Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 55
Ljósmyndamara-
þon SHÍ 1995
UÓSMYNDAMARAÞON SHI
fér nú fram í þriðja sinn og hef-
ur fest sig í sessi sem árlegur
viðburður í Háskólalífinu. í fyrra
urðu þátttakendur nálægt tvö
hundruð talsins og var almenn
ánægja með keppnina.
Ljósmyndamaraþon er keppni
sem gengur út á hugvit fremur
en mikla tæknilega kunnáttu í
ljósmyndun. Keppendur fá að
morgni dags tólf verkefni og tólf
mynda filmu. Verkefnin eru á
ýmsa lund en eiga það sammerkt
að bjóða upp á marga möguleika
í útfærslu. Sá sem hefur flestar
góðar hugmyndir og útfærir þær
tæknilega skammlaust sigrar
keppnina og hlýtur glæsileg verð-
laun. í ár verður gerð sú breyting
á tilhögun keppninnar að kepp-
endur fá sex efni uppgefin í
bæklingi keppninnar til að létta
fólki róðurinn.
Styrktaraðilar Ljósmyndam-
araþons SHÍ eru: Ljósmyndavör-
ur, Búnaðarbankinn, Ferðaskrif-
stofa stúdenta og Morgunblaðið.
Keppnin er öllum opin og ekk-
ert þátttökugjald. Á meðal verð-
launa er 50.000 kr. ferðavinning-
ur frá Ferðaskrifstofu stúdenta
og glæsileg myndavél frá Ljós-
myndavörum hf. Skráning er á
skrifstofu stúdentaráðs.
Lj ósmyndasamkeppni
á vegum ÍTR
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
Reykjavíkur efnir til sam-
keppni á svart-hvítum ljós-
myndum og litmyndum gerð-
um af nemendum úr grunn-
skólum og félagsmiðstöðvum
Reykjavíkur (5.-10.bekk),
Svart á hvítu og Litaflipp ’95.
Viðurkenningar verða veittar
fyrir þrjár bestu myndirnar í
hvorum flokki og mun dóm-
nefnd sjá um að velja þær.
Viðfangsefni í báðum flokk-
um eru þijú. í flokki svart-
hvítra ljósmynda eru þau
portrait, mynd af manneskju
eða öðru sem sýnir persónu-
leika ekki síður en útlit, lands-
lag og frjálst. Sömu viðfangs-
efni eru í flokki litljósmynda
að því undanskildu að í stað
landslags kemur viðfangsefnið
litagleði.
Hver þátttakandi hefur leyfi
til að senda inn 1-3 myndir í
allt í hvora samkeppnina,
hvort sem er i einum flokki
eða öllum. Leyfilegt er að
senda þrjár myndir í einn
flokk eða dreifa þeim á alla
flokkana.
Myndirnar sem sendar
verða inn skulu vera af öllum
stærðum, óupplímdar, vand-
lega merktar eiganda sínum
og skóla og filmur af myndun-
um verða að vera tiltækar ef
myndirnar vinna til verðlauna.
Styrktaraðili fyrir Svart á
hvítu eru Beco og Ilford en
Hans Petersen fyrir Litaflipp
’95. Sýning verður á myndun-
um í Ráðhúsi Reykjavíkur dag-
ana 2.-5. maí nk. Myndirnar
þurfa að berast skrifstofu ÍTR
í síðasta lagi 18. apríl nk.
F.v. Kári Bjamason, handritavörður, Sveinbjörn Björnsson, há-
skólarektor, hjónin Jóhanna Jóhannesdóttir og Þór Jakobsson,
Jón Sveinbjörnsson, forseti guðfræðideildar og Einar Sigurðsson,
landsbókavörður.
Rit sr. Jakobs Jónssonar gefin
Landsbókasafni Islands
DR. ÞÓR Jakobsson, veðurfræðing-
ur, afhenti nýlega Háskóla íslands
bókagjöf til minningar um foreldra
sína, dr. Jakob Jónsson dr. theol.
og frú Þóru Einarsdóttur.
Um er að ræða nokkur veigamik-
il ritverk í Nýja testamentisfræðum
úr fórum sr. Jakobs en þau voru
sérgrein hans innan guðfræðinnar.
Ritin eru gefin j tilefni af opnun
Landsbókasafns Islands - Háskóla-
bókasafns í Þjóðarbókhlöðu og
verða_ þau hluti af safnkostinum
þar. Áður hafðí bókasafninu verið
afhent bréfa- og handritasafn sr.
Jakobs.
FRETTIR
Gildistími
hjálpartækja-
skírteina
lengdur
TRYGGINGARÁÐ hefur ákveðið
að hjálpartækjaskírteini til lang-
tímanota verði framvegis gefín út
til fimm ára í senn, í stað þriggja
ára áður. Ákvörðunin felur í sér
spamað og hagræði fýrir sjúklinga,
sem þarfnast einnota hjálpartækja
til langframa.
Tryggingastofnun ríkisins gefur
út hjálpartækjaskírteini fyrir þá
sem þurfa á einnota hjálpartækjum
að halda samkvæmt læknisvottorði.
Aðallega er um að ræða hjálpar-
tæki fyrir sykursjúka og stóma-
þega, svo sem einnota sprautur,
nálar, poka og fleira.
■ HÁSKÓLINN í Gautaborg
verður með námskynningu dagana
11.-12. apríl í hátíðarsal Háskóla
ísalnds, aðalbyggingu. Kynningin
verður frá kl. 9-11 og 12-17 báða
dagana og verða fulltrúar frá Há-
skólanum í Gautaborg til viðtals og
veita upplýsingar fyrir þá nemendur
sem hafa hug á námi við Háskólann
í Gautaborg.
Heiðursfélaffar
FÍLD
Á AÐALFUNDI Félags íslenskra
listdansara sem haldinn var í des-
ember sl. voru þær Sif Þórz og Sig-
ríður Ármann gerðar að heiðursfé-
lögum félagsins. FÍLD var stofnað
árið 1947 og voru Sif og Sigríður
meðal stofnenda félagsins. Með
þessu vill FÍLD þakka þeim fyrir
gott starf í þágu listdansins á Is-
landi. Á myndinni era Sigríður Ár-
mann t.v. og Sif Þórz.
Á MYNDINNI eru f.v. Kristín
Kristjánsdóttir nemi og Pamela
Thordarson hárgreiðslumeistari.
■ HÁR-GARÐUR hefur verið
fluttur í Hæðargarð 31, félags-
miðstöð aldraðra. Stofan er opin
öllum og er opið frá kl. 9-17 alla
virka daga nema miðvikudaga. Af-
mælistilboð og afsláttarkort eru í
gangi. Sérstök verðskrá fyrir 67
ára og eldri.
■ JÓNÍNA Sveinbjörnsdóttir, 7
ára, (mús) var valin Gæludýr
Oskudagsins 1995 og hlaut í verð-
laun 25.000 króna vöruúttekt í
Dýraríkinu við Grensásveg.
■ SÉRLEGA góð aðsókn var um
helgina á Opel kosningahátíðinni
hjá Bílheimum hf., fullt út úr dyr-
um báða dagana og komust færri
að en vildu í reynsluakstur. Sýndar
vora allar gerðir Opel og var þetta
fjölbreyttasta sýning Bílheima til
þessa. Mikil og góð þátttaka varð
í getraun þeirri er boðið var upp á
um helgina hjá Bílheimum og bár-
ust á annað þúsund svör. Haft verð-
ur samband við vinningshafa í kosn-
ingagetrauninni eftir kosningar en
eftirtaldir hlutu vinning í barnaget-
rauninni: Tinna Hallgrímsdóttir,
Kjarrhólma 10, Erna Þórarins-
dóttir Sjávargötu 12, Arnar Mar-
vin, Kirkjuvegi 3a, Pálmi Már og
Andri Már Viðarási 101, Sævar
Óskarsson, Ljósabergi 10, Sigurð-
ur Þorsteinsson, Blikahólum 4,
Gunnhildur Rós, Efstalundi 2,
Birgir Arnar, Engjaseli og Ellen
Mjöll, Fróðengi 16.
Kökubasar
Fíladelfíu
KÖKUBASAR í Fíladelfíukirkjunni,
Hátúni 2, verður laugardaginn 8.
apríl. Basarinn hefst kl. 14.
Á sama tíma verður selt kaffi í
húsinu gegn vægu gjaldi. Allur
ágóði rennur til unglingastarfs í
kirkjunni.
■ FÉLAGSSKAPUR spænsku-
mælandi fólks á íslandi og þeirra
félagar heldur páskagleði í Deja-
Vu, Bankastræti, föstudaginn 7.
apríl kl. 22-3. Allir sem áhuga
hafa á að dansa við góða tónlist í
góðum félagsskap eru velkomnir.
Ath. takmarkaður fjöldi gesta.
^ Fréttir
Ef þú smellir á
fréttir
færðu allar
innlendar fréttir
sem birtast í
Morgunblaðinu
í dag.
Prófaðu!
http://www.strengur.is
fcomið út eftir
gagngerar
breytingar.
Œœst í
bannyrða- og
bób.abúðum.
arsími i
ifsknjt
cr 553'1335-
ÍSLENSKI LÍFEYRISSJÓÐURINN
Hæsta raunávöxtun
séreignasjóða
verðbréfafyrirtækja
1991,1992, 1993 og 1994
I
, LANDSBRÉFHF.
Löggilt veróbréf afyrirtæki.
Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK.SÍMI 588 9200, B R É F A S í M I 5 8 8 8 5 9 8