Morgunblaðið - 12.04.1995, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hlutdeild ríkissjóðs í hafnarframkvæmdum skert
20% skerðing frá
hámarksþátttöku
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Mikil eftirvænting
HLUTDEILD ríkissjóðs í hafnar-
framkvæmdum á Akureyri hefur
verið skert um 20% frá hámarks
þátttöku ríkisins í mannvirkjagerð
vegna hafnarframkvæmda.
Á fundi hafnarstjómar nýlega
var lagt fram bréf frá Hafnarmáia-
stofnun þar sem taldar eru upp
styrkhæfar framkvæmdir við Akur-
eyrarhöfn á árinu 1995. Áætlað er
að framkvæmdir við Krossanes
kosti um 3,6 milljónir og hlutdeild
ríkisins verði 1,4 milljónir, gerð
skjólgarðs vegna flotkvíar kostar
14,4 milljónir og er hlutur ríkisins
10.1 milljón, stálþil við Krossanes
kostar 55,4 milljónir og er hlutur
ríkisins 22,2 milljónir króna, þá er
áætlað að dýpkun fyrir flotkví kosti
46.2 milljónir og hlutur ríkis vegna
framkvæmdarinnar verði 32,3 millj-
ónir og landfestar eru áætlaðar á
18,4 milljónir en hlutdeild ríkisins
verði 7,4 milljónir króna. .
Engin breyting
í bókun hafnarstjórnar Akur-
eyrar segir að af þessari upptaln-
ingu sjáist að þrátt fyrir fyrirheit
samgönguráðherra um aukna hlut-
deild ríkissjóðs í kostnaði við hafn-
arframkvæmdir á Akureyri eru allir
liðir skertir um 20% frá því sem
er hámark ríkisþátttöku í mann-
virkjagerð hafna. „Þar með er ljóst
að engin breyting sýnist verða á
þátttöku ríkisins í hafnarmannvirkj-
um á Akureyri frá því sem verið
hefur á undanförnum árum,“ segir
í bókun hafnarstjórnar. Fram kem-
ur í bréfi Hafnarmálastofnunar að
gert sé ráð fyrir að ríkissjóður
skuldi hafnarsjóði í árslok 1995 um
60 milljónir króna sem er rúmlega
100% aukning frá fyrra ári.
MIKIL eftirvænting rikir vegna
óperutónleika Kristjáns Jóhanns-
sonar, Sigrúnar Hjálmtýsdóttur
og Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands sem haldnir verða I KA-
húsinu á Akureyri í kvöld.
Framkvæmdir hafa staðið við
breytingar á húsinu, því breytt
úr íþróttahúsi í tónleikahús. Upp-
selt er á tónleikana.
Á efnisskránni eru aríur og
dúettar úr þekktum óperum,
m.a. Carmen, Rómeó og Júlíu,
La Boheme og La Traviata.
Stjórnandi verður Guðmundur
Oli Gunnarsson, aðalsljórnandi
Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands.
ÚTGERÐARFÉLAG
AKUREYRINGA
Aðalfundur
Aöalfundur Útgeröarfélags Akureyringa hf. fyrir
árið 1994 verður haldinn mánudaginn 24. apríl
kl. 16.00 í matsal frystihúss félagsins.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Lagabreytingar til samræmis við lög nr. 2/1995
um hlutafélög.
Ársreikningurinn liggur frammi á skrifstofu
félagsins fyrir hluthafa til skoðunar.
Stjórnin.
Akureyrarbær auglýsir
skipulagsbreytingu við Þrastarlund
Með vísan til 17. og 18. greinar skipulagslaga og greinar 4.4.
í skipulagsreglugerð, auglýsir Akureyrarbær breytingu á aðal-
og deiliskipulagi svæðis við Þrastarlund. Skipulagssvæðið
afmarkast af Mýrarvegi, Skógarlundi, götustæði Dalsbrautar
og íbúðarlóðum við Háalund.
í tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 1990-2010
felst breyting á landnotkun, þannig að íbúðarsvæði er
minnkað, útivistarsvæði fært af vesturjaðri inn að miðju og
gert er ráð fyrir stofnanalóð á norð-vesturhorni svæðisins.
í deiliskipulagstillögu er gerð grein fyrir afmörkun húslóðar
Þrastarlundar, nýrri íbúðarlóð við Mýrarveg, byggingar- og
skipulagsákvæðum stofnanalóðar og nýtingu útivistarsvæðis
og annarra óbyggðra svæða. M.a. er gert ráð fyrir að hluti
óbyggðs svæðis nýtist sem stæði fyrir stóra bíla og vinnu-
vélar.
Tillögur þessar, uppdrættir og greinargerðir liggja frammi
almenningi til sýnis á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 3- hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar
auglýsingar, þ.e. til miðvikudagsins 24. maí, þannig að þeir
sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær
athugasemdir. Athugasemdafrestur vegna deiliskipulagstil-
lögu er til 24. maí en 8 vikur vegna tillögu að breytingu á
aðalskipulagi Akureyrar eða til 17. júní 1995. Þeir, sem telja
sig verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna þessara skipulags-
breytinga, er bent á að gera við þær athugasemdir innan
tilgreinds frests ella teljast þeir samþykkir breytingunum.
Skipulagsstjóri Akureyrar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Líf á
leirunni
LÍFIÐ er að glæðast á leirunni
við bæinn. Hettumávurinn kom
að sunnan fyrir um hálfum
mánuði og tjaldurinn fylgdi á
eftir um helgina. Smám saman
er svo búist við að aðrir farfugl-
ar láti sjá sig og bætist við hóp-
inn á leirunum.
Páskahátíð hafin
PÁSKAHÁTÍÐ á Akureyri hefst í
dag. Fjölmörg atriði eru á dag-
skránni, bæði á sviði útivistar og
menningar. Hagsmunaaðilar í ferða-
þjónustu á Akureyri standa saman
að þessari hátíð.
Mikið verður um að vera í Hlíðar-
fj'alli alla páskadagana, troðnar verða
göngubrautir bæði þar og í Kjarna-
skógi, fjölskyldudagur verður á Súlu-
Aðalsteinn Vestmann
sýnir í Heklusalnum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
AÐALSTEINN Vestmann opnar
sölusýningu á verkum sínum í sal
Gallerý AllraHanda í „Heklusaln-
um“ í dag, miðvikudaginn 12. apríl
kl. 15.00.
Aðalsteinn Vestmann er fæddur
á Akureyri 1932, hann lauk námi
við teiknikennaradeild Handíða- og
myndlistaskólans 1951 og hefur
kennt myndmennt við Barnaskólann
á Akureyri í rösk þijátíu ár. Hann
hefur tekið þátt í mörgum samsýn-
ingum auk einkasýninga á Akureyri
og Reykjavík.
Sýning hans verður opin næstu
daga frá kl. 14.00 til 19.00. Mynd-
irnar á sýningunni eru gerðar með
olíu- vatns- og akrýllitum eða
penna. Engin boðskort verða send
út en allir eru velkomnir á sýning-
una.
mýrum á föstudaginn langa og þá
verður svokölluð Matthíasarganga
um miðnætti næskomandi laugar-
dagskvöld, en gengið verður með
kyndla frá Ráðhústorgi að Lystigarð-
inum, Kór Akureyrarkirkju leiðir
söng, en göngunni lýkur með flug-
eldasýningu.
Myndlistarsýningar eru í sýning-
arsölum bæjarins og þá verður Leik-
félag Akureyrar með fjórar sýningar
á Þar sem Djöflaeyjan rís um páska-
hátíðina.
Veitingastaðir verða opnir um-
fram venju hátíðardagana.
Magnús Már Þorvaldsson fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar sagði að
vitað væri um fjölda aðkomumanna
í bænum, fiestar orlofsíbúðir væru
fullar og einnig gistiheimili í bænum
og góð nýting væri á hótelrými.
-------------»■ ♦ ♦-----
Miðstöð fólks
í atvinnuleit
Heimili og skóli
MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit verður
með.opið hús í Safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju í dag, miðvikudaginn
14. apríl, frá ki. 15.00 til 18.00.
Hildigunnur Ólafsdóttir starfs-
maður samtakanna Heimilis og
skóla ræðir við þátttakendur og
svarar fyrirspurnum.
Kaffi og brauð verður á borðum
þátttakendum að kostnaðarlausu og
dagblöðin liggja frammi.
8 NYIB ALI-SUN UOSABEKKIR
GEISLAGÖTU 12 - SÍMI 25856
TRYGGVABRAUT 22 - SIMI 25055