Morgunblaðið - 12.04.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995 9
Formaður Félags kjúklingabænda um
verðmun hér á landi og erlendis
Hátt fóðurverð, sjóðagjöld
og fjármagnskostnaður
NYLEG verðkönnun Samkeppnis-
stofnunar leiddi í ljós að verð á
fuglakjöti í Kaupmannahöfn er að-
eins 36% af því sem það er hér og
um 32% lægra í Ósló en í Reykjavík.
Bjarni Ásgeir Jónsson, formaður
Félags kjúklingabænda, var spurð-
ur hvernig stæði á þessum mun.
Hann sagði að á því væru marg-
þættar skýringar þar sem verð á
kjúklingum á Islandi réðist af því
bágborna umhverfi sem kjúklinga-
framleiðendur þyrftu að búa við.
Þurfum að fá aðgang að
fjárfestingarlánasjóði
„Við erum með stofna sem éta
meira fóður en stofnar erlendis og
fóðurverð hjá okkur er þrefalt dýr-
ara en þar. Þegar saman kemur
hærra fóðurverð og meira magn af
fóðri gefur augaleið að það er stór
þáttur í þessu.
Við borgum líka 15 krónur af
hveiju kílói í búvörugjöld. Einnig
er fjármagnskostnaður stór hluti
skýringarinnar en hjá kjúklingabú-
um er algengt að fjármagnskostn-
aður sé frá 70 til 100 krónur á
hvert kíló og stafar það af því að
þessi búgrein hefur verið byggð upp
með skammtímalánum og fóður-
skuldum. Hún hefur ekki haft að-
gang að fjárfestingarlánasjóði, þó
svo að við séum mjólkaðir í þessar
stofnalánadeildir.
Stofnlánadeildin er okkar lána-
sjóður en þeir hafa sett sér þær
stærðarreglur að við erum ekki
lánshæfir. Niðurgreiðsla af lánum
vegur líka þungt af hveiju kílói
þegar engin lántímafjármögnun er
fyrir hendi,“ svaraði Bjarni.
Kynbæturnar lofa góðu
— Hafa ekki kjúklingabændur
náð töluverðri rekstrarhagræðingu
á síðustu árum með kynbótum á
kjúklingastofnum, sem hafa ekki
skilað sér í verði til neytenda?
„Kynbæturnar eru að skila sér.
Það var byijað á því að flytja inn
stofn frá Noregi sem reyndist lítið
betri en sá sem við höfðum fyrir
en núna erum við að fá stofn frá
Svíþjóð sem lofar góðu, en það tek-
ur sinn tíma. Við náum um 5.000
hænum inn í einu í gegnum Hvann-
eyrarstöðina og varpstofninn er
væntanlega um 25.000 fuglar,
þannig að það tekur tíma að ná því
upp.“
— Skiptir milliliðakostnaður, þ.e.
slátur- og heildsölukostnaður,
miklu máli í þessu sambandi?
„Nokkru, já, en hann hefur farið
lækkandi, sérstaklega sláturkostn-
aðurinn. Það má segja að það sé
sama verð á slátrun og var á árun-
GULLSMIÐJAN
PYRIT-G 15
Handsmíðaðir
DEM ANTSHRINGIR
um 1986-87 en kostnaðurinn hefur
staðið í stað og það hafa verið gefn-
inn meiri afsláttur af státrun."
— Hvaða leiðir sérð þú út úr
vanda kjúklingabænda?
„Fyrst og fremst að þessi bú fái
aðgang að Stofnlánadeild tandbún-
aðarins eða komist í einhvern annan
langtíma fjárfestingarlánasjóð,
þannig að lánasamsetningin verði
eðlileg í stað þess að þurfa að búa
eingöngu við dýr skammtímalán.
Stofnarnir eru á réttri leið en við
þurfum að ná örari innflutningi til
þess að allir kjúklingar, sem koma
til ræktunar, verði undan þessum
nýja stofni. Svo er spurning hvað
hægt er að ná fóðurverði langt nið-
ur. Ég vonast til að meiri hagræð-
ing náist þar og svo má benda á
að kjaranfóðurgjald, sem er inn-
heimt og endurgreitt, íþyngir líka
að nokkru leyti.“
— ASÍ hefur óskað eftir að Sam-
keppnisstofnun kanni ítarlega verð-
myndun og viðskiptahætti í eggja-
og kjúklingaframleiðslu og geri út-
tekt á fóðurvöruframleiðslu og fóð-
urinnflutningi. Hver eru viðbrögð
þín við því?
„Mér finnst það gott mál. Við
höfum í gegnum tíðina haldið fundi
með Neytendasamtökunum og
stjórn ASI og óskað eftir því að
tekið yrði á þessum málum sem
snúa meðal annars að Stofnlána-
deild og fóðurskattinum. Það hefur
ekki tekist með þeirra aðstoð. ASÍ
átti mann í sjömannanefnd ríkis-
stjórnarinnar um landbúnaðarmál
en í greinargerð sem þeir skiluðu
lögðu þeir til að Stofnlánadeildin
yrði opnuð fyrir kjúklingabændum
og búvörugjöldin afnumin. Það hef-
ur engan árangur borið.“
Greinin stæði ekki af sér
óheftan innflutning
— Er þessi búgrein samkeppnis-
fær ef innflutningur verður leyfður
á næstu árum og menn sjá fram á
meiri samkeppni?
„Það fer eftir því hvernig jöfnun-
argjöldunum verður beitt. Það er
alveg ljóst að ef opnað verður fyrir
óheftan innflutning stendur þessi
grein það ekki af sér,“ svaraði
Bjarni og sagðist gagnrýna alþýðu-
flokksmenn harðlega fyrir mál-
flutning þeirra fyrir kosningar um
verðlækkun landbúnaðarafurða ef
ísland gerðist aðili að Evrópusam-
bandinu og kjúklingasölu þeirra á
svokölluðu Evrópuverði.
„Við höfum rætt við alþýðu-
flokksmenn eins og aðra um leiðir
til að framleiða ódýra kjúklinga hér
á landi en það hefur ekkert verið
gert. Maður sér því fram á að það
sé ekki ætlunin að við getum boðið
upp á ódýra íslenska kjúklinga.
Þetta er því aðeins hræsni í Alþýðu-
flokknum og auglýsingaskrum. Þeir
hafa ekki staðið að því að hér megi
framleiða ódýra kjúklinga og þeir
vita, að þeir verða ekki fluttir inn
vegna þess að það myndi raska öll-*
um innviðum landbúnaðarins. Við
erum að sjálfsögðu allir af vilja
gerðir til að framleiða þessa vöru
á lægra verði,“ segir Bjarni að lok-
um.
r MARjNA R1N/\LD1 -h
Vor- og sumartískan
1995!
_____Mari___________
Hverfisgötu 52 -101 Reykjavík-Sími91-62 28 62
7/7 hluthafa í Lvfiaverslun íslands hf.
Við þökkum fyrir mjög góð viðbrögð við auglýsingu, sem við
birtum í Morgunblaðinu þriðjudaginn 4. apríl sl.
Fundur verður haldinn með hluthafahópnum, sem þegar
hefur myndast, miðvikudaginn 12. apríl kl. 17.30 í Fóst-
bræðraheimilinu við Langholtsveg.
Þeir hluthafar, sem ekki hafa þegar haft samband, en vilja
slást í hópinn, eru velkomnir á fundinn eða beðnir að hafa
samband við undirritaðan næstu daga.
F.h. fundarboðenda:
Jón Þorsteinn Gunnarsson, rekstrarhagfræðingur,
Austurstræti 17, sími 562 8860. Fax 562 2877.
ÓTVÍRÆÐIR
YFIRBURÐIR
í TÆKNI
STÍLL OG GLÆSILEIKI
Hótel ísland kynnir skemmtidagskrána
R.IORGVIN HALLDORSSON - 25 ÁRA AFMÆLISTÓNLEIKAR
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON litur yflr dagsverkið scm dægurlagasöng\ari á
hljómplötum í aldarijórdung, og við heyrum mer 60 lög f'rá
glæstum f'erli - frá 1969 til okkar daga
í kvöld
Næstu sýningar:
19. ápríl,
22. apríl,
29. apríl.
6. maí
tieslasöngvari:
SIGRÍDUR BEINTEINSDÓTOR '
Leikmynd og leikstjórn: H
BJÖRN G. BJÖRNSSON
Hljomsveilarsljiíni: JH
GUNNAR ÞÓRDARSON Mm
ásaml lOmanna liljomsvrii JH
Kynnir: MI
JÓN AXEL ÓLAFSSON ^
Islands- og Norðurhuidaiueislarar i
saink\;einisdönsiim Ira Dansskola
Auðar llaralds s\na dans.
Sértilboð á gistingu,
sími 688999.
Matseðill
Koníakstóneruö humarsúpa meö rjómatopp
Lamba-piparsteik meö gljáöu grænmeti,
kryddsteiktum jaröeplum og rjómapiparsósu.
Grand Marnier ístoppur meö hnetum og
súkkulaöi karamellusósu og ávöxtum.
Verd kr. 4-600 - Sýningarverd kr. 2.000
Dansleikur kr.800
Bordapantanir
sima 687111
íshíöv
ÍHHDJ
KNATTSPYRNUVEISLA ALDARINNAR 30. APRÍL
NÁMS »
2 Búnaðarbanki Islands
^ auglýsir eftir umsóknum um
z stýrki úr Námsmannalínunni
A
Umsóknarfrestur er til 1. maí
Veittir verða 12 styrkir hver að
upphæð 125.000 krónur
Styrkirnir skiptast þannig:
* útskriftarstyrkir til nema í Háskóla íslands
* útskriftarstyrkir til nema á háskólastigi/
sérskólanema
* styrkir til námsmanna erlendis í SÍNE
Einungis aðilar í Námsmannalínunni eiga
rétt á að sækja um þessa styrki.
Umsóknareyðublöð eru afhent í öllum
útibúum Búnaðarbankans og á skrifstofum
Stúdentaráðs, SÍNE og BÍSN.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. maí til
BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS
Markaósdeild, Austurstræti 5
155 Reykjavík
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
LÍNAN