Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 52
póst gíró
Ármúla 6 • 150 Reykjavík
(£) 550 7472
varða
víðtæk
f jármálaþjónusta
Landsbanki
fslands
Bankl allra landsmanna
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKIJREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 28. MAÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Bakaraverkfall
boðað á miðnætti
Vinna í
stærstu
bakaríum
stöðvast
KOMI boðað verkfall Bakarasveina-
félags íslands til framkvæmda á
miðnætti aðfaranótt mánudags mun
vinna stöðvast í stærstu bakaríum
landsins. Gunnlaugur Kristjánsson,
formaður samninganefndar Bakara-
sveinafélagsins, segir að komi verk-
fallið til framkvæmda megi búast við
brauðskorti í verslunum strax fyrstu
daga verkfallsins.
Gunnlaugur segir að kröfur bak-
ara séu m.a. þær að fá fram leiðrétt-
ingu á töxtum sínum sem séu ein-
hveijir þeir lægstu í iðnaði hér á landi
og þá geri þeir kröfu um yfirvinnu
eftir átta tíma vinnudag. Hann vildi
ekki gera tæmandi grein fyrir kröf-
unum og hvaða launahækkanir þær
hefðu í för með sér.
Litlu bakaríin opin
Gunnlaugur sagði að verkfallið
mundi stöðva starfsemi stærstu bak-
aríanna og þeirra sem væru mest
vélvædd. Nemar megi ekki vinna í
verkfalli og ófaglærðir starfsmenn
megi ekki ganga í störf bakara. Hins
vegar megi búast við að í litlum
bakaríum geti faglærðir eigendur
haldið uppi starfsemi. Hann kvaðst
eiga von á- að brauðskortur færi að
segja tit sín fljótlega komi verkfall
til framkvæmda.
Fundað var í deilunni hjá sátta-
semjara fram á aðfaranótt laugar-
dags og nýr samningafundur hefur
verið boðaður á sunnudagskvöld.
Gunnlaugur vildi ekki leggja mat á
stöðu viðræðna.
-----♦ ♦------
JÆargeir efstur
MARGEIR Pétursson stórmeistari er
í efsta sæti eftir 7 umferðir á skák-
móti í Valby í Danmörku.
Margeir vann Mortensen í 43 leikj-
um í 7. umferð. Hann hefur 5 vinn-
inga og er efstur ásamt Akeson.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hlýnun vegna vaxandi gróðurhúsaáhrifa
Skriðjöklar munu
minnka um 40%
HLÝNUN vegna vaxandi gróður-
húsaáhrifa hefur t.a.m. þær afleið-
ingar að tveir skriðjöklar út frá Hofs-
jökli minnka um 40% að rúmmáli
og 20% að flatarmáli á næstu öld.
Þetta eru niðúrstöður úr norrænu
rannsóknarverkefni á áhrifum hlýn-
unar á jökla og vatnafar á Norður-
löndum. Trausti Jónsson, veður-
fræðingur, og Tómas Jóhannesson,
- járðeðlisfræðingur halda erindi um
þetta efni á mánudagskvöld.
Hlýnar um 0,3 gráður á áratug
Tómas sagði að töluverðar sveifl-
ur hefðu verið í lofthita á jörðinni
síðustu árin. Hann nefndi í því sam-
bandi að eldgos í Pinatubo-fjalli á
—Eilippseyjum sumarið 1991 hefði
haft þær afleiðingar að hiti lækkaði
Hitafrávik 1974-1994
frámeðalhita 1951-1980
á Norðurhveli jarðar
umtalsvert á árunum 1992 og 1993.
Jafnframt hefði kolsýringur í and-
rúmsloftinu hætt að aukast.
Nú hefði hins vegar komið í ljós
að kolsýringur væri farinn að auk-
ast að nýju og lofthiti að hækka.
Rannsóknir benda til að hlýna muni
um 0,3 gráður á áratug hér við land
næstu hundrað árin. Lofthiti myndi
því hækka um u.þ.b. 3 gráður á
næstu öld.
Tómas sagði að útbúið hefði ver-
ið líkan til að greina afleiðingar
hækkandi lofthita á jökla og rennsli
frá þeim. Hann tók fram að jöklarn-
ir myndu ekki bregðast við að fullu
fyrr en eftir um 200 ár eða meira.
Hins vegar myndi vatnsrennsli frá
þeim aukast t.d. á næstu 20 til 30
árum.
Verpa
beint í
skaflinn
ÞÓTT vorið sé að kveðja og
sumarið óðum að taka völdin á
sunnan- og vestanverðu landinu
ganga árstíðaskiptin heldur
stirðlegar í öðrum landshlutum,
s.s. á Vestfjörðum og þá ekki
síst Hornströndum. Hefðbundin
vorverk, svo sem eggjataka,
ganga þó sinn vanagang, því
svartfuglinn lætur ekki segjast
og verpir þótt hann verði að
gera það „beint í skaflinn" eins
og menn lýsa því gjarnan fyrir
vestan þessa dagana. Sigmenn
hafa reynt að fara í Hælavikur-
bjargið en orðið frá að hverfa
vegna afleitra aðstæðna. Skárra
er að athafna sig í Hornbjargi
og þar var þessi mynd tekin.
Það er Rósmundur Skarphéð-
insson sem aðstoðar Tryggva
Guðmundsson lögfræðing við
að „affermast".
Fiskeldi
Hægtað
auka lífslík-
ur lúðulirfa
NÝLEGAR tilraunir hafa leitt í ljós
að hægt er að auka lífslíkur lúðu-
lirfa sem aldar eru upp í fískeldis-
stöðvum með því að nota nýtt fóður
sem byggir á íslenskri framleiðslu
úr Omega-3 fítusýrum.
Guðmundur Gunnar Haraldsson
dósent á heiðurinn af þessum til-
raunum, en hann hefur unnið að
verkefninu í samvinnu við Fiskeldi
Eyjafjarðar, sem sérhæfir sig í lúðu-
eldi.
Guðmundur hefur í nokkur ár
þróað hreint þríglýseríðþykkni með
100% DHA eða EPA innihaldi ásamt
samstarfsmönnum sínum, en þau
efni eru verðmætustu efnin í
Omega-3 fítusýrunum. Eitt helsta
vandamál í lúðueldi undanfarin ár
hefur verið að lúðulirfur ná ekki að
myndbreytast í lúðuseiði vegna lágs
innihalds af DHA-ríkum Omega-3
fítusýrum í svifþörungum sem eru
meginfæða lúðulirfanna.
Nú hefur aftur á móti tekist að
líkja eftir fítusýrusamsetningu
svifsins í nýrri fóðurtegund, salt-
vatnsrækjunni artemíu. Með notkun
DHA-ríkrar artemíu má að mati
Guðmundar betrumbæta mynd-
breytingu lúðulirfanna yfír í seiði.
■ Hægt að auka lífslíkur/8
------» ♦ ♦----
Sjómenn
leita aðstoð-
ar erlendis
SÁMTÖK sjómanna hafa Ieitað til
Alþjóða flutningaverkamannasam-
bandsins um að sambandið beiti öll-
um tiltækum ráðum gegn þeim út-
gerðarfélögum sem reyna að kom-
ast undan verkfalli sjómanna á físki-
skipum með því að leigja skip sín
til erlendra aðila.
Samkvæmt upplýsingum frá
samtökum sjómanna mun Alþjóða
flutningaverkamannasambandið
meðal annars leita aðstoðar hjá að-
ildarfélögum í þeim löndum þar sem
viðkomandi skip muni væntanlega
landa afla og leita eftir annarri þjón-
ustu.
Alþjóða flutningaverkamanna-
sambandið eru fjölmennustu alþjóða-
samtök launþega með um 4,5 millj-
ónir meðlima í 400 stéttarfélögum í
110 löndum.
♦ ♦ ♦-----
Lándbúnaðarvörur
Innflutn-
ingur und-
irbúinn
NOKKUR íslensk fyrirtæki eru að
kanna möguleika á innflutningi land-
búnaðarvara, sem verður heimill frá
og með 1. júlí nk. samkvæmt fyrir-
liggjandi frumvarpi.
Verslanir Bónus, Hagkaups og
Nóatúns eru þegar byijaðar að kanna
möguleika á innflutningi og sömu-
leiðis hefur Osta- og smjörsalan ver-
ið að kanna þessi mál.
Samkvæmt frumvarpinu verður
leyfður innflutningur á kjöti, eggjum,
smjöri, ostum og kartöflum.
■ Verslanir kanna/4