Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 58
58 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
I DAG
BRAUÐ-
SNITTUR
Snittur henta vel í fermingarveisluna og í kosn-
ingavökuna segir Kristín Gestsdóttir sem gefur
okkur uppskrift að fljótgerðum snittum sem allar
eru með ferskum ávöxtum og auk þess allar lausar
við mæjonsósu, nema ein, en á henni er remúlaði.
FALLEGAR snittur
gleðja augað og bragð-
laukana líka í flestum
tilfellum. Fyrir nokkr-
um árum bjó ég til snitt-
ur fyrir veislu, en þar
var kona vön snittugerð
að hjálpa mér. Hún
sagði: „Settu bara nógu
mikið af mæjonsósu á
snittumar, þá tollir allt
svo vel á þeim.“ Svo
mörg voru þau orð. Ég
var svolítið hissa á
þessu enda er ég mjög
mikið á móti öllu fitu-
gumsi. En fallegar og
góðar snittur bý ég til,
snittur með lítilli eða
engri mæjonsósu.
Nú fást allar tegund-
ir af fallegum og girni-
legum ferskum ávöxt-
um og það skulum við
nýta okkur. Nú er mikið
um fermingarveislur en
snittur henta mjög vel
á kaffiborðið með tert-
unum. Hér er uppskift
af fjórum tegundum af
snittum, sem allar er
fljótlegt að búa til. Þær
eru allar kringlóttar, en
það tekur sig vel út á
fati. Þegar mismun-
anadi snittum er raðað
á fat, eru þær settar í
röndum á fatið, ein teg-
und í hverri rönd.
Rækjusnittur með
ananas, 20 stk.
20 franskbrauðsneiðar
150 g rjómaostur án bragðefna
1 ferskur ananas
500 g rækjur
fersk steinselja
1. Þíðið rækjurnar í kæliskáp.
2. Skerið utan af ananasinum,
skerið hann síðan í 20 sneiðar, tak-
ið stilkinn innan úr sneiðunum.
3. Stingið kringlóttar sneiðar úr
brauðsneiðunum með glasi, jafn-
stóru og ananassneiðarnar.
4. Velgið rjómaostinn örlítið t.d.
í örbylgjuofni, smyijið honum síðan
á brauðsnittumar. Leggið ananas-
sneið ofan á hveija snittu.
5. Setjið hrúgu af rækjum ofan
á gatið á ananassneiðinni.
6. Setjið smásteinseljugrein til
hliðar á snittuna.
Laxasnittur með
melónum, 20 stk.
20 franskbrauósneiðar
smjör til að smyrja snitturnar með
40 þunnar aflangar, frekar
mjóar laxasneiðar
Vt gul melóna
grein ferskt dill
1. Stingið kringlóttar sneiðar úr
brauðsneiðunum með glasi.
Smyrjið snittumar með smjöri.
2. Búið til 60 kúlur úr melón-
unni með þar til gerðri skeið, nota
má kringlótta teskeið af mæliskeið-
um.
3. Setjið 3 melónukúlur á miðj-
una á hverri snittu. Setjið tvær
laxasneiðamar utan með þannig
að önnur brún þeirra liggi upp að
melónukúlunum.
4. Setjið smádillgrein á miðju
hverrar snittu.
Roast beef-snittur með
stjörnualdini, 20 stk.
20 þunnar rúgbrauðssneiðar
1 lítil dós remúlaðisósa
1 stjörnualdin
40 þunnar aflangar sneiðar
roast beef
20 bló vínber
smóbútur mjór blaðlaukur,
neðri partur
1. Stingið kringlóttar sneiðar úr
brauðsneiðunum með glasi.
Smyrjið góðu lagi af remúlaðisósu
ofan á snittumar.
3. Skerið stjörnualdinið í 20 ör-
þunnar sneiðar. Raðið einni sneið
af því á hveija rúgbrauðssnittu.
4. Setjið tvær sneiðar af roast
beef í hring yst á brauðsnittumar.
Setjið 1 vínber á miðju hverrar
snittu.
5. Skerið blaðlaukinn í örþunnar
sneiðar, takið i sundur í hringi og
raðið 2-3 hringum á bverja brauð-
sneið.
Skinkusnittur með mangó
og kíví, 20 stk.
20 heilhveitibrauðsneiðar
smjör til að smyrja snitturnar með
_________20 skinkusneiðar
1 frekar lítið mangó
3 meðalþroskuð kíví
1. Stingið kringlóttar sneiðar úr
brauðsneiðunum með glasi.
Smyijið snitturnar með smjöri.
2. Afhýðið mangóið og kívíin,
skerið hvort tveggja í 20 rif.
3. Setjið eitt mangórif og eitt
kívírif á hveija brauðsnittu og látið
annan endann ná út á brún.
4. Leggið skinkusneiðamar sam-
an langsum og setjið utan með
ávöxtunum, en látið annan enda
ávaxtanna standa út á brún.
SKAK
Um.sjón Marjjíir
l'ctursson
Á STÓRA opna mótinu í
Capelle la Grande í Frakk-
landi í mars kom þessi staða
upp í viðureign þeirra K.
Skalli (2.250) frá Ma-
rokkó, sem hafði hvítt •
og átti leik, og heima-
mannsins J. Warkent- ’
in. _________
Stöðumynd s
Skalli ætiaði að
fórna bæði hrók og
drottningu. 20. Hxe7!! •
— Ra6 (Afþakkar, en
það sem hvítur hafði í s
huga var 20. — Bxe7 ,
21. Dxf7+! - Kxf7 22.
Hf5++ tvískák og
mát!) 21. Hxf7! - Hel+
22. Kh2 - Kxf7 23. Hd6+
og svartur gafst upp.
Um helgina: Keppni í
áskorenda- og opnum flokki
á Skákþingi íslands hefst á
morgun, laugardag, kl. 14.
Tíu keppendur verða í
áskorendaflokknum. Þegar
þetta er ritað er ljóst hverj-
ir áttajieirra verða: Magnús
Örn Ulfarsson, Ólafur B.
Þórsson, Júlíus Friðjónsson,
Davíð Kjartansson, Páll
Agnar Þórarinsson, Arnar
E. Gunnarsson, Arnar Þor-
steinsson og Kristján Eð-
varðsson. Öruggt er að
þama verður hart barist um
landsliðssætin.
Pennavinir
TUTTUGU og fjögurra ára
Ghanastúlka með áhuga á
matseld, ferðalögum, póst-
kortum og söng:
Na.ua. K. Mensa,
P.O. Box K-45,
Cape Coast,
Ghana.
TUTTUGU og tveggja ára
Ghanastúlka með áhuga á
ferðalögum, póstkortum og
matseld:
Rita Amissah,
Box 182,
Cape Coast,
Ghana.
TUTTUGU og þriggja ára
Ghanapiltur með áhuga á
íþróttum, ferðalögum,
bréfaskriftum o.fl.:
Lee J. Audu,
P.O. Box 529,
Sarbah Road,
Cape Coast,
Ghana.
TUTTUGU og tveggja ára
Ghanastúlka með áhuga á
tónlist, knattspymu, horna-
bolta og ferðalögum:
Helena Nancy
Williams,
P.O. Box 1207,
Oguaa city,
Oguaa Land,
Ghana.
TUTTUGU og 6 ára Ghana-
stúlka með áhuga á tónlist,
bókmenntum, dansi og ljós-
myndun:
Faustina Agyakwa,
Box 1290,
Cape Coast,
Ghana.
TUTTUGU og tveggja ára
Ghanastúlka með áhuga á
ferðalögum, tónlist og kvik-
myndum:
Juliana Gardiner,
c/o P.O. Box K-45,
Cape Coast,
Ghana.
TUTTUGU og fjögurra ára
Ghanastúlka með áhuga á
bréfaskriftum, ferðalögum ■
o.fl.:
Sheilla Pederson,
P.O. Box 982,
Oguaa City,
Ghana.
FJÓRTÁN ára Ghanapiltur
með áhuga á tónlist, íþrótt-
um, biblíunámi o.fl.:
Prince Appiah Kubi,
P.O. Box 64,
Kade,
Eastern Region,
Ghana.
LEIÐRÉTT
Rangi nafn
í myndatexta í Mbl. 5. apríl
var farið rangt með nafn
Steinunnar Ingimundar-
dóttur. Beðist er velvirðing-
ar á þessum mistökum.
í myndatexta á síðu 73 í
gær, í grein um vini í rúm
60 ár, gleymdist nafn Jóns
Sveinssonar, sem er þriðji
frá vinstri. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistök-
um.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Léleg
dómgæsla
MIG langar til að koma á
framfæri furðu minni á
dómgæsiu í úrslitakeppni
karla í körfubolta og gerði
nú fjórði leikur á milli
Grindavíkur og Njarðvík-
ur sl. mánudag aíveg út-
slagið. Þar gerðu dómarar
sig seka um dóma sem
eru langt frá því að geta
talist eðlilegir og að mínu
mati dómurum til hábor-
innar skammar. Ég tel að
í svona jöfnum leik eins
og var í þessu tilfelli geti
dómarar gert út um leik-
inn sem þeir og gerðu í
þessum leik og jafnvel út
um úrslitakeppnina í
heild. Mér finnst tími til
kominn að dómarar og
aðrir sem að þessu standa
setjist niður og hugsi sinn
gang, það er allt of mikið
í húfi fyrir körfuboltaliðin
að svona lagað sé látið
viðgangast.
Vilborg
Hannesdóttir,
Grindavík.
íþróttataska
fannst
ÍÞRÓTTATASKA með
fötum og fleiru fannst í
Byggðunum í Garðabæ
um síðustu helgi. Uppl.
eru veittar í síma
656093.
Armband tapaðist
ARMBAND tapaðist á
Hótel íslandi sl. laugar-
dagskvöld. Armbandið
er þrískipt með perlum
og gyllingu og krækjan
er einskonar fíðrildi.
Armbandið hefur mikið
tilfínningaiegt gildi fyrir
eiganda og er finnandi
vinsamlegast beðinn um
að hafa samband í síma
53722 eða 676177.
Kápa tapaðist
UÓSDRÖPPUÐ stutt
kápa tapaðist á árshátíð
MS 16. mars sl. á Hótel
íslandi. Finnandi er vin-
samlegast beðin um að
hafa samband í síma
812983.
Karlmannsúr
fannst
KARLMANN SÚR
fannst sl. miðvikudag á
Arnarbakka. Upplýs-
ingar í síma 74839 frá
kl. 12-15 eða eftir kl.
19.
Farsi
«A1cr Cckor ekkC he/cLttr, en i//'%
t/erbu/?t. cá þródst sem. CejjyunoL."
Víkveiji skrifar...
THYGLISVERÐAR breyting-
ar hafa orðið á tímaritum
margra verkalýðsfélaga og sam-
bærilegra hagsmunahópa á síðustu
árum. Störfum hlaðnir stjórnar-
menn eða ritnefndarfulltrúar höfðu
þá kvöð árum saman að koma út
blaði, en á mörgum bæjum hefur
þetta breyst í seinni tíð og blöðin
um leið.
Mörg þessara félaga og sam-
banda hafa ráðið til sín fagfólk, sem
skrifar og vinnur blaðið. Ónnur fé-
lög hafa samið við sjálfstætt starf-
andi blaðamenn um útgáfustarf-
semina. Mikinn metnað má sjá í
mörgum þessara blaða og ekkert
er til sparað til að gera þau áhuga-
verð fyrir lesandann.
Reyndar er fjöldi þeirra rita sem
gefin eru út af hinum ýmsu hags-
munahópum með ólíkindum mikill.
Inn á ritstjórn Morgunblaðsins berst
mikið af þessum ritum og sannast
sagna eru þau ærið misjöfn að
gæðum. Spyija mætti um tilgang
sumra þeirra og vandséð séð er
hvernig sum þeirra geta þrifíst, en
það er önnur saga.
NÝLEGA skoðaði skrifari tvö
þessara blaða, VR-blaðið,
sem Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur gefur út, og Vinnuna, tímarit
Alþýðusambands Íslands.
Eðlilega er á forsíðu blaðs VR
stór fyrirsögn um nýgerða kjara-
samninga, þar sem segir að raun-
hækkun lægstu launa sé mest.
Einnig er vísað í helstu atriði samn-
inganna í forsíðufyrirsögn.
Hinar tvær fyrirsagnir forsíðunn-
ar eru hins vegar langt frá kjara-
málum. Önnur er um blómafijókorn
og er tilvísun í grein næringarfræð-
ings inni í blaðinu. Aðalmál á for-
síðu VR-blaðsins er hins vegar um
merkisatburð í Miðhúsaskógi er
barn fæddist í húsi númer 12, eins
og það er orðað á forsíðunni. Með
þessari fyrirsögn er mynd af stolt-
um foreldrum með nýfætt barn sitt,
sem fæddist í orlofshúsi VR.
Á baksíðu VR-blaðsins er haldið
áfram að blanda saman hörðum
málum og mjúkum. Þar eru fyrir-
sagnirnar um ráðstefna karlmanna
í Stokkhólmi, heilsueflingu í fyrir-
tækjum og spurt er hvað lífeyris-
sjóðurinn geri fýrir þig. Fyrir
nokkrum árum hefðu svona útsíður
tæpast verið hugsanlegar í blaði
stéttarfélags, þar sem gjarnan var
að fínna áróður og prósentufréttir.
xxx
FORSÍÐA Vinnunnar, tímarits
ASÍ, hefði einhvern tímann
verið óhugsandi. Þar er að finna
stóra mynd af forstjóra eins stærsta
fyrirtækis á íslandi, manns sem
verið hefur í framvarðasveit vinnu-
veitenda hér á landi. Það er Brynj-
ólfur Bjarnason í Granda sem prýð-
ir forsíðuna og á þessari skemmti-
legu mynd gæðir hann sér á innbök-
uðum karfa Wellington með „rauð-
vínspúðursykurvinaigre".
Á forsíðunni er vísað á úttekt
um hvers vegna laun á íslandi eru
lág þrátt fyrir háar þjóðartekjur.
Þar er m.a. að finna viðtal við
Brynjólf undir fyrirsögninni „Verð-
mætakóngar betri en aflakóngar".
Víkveiji þarf ekki að taka fram
hversu mjög honum finnst blöðin
áhugaverðari með framsetningu og
viðfangsefnum eins og hér er lýst.