Morgunblaðið - 11.04.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 13
Nýjung hjá slökkviliðinu á Akureyri
Morgunblaðið/Rúnar Þór
GÍSLI Kristinn Lórenzson varaslökkviliðssljóri við tölvuskjáinn.
Tölva tengd
við neyðar-
símann
SLÖKKVILIÐIÐ á Akureyri hef-
ur tekið í notkun tölvu sem tengd
er við neyðarsíma slökkviliðsins.
Þegar hringt er í neyðarsímann
kemur heimilisfang og símanúm-
er þess sem hringir strax upp á
skjáinn.
Tómas Búi Böðvarsson
slökkviliðsstjóri sagði að fyrst
og fremst myndi þetta flýta fyrir
og koma í veg fyrir mistök og
gabb. „Fólk er oft æst þegar það
hringir í neyðarsímann til að til-
kynna um eld og þá er möguleiki
á að skilaboðin komist ekki skil-
merkilega til okkar, við teljum
að öryggið aukist mjög með þess-
ari tengingu," sagði slökkviliðs-
sljóri.
Rennibrautin í Sundlaug Akureyrar
Börn gera sér
að leik að stífla
brautina
RENNIBRAUTIN í Sundlaug Ak-
ureyrar hefur mikið aðdráttarafl,
einkum eru það börnin sem áfjáð
eru í að bruna niður brautina. Nokk-
ur brögð hafa verið að því að tiltek-
inn hópur barna geri sér að leik að
stoppa í miðri brautinni og á því
fékk Jana Rut Friðriksdóttir heldur
betur að kenna síðdegis á sunnu-
daginn þegar hún skall á barni sem
stoppað hafði í brautinni.
Sigurður Guðmundsson, for-
stöðumaður Sundlaugar Akureyrar,
sagði að því miður væru nokkur
brögð að því að ákveðinn hópur
barna færi ekki eftir þeim reglum
sem settar væru. Þeim börnum sem
uppvís yrðu að því að bijóta regl-
urnar væri umsvifalaust vísað upp
úr lauginni og þeim meinaður að-
gangur að henni um langan tíma.
Þá væri hringt heim í foreldra þeirra
barna sem brytu reglurnar, t.d.
þeirra sem stífluðu rennibrautina.
- Gæslan aukin í sumar
Umferðarljós eru á brautinni og
má enginn leggja af stað fyrr en
græna ljósið hefur kviknað. Sigurð-
ur sagði tímann þannig stilltan að
þeir sem væru að renna sér niður
ættu að vera komnir niður í miðja
braut þegar næsti leggur af stað.
í sumar verður gæslan aukin til
muna, en starfsmönnum sundlaug-
arinnar bætist liðsauki þegar ungl-
ingavinnan tekur til starfa. Þá
verða gæslumenn við báðar renni-
brautirnar sem fylgjast með að all-
ir fari að settum reglum. Loks sagði
Morgunblaðið/Rúnar Þór
JANA Rut lenti harkalega á
börnum sem gerðu sér að leik
að stifla rennibrautina í Sund-
laug Akureyrar á sunnudag-
inn með þeim afleiðingum að
hún fékk þetta myndarlega
glóðarauga.
Sigurður að á næstunni yrði sett
upp áberandi skilti þar sem tíundað-
ar eru þær reglur sem gilda um
notkun rennibrautanna.
Minjasafnið
opið um páska
MINJASAFNIÐ á Akureyri verður
opið alla páskahátíðina, frá skírdegi
til annars í páskum frá kl. 15.00
til 18.00. Messað verður í Minja-
safnskirkjunni annan í páskum kl.
17.00.
Undanfarin ár hefur verið unnið
að endurbótum á húsnæði safnsins
og settar upp ýmsar sýningar, m.a.
„Sitt af hvoru tagi“ og „Hér stóð
bær“ þar sem sýndir voru munir
tengdir gamla bændasamfélaginu.
Gamlar ljósmyndir hanga nú uppi
á safninu og einnig liggja frammi
myndir úr safni Hallgríms Einars-
sonar ljósmyndara og hafa aðeins
verið borin kennsl á litlum hluta
þess fólks sem á þeim er þannig
að allar upplýsingar eru vel þegnar.
Aðgangseyrir er 200 krónur, en
ókeypis er fyrir börn að 16 ára aldri
svo og ellilífeyrisþega. Bókin Odd-
eyri - húsaskrá er til sölu í safninu.
----------♦---------
Laufás-
prestakall
GUÐSÞJÓNUSTA verður í Laufás-
kirkju á skírdag, 13. apríl kl. 14.00.
Guðsþjónusta verður í Grenivíkur-
kirkju föstudaginn langa, 14. apríl
kl. 11.00. Hátíðarguðsþjónusta
verður í Svalbarðskirkju á páska-
dag, 16. apríl kl. 14.00.
Pedro kaupir vél
til að framkalla
litskyggnur
PEDRO-myndir á Akur-
eyri hafa fest kaup á
nýrri vél sem framkallar
litskyggnur, þeirri fyrstu
á Norðurlandi.
Þórhallur Jónsson hjá
Pedro-myndum sagði
vélina af fullkominni
gerð, hún gæfi stanslausa
og jafna framköllun en í
eldri gerðum slíkra véla
væru myndirnar mismik-
ið framkallaðar.
Hann sagði töluverðan
markað nyrðra, áður
hefði þurft að senda lit-
skyggnur suður til
Reykjavíkur til framköll-
unar og biðin verið á bil-
inu 7-10 dagar eftir fil-
munni. Mikið væri um að litskyggnur væru notaðar í auglýsinga-
gerð og í prentiðnaði og hefði kostnaðurinn oft verið ærinn þegar
vinna þarf hlutina i hvelli með tilheyrandi akstri og sendingum í
flugi. „Með kaupuin á þessari vél aukum við og bætum þjónustuna
og vonum að fólk kunni vel að meta,“ sagði Þórhallur.
I fyrstu verður einungis boðið upp á framköllun en með vorinu
verður einnig boðið upp á innrömmun og fleira.
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson
FRA vígslu dvalarheimilisins.
Dvalarheimilið
Barmahlíð vígt
Miðhúsum - Dvalarheimil-
ið Barmahlíð á Reykhólum
var vígt 4. apríl sl. en liðin
eru 15 ár síðan byrjað var
á framkvæmdum.
Heimilið er 700 fm að
grunnfleti, hæð og íbúðarr-
is sem í verða íbúðir og
aðstaða fyrir föndurvinnu
og sá salur verður einnig
notaður fyrir fundi og tekur
hann um 40 manns í sæti.
Föndurkennarar eru Sóley
Vilhjálmsdóttir og Bergljót
Bjarnadóttir.
Forstöðukona heimilis-
ins, Kristín Ingibjörg Tómasdóttir, bauð gesti og heimafólk velkomið í
hinum nýja sal og stjórnaði samkomunni. Sr. Bragi Benediktsson, prófast-
ur, vígði húsið til þeirrar notkunar sem því er að ætlað að’sinna. Aðalræð-
una flutti Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðisráðherra, og óskaði hann
heimilinu allra heilla. Með í för var Guðjón Magnússon, læknir. Kristín
Ingibjörg Tómasdóttir afhenti Sighvati gjöf frá Barmahlíð en það var
mórauð kind búin til af Birnu Norðdahl en hún er vistmaður á Barma-
hlíð. Samkór Reykhólahrepps söng undir stjóm Haraldar Bragasonar,
organista, og í tilefni vígslunnar gaf Þörungaverksmiðjan stóra klukku
til minningar um Ólaf Sveinsson á Grund.
í lokin var gestum og heimilisfólki boðið til veislu. Samstaða hefur
verið meðal hreppsbúa að gera þetta heimiliu sem best úr garði.
SAMKÓR Reykhólahrepps söng
í tilefni vígslunnar.
Morgunblaðið/HallgrímurMagnússon
Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson
Passíusálmarnir lesnir í
Grandarfj arðarkirkju
Grundarfirði - Á föstudaginn
langa mun sr. Sigurður Kr. Sig-
urðsson lesa upp Passíusál-
mana í Grundarfjarðarkirkju.
Áætlað er að lesturinn taki
rúmlega fjórar klukkustundir
og á milli sálma leikur prests-
frúin, Kristín Jóhannesdóttir
tónlist, sem hæfir sálmunum.
Undanfarin ár hafa Passíu-
sálmar síra Hallgríms Péturs-
sonar verið lesnir á föstudag-
inn langa í Hallgrímskirkju í
Reykjavík. Hefur þessi siður
mælst svo vel fyrir að hann
hefur verið tekinn upp í fleiri
kirkjum. Myndin er tekin þegar
prestsjónin í Grundarfirði voru
að samhæfa lestur og tónlist í
Grundarfjar ðarkirkj u.