Morgunblaðið - 02.04.1995, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. APRÍL1995 45
FÓLK í FRÉTTUM
Fegurðarsamkeppn
Dans, söngnr
o g fegnrð
FEGURÐARSAMKEPPNI
Reykjavíkur var haldin síðastliðið
fimmtudagskvöld á Hótel íslandi.
Það var sautján ára stúlka úr
Hafnarfirði, Berglind Ólafsdóttir,
sem bar sigur úr býtum, en fimmt-
án stúlkur af höfuðborgarsvæðinu
kepptu um titilinn. Lokakeppnin
verður svo haldin á Hótel íslandi
24. maí næstkomandi.
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, 19
ára, var valin besta ljósmynda-
fyrirsæta og vinsælasta stúlka í
hópi keppenda var kjörin Bryndís
Asmundsdóttir, sem einnig er nítj-
án ára. Á meðal skemmtiatriða
var danssýning Batoo-dansflokks-
ins með gestadansaranum Jó-
hanni Frey Björgvinssyni. Auk
þess söng Margrét Sigurðardóttir
lagið „Memory".
Berglind Ölafsdóttir segir í
samtali við Morgunblaðið að úr-
slitin hafi komið sér mjög á óvart:
„Ég var eiginlega alveg búin að
útiloka að ég gæti unnið, þannig
að ég varð mjög hissa.“ Hún
bætir svo við og hlær: „Segja það
ekki allir?"
BRYNDÍS Ásmundsdóttir, sem var kjörin vinsælasta stúlkan,
Berglind Ólafsdóttir, Ungfrú Reykjavík 1995, og Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir, besta ljósmyndafyrirsætan.
HRAFNHILDUR Sigurðardóttir, Amfríður
Kristín Amarsdóttir, Bima Bragadóttir og
Svava Kristjánsdóttir tóku þátt í keppninni í
fyrra.
BERGLIND með foreldrum sínum Sig-
rúnu Steingrímsdóttur og Ólafi S. Vil-
lyálmssyni.
ÞÁTTTAKENDUR í fegurðarsamkeppninni ásamt
Margréti Skúladóttur Sigurz, Ungfrú ísland og
Reykjavík 1994. Fyrir framan stúlkurnar er kynnir
kvöldsins, Anna Björk Birgisdóttir.
Broderick
á Broadway
►ÁR OG DAGAR em síðan Matt-
hew Broderick tróð upp í leikrit-
um Neils Simons á Broadway.
Hann haslaði sér völl í Hollywood
og hefur leikið i fjölmörgum
kvikmyndum á borð við „War
Games“, „The Freshman" og
hina ógleymanlegu „Ferris
Bueller’s Day Off“. Nú ætlar
hann að spreyta sig aftur á
Broadway, að þessu sinni í söng-
leiknum „How to Succeed in
Business Without Really Try-
ing“.
„Enginn stenst Matthew snún-
ing í því sem hann tekur sér fyr-
ir hendur,“ segir unnusta hans
og leikkonan Sarah Jessica Par-
ker. Það getur verið nokkuð til
í því hjá henni, en engu að síður
er mikil vinna er framundan hjá
Broderick. Þetta er hans fyrsta
uppfærsla á Broadway í sjö ár
og hann hefur aldrei áður leikið
í söngleik. „Eg langaði til þess
að gera heiðarlega tilraun,“ seg-
ir hann.
Á sama tíma er Broderick að
leggja síðustu hönd á kvikmynd-
ina „Infinity" sem hann framleið-
ir og leikstýrir, auk þess að fara
með aðalhlutverkið. Það vekur
óneitanlega athygli að handritið
er skrifað af móður hans, Patric-
iu. Samstarfið milli þeirra geng-
ur vel, segir Broderick. „Ég hef
alltaf getað sagt allt af létta við
móður mína.“
Morgunblaðið/Gunnar Lund
FJÖLMARGIR gestir gæddu sér á léttum veitingum.
MESSUÞJÓNARNIR íris María Jónsdóttir
og Kristín Guðmundsdóttir.
Maríukirkjan 10 ára
HALDIÐ var upp á tíu ára afmæli dagsins var fólki úr söfnuðinum og
hinnar kaþólsku Maríukirkju í ýmsum kirkjunnar mönnum boðið
Breiðholti fyrir skömmu. I tilefni upp á léttar veitingar.
íhei
2,8 grömm Air Titanium
léttasta umgjörð í heimi
Hann valdi nútíma
gleraugu „Air Titanium“