Morgunblaðið - 07.04.1995, Page 68
MORGUNBLADW, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVLK, SlMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUaCENTRUMAS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Debut hefur selst í 3 milljónum eintaka
Björk hefur
lokið gerð
nýrrar
breiðskífu
BJÖRK Guðmundsdóttir hefur
lokið við næstu breiðskífu sína
sem koma á út í sumar. Fyrsta
smáskífa af plötunni kemur út
á næstu dögum og segja tals-
menn Bjarkar í Lundúnum að
eftirvænting sé mikil eftir plöt-
unni viða um heim.
Björk Guðmundsdóttir lauk í
vikubyijun við væntanlega
breiðskífu sína, sem koma á út
5. júní. Hún fylgir í kjölfar plöt-
unnar Debut, sem hefur nú selst
í nærfellt þremur milljónum ein-
taka. Fyrsta smáskifan af plöt-
unni, með laginu Army of Me,
verður gefin út hér á landi 24.
apríl nk., en ytra kemur lagið
útl.maí.
Vpptökur á Rarbados
Plötunni hefur enn ekki verið
gefið nafn, en Björk hefur unn-
ið að henni með hléum síðan
snemma á síðasta ári og meðal
annars tekið upp á Barbados.
Fjölmargir komu að gerð plöt-
unnar, þar á meðal Nellie Hoop-
er, sem vann með henni Debut.
Ekki hefur Björk enn tekið ák-
vörðun um tónleikahald í kjölfar
útkomu plötunnar, en heimildir
í Bretlandi herma að liklega
muni hún leggja meiri áherslu
á Bandaríkin en hún gerði vegna
síðustu plötu sinnar og hyggst
útgáfa hennar þar í landi leggja
mikla vinnu og fé í kynningu.
Reykjalundur vill hætta
rekstri heilsugæslu
STJÓRN Reykjalundar hefur óskað
eftir því að losna undan samningi
sínum við heilbrigðisráðuneytið um
rekstur heilsugæslustöðvar í Mos-
fellsbæ. Stjórnin hefur einnig óskað
eftir að verða leyst undan samningi
um rekstur Hleinar, en þar dvelja 7
langlegusjúklingar sem þurfa á mik-
illi hjúkrunaraðstoð að halda allan
sólarhringinn. Astæðan er sú að
stjórnin hefur ekki fengið fjárveit-
ingar sem duga til reksturs þessara
stofnana.
Um 40 milljóna króna tap varð á
rekstri Reykjalundar á síðasta ári.
Stjórnendur stofnunarinnar hafa
ákveðið að grípa til margháttaðra
spamaðaraðgerða til að bregðast við
þessu. Ákveðið hefur verið að ráða
ekki afleysingafólk í sumar og ein-
ungis taka við fjórum hjartasjúkling-
um á viku, en fram að þessu hefur
hún tekið við fimm.
Ekkí tekið við erfiðum
sjúklingnm
„í þeim sparnaðaraðgerðum sem
áformað er að grípa til í sumar er
Heilbrigðisráðu-
neytið sakað
um tómlæti
gert ráð fyrir að í 6-8 vikur í sumar
verði einungis tekið inn fólk sem
getur séð að mestu leyti um sig
sjálft, þurfi lágmarks hjúkrun, þurfi
lágmarks endurliæfingu og komi
hingað í eins konar hvíld frekar en
raunverulega endurhæfingu. Þetta
eigum við starfsfólk, sem viljum
vinna faglega, mjög erfitt með að
sætta okkur við. Þetta þýðir að
stofnunina setur mjög mikið niður
faglega," sagði Magnús Ólafsson,
læknir á Reykjalundi.
Magnús B. Einarson, læknir á
Reykjalundi, sagði að engin stofnun
í daggjaldakerfinu hefði mátt sæta
þvíiíkum niðurskurði tekna og
Reykjalundur. Frá árinu 1990 hefði
daggjald Reykjalundar hækkað um
tæp 15%. Á sama tíma hefði dag-
gjald DAS í Reykjavík hækkað um
37%, daggjald Elliheimilisins Grund-
ar um 52% og hjúkrunarheimila
sveitarfélaganna um 44-46%.
Magnús sagði að stjómendur
Reykjalundar hefðu ítrekað óskað
eftir því við heilbrigðisráðuneytið að
tekið yrði á fjárhagsvanda stofnun-
arinnar. Þeim óskum hefði ekki ver-
ið sinnt. Hann sagðist ekki vita hvers
vegna stofnunin hefði mátt þola
þetta tómlæti af hálfu heilbrigðis-
ráðuneytisins. Sá grunur læddist þó
af mönnum að ástæðuna mætti rekja
til þess að stjómendur Reykjalundar
hefðu hafnað kröfu ráðuneytisins
um að Reykjalundur yrði settur inn
á föst fjárlög. Magnús benti á að
daggjald Reykjalundar hefði verið
lækkað um 8% í árslok 1991
skömmu eftir að stjórn Reykjalundar
hefði hafnað tillögu um að stofnunin
færi inn á föst fjárlög. Hann sagði
að stjóm Reykjalundar vildi vera
áfram í daggjaldakerfinu því það
tryggði stofnuninni visst sjálfstæði.
Magnús sagði að fjárhagsvandi
Reykjalundar hefði leitt til þess að
þróunarstarf á stofnuninni hefði ver-
ið meira og minna lamað í flögur ár.
‘ Diddú og
Krislján
saman á
Akureyri
TVEIR af ástsælustu óperu-
söngvumm landsins, Sigrún
Hjálmtýsdóttir og Kristján
Jóhannsson, munu syngja í
fyrsta sinn saman á tónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands í næstu viku.
Gerum þetta
ógleymanlegt
Mikil spenna svífur yfir
vötnum norðan heiða og nán-
ast er uppselt á tónleikana
enda hefur Kristján ekki
sungið á Akureyri í átta ár.
„Ég er ekki í vafa um að við
munum skemmta okkur en
við emm einhuga um að
gera þetta ógleymanlegt,“
segir tenórinn og Diddú tek-
* ur í sama streng: „Ég get
ekki ímyndað mér annað en
að þetta verði ógleymanleg
upplifun. Það er svo gaman
að syngja fyrir Akureyr-
inga.“
■ Verðum ferlega
sæt/24
Morgunblaðið/Kristinn
Höfðabakka-
brú nyrðri
í smíðum
FRAMKVÆMDIR við bygg-
ingu mislægra gatnamóta og
brúar við Höfðabakka-Vestur-
landsveg eru nú í fullum gangi
og ganga eftir áætlunum,
samkvæmt upplýsingum
Helga Hallgrímssonar vega-
málastjóra. Stefnt er að því
að opnað verði fyrir umferð
um gatnamótin í haust. M.a.
verður byggð brú fyrir um-
ferð milli Arbæjar og Grafar-
vogs og af Vesturlandsvegi.
Þrír verktakar annast fram-
kvæmdimar og er kostnaður
við brúna og gatnamótin áætl-
aður um 550 milljónir kr.
Eigandi Partaportsins í Súðarvogi slapp naumlega úr eldsvoða
„Þá bara
forðaði ég* mér“
TRAUSTI Gunnarsson vélstjóri og
eigandi Partaportsins var að ryð-
bæta bíl þegar eldur blossaði upp á
verkstæði hans í Súðarvogi 6 í
gær. Trausti sneri baki í millivegg
í húsinu og telur líklegt að eldurinn
hafí komið þar upp. „Strákurinn
sem var með mér sagði: ,Ég bara
sá þig þarna í ljósum logum’," sagði
Trausti þegar hann Iýsti reynslu
þeirra félaga í viðtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. „Ég fann hita á
hnakkanum, en er ekkert brunninn.
Ég ætlaði að hlaupa að slökkvitæki
sem var á veggnum, en sá þá að
kolsvartur reykurinn fór fram loftið
og niður með veggnum og hurð-
inni. Mökkurinn var svo mikill að
ég sá ekki orðið hurðina. Þá bara
forðaði ég mér. Þetta gerðist svo
hratt,“ sagði Trausti.
Reykinn lagði yfir borgina
Slökkviliðinu barst tilkynning um
mikinn reyk frá húsinu í Súðarvogi
klukkan 17.20. í kjölfarið fylgdi
flöldi hringinga fólks sem tilkynnti
um þykkan reyk sem lagði yfír aust-
urborgina.
Slökkvilið sendi mikið lið á stað-
inn og þegar þangað kom var norð-
urhluti hússins, sem er gamalt timb-
urhús, alelda. Trausti og félagi hans
höfðu þá náð að loka dyrum, en
gastæki voru innandyra. Slökkvi-
liðsmenn náðu að færa gastækin
Morgunblaðið/Júlíus
út og kæla þau, en fóru ekki inn í
húsið til slökkvistarfa vegna
sprengihættu og útleiðslu, en raf-
magn var á húsinu. Vatn var leitt
að brunastaðnum úr brunahönum í
hverfinu og voru lengstu slöngurnar
um 300 metrar. Félagamir af verk-
stæðinu voru fluttir á slysadeild og
fengu að fara heim að lokinni skoð-
un.
Slökkvistarfinu lauk upp úr klukk-
an 19 og var höfð vakt á staðnum
til kl. 21. Húsið er talið ónýtt. Elds-
upptök em ókunn. Trausti var með
þrjá bíla í húsinu og félagi hans átti
einnig bíl þama inni. Að sögn
Trausta er hann tryggður fyrir
skemmdum á bílum í viðgerð og
hluta verkfæra. Mikill lager af bíla-
pörtum var hins vegar lítið tryggður.