Morgunblaðið - 02.04.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995 31
FRÉTTIR
Fundur Sjálfstæðisflokks á Reykjanesi með Kópavogsbúum
Breíkkun Reykjanesbrautar
á langtímavegaáætlun
ÁRNI M. Mathiesen þingmaður
sagði í umræðum á kjördæmis-
fundi efstu frambjóðenda Sjálf-
stæðisflokksins á Reykjanesi með
Kópavogsbúum í fyrrakvöld að
þingmenn Sjálfstæðisflokksins á
Reykjanesi myndu beita sér fyrir
því að breikkun brautarinnar yrði
sett á langtímavegaáætlun. Hann
kvaðst munu eiga von á stuðningi
annarra þingmanna kjördæmisins
en gat ekki fullyrt um það hvort
frambjóðendur Sjálfstæðisflokks í
öðrum kjördæmum væru sammála
Reyknesingum um framgang
þessa verkefnis.
Lýsing mikilvæg
Dr. Gunnar I. Birgisson sem
skipar 11. sæti á lista Sjálfstæðis-
flokks á Reykjanesi sagði að kjör-
dæmið hafi farið halloka í skipt-
ingu vegafjár og taldi að verkefni
í öðrum kjördæmum hefðu fengið
meira en góðu hófi gegndi.
Ámi M. Mathiesen kvað það
vera raunhæft að ráðast í endur-
bætur á Reykjanesbraut á næsta
kjörtímabili og benti raunar á að
fjármunum hafi þegar verið út-
hlutað til endurbóta á brautinni.
Engir fjármunir í
Kópavogshöfn í bráð
Hann taldi að fyrsta verkefnið
hlyti að verða það að hefja fram-
kvæmdir við lýsingu Reykjanes-
brautar.
Það væri ekki síst mikilvægt
vegna þess sérkennis brautarinnar
að næturumferð væri þar sam-
felld.
Þingmaðurinn sagði i svari sínu
við fyrirspum að hann sæi ekki
fram á það að Kópavogshöfn fengi
framlag frá ríkinu næstu árin.
Framlögum til hafnamála hafi
þegar verið lofað nokkur ár fram
í tímann. Hann benti einnig á að
mikil andstaða væri ríkjandi meðal
þingmanna að veita fé til hafnar
í Kópavogi, einkum vegna nálægð-
ar hennar við tvær stórar hafnir
á höfuðborgarsvæðinu, í Hafnar-
firði og í Reykjavík.
Fræðslu-
fundur um
áfallahjálp
BORGARSPÍTALINN, ásamt
Rauða krossi íslands, hefur á und-
anfömum ámm staðið fyrir þremur
fjölsóttum námstefnum um áfalla-
hjálp.
Áfallafyjálp er mikilvægt forvam-
arstarf sem er hluti af bráðaþjón-
ustu Borgarspítalans. Til að auð-
velda fólki að leita eftir slíkri þjón-
ustu verður opnað sérstakt síma-
númer á slysadeild spítalans þar
sem tekið verður við beiðnum um
áfallahjálp. Þann sama dag eða
Þrið/udaginn 4. apríl kl. 13.30-
16.30 verður haldinn fræðslufundur
um áfallahjálp í suðursal Borgar-
spítalans. Dagskráin er byggð upp
af fræðsluerindum, veggspjöldum
og pallborðsumræðum.
Mánudagur 3. apríl.
Bókmenntadagskrá á
Kaffi Reykjavík kl. 21:30.
Bólu-Hjálmar og Pressarinn, leiklestur
og söngur í umsjón Guðrúnar
Ásmundsdóttur.
Þribjudagur 4. apríl.
Söngskemmtun á Jazzbarnum
kl.22:00.
Margrét Pétursdóttir syngur við
undirleik Kjartans Ólafssonar.
Gospelsystur Möggu Pálma syngja við
undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
Miðvikudagur 5. apríl.
Kvennakór Reykjavíkur á
Kaffi Reykjavík kl. 21:30.
Fimmtudagur 6. apríl.
Skáldakvöld á
Ara í Ögri kl. 21:00.
Einar Már Guðmundsson, Silja
Aðalsteinsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir,
Ingibjörg Haraldsdóttir o.fl.
Kynnar Menningarhátíðarinnar verða:
Davíð Þór Jónsson, Svanhildur
Jóhannesdóttir, Þór Örn Víkingsson,
Margrét Ákadóttir o.fl.
„Reykjavík, ó Reykjavík, þú yndislega borg."
Hafnarstræti 7 kl. 20:30 mánudaginn 3. apríl.
Opinn fundur um samskipti Reykjavíkurborgar og Alþingis.
Til fundarins mæta m..a. jóhanna Sigurðardóttir, Ásta R. jóhannesdóttir,
Mörður Árnason og Guðrún Árnadóttir. Sérstakir gestir fundarins verða Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Kristín Á. Ólafsdóttir, stjórnarformaður
sjúkrastofnana Reykjavíkur.
jóhanna Sigurðardóttir
Stokkaö upp og rokkað
meö ungu fólki í Reykjavík!
Mánudagsvöld 3. apríl.
Feiti dvergurinn: Kolrassa krókríðandi, Curver.
Þriðjudagskvöld 4. apríl.
Kringlukráin: Bubbi Morthens, Texas Jesus.
Miövikudagskvöld 5. apríl.
Rauða Ljónið: Bubbi Morthens.
Föstudagskvöld 7. apríl. Hótel Island:
Kolrassa krókríöandi, Texas Jesus, Curver.
Kosninqahátíö á Tveimur vinum
laugardagskvöldið 8. apríl.
Ásta R. Jóhannesdóttir Möröur Árnason Guörún Árnadóttir
Allir velkomnir!
Pjódvaki - hrcyjingfólksins