Morgunblaðið - 02.04.1995, Side 34

Morgunblaðið - 02.04.1995, Side 34
34 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ ELINROS HELGA HARÐARDÓTTIR + Elínrós Helga Harðardóttir fæddist í Reykjavík 12. febrúar 1964. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 26. mars síðastliðinn. For- eldrar hennar eru Þórdís Sólveig Valdimarsdóttir og Hörður Þór Snorra- son. Árið 1968 flutt- ist hún með þeim til Hriseyjar og ólst þar upp. Systkini hennar eru Guðrún, f. 16.6. 1967, og Pálmi Viðar, f. 21.10. 1973. Elínrós giftist Gunnlaugi Höskuldssyni árið 1994. Synir hennar eru Hörður Þór Jóhann- esson, f. 23.1. 1982, og Stein- grímur Jóhannesson, f. 30.9. 1984. Útför Elínrósar fer fram frá Akureyrarkirkju á morgun. AÐ MORGNI 26. mars sl. barst okkur sú fregn að Helga frænka (eins og hún var alltaf kölluð) væri dáin, en hún hafði þá barist hetju- lega um allnokkra hríð við ólækn- andi sjúkdóm. Trú, von og kærleikur er það fyrsta sem kemur í huga manns, þegar okkur er hugsað til Helgu. Trúin og vonin um að læknast af sjúkdómi sínum var það sem dreif hana áfram og af kærleik átti hún nóg af í garð ástvina, drengja sinna og eiginmanns, sem barðist hetju- lega með henni og gaf aldrei upp vonina. Helga ólst upp í Hrísey þar sem foreldrar hennar búa enn í dag. En þeir sem til Hríseyjar hafa komið vita að þar eru mjög sérstakar og skemmtilegar aðstæður og áttum við þar skemmtilega daga sem litlar stelpur á sumrin þegar farið var norður. Fyrir sex árum á ferð um landið kom Helga með ijöl- skyldu sína í heimsókn til Áslaugar og fjöl- skyldu að Hömrum í Haukadal. Þar áttum við skemmtilega daga, drengirnir voru þar mjög áhugasamir, sóttu beljumar, gáfu öndun- um og vildu helst verða stórbændur strax á morgun. Mikið hlógum við af þessu öllu saman, og eru þetta ógleyman- legar stundir sem gott er að minnast. Þau hjónin voru allt- af kát og glöð þegar komið var í Lindasmárann til Fjólu og Qöl- skyldu. Oft var það sem að Steini, yngri drengur hennar, varð eftir hjá Rannver frænda sínum, þeim báðum til mikillar ánægju, og megi það samband haidast áfram. Elsku frænka, við þökkum þér fyrir allar þær stundir og minningar sem við eigum um þig, þeim munum við seint gleyma. Elsku Gulli, Hörður, Steini, for- eldrar og systkini, megi góður guð styrkja ykkur í sorginni og vottum við ykkur okkar innilegustu samúð, blessuð sé minning Helgu. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og bezta móðir ber hann þig í faðmi sér. Ailir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, - Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir qonum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins tii þig aftur ber. Drottinn elskar, - Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér. (S. Kr. Pétursson) Áslaug og Fjóla Finnsdætur. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTfN SIGRÍÐUR ÓLAFSSON, verður jarðsett frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. apríl kl. 15.00. Ólafur Ragnarsson, Oddný M. Ragnarsdóttir, Kristín R. Ragnarsdóttir, Ragnar Ragnarsson, Jóhanna María Lárusdóttir, Hrafnkell Ásgeirsson, Geir A. Gunnlaugsson, Dóra Steinunn Astvaldsdóttir og barnabörn. t Ástkær systir mín, STELLA REYKDAL Bergþórugötu 55, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. apríl kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Rauða kross íslands. Kristján J. Reykdal, Gylfi Reykdal, Jón Reykdal, Kristín Vigfúsdóttir, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Ástríður Vigfúsdóttir. t Elskulegu vinir, við hjónin og synir okk- ar fáum seint fullþakkað samúð og vin- áttu við fráfall dóttur okkar og systur, BERGÞÓRU GUÐRÚNAR ÞORBERGS- DÓTTUR, gjafir til góðra verka í minningu hennar og minningarorð. Sérstakar þakkir fá félagar hennar í Háskólakórnum og Lúðrasveit verka- iýðsins, sem settu svip á kveðjuathöfnina og valkyrjurnar sem sáu um erfidrykkjuna. Hildur Bjarnadóttir, Þorbergur Þorbergsson, MINIMINGAR Elsku Helga mín, nú ert þú farin til Guðs og bíður okkar hinna. Ég á svo margar yndislegar minningar sem mig langar að deila með öllum en ef ég minnist léttleikans, hláturs- ins, gleðinnar og svo hetjulegrar baráttu þinnar við ógnvænlegan sjúkdóm, þá eru þetta minningar sem við þekkjum öll af þér, þú varst einstök kona, umtöluð og dáð fyrir baráttu þína og viðhorf gagnvart sjúkdómnum sem heijaði á þig sl. tvö ár, svo stuttan tíma, svo sárt að vera áhorfandi og svo lítilsmegn- ugur. Ég þakka innilega fyrir að hafa fengið að kynnast þér, elsku frænka mín, og ég og trúi því að þér líður vel núna hjá Guði, laus við öll mein, frjáls. Kæru Gulli, Hörður og Steini, Dísa frænka og Hörður, Guðrún, Pálmi og Andri, mínar innilegustu samúðarkveðjur og hluttekning með sálmi 23: Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mina, og í húsi drottins bý ég langa ævi. (Úr Davíðssálmi nr. 23) Guð blessi þig. Þín frænka, Dagný Björk og fjölskylda. Hún Helga frænka mín er dáin. Þótt maður vissi hvert stefndi síðustu misseri, er alltaf erfitt að horfast í augu við endalokin. Veik- indi Helgu voru mikil og erfið en hún sýndi ótrúlegan baráttuvilja og þrek þennan tíma og kvartaði aldrei. „Ég er bara hress, það þýð- ir ekkert annað," var hún vön að segja þegar spurt var um líðanina. Þær voru margar ferðimar milli Akureyrar og Reykjavíkur milli lyfja- og geislameðferðanna og reyndi þá á fjölskylduna að standa saman því fjarvistir urðu stundum langar og strangar. Gulli eiginmað- ur Helgu var hennar stoð og stytta, traustur og umhyggjusamur allan tímann, og sama má segja um for- eldra Helgu, þau Dísu og Hörð. Þegar ég minnist Helgu frænku minnar koma upp í hugann fallegar myndir úr Hrísey, þegar við sem smástelpur vorum í vist saman, tíndum ber í skyrið, sem reyndust vera lambaspörð þegar heim var komið og hlógum við oft að því síð- ar. Við deildum gleði og sorg bernskuáranna, hlógum í grasinu, lékum okkur í fjörunni og alltaf skein sólin í Hrísey. Helga bar ekki tilfinningar sínar á torg en var allt- af tilbúin að hlusta á aðra og var trú og trygg sínum vinum. Hún hafði góðan húmor og var skemmti- lega stríðin og ég sé hana fyrir mér við eldhúsborðið, með kaffiboll- ann fyrir framan sig, hlæja þessum dillandi, smitandi hlátri með tárin rennandi niður kinnarnar. Helga og Gulli höfðu búið sér fallegt heimili í Móasíðunni ásamt sonum Helgu, þeim Herði og Steina; góðum og einlægum drengjum, og alltaf var vel tekið á móti mér og mínum fyrir norðan. Það er erfitt að kveðja unga konu í blóma lífsins og sár missir fyrir tvo unga syni, eiginmann, móður, föður, systur og bróður. Ég bið guð að blessa þau öll og styrkja í þeirra þungu sorg. Við Helga töluðum síð- ast saman um mikilvægi þess að hafa sólina og ljósið í hjarta og huga. Látum minninguna um Helgu lýsa upp döpur hjörtu okkar og létta hugi okkar á erfiðum stundum. Ég trúi því að amma og afi og góður frændi hafi tekið á móti henni með hlýjum opnum örmum á þeim stað þar sem þjáningar fyrirfmnast ekki og eilíf hamingja ríkir. Guð blessi þig, elsku Helga frænka mín. Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir og fjölskylda. Það er skrítið, að áður fyrr þegar mér var hugsað til Helgu var hún alltaf „litla frænka“ í mínum augum. Helga var rúmum fimm árum yngri en ég. Þegar hún síðan stálp- aðist og vildi leika sér við okkur hina krakkana fannst mér ég taka niður fyrir mig að leika við svona smá stelpuhnokka. Þegar Dísa frænka og fy'ölskylda fluttust norður í land hittumst við æ sjaldnar, og í þau fáu skipti sem við hittumst vorum við Helga alltaf hálffeimnar hvor við aðra og náðum því aldrei þá að kynnast nógu vel. Fyrir bráðum nítján árum fluttist ég til Svíþjóðar, þar af leiðandi rofn- aði næstum allt samband mitt við frænkur mínar og frændur á ís- landi, nema þá í gegnum mömmu mína og systur. í júní ’93 var ég heima og þá var haldið ættarmót. Þá fékk ég loksins tækifæri til að hitta næstum allt skyldfólk mitt að nýju. Það var svo gott og gaman að fá að hitta allt þetta fólk, alla þessa ættingja eftir svona mörg ár. Áð finna skyld- leikann, rifya upp gamlar minningar og allt annað sem við eigum sam- eiginlegt. Þar hitti ég líka Helgu, „litlu frænku". En hún var ekki lengur „litla frænka", aldursmunurinn var ekki svo mikill lengur. Við vorum orðnar konur með börn á svipuðum aldri. Það var mikið talað þessa helgi, um allt milli himins og jarð- ar, um sorg og gleði. Helga virtist líta björtum augum á framtíðina og var mjög hress miðað við það að hún hafi farið í læknisaðgerð til Svíþjóðar tæpum tveim mánuðum áður. í fyrrasumar var ég í löngu sum- arfríi heima á íslandi og þá hitti ég Helgu frænku aftur. Við komum saman sjö frænkur og höfðum litið „frænkupartý", nokkrar komu frá Reykjavík, nokkrar utan af landi, ein sem býr í Afríku og svo ég frá Svíþjóð. Það var glatt á hjalla þetta kvöld en undir niðri fundum við allar fyrir þeirri alvöru sem lá á bakvið. Þetta gat orðið síðasta skiptið sem Helga frænka var með okkur. Þó að hún bæri sig vel og væri hress og dugleg, gátum við lesið það úr augum hennar hvað þetta var allt saman erfítt. Þvílík lífsreynsla sem , þessi unga kona + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og marg- háttaðan stuðning við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, sonar, tengdasonar og bróður, ÞÓRARINS GUÐNASONAR frá Raufarhöfn, Meistaravöllum 5. Sérstakar þakkir til Lionsklúbbsins Vála. Margrét Helga Sigurðardóttir, Margrét Unnur, Egill, Óðinn, Helga Jónsdóttir, Margrét Unnur Steingrímsdóttir, Sigurður St. Þórhallsson, og systkinin. þurfti að ganga í gegnum. En Helga stóð sig eins og hetja! Nokkrum vikum seinna, sama sumar, fór ég og fyölskylda mín í ferðalag norður. Þá skruppum við í smá heimsókn til Helgu. Það var gott að koma til hennar og fyöl- skyldunnar, að fínna hlýjuna og kærleikann sem ríkti á milli þeirra og á heimilinu. Við sátum þama góða stund og röbbuðum saman um lífið og tilveruna, ósköp afslappað og fijálslegt. Þessi heimsókn var og^er mér mikils virði. í gær þegar ég fékk þessa sorg- arfrétt, að Helga væri dáin, brast ég í grát. Þó svo að við vissum að þetta gæti líklega bara farið á einn veg, lifðum við samt í von um kraftaverk. Elsku Gulli, Hörður og Steini, Dísa, Hörður, Guðrún og Pálmi. Missir ykkar er mikill, en ég bið Guð að styrkja ykkur öll á þessum erfíðu stundum. Elsku „litla frænka", takk fyrir að ég fékk tækifæri til að kynnast þér einu sinni enn. Linda frænka og fjölskylda í Svíþjóð. Þín minning öllu æðri. Ofar moidum skín. Er góðra verður getið mun getið verða þín. (Q j) Hún Helga er dáin. Þessi orð hljóma í eyrum okkar, orð sem maður vill ekki trúa, þrátt fyrir erfið veikindi hennar. Hún Helga sem alltaf var svo hlý, og stutt í hláturinn hjá henni og styrkur henanr og kraftur í veik- indunum var ótrúlegur. Þess vegna var svo fyarlægt okkur að hún væri að fara svo fljótt. Best þekktum við Helgu í gegn- um vinnu okkar. Þar var oft stutt í grínið og glensið hjá henni og var margs að sakna þegar hún fór í veikindafrí fyrir rúmlega ári. Hún var fyrst til í að mæta á skemmtanir ef eitthvað stóð til og var hrókur alls fagnaðar. Nú þegar sól hækkar á lofti og vorið er í nánd, fellur ein rós, rós sem gaf frá sér orku og yl. Guð geymi þig, elsku Helga. Kæri Gulli, þú sem stóðst eins og klettur við hlið hennar, við send- um þér, Herði, Steina, foreldrum Helgu og systkinum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Trúarinnar traust og styrkur tendrar von í döpru hjarta eilífðin er ekki myrkur eilífðin er ljósið bjarta. (H. Sæmundsson.) Gréta og Bryndís. Baráttu Helgu við illvígan sjúk- dóm er lokið. Það er erfítt að skilja af hveiju ung kona er hrifín burtu frá manni, bömum og fyölskyldu en einhver hlýtur tilgangurinn að vera. Það var um haustið 1987 sem ég kynnist Helgu, ég var þá nýflutt inn í íbúð í sama stigagangi, nýkom- in í bæinn og þekkti fáa. Við Helga urðum fljótt vinkonur, og núna fara í gegnum huga minn allar þær ynd- islegu samverustundir sem við átt- um saman. Aldrei heyrði ég Helgu kvarta, þó að hún hafí örugglega oft haft ástæðu til í gegnum sitt sjúkdóms- stríð, hún var svo dugleg og ætlaði sér að yfirstiga sjúkdóminn. Alltaf stóð Gulli við hlið Helgu og studdi hana í gegnum allt. Gulla var það einhvern veginn lagið að fylla Helgu bjartsýni, þegar erfíðu stundirnar komu. Elsku Helga, ég mun aldrei gleyma þeim stundum sem við átt- um saman, þær munu fylgja mér þangað til við hittumst aftur. Elsku Gulli, Steini, Hörður og aðrir aðstandendur, ég bið Guð um að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Minn Jesús andlátsorðið þitt, i mínu hjarta ég geymi, sé það ög lika síðast mitt, þá sofna ég burtu úr heimi. (Hallgrímur Pétursson.) Inga Dóra Steinþórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.