Morgunblaðið - 07.04.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 15
AKUREYRI
Skógar á Norðurlandi koma afar illa undan hörðum o g snjóþungum vetri
; Mikilvinnaað
hreinsa upp eyði-
leggingu vetrarins
SNJÓÞUNGUR og harður vetur
hefur leikið skóga norðanlands
grátt, þeir koma víða mjög illa und-
an vetri vegna fannfergis en menn
telja útilokað að meta skemmdir
fyrr en snjóa leysir.
Aðalsteinn Svanur Sigfússon hjá
Skógræktarfélagi Eyfirðinga sagði
að Kjarnaskógur væri víða illa útlít-
andi og þegar væri ljóst að tjón
væri töluvert þó svo menn gætu
ekki endanlega metið hversu miklar
skemmdir hefðu orðið fyrr en snjór-
inn væri á bak og burt. Ungar plönt-
ur hefðu margar lengið flatar undir
snjó um langan tíma og væri
ómögulegt að segja fyrir um nú
hvort þær væru allar brotnar eða
þær myndu ná að rétta sig af. „Það
er hræðileg útreið á skóginum eftir
þennan vetur,“ sagði Aðalsteinn.
Brotin tré
Hann sagði að þessi vetur væru
mun verri en til dæmis snjóavetur-
inn 1990, þá hefði að mestu snjóað
í logni, en annað hefði verið uppi á
teningum nú þegar snjóað hefði í
öllum áttum og nánast upp á hvern
dag. Mjög hefði dregið í skafla, öll
gil og lautir yfír full af snjó og
hann hefði lamist í trén í hvass-
viðri og brotið þau.
Mikil vinna farið
forgörðum
Að sögn Aðalsteins hefur mikil
vinna farið forgörðum í vetrar-
veðrinu og fyrirsjáanlegt að gífur-
legt verk yrði að hreinsa upp eftir
eyðileggingu vetrarins. Þá þyrfti
eflaust að planta mikið út á þau
svæði sem verst hefðu orðið úti,
en þau væru einkum í jaðri skóg-
arins.
Sigurður Skúlason, skógarvörð-
ur hjá Skógræktinni að Vöglum,
sagði að í heildina hefði Vagla-
skógur ekki farið illa í vetur, víða
um skóginn væru þó svæði sem
látið hefðu verulega á sjá. Einkum
væri það í brekkum móts við
suðvestanveðrið, en ekki væri
algengt að mikið snjóaði í slíkri
átt eins og raunin hefði orðið í
vetur.
Línuveðrið verra
Taldi Sigurður að veturinn 1991
hefði farið verr með Vaglaskóg, en
þá var svokallað „línuveður" ríkj-
andi eða norðaustan bleytuhríð.
„Það eru einstaka svæði hjá okkur
mjög illa farin en ég tel að í heild-
ina komi skógurinn ekki illa undan
vetrinum. Við getum hins vegar
Morgunblaðið/Rúnar Þór
AÐALSTEINN Svanur Sig-
fússon virðir fyrir sér afleið-
ingar hins þunga vetrar, mikl-
ar skemmdir á trjám í skógin-
um. Á minni myndinni sést
sundurbrotið tré.
ekki alveg sagt fyrir um hversu
mikið tjónið er, það er enn snjór
yfír og hann fer ekki strax. Ég
spái því að það komi einn hvellur
til viðbótar fyrir vorið,“ sagði Sig-
urður.
Hann nefndi að víða á Norður-
landi hefðu litlir skógarreitir látið
á sjá og tjón orðið á plöntum. Þeir
stæðu iðulega á bersvæði og drægju
að sér snjó og væru flestir yfírfullir
þannig að gera mætti ráð fyrir að
plöntur hefðu sligast og jafnvel
brotnað undan þunganum.
Skíðasvæðin
BLAFJOLL
Veðurhorfur: Austan kaldi og létt-
skýjað fram eftir morgni, en síðan
dálítil snjókoma. Frost 1-4 stig.
Skíðafæri gott og nægur snjór.
Opið: Kl. 10-18 fös., laug., sun.
og mán. Á þri., mið. og fim. er
opið kl. 10-22.
Upplýsingar í síma 91-801111.
Skíðakennsla er allar helgar og
hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30,
15.00 og 16.30 og stendur í 1 'I,
klst. í senn.
Ferðir: Sérleyfisferðir Guðmundar
Jónssonar sjá um daglegar áætlun-
arferðir þegar skíðasvæðin eru
opin með viðkomustöðum víða í
borginni. Uppl. eru gefnar í síma
683277 eða hjá BSÍ í sími 22300.
Teitur Jónasson hf. sér um ferðir
frá Kópavogi, Garðabæ og Hafnar-
firði. Uppl. í s. 642030.
KOLVIÐARHOLSSVÆÐI
Veðurhorfur: Austan kaldi og létt-
skýjað fram eftir morgni, en síðan
dálítil snjókoma. Frost 1-4 stig.
Skfðafæri: Gott skíðafæri.
Opið: Kl. 10-18 fös., laug., sun.
og mán. Á þri., mið. og fim. er
opið kl. 10-21.
Upplýsingar í síma 91-801111.
Ferðir: Sjá Bláfjöll.
SKALAFELL
Veðurhorfur: Hæg austlæg átt og
léttskýjað fram að hádegi, en síðan
suðaustan gola eða kaldi og dálítil
snjókoma. Frost 1-4 stig. Skíða-
færi ágætt, nægur snjór.
Opið: Kl. 10-18 fös., laug., sun.
og mán. Á þri., mið. og fim. er
opið kl. 10-21.
Upplýsingar: í síma 91-801111.
Skíðakennsla er allar helgar og
hefst hún kl. 10.30, 12.00, 13.30,
15.00 og 16.30 og stendur í 1 ’A
klst. í senn.
Ferðir: Sjá Bláfjöll.
QRUNDARFJORÐUR
Veðurhorfur: Austan gola eða
kaldi og léttskýjað fram að há-
degi, en síðan suðaustan kaldi og
dálítil snjókoma. Frost 2-5 stig.
Skíðafæri gott og nægur snjór.
Opið: Kl. 13-19 laugardag og
sunnudag. Opið alla virka daga frá
13-19. Ath. ferðir á klst. fresti upp
að Eldhömrum.
Upplýsingar í síma 93-86690.
Ferðir: Virka daga er ferð frá
Stykkishólmi með Sérleyfisferðum
Helga Péturssonar kl. 12 og til
baka kl. 16.30.
ISAFJORÐUR
Veðurhorfur: Austlæg átt, gola
eða kaldi. Léttskýjað fram yfir há-
degi, en þykknar upp síðdegis.
Frost á bilinu 3-6 stig.
Skiðafæri gott og nægur snjór.
Opið: Skíðasvæðið verður opið
laugardag og sunnudag frá kl.
10-17. Opið virka daga frá kl.
13-18 og til kl. 20 þrið. og fim.
Ath. gönguskíðabrautir eru troðn-
ar í Tungudal.
Upplýsingar: í síma 94-3125 (sím-
svari).
Ferðir: Áætlunarferðir á svæðið
alla daga frá kl. 12.
SIGLUFJORÐUR
Veðurhorfur: Fremur hæg breyti-
leg átt og léttskýjað. Frost 3-7 stig.
Skíðafæri gott og nægur snjór.
Opið: 16-20 alla virka daga Um
helgar er opið frá kl. 11-16.
Upplýsingar: í síma 96-71806
(símsvari) og 71700.
DALVIK
Veðurhorfur: Fremur hæg breyti-
leg átt og léttskýjað. Frost 3-7 stig.
Skíðafæri: Mjög gott og nægur
snjór.
Opið: Mán., mið. og fös. kl. 13-22.
Þri. og fim. kl. 10-22. Um helgar
er opið frá kl. 10-17.
Upplýsingar í síma 96-61010 og
61005.
Ferðir: Áætlunarferðir eru frá Ak-
ureyri. Ath. Hægt er að sækja
smærri hópa. Uppl. í síma
96-61005.
OLAFSFJORÐUR
Veðurhorfur: Fremur hæg breyti-
leg átt og léttskýjað. Frost 3-7 stig.
Skíðafæri gott og nægur snjór.
Opið: Virka daga frá kl. 13-19 og
frá kl. 20-22 miðvikudags- og
föstudagskvöld. Opið um helgar
frá kl. 13-17.
Upplýsingar í síma 96-62527 (sím-
svari) og 985-40577.
AKUREYRI
Veðurhorfur: Fremur hæg breyti-
leg átt og léttskýjað. Frost á bilinu
3-7 stig.
Skíðafæri gott og nægur snjór.
Opið: Virka daga kl. 13-18.45 og
laugar- og sunnudaga kl. 10-17.
Upplýsingar í síma 96-22930 (sím-
svari), 22280 og 23379.
Skfðakennsla: Um helgina frá kl.
12 og á klst. fresti eftir þátttöku.
Ferðir á svæðið á virkum dögum
kl. 13.30, 15.30 og 16.30 og síð-
asta ferð kl. 18.30. [ bæinn er síð-
asta ferð kl. 19.
HUSAVIK
Veðurhorfur: Fremur hæg breyti-
leg átt og léttskýjað. Frost 3-7 stig.
Skfðafæri gott, nægur snjór.
Opið: Tvær lyftur eru í gangi og
eru opnar alla virka daga frá kl.
10-12 og 13-17 og kl. 13-18.30.
Opið um helgar frá kl. 13-18.
Skíðakennsla: Ókeypis kennsla
verður fyrir byrjendur, 18 ára og
eldri, frá kl. 18 mán.-fös.
Upplýsingar í síma 96-41912 og
41873.
SEYÐISFJORÐUR
Veðurhorfur: Norðan gola eða
kaldi og dálítil él fram yfir hádegi,
en hæg breytileg átt og léttskýjað
síðdegis. Frost 2-6 stig.
Skíðafæri: Nægur snjór og mjög
gott skíðafæri.
Opið: 10-18 á virkum dögum. Um
helgina er opið kl. 10-18.
Upplýsingar í 97-21160 (símsvari).
Ferðir á virkum dögum kl. 8.45,
14.30 og 15.30. Ferð í bæinn kl.
11.30. Ath. engar ferðir um helgar.
ODDSSKARÐ
Veðurhorfur: Hæg norðlæg átt og
skýjað með köflum fram að hé-
degi, en síðar hæg breytileg átt
og léttskýjað. Frost 3-7 stig.
Skfðafæri gott og nægur snjór.
Opið: 13-19 alla virka daga nema
fimmtudaga þá er opið kl. 13-21.
Um helgina er opið frá kl. 10-17.
Upplýsingar í síma 97-71474 (sím-
svari) eða 61465.
Ferðir eru frá Reyðarfirði, Eskifirði
og Neskaupstað um helgar kl.
10.30 og kl. 13.
Bókanir í flug
norður fyrir páska
Margir
spyijast
fyrir
„VIÐ verðum varir við þó nokk-
uð margar fyrirspurnir og bók-
anir eru' að hefjast af fullum
krafti," sagði Bergþór Erlings-
son, umdæmisstjóri Flugleiða á
Norðurlandi, um viðbrögð við
páskahátið á Akureyri.
Hann sagði að venjan væri
sú að páskaumferðin norður
hæfíst á föstudegi fyrir dymbil-
viku, en þar sem kennt yrði
víða í skólum í þeirri viku vegna
kennaraverkfallsins mætti bú-
ast við að umferðin hæfíst
seinna og myndi koma af fullum
þunga miðvikudaginn fyrir
páska, en þann dag er gert ráð
fyrir þotuflugi til Akureyrar.
Ennfremur verða aukaferðir til
Húsavíkur og Sauðárkróks.
1.500 sæti norður
Frá næsta sunnudegi og út
vikuna verða 1.500 sæti í boði
á vegum Flugleiða frá Reykja-
vík til Akureyrar og jafnmörg
suður aftur eftir páska. „Það
er alltaf töluverð umferð að
sunnan norður til Akureyrar
fyrir páskana og allt útlit er
fyrir að hún verði ekki minni
nú. Við merkjum það m.a. á
þeim fyrirspurnum sem við er-
um að fá um páskahátíðina sem
hér verður haldin," sagði Berg-
þór.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
Opið allan kjördaginn
0PIÐ verður á sýslumannsskrifstof-
unni á Akureyri fyrir þá sem kjósa
utankjörstaðar allan kjördaginn, á
morgun, laugardaginn 8. apríl, eða
frá kl. 9 til 22.00.
Tæplega eitt þúsund manns hafa
þegar kosið utan kjörstaðar, rúmlega
770 á Akureyri og þá hafa borist
um 200 atkvæði annar staðar að,
einkum frá útlöndum og Reykjavík.
Ferðafélag
Akureyrar
Ferðafélag Akureyrar auglýsir eftir starfsmanni á
skrifstofu félagsins í sumar frá 1. júní til 1. sept-
ember. Starfshlutfall er 75%. Tungumálakunnátta
nauðsynleg og þekking á landinu.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.
Umsóknir sendist til Ferðafélaes Akurevrar.
pósthólf 48. 602 Akurevri.
Upplýsingar hjá Ragnhildi, sími 96-25798 og
Ingvari, sími 96-27866 eftir kl. 19 daglega.
Stjórn FFA.
KJARNABYGGÐJ AKUREYRI
Til sölu
orlofshús í náttúru-
perlunni KJarnaskógi við Akureyri
Húsin eru 55 fm að stærð og eru í skipulögðu orlofshúsahverf).
Frábært útsýni, trimmbrautir, göngustígar og fjall
gönguleiðir um óspillta náttúru.
OPIO FRÁ KL. 10 -12 OG 13 -17
26441
ÆAfrEIGNA SALAN
EiGNAKJQR
SKlPACÓrU U ■ FAX, 11444
Upplýsingar
veitir