Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 1
120 SIÐUR B/C/D
119. TBL. 83.ÁRG.
SUNNUDAGUR 28. MAÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Frakkar vilja að hlutverk gæslusveita í Bosníu verði endurskoðað
(NATO) krafðist þess í gær, að Bosn-
íu-Serbar slepptu friðargæsluliðum
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sem þeir
halda sem gíslum. Einnig samþykktu
fastafulltrúamir viðbótarráðstafanir
til þess að vemda gæslusveitimar
og auðvelda þeim að gegna hlutverki
sínu. Tveir franskir friðargæsluliðar
í Bosníu féllu er sveit gæsluliða Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) freistaði þess
í gær að endurheimta brú í Sarajevo
sem Bosníu-Serbar tóku með áhlaupi
í skjóli nætur. Boutros Boutros-
Ghali framkvæmdastjóri SÞ varð í
gær við þeirri kröfu Jacques Chiracs
Frakklandsforseta að kalla öryggis-
ráðið saman til þess að fjalla um
nýtt umboð gæslusveitanna til að-
gerða í Bosníu.
Bosníu-Serbar náðu Vrbanja-
brúnni, sem er á einskismannslandi
í Sarajevo, með því að laumast yfir
hana í skjóli myrkurs íklæddir stoln-
um einkennisfötum franska hersins.
Frönsk fótgöngudeild svaraði með
vélbyssuskothríð og handsprengjum
og náði aftur hluta brúarinnar. Eft-
ir að bardögum linnti var þess freist-
að að fá Serba til að láta af hendi
Reuter
Aden nötraði í
sprengjuregni
hinn endann og virki sem þar er.
Einn Serbi féll í átökunum og þrír
voru teknir til fanga.
Chirac sagði að fall frönsku
gæsluliðanna væri bein afleiðing
ómarkviss hlutverks gæslusveit-
anna í Bosníu. Alain Juppe utanrík-
isráðherra sagði að svör yrðu að
fást við því um helgina hvort ríki
heims væm tilbúin að efla gæslu-
sveitirnar í Bosníu svo þær gætu
komið í veg fyrir átök þar eða hvort
draga bæri þær til baka.
Oljóst þótti í gær til hvaða ráð-
stafana yrði gripið af hálfu SÞ og
NATO í Bosníu. Færi það eftir því
hvort Bosníu-Serbar slepptu rúm-
lega 200 gæsluliðum sem þeir hefðu
tekið til fanga. Valkostirnir eru allt
frá því að hverfa með gæslusveitir
úr landi eða beita miklu herafli.
Hermt er að Frakkar muni að líkind-
um ráða ferðinni þar sem þeir em
langfjölmennastir í gæslusveit-
unum. Vilja þeir að gæslusveitirnar
verði ekki jafn dreifðar og nú er,
heldur í stærri hópum á færri stöð-
um og fái bæði umboð og vopn til
þess að gegna hlutverki sínu.
Sótthreinsað
vegna
Ebola-veiru
í Zaire
ÓTTINN við Ebola-faraldur-
inn í Zaire hefur ýtt mjög und-
ir hræðslu víða um heim við
veirusjúkdóma. Á myndinni,
sem tekin var í dreifbýli
skammt frá bænum Kikwit í
Zaire í gær, sótthreinsa starfs-
menn Rauða krossins fætur
pilts, en móðir hans er sýkt
af veirunni. Þar í landi hafa á
annað hundrað manns dáið af
völdum veirunnar
■ Óttinn við veirurnar/ 6.
Aden. Reuter.
ADEN, hafnarborg í suðurhluta
Jemens, nötraði af völdum gífur-
legra sprenginga í gær og sögðu
sjónvarvottar að fjöldi manns hefði
slasast. Óljóst var hvers vegna
sprengingarnar urðu.
Slökkviliðs- og sjúkrabílar sáust
keyra í ofboði að Jabal Hadeed,
Stálfjalli, í miðri borginni þar sem
vopnabúr er að finna. Eldtungur
stigu upp af fjallinu. Hermdu vitni,
að sprengingar hefðu dunið við í
um hálfa klukkustund og hefðu
sprengjur fallið bæði í íbúðahverf-
um borgarinnar og út á Adenflóa.
Síðar kvað við ný hrina spreng-
inga sem íbúar sögðu hafa verið
mun kröftugri en þær fyrri. Svo
virtist sem eldur hefði orðið laus í
vopnageymslu.
Af opinberri hálfu var hvorki
skýrt frá orsökum sprenginganna
eða tjóni af þeirra völdum. Síma-
samband rofnaði í borginni að
mestu.
Tveggja mánaða borgarastríði
lauk í Jemen í júlí í fyrra eftir mis-
heppnaða tilraun ráðamanna í suð-
urhluta landsins að segja sig úr
lögum við norðurhlutann og endur-
vekja Suður-Jemen. Ríkin voru
sameinuð fyrir fimm árum.
Vilja
brenna lík
Leníns
Moskvu. Daily Telegraph.
RÚSSNESKUR efnafræðing-
ur, dr. ígor Mashníkov, heldur
því fram að „djöflaorka" geisli
frá smurðu líki Leníns í graf-
hýsinu á Rauða torginu og
tekur hann undir kröfur um
að það verði fjarlægt.
Mashníkov segir í viðtali
við blaðið Argúmentý í Faktý,
að þúsundir manna sem farið
hafi í grafhýsið til þess að
virða lík Leníns fyrir sér hafí
orðið fyrir barðinu á „svart-
orku“ sem skilið hafi eftir sig
andleg örkuml hjá viðkom-
andi.
Greftrun líksins dygði ekki
til þess að særa burt djöfulleg-
an anda og væri eina ráðið
að brenna það. „Loksins þá
myndum við losna við þær
þjáningar sem líkinu hafa
fylgt,“ sagði Mashníkov.
Búa Israela
undir frið
við Sýrlend-
inga
Jerúsalem. Reuter.
YITZHAK Rabin forsætisráð-
herra ísraels gaf í gær til-
kynna, að hugsanlega yrði
landnemabyggð í Gólanhæð-
um lögð niður á næstunni til
þess að sýna vilja ísraela til
friðarsamninga við Sýrlend-
inga á táknrænan hátt.
Binyamin Ben-Eliezer hús-
næðismálaráðherra sagði í
útvarpsviðtali í gær, að ára-
langar tilraunir til að ná
samningum við Sýrlendinga
virtust vera að komast á skrið.
Að óbreyttu gæti rammi
friðarsamkomulags legið fyrir
í byrjun næsta árs.
Yfirmenn herja landanna
tveggja hittast í júní þar sem
verður fjallað um öryggis-
ákvæði væntanlegs friðar-
samkomulags landanna.
Hvorki hefur gengið né
rekið í friðarumleitunum milli
ísraela og Sýrlendinga vegna
Gólanhæða, umfangs og
tímasetningar brotthvarfs
ísraela þaðan og öryggisráð-
stafanir því samfara.
Sveitir SÞ verði efld-
ar eða dregnar til baka
NATO krefst þess að Serbar sleppi gæsiuliðum sem þeir halda sem gíslum
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ .. ... ' .... ................ .....
Losnað úr lok-
uðum heimi
10
ÍSLENSK NÁTTÚRA
18
Ueísmu
wsluliáttiim dllra
þyrfli ISMir
20
KOMUM STERK
ÚRKREPPUNNI
wsnmfmmjiSí
ÁSUNNUDEGI