Morgunblaðið - 07.04.1995, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995
l'
MORGUNBLAÐIÐ “
LISTIR
Mikil eftirvænting ríkir meðal tónlistaráhugafólks á Akureyri vegna tónleika
Kristjáns Jóhannssonar og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur í næstu viku
L
i
ÞAÐ URÐU miklir fagnaðarfundir
í Kópavogi síðdegis í gær þegar
Morgunblaðið leiddi stórsöngv-
arana Kristján Jóhannsson og
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur saman. Tenórinn
var nýlentur eftir langt og strangt flug
en það var engu líkara en flugþreytan liði
úr líkama hans þegar hann vafði vinkonu
sína örmum. Framundan er stórviðburður
í íslensku tónlistarlífi; þessir ástsælu lista-
menn munu syngja í fyrsta sinn saman á
óperutónleikum Sinfóníuhljómsveitar
norðurlands í næstu viku. Vettvangurinn
verður Akureyri, sveitungum Kristjáns til
ómældrar gleði. í það minnsta er að verða
uppselt og ljóst að það verður þröng á
þingi í KA-húsinu þegar aríur og dúettar
úr Carmen, La Boheme og La Traviata
munu óma um salinn að kveldi hins 12.
apríl næstkomandi.
„Ég er búinn að bíða eftir því í mörg ár
að fá að syngja með þessari elsku," segir
Kristján. „Þetta er sá íslenski söngvari sem
ég hef haft mest samband við í gegnum
tíðina;. eiginlega sá eini. Ég vona bara að
þetta sé jafn mikið spennandi fyrir hana
og mig og kannski ekki síður fyrir áheyr-
endur. Ég veit að fólk bíður spennt. Við
verðum alveg ferlega sæt!“
í lýriskari kantinum
VIÐ VERÐUM
ALVEG FER-
LEGA SÆT
Tveir af dáðustu óperusöngvurum landsins, Krístján
Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir, munu syngja
saman í fyrsta sinn á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
norðurlands í næstu viku. Kristján kom til landsins í
gær o g glatt var á hjalla þegar hann hitti Diddú
síðdegis. Orrí Páll Ormarsson var á vettvangi og
heyrði hljóðið í listamönnunum.
Ekki stendur á svari frá Diddú: „Það
hefur líka verið draumur minn í mörg ár
að syngja með Kristjáni. Ég hef hins vegar
verið að syngja allt annað fag en hann og
þess vegna hafa leiðir okkar ekki legið
saman fyrr. Núna kemur Kristján hins veg-
ar svolítið til móts við mig.“
Og Kristján tekur upp þráðinn: „Þessi
efnisskrá er í lýriskari kantinum en það
er mjög hollt og gott að syngja lýriskar
óperur öðru hvoru. Þetta eru líka óperur
sem ég hef dáð í gegnum tíðina og hef
sungið La Traviata og La Boheme mjög
mikið. Það er hins vegar orðið svolítið langt
síðan, hátt í tíu ár. Síðasta Traviata sem
ég gerði var með Ruth Welting í Miami.“
Diddú hleypir brúnum: „Þvílíkar söngkonur
sem þú hefur sungið með.“
„Hún er ofsalega elskuleg. Þið eruð ekk-
ert ólíkar sem karakterar,“ heldur Kristján
áfram og beinir orðum sínum til Diddúar.
„Nema hvað hún fór síðar mikið út í spírit-
isma og mér er sagt að hún sé alveg gagn-
tekin núna.“
Diddú er með La Traviata „í hálsinum“
eins og Kristján kemst að orði en hún hef-
ur hins vegar ekki sungið La Boheme í
annan tíma. „Nú, hvað! Þú færð þá engan
smá Rodolfo/ segir Kristján og skellir upp
úr. „Stefán Islandi sagði allavega að þetta
væri okkar Rodolfo þegar ég söng prufu
fyrir hann árið 1981.“
Verður ekkert mál
Listafólkið nær að koma tvívegis saman
til æfinga fyrir tónleikana. Það er hins
vegar sannfært um að skortur á samæf-
ingu eigi ekki að koma að sök. „Við höfum
að vísu ekki sungið svona saman áður en
ég hef hlustað svo mikið á Kristján að ég
veit nokkuð hvernig hann syngur," segir
Diddú og Kristján bætir við: „Diddú er
atvinnumaður, þannig að þetta verður
ekkert mál. Ég ætla reyndar að reyna að
komast á sýningu á La Traviata um helg-
ina og heyra hvernig hún tekur á Vío-
lettu. Ég hef heyrt að hún fari þar á kost-
um eins og við mátti búast.“
Diddú hefur sungið nokkuð mikið síðasta
kastið en segir að það mætti vera meira.
„Það væri miklu auðveldara að halda sér í
formi ef hér væri rekin regluleg ópera.“
Kristján tekur undir þetta og segir að fá-
mennið hái íslendingum að þessu leyti. Hér
þurfi að setja upp tvær
til þijár óperusýningar á
ári og fastráða nokkra
söngvara. „Óperan þyrfti
að vera deild innan Þjóð-
Ieikhússins eins og á hin-
um Norðurlöndunum."
Kristján segir að óper-
umar sem verða á boðstólum séu miklar
„tilfinningaóperur". „Maður lætur senni-
lega fljóta mikið á tilfinningunum. Guð-
mundur ÓIi [Gunnarsson stjómandi] verður
bara að elta okkur. Ég þekki hvorki haus
né sporð á hljómsveitinni fyrir norðan en
fólkið sem kemur frá Reykjavík þekki ég
vel og það mig. Mér skilst að þeir séu
búnir að æfa vel fyrir norðan, þannig að
það ættu ekki að verða neinir hnökrar þar
á.“
Að verða uppselt
Mikil eftirvænting ríkir á Akureyri enda
hefur Kristján Jóhannsson ekki sungið þar
opinberlega síðan 1987.
Tónleikamir hafa verið
í fjögur ár í farvatninu
og eru söngvaramir á
einu máli um að vel
hafi verið staðið að und-
irbúningi. Kristján segir
að undirbúningurinn
hafi ekki einungis verið langur heldur hafi
nákvæm og fagleg vinnubrögð jafnframt
verið höfð í hávegum. „Þeir hafa lært þetta
af þér,“ skýtur Diddú inn í.
1200 miðar hafa verið seldir í forsölu
á Akureyri en 1300 munu vera í umferð.
Margir tónlistarunnendur missa því vafa-
laust af tónleikunum. Þeir verða þó ekki
endurteknir, að minnsta kosti ekki í bráð.
Ástæðan er sú að Kristján er störfum
hlaðinn og þarf að syngja í Aida í Berlín
á föstudaginn langa. Til að tenórinn næði
flugi til Reykjavíkur um kvöldið varð til
að mynda að flýta tónleikunum til klukk-
an 19 en fyrirhugað var að þeir hæfust
klukkustund síðar.
Kristjáni þykir miður að
geta ekki endurtekið
leikinn og Diddú tekur
í sama streng. „Við get-
um reynt að gera þetta
aftur seinna," ljúka þau
upp einum munni.
Kristján segir að það sé í góðu lagi að
vera á ferð og flugi á meginlandi Evrópu.
„Þetta er hlutur sem venst enda eru þetta
yfirleitt ekki nema klukkutíma löng flug.
Flugið er að vísu óvenju langt núna og
ég held að það væri óskaplega erfitt að
Morgunblaðið/Kristinn
„REYNIÐ að vera alvarleg," sagði Sig-
uijóna Sverrisdóttir eiginkona Kristj-
áns Jóhannssonar við mann sinn þegar
hann stillti sér upp fyrir ljósmyndara
Morgunblaðsins ásamt Sigrúnu Hjálm-
týsdóttur síðdegis í gær. „Við getum
það ekki,“ svaraði tenórinn um hæl og
lesendur geta vafalítið ímyndað sér
hláturinn sem kom í kjölfarið.
fylgja þessu eftir ef maður ætlaði sér að
búa á Islandi.“
Grímudansleikurinn í London
Kristján snýr þó tafarlaust aftur og mun
eyða páskunum í faðmi fjölskyldunnar hér
á landi. 18. apríl flýgur fjölskyldan síðan
til London og þar verður tenórinn eftir til
að æfa fyrir Grímudansleikinn sem verður
frumsýndur í Covent Garden í maí. -Ég
bíð mjög spenntur eftir því en lýriskur/dr-
amatískur Verdi er mitt sérsvið."
Tónleikarnir á Akureyri eru ekki eina
viðfangsefnið sem Kristján mun glíma við
meðan hann dvelur á landinu að þessu sinni.
í dag skundar hann í hljóðver í því skyni
að hljóðrita nokkur lög með Karlakór
Reykjavíkur. „Ætli ég syngi ekki eitt til
tvö lög sjálfur auk þess sem fyrirhugað er
að ég syngi dúett með Kristni Sigmunds-
syni. Hann kemst reyndar ekki til landsins
núna þannig að hann verður sennilega að
syngja ofan á mig seinna."
m
Verður ógleymanleg
upplifun
Kristján kveðst verða á þjóðlegum nót-
um í hljóðverinu og nefnir lög á borð við
Sjá dagar koma og íslandslag: Heyrið
vella á heiðum hveri. „Heyrðu! Þetta eru
sömu lögin og ég á að syngja með þeim
á tónleikum eftir páska,“ grípur Diddú
frammí og hlær. „Það var skrýtið." Krist-
ján ætlar einnig að taka nokkur skandinav-
ísk lög upp á eigin spýtur en dúettinn með
Kristni er leyndarmál. „Þetta er þekktur
dúett sem er sunginn af tenórum og barí-
tonum um allan heim.
Þetta á að vera rúsínan
í pylsuendanum.
Tónleikamir norðan
heiða eru hins vegar
helsta ástæða komu
Kristjáns. „Ég er ekki í
vafa um að við munum
skemmta okkur en við erum einhuga um
að gera þetta ógleymanlegt að öllu leyti,
ekki satt Diddú?“ „Jú, ég get ekki ímyndað
mér annað en að þetta verði ógleymanleg
upplifun. Það er svo gaman að syngja fyr-
ir Akureyringa.“
Þvílíkar söngkonur
sem þú hefur
sungið með
Þetta verður alveg
ógleymanleg
upplifun
i