dregist saman um 1%. Nautgripa- ræktendur hafa orðið fyrir 32% verðskerðingu á meðan sala í nauta- kjöti hefur vaxið um 4%. Eggja- bændur hafa orðið fyrir 2% verð- skerðingu og 5% sölusamdrætti. En athygli vekur að á tímabilinu hefur framleiðendaverð til svínabænda minnkað um 23% á sama tíma og svínakjötssalan hefur aukist um heil 24% og framleiðendaverð til alifuglabænda hefur hækkað um 12% á sama tima og sala á afurðum þeirra hefur minnkað um 13%, skv. tölum frá Framleiðsluráði landbún- aðarins. í sérstakri úttekt á fjárhagsstöðu bænda kemur fram að sauðfjárbú afla að meðaltali aðeins 46% tekna sinna með búrekstrí, en 54% tekna * utan bús. Kúabændur og bændur á blönduðum búum afla rúmlega 75% tekna sinna með búrekstri. Fækkun bænda Sauðljárbændum hefur fækkað um 390 á undanförnum fiórum árum og eru nú 2.771 talsins. Þar af eru 1.210 hreinir sauðfjárbændur með yfír 100 ærgildi og samtals 5.100 tonna greiðslumark af þeim 7.400 tonnum, sem til úthlutunar eru á þessu ári. Heildarfullvirðisrétt- urinn var 10.200 tonn þegar búvöru- samningurinn var gerður, en greiðslumarkið stefnir í að verða 7.200-7.400 tonn á næsta ári. Svínakjötsframleiðendum hefur fækkað úr 131 í 100 á sama ára- fjölda. Kjúklingabændum hefur fækkað úr 26 í 19 og eggjaframleið- endum um helming, eða úr 61 í 31, en frá árinu 1988 hafa eggjabændur búið við kvótastýringu og framleiða tuttugu egggjabændur nú um 97% af þeirri framleiðslu, sem fer á al- mennan markað. Mjólkurframleiðendum hefur fækkað úr 1.565 í 1.403 á undan- förnum fjórum árum og hefur grein- in orðið fyrir um 10% tekjusam- drætti, sem rekja má fyrst og fremst til verðfalls á nautakjötsmarkaði, aukinna framleiðnikrafna til mjólk- urframleiðenda og vanefnda ríkisins á jarðræktarframlögum. Langmest- ur hluti nautakjötsframleiðslunnar er hliðarbúgrein hjá mjólkurfram- leiðendum og vegur mjólkurfram- leiðslan um 90% af tekjum búanna og nautakjötið um 10%. Vegna verð- falls á nautakjöti hafa bændur, sem stólað hafa á viðbótartekjur af naut- gripauppeldi, ekki haft árangur sem erfiði sl. tvö ár vegna offramboðs, að sögn Guðmundar Lárussonar, formanns Landssambands kúa- bænda. „Bjartari tímar virðast framundan í kjötframleiðslunni vegna nýrra möguleika í útflutningi og hækkandi verðs innanlands, en kúabændur gripu til þeirra aðgerða að taka kjöt af markaði til þess að freista þess að ná verðinu upp að nýju, sem gengið hefur eftir það sem af er þessu ári,“ segir Guðmundur, en hann lítur á opinberan stuðning við greinina sem niðurgreiðslur á verði til neytenda frekar en styrk til bænda. Ósamkeppnisfært Kristinn Gylfi Jónsson, formaður Svínaræktarfélags íslands, segir svínabændur standa þokkalega vel þrátt fyrir að hafa orðið fyrir veru- legri verðlækkun á markaði. „Að sama skapi hefur markaðurinn auk- ist. Við höfum náð að framleiða meira magn, náð aukinni nýtingu í framleiðsluþáttum, umbótum í greininni á ýmsum stigum og fóður- gjald og verð á fóðurhráefnum hef- ur lækkað. Allt hefur þetta skilað sér í hagkvæmari framleiðslu, sem hefur gert það að verkum að tekjur búanna hafa haldist. Þá hafa svína- bændur lagt ríka áherslu á að bjóða nýtt kjöt í hverri viku svo og vöru- þróun í samstarfi við úrvinnslu- greinar. Það hefur aftur skilað sér í aukinni fjölbreytni á markaði og þar með meiri sölu og velvilja neyt- enda, en við höfum sérstaklega passað vel upp á okkar ímynd.“ Svínabændur búa hvorki við stýr- ingu í framleiðslu eða verði né við opinberan stuðning heldur er það fyrst og fremst markaðslögmálið framboð og eftirspurn sem ræður ríkjum. Kristinn Gylfi segir það oft hafa verið erfitt fyrir þá kjötfram- leiðendur, sem ekki njóta styrkja af neinu tagi, að keppa við niður- greidda kjötframleiðslu, þó þróun undanfarinna ára sýni mikinn sam- drátt í sölu á lambakjöti, en aftur mikla söluaukningu í svínakjöti. „Hinsvegar er staðreyndin sú að sauðfjárrækt er í eðli sínu mun dýr- ari en aðrar búgreinar og geysilega mikill munur er á framleiðsiukostn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.