Morgunblaðið - 02.04.1995, Page 19

Morgunblaðið - 02.04.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995 19 • Vió leituóumst vió aó skapa heildstæóa mynd byggóar og um- hverfis og var mjög hugaó aó skapa sem mest skjól, jafnt aó sumri sem vetri,“ sögóu þeir Gylfi og Siguróur Jó- hann arkitektar settur við þjóðveginn, í góðum tengslum við skólasvæðið og íbúðabyggðina sjálfa, svo og við hugsanlega þjónustustaði við ferðamenn. Beðið eftir hættumati Það hefur þegar komið fram í frétt í Morgunblaðinu, haft eftir Jóni Gauta Jónssyni sveitarstjóra í Súðavík, að heimamenn væru mjög ánægðir með hina nýju skipu- lagstillögu. En hvert er álit Stefáns Thors, skipulagsstjóra, á hinu nýja byggingarsvæði í Súðavík og hinni útvöldu tillögu sem lögð verður væntanlega til grundvallar þegar framkvæmdir heíjast við uppbygg- ingu hinnar nýju Súðavíkur? „í fyrsta lagi tók hreppsnefnd Súðavíkur þá ákvörðun að byggja upp nýja Súðavík á landi Eyrar- dals fyrir innan gömlu Súðavík,“ sagði Stefán. „Til er skipulag, stað- fest fyrir Súðavík og samkvæmt því skipulagi er gert ráð fyrir fram- tíðarbyggð á þessu svæði. Það má því segja að þessi ákvörðun sé í samræmi við það gamla skipulag. Þetta svæði er flatlendara en það sem núverandi byggð er á, og á þessu svæði er barnaskólinn, kirkjan og Langeyrin, þar sem áður var atvinnustarfsemi. Upp- haflega, þegar byggð fór að mynd- ast á Súðavík, var mjög horft til þessarar landspildu sem svæðis fyrir byggðina, en niðurstaðan varð hins vegar sú að byggja upp þar sem Súðavík er í dag, upp af höfninni. Fyrsta spurningin sem vaknar er hvort þetta svæði sé öruggt með tilliti til snjóflóða. Svo hefur alltaf verið talið, en að fenginni reynslu er nauðsynlegt að kanna það sér- staklega áður en framkvæmdir hefjast. Vegna þess hversu hratt hreppsnefnd hefur viljað vinna að uppbyggingunni liggja ekki enn fyrir niðurstöður úr hættumati sem unnið er að á vegum Ofanflóða- nefndar. Það er hins vegar alveg ljóst að þessar niðurstöður þurfa að liggja fyrir áður en fram- kvæmdir verða hafnar. Það er margt sem bendir til þess að þetta sé ekki hættusvæði, en núna vinnur norskur sérfræð- ingur og Veðurstofan að greinar- gerð sem að skýrir þetta mál. Sex aðilum var boðið að þessari skipulagssamkeppni og sú tillaga sem valin var til útfærslu er mjög vel unnin og í henni er tekið mjög gott tillit til aðstæðna og hún byggist á góðum skilningi á því hvernig samfélag eins og Súðavík gæti best þróast,“ sagði Stefán Thors að lokum. kommóður-skrifborð - sófar - skápar - styttur Ijósakrónur-gólflampar- o- o -s; co co ANTIK - UTSALA Allt að 70% afsl. O* 05 C/D Opið alla helgina UslsILl fVi Grensásvegi 3 sófaborð - Ijósakrónur - gólflampar - sófaborð - rúm - kistur - fataskápar - C/5 CO Jafnar greiðslur Óverðtryggð lán til allt að 5 ára með jöfhum greiðslum allan lánstímann!' íslandsbanki vill stubla aö stööugleika í fjármálum heimilanna og býöur nú nýjan lánamöguleika. Óverötryggö lán til allt aö S ára meö jöfnum greiöslum allan lánstímann. Leitaöu upplýsinga í nœsta útibúi bankans. ISLANDSBANKI - í takt viö nýja tíma! *Um er aö rœöa jafngreiöslulán. Creiöslubyröi þessara lána veröur jöfn út lánstímann á meöan vextir breytast ekki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.