Morgunblaðið - 12.04.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.04.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995 3 FRÉTTIR Gæslumenn hafa kynnt sér dönsk varðskip SKIPHERRA, yfirstýrimaður og vélstjóri frá Landhelgisgæslunni hafa í vetur siglt með dönskum varðskipum í eina viku og gert um það ítarlegar skýrslur, að því er fram kemur í Gæslutíðindum, fréttabréfi Landhelgisgæslu ís- lands. Verið er að vinna úr skýrslunum fyrir nefnd, sem gera á heildarút- tekt á núverandi skiparekstri Land- helgisgæslunnar og þörfum til næstu framtíðar með hliðsjón af þeim verkefnum, meðal annars við björgun og eftirlit, sem Landhelgis- gæslunni er ætlað að sinna. Nefndinni, sem dómsmálaráð- herra skipaði í september síðastl- iðnum, er einnig ætlað að leggja mat á og gera tillögur um þá kosti sem eru álitlegastir þegar kemur að því að endurnýja skipastól Land- helgisgæslunnar. I nefndinni eiga sæti HafSteinn Hafsteinsson, forstjóri Land- helgisgæslunnar, sem er formað- ur nefndarinnar, Viggó Maack, verkfræðingur, Þórður Ásgeirs- son, forstjóri Fiskistofu, og Þór- hallur Arason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneyti. Morgnnblaöið/Rúnar B. Ólafsson Hross til Bandaríkjanna VAXANDI markaður hefur ver- ið fyrir íslensk hross í Banda- ríkjunum og Kanada upp á síð- kastið og síðastliðinn sunnudag fóru 32 hross til Bandaríkjanna með leiguflugvél á vegum Nortron USA í samvinnu við Cargolux á íslandi. Vélin var af gerðinni DC-8-63 með allt að 45 tonna burðargetu og flaug hún frá Keflavík til Newburg i New York-fylki. Þessi ferð var sú sjötta í röðinni á vegum þessara aðila með íslensk hross vestur um haf, og í þessari ferð voru einnig flutt 30 tonn af fiski héð- an til Bandaríkjanna. Kirkjurúta í Breiðholti SOKNARNEFND Fella- og Hóla- kirkju hefur tekið upp þá ný- breytni að bjóða sóknarbörnum upp á rútuferðir til og frá kirkju á sunnudögum. Með þessu vonast sóknarnefndin eftir að fleiri komi í messu. „Við látum tvo bíla ganga um hverfið rétt fyrir messuna til að safna saman fólki sem vill koma í messu,“ sagði séra Hreinn Hjartar- son, sóknarprestur í Fella og Hóla- kirkju. Hann sagði að kirkjurútan hefði fengið þokkalegar viðtökur. Fleiri nýttu sér hana nú en í fyrstu ferðinni. Séra Hreinn sagðist vonast eftir að þetta leiddi til þess að fleiri sæju sér fært áð koma til messu. Kirkjurútan væri ekki síst hugsuð fyrir aldrað fólk og börn. Kirkjurúturnar eru tvær. Önnur fer hringferð um Fellahverfið og hin um Hólahverfið. Kirkjugestir eru einnig keyrðir heim að messu lokinni. Ferðirnar eru ókeypis, en sóknarnefnd stendur straum af kostnaði við rúturnar. Stœrrí aðeins kr. 595 Sendiráðið í Washington á Veraldar- vefnum SENDIRÁÐ íslands í Washington D.C. hefur sett upp heimasíðu á Veraldarvefnum, Internetinu, þar sem má fínna almennar upplýs- ingar um ísland og hlekki í heimas- íður hinna ýmsu stofnana á ís- landi, svo sem Utflutningsráðs, Alþingis, Háskólans o.fl. Til gam- ans má einnig geta þess, að á heimasíðunni má hlusta á og lesa lexta þjóðsöngs Islendinga. Netfang sendiráðs Islands í Washington D.C. er: http://www.jazzie.com/web/iceland Minnt aðeins kr. 495 Nýafskornar og ferskar Blómstra Odýrar páskaskrevtineár (Aðeins 59 kr. stykkið) \wm -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.