Morgunblaðið - 07.04.1995, Síða 16

Morgunblaðið - 07.04.1995, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Loksins messufært eftir langan illviðriskafla Þórshöfn - Eftir langa illviðriskafla varð loks messufært á Þórshöfn á sunnudag en litlu munaði þó að kirkjukórinn yrði veðurtepptur inni í Kelduhverfi. Kórinn fór á kirkjukóramót sem haldið var í Skúlagarði fyrir alla kirkjukóra í Norðursýslunni og var fimm tíma á leiðinni þangað með rútu. Ekki tók þó betra við á heim- leiðinni seint um laugardagskvöld en þá var komið versta veður og voru kórfélagar þá sjö tíma á. leið- inni til Þórshafnar með aðstoð snjór- uðningstækis. Til Þórshafnar komst kórinn loks klukkan sjö á sunnudagsmorgun og hafði það tekið alla nóttina að kom- ast þessa leið sem í venjulegu færi er rétt um tveggja tíma akstur. Hátíðleg æskulýðsmessa var síðan haldin í Sauðaneskirkju og tóku bæði skátar og fermingarbörn virk- an þátt í henni og lásu bænir og ritningargreinar. Hefð er orðin fyrir því að vígsla ungskáta fari fram við guðsþjónustu í kirkjunni og er það jafnan hátíðleg athöfn en einnig var barnsskírn svo bjartur ljómi var yfir litlu kirkjunni á Sauðanesi þennan sunnudag þar sem æskan var í aðalhlutverki. Að messu lokinni buðu skátar öll- um í kaffiveitingar og kvöldvöku í félagsheimilinu en nokkuð öflugt skátastarf er hér á Þórshöfn undir einstakri stjórn íþróttafulltrúans Stefáns Más Guðmundsonar og var þar fjölmenni í góðum fagnaði. Við erum í hátíðarskapi og bjóðum þér sérstaklega á opnunina. Glæsilegt úrval af úrvals fatnaði í nýrri og stórglæsilegri verslun. ►FJOLSKYLDUNNN Hennes & Mauritz stórverslun opnar í dag í Húsi verslunarinnar - áður IKEA ——~— ------—j— Morgunblaðið/Anna Ingólfsdðttir ÞÁTTTAKENDUR sem luku námskeiði í umönnun barna. Starfsfræðslunám- skeið á Egilsstöðum Egilsstöðum - Verkalýðsfélagið hefur í samvinnu við MFA á und- anförnum vikum haldið tvö kjarnanámskeið fyrir starfsfólk í umönnunarstörf- um. Annað var fyrir þá sem ann- ast börn en hitt í umönnun aldr- aðra og fatlaðra. Námskeiðin hó- fust á sjálfstyrk- ingu og skyndi- hjálp var stór þáttur. Komið var inn á líkamsbeitingu, samskipti o.fl. Hvort námskeið tók um 60 kennslustundir og voru sjö leið- beinendur á hvoru. Um 40 konur luku þessu kjarnanámi sem veitir rétt til launahækkunar. Markmið með námskeiðum þessum var að efla meðvitund og auka starfs- hæfni. Sjálfstyrking kemur sér vel Bryndís Sigurgeirsdóttir, starfsstúlka á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum, var ein þátttakenda á námskeiðinu. Hún telur nám- skeiðið mjög gagnlegt. Þar hafi komið fram atriði sem vekji um- hugsun um ýmis málefni innan starfsins. Hún segir sjálfstyrk- ingu og siðfræði og samskipti koma sér vel bæði persónulega og eins í starfi en aðrir þættir svo sem skyndihjálp komi að gagni við verklega þáttinn. Morgunblaðið/Árni Helgason NÝIR rekstraraðilar og starfsmenn veitingastaðarins Knudsens. Nýir rekstaraðilar Knudsens í Stykkishólmi Stykkishólmi - Veitingastaðurin Knudsen tók til starfa í nýju húsi í miðbænum í Stykkishólmi fyrir fjór- um árum. Hann hefur notið vinsælda bæði hjá bæjarbúum og ferðamönn- um enda hefur hann þótt hlýlegur og þjónustan góð. Lárus Pétursson og Hafdís Knudsen byggðu húsið og hafa ann- ast rekstur Knudsens en þann 1. mars sl. tóku nýir aðilar við rekstrin- um. Það voru hjónin Guðmundur Svavarsson og Hrafnhildur Björns- dóttir sem komu hingað frá Eski- fírði ásamt dóttur sinni, Þórunni, og tengdasyni, Hilmari Hákonarsyni. Þau hafa tekið Knudsen á leigu til eins árs. Ástæðan fyrir því að þau komu hingað segja þau að því ráði viss ævintýralöngum og áhugi fyrir að reyna eitthvað nýtt á nýjum stað. Þau eru ekki ókunnug svona rekstri því Hrafnhildur rak um tíma mat- sölustað á Eskifirði. Aðspurð eru þau mjög ánægð með þær móttökur sem þau hafa fengið frá þau hófu störf og sögðu að bæjarbúar hafi sýnt þeim mikinn velvilja og að þau væru bjartsýn á framhaldið. Á Knudsen verður lög áhersla eins og áður á góða þjónustu og góðan mat svo að allir sem koma fari ánægðir frá þeim. Þá ætla þau að bjóða upp á skemmtikrafta annað- hvert föstudagskvöld. Knudsen er opinn alla virka frá kl. 11.30-23.30 og um helgar til kl. 2 eftir miðnætti. Frumsýning' á Volvo 960 í Vestmannaeyjum Vestmannaeyjar - Brimborg hf. verður með stórsýningu í Vest- mannaeyjum helgina 8.-9. apríl þar sem nýr Volvo 960 verður sýndur í fyrsta sinn á íslandi. Volvo 960 er flaggskip Volvo- verksmiðjanna, með 6 strokka vél, sjátfskiptingu, loftpúða í stýri, ABS hemlakerfi, samlæsingu, leðursætum og mörgu fleiru, segir í fréttatilkynningu. Til viðbótar við Volvo 960 mun Brimborg hf. sýna Volvo 850, marg- verðlaunaðan glæsivagn, Volvo 460 fjölskyldubíl á góðu verði, Daihatsu Charade, vinsælasta smábílinn og Ford Mondeo sem var kjörinn bíll ársins 1994. Nokkrir góðir notaðir bílar verða einnig til sýnis og sölu. Sýningin verður í íþróttahúsinu í samvinnu við Handknattleiksráð ÍBV og verður ýmislegt til skemmt- unar til viðbótar við úrval nýrra og notaðra bíla. Sýningin verður opin frá 10-17 laugardag og 13-16 sunnudag. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.