Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.MAÍ1995 37 BRÉF TIL BLAÐSIIMS Mískunnsemi Frá Eggerti E. Laxdal: MARGT er að gerast í þjóðfélag- inu, sem valdið hefur deilum og umræðum, bæði meðal almennings og manna í æðstu stöðum. Sumir gerast dómharðir og leggja allt kapp á að svipta fórnarlömb sín frama og æru, vegna misferlis, sem mönnum er borið á brýn. Engin refsing er talin of þung, til þess að fullnægja kröfum um siðferði og réttlæti. En er nokkur maður syndlaus, ef grannt er skoðað, og ber ekki að taka orð meistarans frá Nasaret alvarlega, þegar hann sagði, „sá yðar, sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum". Það er eitt orð í íslensku máli, sem vonandi finnst ennþá í íslensk- um orðabókum, en þar á ég við um orðið miskunnsemi, sem er að missa meira og meira úr áhrifa- mætti sínum, og kemur það glöggt fram í öllum samskiptum manna á meðal. Dómharka og refsigleði eru aftur á móti orð sem sífellt virðast vera að ná auknu vægi í þjóðfélag- inu, þegar krafist er harðari refs- inga fyrir meint brot, þá eiga slík- ar kröfur greiða leið inn í æðsta stjórnkerfi landsins og eru umsvifa- laust gerðar að lögum. Ég veit ekki hvort orðið mis- kunnsemi finnst í lögbókum, eða í hugum þeirra, sem kveða upp dóma, en óttast þó, að lítið muni fara fyrir því á þeim vettvangi. Verði menn uppvísir að misferli, sem að vísu getur talist ámælis- vert, geta þeir átt það á hættu að missa starf sitt og eigur sínar og lenda loks í fangelsi um lengri tíma. Þetta þykir þó stundum ekki nóg, heldur eru þeir sviptir ærunni ævi- langt, óalandi og ófeijandi alls staðar i þjóðfélaginu. Hvað bíður svo refsifanga, þegar refsivist lýkur og þeim er sagt, að nú séu þeir frjálsir menn. Margir útskrifast allslausir, heimilislausir og ofaná allt, atvinnulausir og eiga hvergi höfði sínu að halla. Eitthvert afdrep mun vera til fyrir þessa menn, en það er ófullkomið og varla sæm- andi lifandi mönnum. Þar eru vist- mönnum settar reglurnar, því að frelsi má ekki ríkja á slíkum stöð- um. Meðal annars er þeim gert að vera komnir heim innan tiltekins tíma á kvöldin. Verði misbrestur á þvi, er þeim úthýst og gert að mæla göturnar næturlangt í öllum veðrum. Á slíkum stöðum þyrfti að hengja upp boðskap á veggina, sem fjallar um miskunnsemi. Þekkingarskortur á þýðingu þessa orðs kemur fram í samskipt- um manna og þjóða um allan heim, bæði í þróuðum sem vanþróuðum ríkjum. Menn leita réttar síns með ofbeldi og misþyrmingum, telji þeir að gert sé á hluta þeirra. Stundum gengur þetta svo langt, að það kost- ar mannslíf, og í vesta tilfelli styij- aldir, þegar þjóðir deila, með öllum þeim hörmungum, sem þeim fylgja. í slíkum tilfellum skortir ekki fé til þess að kaupa vopn og allskonar drápstæki. Hermennirnir fá nógan mat, en biðji sveltandi almúginn um brauðbita, er honum synjað. Það er tillaga mín til allra manna, að auka vægi orðsins mis- kunnsemi, og láta það fá meira rými í öllum störfum sínum og ákvarðanatökum, sem snertir hag og velferð fólksins í landinu, meðal allra þjóða. EGGERT E. LAXDAL, Box 174, Hveragerði. Meiriháttar sumarkjólar frákr. 1.990 Rósóttir kjólar, hlýrakjólar, stuttir kjólar, síðir kjólar, stutt pils Full búð af sjóðheitum sumarvörum ■ NECESSITY, Borgarkringlunni, sími 588-4848. SendUm i póstkröfu dýrmætt Oryggifc VW Golf skutbíll m/útvarpi, tilbúinn á götuna kostar aÖeins frá HEKLA -tí/Aei/iía/ A&it/ Laugavegi 170-174, sími 569 5500 Volkswagen Oruggur á o//a vegul

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.