Morgunblaðið - 04.06.1995, Page 2

Morgunblaðið - 04.06.1995, Page 2
2 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Símasambandsleysi á nokkrum stöðum eftir símanúmerabreytingu Erfiðleikar á Hólmavík LÖGREGLAN á Hólmavík lenti tvisvar sinnum í erfiðleikum vegna síma- sambandsleysis eftir að breytingar höfðu verið framkvæmdar á símanúm- erakerfínu í fyrrinótt. Við neyðarástandi lá þegar lögreglan náði ekki í viðeigandi aðila vegna sjúkraflugs fyrir konu sem tekið hafði léttasótt. ------------ Reynt var ítrekað að ná til ísa- Erlendir landa eystra Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið. ÞRÍR erlendir togarar lönduðu um 430 tonnum af karfa, ýsu og þorski á Austfjörðum í gær og fyrradag. Tveir togarar, annar skoskur og hinn breskur, lönduðu um 300 tonnum af ýsu og þorski á Stöðvarfirði. Unnið verður úr þeim afla á Fáskrúðs- firði, Eskifirði, Etjúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði. Færeyskur togari kom að bryggju á Fáskrúðsfirði í gær og landaði 130 tonnum af karfa en úr þeim afla verður unnið á staðnum. Ljóst er að frystihús hafa næg verkefni framundan. Þrennt slasað eftir árekstur ÖKUMAÐUR og tveir farþeg- ar, þar af eitt barn, voru flutt- ir á slysadeild Borgarspítalans í gærmorgun eftir harðan árekstur fólksbíls og vörubfls við Svartaskersbryggju í Þor- lákshöfn. Ekki var ljóst í gær- dag hversu alvarlega fólkið hefði slasast. Dýragarður í Laugarási Seifossi. Morgunblaðið. DÝRAGARÐUR var opnaður í gær við garðyrkjustöðina Slakka í Laugarási í Biskups- tungum. í dýragarðinum eru hænur, hanar, endur, hvolpar, dverg- kanínur og venjulegar kanínur, geitur, heimalningar og kisur, svo eitthvað sé nefnt. Byggðir hafa verið litlir torfbæir fyrir dýrin og er hver bær girtur af svo gestir geti virt þau fyrir sér úr hæfilegri fjarlægð. Hjónin í Slakka byij- uðu með starfsemina í fyrra. Launafólk sem „fall- byssufóður“ AÐALFUNDUR Verkakvenna- félagsins Snótar í Vestmanna- eyjum hefur samþykkt að skora á ASÍ-félög að losa sig undan kjarasamningi frá 20. febrúar sl. við fyrsta tækifæri. Elsa Valgeirsdóttir, formað- ur Snótar, segir felast í sam- þykktinni að félagskonum þyki aðrir hafa fengið meira út úr samningum og venjulegt launafólk verið „fallbyssufóð- ur“ fyrir aðra. „Almennt verkafólk er að viðhalda stöð- ugleikanum. Eg held að það hljóti að fara koma að því að launafólk fari út í baráttu fyr- ir bættum kjörum. Það vill ekki sitja eitt að því lengur að viðhalda honum.“ fjarðar á skrifstofu Islandsflugs í Reykjavík en án áranjgurs. Loks náðist í einn flugmann Islandsflugs á heimili hans og fór hann strax á flugvöllinn og flaug eftir konunni. Ragnar Benediktsson, yfirdeild- arstjóri hjá Pósti og síma, gat ekki útskýrt hvað komið hefði fyrir í til- viki Hólmavíkurlögreglunnar fyrr en könnuð hefðu verið öll númer sem hringt var í og úr um nóttina. Ýmislegt kæmi til greina t.a.m. vandkvæði við að hringja úr farsíma sem lögreglan hafi notað í fyrra skiptið. Einnig hafi símaflutningar ekki gengið sem skyldi fyrr en í gærmorgun. Gekk yfirleitt vel Ragnar sagði að símakerfisbreyt- ingarnar hafi yfírleitt gengið vel. Þó hafí orðið smábilun í skiptistöðv- um í miðbænum með þeim afleið- ingum að ekki var hægt að ná í fyrirtæki með númer sem hefjast á 50, 51 og 52 utan af landi og úr Breiðholti. Hann sagði að símaflutningar í gömul númer hafí verið til vand- ræða. Sett hafi verið í gang sjálf- virk vinnsla sem breyta átti öllum flutningi úr gömlum númerum í ný. Sú aðgerð hafi aftur á móti tekið langan tíma og ekki lokið fyrr en um hádegi í gær. Morgunblaðið/Steinunn Saumuðu sér brúðar- kjól í 10. bekk Hvolsvelli. Morgunblaðið. EKKI er ráð nema í tíma sé tek- ið, hafa nokkrar yngismeyjar 10. bekkjar Hvolsskóla á Hvolsvelli sennilega hugsað með sér þegar þær völdu sér verkefni í hann- yrðum í vetur. Tvær þeirra, þær Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir og Berg- lind Hákonardóttir, saumuðu sér forláta brúðarkjóla og sú þriðja, Aðalheiður Elín Bergsdóttir, saumaði skírnarkjól. Að sögn stúlknanna tók hálfan veturinn að ljúka saumaskapnum en um samvinnuverkefni þeirra var að ræða. Þeim fannst verkið ekki erfitt en nokkuð tímafrekt, en þær nutu góðrar Ieiðsagnar handavinnukennarans Guðrúnar Ormsdóttur. Stúlkurnar voru að vonum ánægðar með árangurinn á vorsýningu nemenda skólans enda vöktu kjólarnir mikla at- hygli sýningargesta. VR-blaðið um opinbera þjónustu fyrir fólk án vinnu Hljótt um afslátt sem atvínnulausir njóta UNDARLEGA hljótt hefur verið um afslátt af heilbrigðisþjónustu fyrir atvinnuleysisbótaþega, segir í grein eftir starfsmann Verslunarmannafé- lags Reykjavíkur í VR-blaðinu. Dögg Pálsdóttir, skrifstofustjóri í heil- brigðis- og tryggingaráðuneytinu, segir að eðlilega hafi verið staðið að kynningu reglugerðar um þetta efni. í greininni segir að afslátturinn hafi ekki svo kunnugir viti verið kynntur að neinu marki fyrir bóta- þegum, og fæstir viti um hann. Engu Iíkara sé en reynt hafi verið að halda honum leyndum og gegni mikilli furðu að starfsmaður sem starfar við atvinnuleysisbætur hjá einu stærsta stéttarfélagi landsins skuli ekki fyrir löngu hafa fengið vitneskju um mál- ið og send til sín gögn þar að lútandi. í greininni er rakið að bótaþegar atvinnuleysistrygginga með vottorð þar um eiga rétt á ókeypis þjónustu heimilislæknis á dagtíma og 700 kr. afslátt af gjaldi utan dagtíma, greiða lægra gjald vegna heimsóknar til sérfræðings eða á göngudeild sjúkra- húss og vegna röntgengreiningar. Einnig fá þeir afslátt af B- og E- merktum lyfjum. Auk þess er veittur afsláttur í sundlaugamar í Reykjavík, ókeypis bókasafnskort og afsláttur af far- gjaldi í almenningsvagna. „Um þann afslátt hefur einnig farið hljótt og hann er fáum bótaþegum kunnur,“ segir í greininni. Dögg segir að staðið hafi verið að kynningu á reglugerðinni með' venjubundnum hætti. Skýrt hafi ver- ið frá því með fréttatilkynningu í dagblöðum og hún verið í fullu gildi síðan. Hún segir að til þess að njóta af- sláttar þurfi vottorð frá atvinnuleys- istryggingasjóði um að viðkomandi hafi verið atvinnulaus í meira en sex mánuði. Tilkynning um reglugerðina hefði einnig verið send á allar heilsu- gæslustöðvar. Dögg segir að nýlega hafi ráðu- neytið farið fram á það við atvinnu- leysistryggingasjóð að hann rýmkaði túlkun á reglugerðinni. Forsaga málsins var sú að atvinnulaus mað- ur, sem ekki átti rétt á bótum sótti um vottorð til atvinnuleysistrygg- ingasjóðs, sem taldi sér ekki heimilt að gefa það út til hans, heldur að- eins þeirra sem þægju bætur. Litlu andar- ungarnir AÐALVARPTÍMI stokkandar- innar er seint í apríl þegar gróður tekur að lifna við eða seint í maí. Kolian liggur ein á eggjunum, sem klekjast á fjórum vikum og verða ung- arnir fleygir um fimm vikna gamlir. Ekki er annað að sjá en að ungarnir fjórir syndi vel þótt ekki hafi sést til þeirra að hneigja höfuð I djúp eða hreyfa lítil stél í gærmorgun. Morgunblaðið/Golli ► l-52 Trillukarlar vilja sjálf- ræði ►Trillusjómenn telja flestir hveijir að banndagakerfið, sem boðið er upp á fyrir krókabáta í frumvarpi um breytingar á lögum um stjóm fiskveiða, sé með öllu óviðun- andi./ÍO Þrautbestur á þingi ►Ragnar Arnalds er sá þingmað- ur sem lengst hefur setið á Al- þingi. Hann byijaði líka 24 ára gamall, næstyngstur þeirra sem kjömir hafa verið á þing./12 Leyndardómur týndu grafanna ►Ætlunin var að leggja bílastæði þar sem hefur fundist gríðarstórt grafhýsi sona Ramsesar II, eins mesta faraó sem uppi hefur ver- ið./18 Á grænu nótunum ►Þýski hagfræðingurinn og ferðamálafræðingurinn Herbert Hamele hefur kynnt græna ferða- mennsku víða um heim. Hér segir hann frá framkvæmd hennar og hvemig hagnast megi á ferðaþjón- ustu./20 Opal stenst tímans tönn ►í Viðskiptum og atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Ragnar Birgisson, framkvæmdastjóra Op- als hf./22 B ► l-32 Undir yfirborðið ►Sportköfun færist í vöxt hér við land, enda auðvelt um vik að gægj- ast undir yfirborðið þar sem foður- land okkar hálft er hafið./l Lambakjöt, kiwi og kvikmyndir ►Einhver mesta spútnikmynd síð- ari ára verður frumsýnd hér á Iandi um helgina. „Þetta er eitt besta handrit sem ég hef lesið,“ segir leikkonan Rena Owen um þessa mynd, Eitt sinn stríðsmenn, í sam- tali við Morgunblaðið./6 Fyrstu íbúðarkaupin ►Hvernig gengur ungu fólki að komast yfir sína fyrstu íbúð eftir breytingar í húsnæðiskerfinu?/8 Menn geta ekki annað ►Það hefur vorað seint og illa norður á Ströndum. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins fylgdu nýverið sigmönnum að Hælavíkur- og Hornbjargi. Vorið var ekki enn komið þótt hlýtt væri og notalegt syðra./16 C BILAR ► 1-4 Volvo 600 ►Volvo mun kynna nýjan bíl í haust sem er samstarfsverkefni með Mitsubishi og hollenskum stjómvöldum. /1 Toyota Tacoma ►Pallbíll með 6 strokka vél smíð- aður í Bandaríkjunum í stuttum reynsluakstri./4 fastir þættir Leiðari Heigispjali Reykjavíkurbt Minningar Myndasögur Brids Stjörnuspá Skák INNLENDAR FRÉTTIR: 2—4—8—BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4-6 bak Velvakandi 38 26 Fölk í tréttum 40 26 Bíó/dans 42 26 íþróttir 46 28 Útvarp/sjónvarp 48 36 Dagbók/veður 51 36 Mannlífsstr. 4b 36 Kvikmyndir lOb 36 36 Dægurtónlist 12b

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.