Morgunblaðið - 07.04.1995, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 57
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Karlalistinn berst fyrir
réttindum karla
Af tilgangi og tilgangsleysi kosninga
Frá Ágústi Dalkvist:
NU fyrir nokkru rann út frestur til
að sækja um nýjan listabókstaf fyrir
alþingiskosningamar í ár, og einnig
er orðið of seint að skila inn stuðn-
ingslista við nýja flokka, en sá tími
sem gefínn var nægði okkur ekki til
að koma fram með „Karlalistann".
Karlalistinn er nýtt afl sem, eins
og nafnið bendir til, berst fyrir rétt-
indum karlmanna, sem hafa verið
fótum troðin undanfarin ár og jafnvel
áratugi, af konum sem sífellt ráðast
lengra og lengra inn á svið karla.
Þrátt fyrir að nú sé of seint að
bjóða fram þetta nýja afl, viljum við
samt fá að kynna fyrir ykkur stefnu
flokksins, svo að nayðsynleg hugar-
farsbreyting geti orðið í þjóðfélaginu
fyrir kosningarnar eftir fjögur ár, en
þá munum við bjóða fram, og reyna
Vinstra vori
fylgir
vinstra haust
Frá Amal Rún Qase:
ÞAÐ GETUR verið gaman að fylgj-
ast með kappræðum stjórnmálafor-
ingjanna og sjá hvemig þeir standa
sig. Góðar gamansögur sýnast oft
vera meira virði en málefnaleg um-
ræða. En kosningar til Alþingis eru
ekkert gamanmál. Við emm loksins
að sjá fram á batnandi ástand eftir
langt erfiðleikatímabil. Mér finnst
það mjög ábyrgðarlaust ef við kjós-
um yfir okkur vinstri stjórn. Það eru
vinstri stjórnirnar sem ráðleggja okk-
ur að borða útsæðið í stað þess að
bíða uppskerunnar. Ef við fáum
vinstra vor þá verður lítil uppskera í
haust.
AMALRÚNQASE.
að endurheimta rétt okkar.
Við viljum útrýma atvinnuleysi,
leikskólavandanum, og lækka kostn-
aðinn við menntakerfið með því einu
að fá kvenfólkið aftur inn á heimilin.
Til að hvetja þær til þess munum við
lækka verulega við þær launin en
hækka þau þess í stað hjá karlmönn-
unum.
Við þetta endurheimtir karlkynið
aftur sína fyrri stöðu og kemst þá
væntanlega úr þeirri tilfínningalegu
kreppu sem það hefur verið í undan-
farin misseri, en hana má rekja beint
tii yfírgangs kvenréttinda-kvenna.
Er við höfum lækkað laun kvenna,
munu þær ekki geta séð fyrir sér fyár-
hagslega, og þar sem þær eru fleiri
en karlmenn í landinu skapar það
viss vandræði. Við munum mæta því
með því að leyfa ríkari mönnum lands-
ins að taka sér fleiri en eina konu,
svo þær eigi allar möguleika á að ná
sér í fyrirvinnu af hreinræktuðum
íslenskum stofni.
Til að kæfa kvenréttindabaráttuna
viljum við afnema kosningarétt
kvenna, en samt sem áður viljum við
ekki banna Kvennalistann. í honum
mega vera fegurstu fljóð landsins,
sem hafa vit á að hafa hljóð meðan
karlmennimir stóma landinu. Þetta
gerum við vegna þess að það er ódýr-
ara að kjósa eitthvað fallegt inn í
þingsalina, en að kaupa málverk eða
aðrar skreytingar.
Við viljum leyfa vín- og bjórsölu í
matvörubúðum, en með því teljum við
að við náum í helling af atkvæðum.
Eins og landsmenn vita hafa hinir
flokkarnir einungis hugsað um að
pota sér og sínum í launahæstu og
valdamestu stöðurnar, en gleyma
okkur. Þessu viljum við breyta. Við
munum koma okkur og okkar í þess-
ar stöður, svo vertu einn af okkur.
Fyrir hönd stjómar Karlalistans.
ÁGÚST DALKVIST,
Höfðabraut 14, Akranesi.
Frá Sigurði Harðarsyni:
SKILGREINING á manneskju er
baráttan milli einstaklinga og hjarð-
arinnar. Alla sögu má skoða í ljósi
þessarar baráttu sem er ekki nærri
lokið og mun líklega aldrei ljúka.
Allt sem við lítum á sem framfar-
ir, hvort sem það er á sviði vísinda,
lista eða heimspeki, á rætur sínar
að rekja til hugljómunar í stökum
mannsheila. Einstaklingurinn er
uppspretta sköpunarinnar í sög-
unni.
Ekkert markvert hefur nokkru
sinni komið til af störfum nefndar.
Ekki heldur hefur „hinn sameigin-
legi vilji“, „vilji þjóðarinnar“ eða
„meðvitund fjöldans" nokkru sinni
fundið upp svo mikið sem tann-
stöngul. Allt sem við kennum okkur
við sem manneskjur höfum við
fengið frá einstaklingum.
Hluti af lífi hvers einstaklings
er sjálfsstjórn hans, þær ákvarðanir
sem hann er stöðugt að taka og
móta líf hans jafnóðum og þær eru
teknar. Þetta eru stjórnmál hverrar
persónur og það váíd sem hún hef-
ur byggist á þeirri stjórn sem hún
hefur á sínum málum. Allt raun-
verulegt vald í heiminum felst í ein-
staklingnum og enginn hefur rétt
til að taka það vald af honum.
Þetta er þverbrotið á hveijum
einasta degi og er raunar svo fastur
hluti af daglega lífinu að litið er á
þetta sem eðlilegt. Stjómmál ein-
staklinganna sem saman mynda
samfélagið eru ekki í þeirra eigin
höndum. Það er ákveðið „stjórn-
málafólk“ sem telur sig geta mynd-
að þau tengsl og hafa þá hæfileika
sem þarf til að geta sagt til um
hvað fari best í ákvarðanatöku sem
sé öllum til góðs.
Þeir sem fá alltaf það sem þeim
líkar útúr kosningum eru þeir sém
hafa komið sér fyrir innan þess
fasta stjórnmálakerfís, sem búið er
almennt við í „lýðræðisríkjum“. Því
að hjá þeim breytist ekkert, sama
hver niðurstaðan verður. Kosninga-
kerfið er hannað til að hinn al-
menni kjósandi trúi því að atkvæði
hans skipti einhveiju máli en í raun
er hver flokkur enn ein skóflan úr
sama haugnum.
Skopteiknari nokkur sagði að
heimspekilegar vangaveltur væru
eins og að leita að svörtum ketti í
myrkvuðu herbergi og trúarbrögð
yrðu til þegar fólk héldi sig hafa
fundið köttinn. Það fólk sem gefur
ákveðnum stjómmálaflokki atkvæði
sitt er á sama hátt búið að fínna
þennan svarta kött, skrifa ég vegna
þess að ef kosningar breyttu ein-
hveiju raunverulegu væru þær
ólöglegar, því að flokkarnir sem
valið stendur á milli eru bara fram-
hlið þess bákns sem enginn ræður
við, sama hversu mikill vilji í átt
til breytinga væri. Sama hveijum
greidd eru flést atkvæði, þá er það
alltaf ríkisstjórnin sem vinnur.
Kjósandinn getur ekki unnið neinn
sigur, því að með því að kjósa hef-
ur hann gefið frá sér vald til ákvarð-
anatöku. Flokkamir útrýma kjós-
endum sem einstaklingum með því
að afnema þeirra persónulegu
stjórnmál og gera vilja þeirra að
vilja hjarðarinnar.
Rétturinn til að stofna stjórn-
málaflokka og taka þátt í kosning-
um telst til mannréttinda. Eins og
frelsi, er kosningarétturinn mjög í
hávegum hafður sem sjálfsögð
mannréttindi. Frelsið, í þessu til-
viki, felst í því að mega gefa öðrum
atkvæði sitt, þetta frelsi er rétturinn
til að gefa frá sér sitt sanna frelsi
og fylgja hjörðinni.
Sá sem skilar auðu kýs sjálfan
sig.
SIGURÐUR HARÐARSON,
Holti 1, Selfossi.
I ÍSLENSKI LÍFEYRISSJÓÐURINn\
I Fyrirhyggja | til framtíðar . LANDSBRÉF HF. Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
SUÐURLANDSBRAUT 24. 1 08 REYKJAVÍK.SÍIVII 588 92 00, BRÉFASIMI 588 8598
Við erum miðsvæðis
með sveigjanlegan
opnunartíma.
í dag opnum við nýja og glæsilega bifreiðaskoðun
við Sundahöfn. Sparaðu þér tíma og fyrirhöfn.
Pantaðu tíma sem hentar þér í síma 588-6660
ATHUGUNhf
SKOÐUNARST OFA
Klettagöröum 11 • 104 Reykjavík
Sími 588 6660 • Fax 588 6663