Morgunblaðið - 11.04.1995, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Páskatilboð
MINNINGAR
(jtczsitegir
3ja rétta matseðtar
aðeins & 2.200
^tdanir í sírfi°'
Festu
þjófinn
a mynd
Eftirlitskerfi
frá PHiuPSog sanyo
TIME-LAPSE myndbandstækl
meðallt að 960 klst. upptöku.
Sjónvarpsmyndavélar og
sjónvarpsskjáir.
&:l
TÆKNI- OG TÖLVUDEILD
Heimilistæki hf.
SÆTUNI 8 • 105 REYKJAVÍK
SÍMI 69 15 00 • BEINN SÍMI 69 14 00 • FAX 69 15 55
KJARTAN
GÍSLASON
+ Kjartan Runólf-
ur Gíslason
fæddist í Suður-
Nýjabæ í Þykkvabæ
í Rangárvallasýslu
21. júlí 1916. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands á Sel-
fossi 1. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Gísli
Gestsson, bóndi S-
Nýjábæ, og Guðrún
Magnúsdóttir frá
Háarima. Kjartan
var niundi í röð
þrettán barna
þeirra hjóna, en fyrir átti Gísli
soninn Kristin. Tíu þeirra eru
nú látin, auk Kjartans, þau
Kristinn, Ingimundur, Gestur,
Jónina, Gísli, Guðbjörg, Guðjón,
Dagbjartur og Ágúst. Þau sem
eftir lifa eru Soffía, Dagbjört,
Óskar og Ágúst. Hinn 31. októ-
ber 1942 kvæntist Kjartan eftir-
lifandi konu sinni Þórleifu Guð-
jónsdóttur sem fæddist í Fagur-
hól í Vestmannaeyjum 30. jan-
úar 1923. Börn þeirra eru: 1)
Guðrún, f. 6.12. 1941, d. 8.9.
1993. Hún var gift Ársæli Ár-
sælssyni og áttu þau fjóra syni.
2) Sigurbjartur, f. 22.4. 1945,
kvæntur Arndísi Gísladóttur.
Eiga þau þijú börn. 3) Eygló,
f. 23.6.1946. Hún á fjögur börn.
4) Laufey Jóna, f. 13.3. 1948,
gift Ingva Rafni Sigurðssyni.
Þau eiga þrjár dætur. 5) Ásta,
f. 19.2.1950, gift Hauki Sigurðs-
Diplomat Gstölvur
486 DX2 66 MHz
VESA Local líus, hljóðkort,
8 Mb minni, 240 Mb 111)1)
Verð kr. 189.900,-
^BGÐEIND
Austurströnd 12. Sími 561 -2061. Fax 561 -2081
syni. Þau eiga fjög-
ur börn. 6) Erla, f.
11.9. 1957, gift Ósk-
ari G. Björnssyni.
Þau eiga fjóra syni.
7) Sigurborg, f.
10.5. 1962, gift
Pétri Birgissyni.
Þau eiga tvo syni.
8) Guðjón, f. 27.8.
1964, kvæntur
Brynhildi Jónsdótt-
ur og eiga þau tvær
dætur. Barna-
barnabörnin eru
11.
Kjartan fór 15
ára til Keflavikur og var þar á
sjó á veturna fram undir tvítugt
en þá fór hann til Vestmanna-
eyja. Var hann þar á sjó og fór
í vélskóla sem veitti honum vél-
stjóraréttindi. Um 1940 fluttist
hann í Þykkvabæinn og J>ar
fæddust tvö elstu börnin. Árið
1945 fór fjölskyldan til Vest-
mannaeyja og var Kjartan þar
á sjó, m.a. á Gísla Johnsen sem
sigldi milli Stokkseyrar og Vest-
mannaeyja. Kjartan fékk yfir-
vélsljóraréttindi 1951. Árið
1956 keypti hann fiskbúðina við
Bárugötu og rak hann þar fisk-
búð allt til 1973 er gaus á
Heimaey. Þá fluttist fjölskyldan
til Selfoss og sá Kjartan þar um
rekstur fiskbúðar KÁ til ársins
1990, þá 74 ára.
Utför Kjartans fer fram frá
Selfosskirkju í dag og hefst at-
höfnin kl. 13.30.
VIÐ andlát Kjartans, tengdaföður
míns, leita tvær minningar sterkar
á huga minn en aðrar, og báðar eru
frá upphafi okkar kynna.
Ég hitti þau fyrst, Þóru og Kjart-
an, kvöldið fyrir þjóðhátíð 1971. Þá
höfðum við Ásta þekkst i þijá mán-
uði. Það var hásumar, byijað að
rökkva á kvöldin og Eyjaseiðurinn
togaði. Við komum Guðrúnu litlu
Gyðu Ástudóttur í fóstur og brugð-
um okkur til Vestmannaeyja á þjóð-
hátíð, enda vís gisting og annað
atlæti í Birkihlíðinni, hjá þeim
gömlu, og á Hraunslóð, „hjá henni
Rúnu systur og Ársæli“, sagði Ásta.
Þegar við komum heim í Birkihlíð
þama um kvöldið, beint af flugvell-
inum, stóð þjóðhátíðarundirbúning-
urinn yfir að venju; búið var að
tjalda inni í dal en matföng var
verið að útbúa í eldhúsinu. Koffort
stóð opið á gólfinu og lunda, hangi-
kjöti, smjöri og öðru góðmeti var
hlaðið þar ofan í. Húsið var fullt
af fólki, bæði heimamönnum og
gestum, og mikill erill. Þóra var í
eldhúsinu að sinna matnum ásamt
Rúnu, en Kjartan veitti gestum sín-
um lífsins vatn og kaffi frammi í
herberginu sínu.
Það var stemmning í húsinu og
allt var lifandi.
Réttu ári seinna komum við Ásta
aftur í heimsókn í Birkihlíðina, búin
að vera gift í tvo daga og áttum
orðið tvö börn, sem voru með okk-
ur. Ekki varð sú dvöl síðri en hin
fyrri; hughrifin þó önnur, enda
ábúðarfull barnafjölskylda á ferð í
þetta skiptið en ekki galsafengið
ungt fólk á leið á þjóðhátíð.
I þessari ferð gengum við á
Heimaklett í renniblíðu, og tókum
mýgrút mynda á nýju myndavélina
lykillinn að eilífri æsku?
Eitt hæsta hlutfall Q-10 i frumum líkamans er í hjartanu.
Upp úr miðjum aldri minnkar framleiðslu á því og getur
það leitt til minni mótstöðukrafts, skerts starfsþreks og
ótímabærrar öldrunar. Hlutverk Coensims Q-10 er að
breyta næringarefnum í orku í sérhverri ffumu líkamans
þegar fæðan er brotin niður. Auk þess hefur það
sterk andoxandi áhrif. Þá sem skortir Q-10 geta
fundið greinilegan mun eftir neyslu þess í nokkum
tíma, í auknu þreki og betri líðan, en jafnframt er
stuðlað að heilbrigðari efri árum.
ÉL
leilsuhúsið
Skólavörðustíg & Kringlunni
íijirt/
okkar, sem við höfðum fengið í brúð-
kaupsgjöf. Erla mágkona var með
í för, og niðri á Bárugötu, við horn-
ið á fiskbúðinni, stóð Kjartan með
kíki og fylgdist áhyggjufullur með
uppgöngunni. Ekki mun honum
hafa litist á þegar nýi tengdasonur-
inn leiddi dætur hans beint upp
sundurgrafna lundabyggð í brekku
uppi í klettinum í stað þess að fara
venjulega leið, til hliðar við brekk-
una um klettaurð og upp á hrygg-
inn. En ég átti prik hjá-honum á
móti þessu axarskafti: A brúðkaups-
daginn okkar Ástu, nokkrum dögum
fyrr, hafði ég látið verða mitt fyrsta
verk, nýkominn úr kirkjunni og í
smókingnum, að bjarga saltfiski,
sem ég var að sólþurrka á svölun-
um, undan regnskúr. Fiskurinn var
rétt að verða fullþurr og varð enda
hið mesta lostæti.
Ég held ég hafi lifað nokkuð lengi
á þessu framtaki hjá Kjartani.
Svo gaus í Vestmannaeyjum
hálfu ári seinna og myndirnar okkar
úr klettinum yfir bæinn og Urðimar
urðu enn merkilegri en áður og
mikið skoðaðar.
Kjartan og Þóra fluttu ekki til
baka eftir gos heldur settust að á
Selfossi þegar fram liðu stundir, þar
sem þau hafa búið síðan. Fyrst í
stað, eftir að gosið hófst, voru þau
á Stokkseyri, en Kjartan hóf þegar
störf fyrir Kaupfélag Árnesinga, í
fiskbúð félagsins á Selfossi. Um
haustið fluttu þau síðan í viðlaga-
sjóðshús við Úthaga á Selfossi, og
tveimur árum seinna á Sunnuveg
11, þar sem síðan hefur verið móts-
staður þessarar samhentu fjöl-
skyldu.
Kjartan mundi tímana tvenna í
ýmsum skilningi: gagnstætt þæg-
indum nútímans i flestum greinum
mundi hann vinnuhörkuna, hinn illa
aðbúnað verkafólks og sjómanna,
samgönguerfiðleikana, kuldann og
vosbúðina. Hann var aðeins þrettán
ára þegar hann fór fyrst á vertíð,
gangandi úr Þykkvabænum til
Keflavíkur. Nokkru seinna lá leiðin
til Eyja, einnig til sjóróðra. Eina
vertíðina þar voru þeir saman á
Sleipni VE, Kjartan og Óskar bróð-
ir hans, og þá voru þeir níu á netun-
um á þessum íjórtán tonna báti, sem
varla væri kallaður annað en trilla
nú til dags. En þrátt fyrir allt þetta
var greinilega bjart yfir minningum
hans frá þessum árum og frá mörgu
að segja, oftar en ekki einhveiju
kátlegu.
I Vestmannaeyjum urðu miklar
breytingar á högum Kjartans því
þar hitti hann Þóru Guðjóns í Fag-
urhól. Þau hófu búskap heima hjá
honum í Suður-Nýjabæ í Þykkva-
bænum árið 1940, með Gísla og
Guðrúnu, foreldrum hans. Þar fædd-
ust tvö elstu börnin, Guðrún og Sig-
urbjartur, en um haustið 1945 fluttu
þau til Eyja, þar sem hin börnin sex
fæddust.
Kjartan hafði tekið vélstjórapróf
í Eyjum og reri hann nú á ýmsum
bátum sem vélstjóri allmörg næstu
ár. Það var svo um miðjan sjötta
áratuginn að hálfbróðir Þóru, Ant-
on, sem rekið hafði fiskbúðina við
Bárugötu, veiktist, og tók Kjartan
þá að hlaupa í skarðið í búðinni.
Skömmu síðar tók hann svo alfarið
við rekstri hennar. Eftir það varð
hann þekktur borgari í Eyjum sem
Kjartan físksali; ég hef ég fyrir satt,
að kunnátta og vönduð vinnubrögð
við alla verkun og meðferð, hafi
verið hans aðal. Og nætursaltaðan
fisk hef ég ekki fengið betri en frá
honum.
Það var svo sem sama hvað Kjart-
an tók sér fyrir hendur, trésmíði,
húsbyggingu, kartöflurækt, allt var
vandað og vel gert. Þess bera merki,
meðal annars, litlu sveitabæirnir,
sem hann smíðaði nokkra, í mynd
gamla bæjarins heima að Suður-
Nýjabæ. Hann fæddist í því húsi
og þar byijuðu þau að búa, hann
og Þóra. Þessa bæi og fleiri gripi
tók hann til að smíða úti í bílskúr
heima á Sunnuvegi nú hin síðari ár,
eftir að hann lét af störfum hjá
Kaupfélagi Árnesinga fyrir nokkr-
um árum. Þeir prýða nú nokkur
heimili barna og barnabarna. Þá er
dúkkum víða vaggað i ró í vöggun-
um sem hann smíðaði á þessu tíma-
bili.
Þannig var Kjartan sístarfandi
fram undir það síðasta, þegar
krabbameinið heltók hann. Hann
var lifandi maður alla sína daga,
en dulur, og bar ekki erfiðleika sína
á torg þegar þeir steðjuðu að, eins
og gerist í lífi okkar allra einhvern
tíma, heldur glímdi hann við þá
sjálfur með sínum hætti; þannig
varð það að vera.
Fyrir einu og hálfu ári lést hún
Rúna mágkona, elsta dóttirin. Það
var mikið áfall Kjartani og Þóru,
eins og öðrum ástvinum hennar, og
ég veit ekki hvort hann jafnaði sig
nokkum tíma eftir það.
Ég nefndi hér á undan samhenta
fjölskyldu þeirra Þóru og afkomenda
þeirra; milli fimmtíu og sextíu erum
við, og það vekur athygli hve mörg
barnaböm í þessum hópi heita eftir
þeim. Maður gæti haldið að ekki
væri úr mörgum nöfnum að velja,
eða hugmyndaauðgi okkar foreldra
þessara barna allra, sem skírð hafa
verið eftir ömmunni Þóru og afanum
Kjartani, væri svona lítil, en sú er
ekki ástæðan, segi ég, heldur er
verið að lýsa viðhorfi barnanna til
foreldra sinna með þessum nafngift-
um.
Við tengdabörnin erum þakklát
fyrir samfylgdina við Kjartan, og
er víst, að minning hans lifír með
okkur.
Haukur Sigurðsson.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Með þessum ljóðlínum og nokkr-
um orðum langar okkur systkinin
að kveðja okkar elskulega afa,
Kjartan. Þær eru margar minning-
arnar sem fara í gegnum huga okk-
ar þegar litið er til baka og aliar
eru þær okkur kærar og hlýjar.
Þegar við vorum yngri var alltaf
spennandi að fara í heimsókn til
ömmu og afa á Selfoss og fannst
okkur eins og við værum að fara í
langt ferðalag þó ekki væri nema
um klukkustundar akstur þangað.
Þegar við komum á Sunnuveg tók
afí á móti okkur í anddyrinu með
hendur í vösum, stríðnisglampa í
augum og tilbúinn að kitla, elta eða
stríða okkur smávegis og skemmti
hann sér ekki síður en við.
Þetta lýsir afa Kjartani vel því
hann var sérlega barngóður. Þegar
farið var heim fór "fí og sótti harð-
Aðalfundur
Aðalfundur Hafnarfjarðardeildar
Rauða kross íslands verður haldinn
kl. 17.30 í húsnæði deildarinnar í
Bæjarhrauni 2. 24. apríl nk.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.