Morgunblaðið - 02.04.1995, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 02.04.1995, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Menning- arvika í Vitanum UNGLINGARNIR í félagsmiðstöð- inni Vitanum í Hafnarfirði standa fyrir menningarviku dagana 3. til 7. apríl. Mánudaginn 3. apríl í opnu dag- starfi milli kl. 16 og 18 mun mynd- bandaklúbburinn Villi villti sýna frétta- og skemmtiþátt. Borðtennisl- ið Vitans keppir við lið Stjömunnar í Garðabæ. Á förðunamámskeiði verður lögð áhersla á kvöldförðun. Um kvöldið verður Kramhúsið með kynningu á starfsemi sinni og salza- dansarinn Carlos kemur í heimsókn. Tónlistarklúbbur Vitans verður með jazz- og blúskynningu. Á þriðjudaginn milli kl. 16 og 18 verður myndbandaklúbburinn með fréttatengd efni. Förðunarnámskeið- ið heldur áfram og nú verður kennd listförðun (fantasía). Frambjóðendur með fulltrúum björgunarsveitanna Bj örgunar s veitir spara ríkinu miklar upphæðir VETURINN í vetur hefur undirstrikað mikilvægi björg- unarsveita. FRAMBJ ÓÐENDUR úr röðum sex stjómmálaflokka sem bjóða fram til þingkosninganna hittu fulltrúa björgunarsveitanna í landinu á fundi í húsakynnum Slysavarnafélaganna við Flugvallarveg í vikunni. Fátt var á fundinum, e.t.v. vegna þess að á sama tíma fór fram úrslitaleikurinn á Islandsmótinu í handknattleik. Umræður voru þó líflegar. Frummælendur fyrir flokkana voru Sólveig Pétursdóttir fyrir Sjálf- stæðisflokk, Ólafur Örn Haraldsson fyrir Framsóknarflokk, Össur Skarphéðinsson fyrir Alþýðuflokk, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir WAAGE fyrir Þjóðvaka, Kristín Einarsdóttir fyrir Kvennalista og Svavar Gests- son fyrir Alþýðubandalag. í máli frambjóðendanna kvað við nokkuð samstiga tón. Allir fóm hlýjum orð- um um það mikla og óeigingjama starf sem unnið er á þessu sviði og öllum þótti óhæfa annað en að ríkis- valdið kæmi með einum hætti eða öðmm til móts við þann kostnað sem einstaklingar innan björgunarsveit- anna eru að bera einir og óstuddir. Kosningaloforð vom fá á þessum fundi önnur en að frambjóðendur lof- uðu virku og öflugu samstarfi, að atburðir vetrarins hefðu sýnt fram á svo ekki yrði fram hjá horft að það þyldi enga bið að koma björgunarmál- um í landinu í skaplegt horf. Bent var á þá sérstöðu sem íslendingar hafa, þ.e.a.s. að í flestum löndum séu það ríkisreknir herir sem inni björg- unarstörf af hendi, en á Islandi sjálf- boðaliðar innan samtaka sem sjálf afli sér tekna með ýmiss konar uppá- tækjum. Björgunarsveitimar spömðu ríkinu þannig ómældar upphæðir. Áður en fundarsetan og framsögu- erindin hófust, dreifðu forkólfar björgunarsveitanna lista yfir ýmis atriði sem mættu skoðast sem tillög- ur til úrbóta. Ríkisvaldið mætti t.d. athuga að fella niður virðisaukaskatt af aðföngum, aðflutningsgjald af búnaði, þungaskatt og bifreiðagjöld Fundur um hálshnykki Stuðnings- og sjálfshjálparhópur hálshnykkssjúklinga (SSH) heldur fund 5 ÍSI-hótelinu í Laugardal, mánudaginn 3. apríl klukkan 20. Sérfræðingur í heila- og taugasjúk- dómum kemur á fundinn og heldur fyrirlestur. af björgunarbifreiðum og þjónustu- gjöld, t.d. Pósts og síma og fjar- skiptaeftirlits. Auk þess mætti ríkis- valdið marka björgunarsveitunum fasta tekjustofna. Sveitarfélögin mættu athuga að fella niður gatnagerðargjöld, fasteig- nagjöld, þjónustugjöld á borð við sorphirðugjald og lóðaleigugjald, rekstrargjöld s.s. vegna hita og raf- magns auk þess sem þau mættu marka björgunarsveitunum fasta tekjustofna. Við þetta bættu björgunarsveit- armenn, að nýliðaþjálfun yrði að samræma a.m.k. að hluta til og semja yrði námsskrá sem hlutaðeigandi stjómvöld myndu samþykkja og greiða fyrir. Enn fremur að björgunarsveitir sem ekki fylgja staðli um búnað og tæki, og kröfum sem gerðar eru til björgunarsveitarmanna, njóti ekki fjárhagslegrar fyrirgreiðslu opin- berra aðila. Einnig, að ferðamenn sem leggi leið sína inn á hálendið skuli hafa sérstakar tryggingar og renni hluti iðgjalda til björgunar- sveitanna eins og tíðkast í nokkrum löndum, t.d. í Olpunum. Loks, að unnið verði stöðugt og markvisst að framtíðarskipulagi björgunarmála í landinu, bæði af hálfu sjálfboðaliða björgunarsveit- anna og stjómvalda. NORDSJÖ LJI Verðsprengja! Nordsjö málning frá 340 kr. líterinn í 12 lítra dósum 5% gljástig. Málarameistarinn Lækjarkot Síðumúla 8, sími 689045 Hafnarfirði, sími 50449. SOL OG SU •V / FJÖLSKYLDUFRII Verödæmi BARCELONA 8. júní -14. sept. Kr Ein vika á Hotel Almirante m.v. mann í 2ja manna herb. Innifalið: Flug, gisting og morgunverður og flugvallaskattur. Bókað og staðgreitt fyrir 3. apríl. Verðdæmi LÚXEMBORG Kr. Kr. 38.40C ** ‘Innifalið er flug til Luxemborgar, bílaleigubíll í B-flokki í eina viku miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára, flugvallaskattar. Staðgreitt. 'lnnifalið er flug til Luxemborgar, bílaleigubíll (B-flokki í eina viku, miðað við 2 í bíl, flugvailaskattar. Staðgreitt. Verðdæmi Verðdæmi RIBE FLUG& r Kr. BILL 24.76C* Kr. Kr. 24.400* 32.730** Kr. ‘Innifalió er flug til Billund. gisting 28.100** i 1 viku i Ribe míðað við 2 lulkxðna * Innifaliö er flug til Billund, og 2 börn, 2ja -11 ára, bílaleigubfll í B-flokkl, 1 vika, miöaö flugvallaskattar. vlð 2 fullorðna og 2 bðrn 2)a-11 éra, Staögreitt fýrir 3. apríl. Brottför 7. júní. flugvallaskattar. Staðgreitt fyrir 3. apríl. Brottför 7. júnf. “Innifaliö er flug til Billund, gisting I einaviku í Ribe miðad við 2 saman f ibúö, flugvailaskattar. Staðgreitt fyrir 3. aprfl. BrottfÖr 7. júní. ** Innifaliö er flug til Ðillund, bílaloigubill I B-flokkl í eina viku miðað við 2 f bfl, flugvallaskattar. Staögroitt fyrir 3. aprll. Brottför 7. júnf. (D 65 22 66 Bæjarhrauni 10. fax. 651160

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.