Morgunblaðið - 04.06.1995, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
✓
KYIKMYNDIR/Refflibofflnn frumsýnir nýsjálensku kvikmyndina Once Were Warríors
sem vakið hefur mikla athygli um allan heim, en í myndinni er fjallað um heimilisofbeldi
á opinskáan hátt. Aðalleikkona myndarínnar verður viðstödd forsýningu hennar á morgun
Astarfjötrar
ofbeldísins
EIGINMAÐUR Beth er ofbeldisfullur og lendir iðulega í slagsmálum.
BETH er ástfangin af manni sínum en verður SLAGSMAL eru tíð meðal maoríanna í fátækra-
að gjalda þess dýru verði. hverfum stórborga Nýja-Sjálands.
að þótti sæta nokkrum tíðind-
um í kvikmyndasögunni
þegar ný-sjálenska kvikmyndin
Once Were Warriors sló aðsóknar-
met „Jurassic Park“ þar í landi í
byijun ársins, en myndin sern
kostaði um 100 milljónir króna í
framleiðslu hefur síðan verið sýnd
við mikla aðsókn um allan heim.
Myndin er gerð eftir skáldsögu
eftir nýsjálenska rithöfundinn Al-
an Duff, en bókin, sem er frum-
raun hans, kom út árið 1990.
Hlutu bæði bókin og höfundurinn
margvísleg verðlaun og metsölu í
heimalandinu. Aðalpersóna mynd-
arinnar er Beth Heke (Rena Ow-
en), kúguð eiginkona atvinnulauss
hrotta, en hún reynir hvað hún
getur að forða fjölskyldunni frá
splundrun og bömum sínum frá
því að lenda á glapstigum.
Sögusviðið er fátækrahverfi
maoría, frumbyggja Nýja-Sjá-
lands, í óskilgreindri stórborg þar
í landi. Fjölskyldufaðirinn er
drykkfelldur og sturtar daglega í
sig bjór með félögunum. Hann
lendir hvað eftir annað í áflogum
og stofnar gjaman til veisluhalda
á heimili sínu um miðjar nætur.
Beth er svolítið fyrir sopann sjálf
og hefur gaman að því að
skemmta sér og hún er greinilega
hrifínn af eiginmanni sínum en
verður hins vegar að gjalda þess.
Þegar hann er dmkkinn á hann
nefnilega vanda til þess að lemja
hana sundur og saman, en senni-
lega hefur heimilisofbeldi af þessu
tagi aldrei fyrr verið gerð jafn
skilmerkilega skil á hvíta tjaldinu.
Myndin snýst að miklu leyti um
þá viðleitni Beth að losna úr viðj-
um ofbeldisins og halda í hefðir
maoría, en álagið sem hvílir á fjöl-
skyldunni á hliðstæður um víða
veröld. Þannig sagði kvikmynda-
gagnrýnandi í Suður-Afríku um
kvikmyndina að hún væri stór-
kostlegasta mynd um S-Afríku
sem aldrei hefði verið gerð í S-
Afríku.
Hæfileikamenn frá Eyjaálfu
Það hefur vakið athygli hve
miklum vinsældum fjöldi leik-
stjóra og leikara frá Eyjaálfu hef-
ur náð í Evrópu og Bandaríkjun-
um á undanförnum árum. Þeirra
á meðal má nefna Sam Neill, Judy
Davis, Peter Weir og Gillian Arm-
strong, en kannski ber þó hæst
nafn leikarans og leikstjórans
Mels Gibsons, sem öðlaðist heims-
frægð í áströlskum kvikmyndum.
Meðal þeirra sem gáttir Holly-
wood eru að ljúkast upp fyrir
þessa dagana er einmitt Lee
Tamahori, hinn 44 ára gamli leik-
stjóri „Once Were Warriors".
Hann er nú að leikstýra myndinni
„Mulholland Falls“ með Nick
Nolte í aðalhlutverki og í bígerð
er að hann geri mynd um ævi
Edgars Allans Poe. „Once Were
Warriors" er fyrsta myndin í fullri
lengd sem Tamahori gerir, en
framað því hafði hann getið sér
gott orð fyrir gerð auglýsinga-
mynda og hlotið margvísleg al-
þjóðleg verðlaun og viðurkenning-
ar fyrir þær.
Annar leikstjóri frá Nýja-Sjá-
landi sem slegið hefur í gegn upp
á síðkastið er Peter Jackson sem
fyrst vakti athygli fyrir grínhryll-
ingsmyndina „Dead Alive“, sem
gerð var 1993. Hann sló svo í
gegn svo um munaði fyrir mynd-
ina „Heavenly Creatures", sem
gerð var í fyrra og tilnefnd var
til Óskarsverðlauna fyrir besta
kvikmyndahandritið, en myndin
var sýnd í Regnboganum í vor.
Þriðji leikstjórinn úr Eyjaálfu
sem nýverið hefur slegið í gegn
er svo P.J. Hogan, en hann er
leikstjóri „Muriel’s Wedding“, sem
sýnd verður á næstunni í Háskóla-
bíói. Sú mynd er meðal mest sóttu
myndanna í Evrópu um þessar
mundir og einnig hefur hún gert
það gott í Bandaríkjunum.
Fangavistin tuktaði hana
NÝ-sjálenska leikkonan Rena
Owen, sem leikur aðalhlutverk-
ið í kvikmyndinni „Once Were
Warriors", er nú stödd hér á
iandi, en hún verður viðstödd
forsýningu myndarinnar í
Regnboganum á morgun. For-
sýningin er tileinkuð Kvennaat-
hvarfinu, sem mun fá allan
ágóða af sýningunni.
Hlutverk Renu Owen í mynd-
inni er aðeins annað kvikmynda-
hlutverk hennar, en fyrsta
reynsla hennar á hvíta tjaldinu
segir hún að hafi verið „lítið en
safaríkt" hlutverk í kvikmynd-
inni „Rapa Nui“, sem Kevin
Reynold leikstýrði. Framleið-
andi „Rapa Nui“ var Kevin
Costner, en með aðalhlutverk í
myndinni fór Jason Scott Lee
(Dragon, Jungle Book). I mynd-
inni er sögð saga frumbyggja á
Páskaeyju i Kyrrahafi og kom
hún út á myndbandi hjá Skíf-
unni í mars síðastliðnum.
Rena Owen á maorískan föð-
ur en hvíta móður og ólst hún
upp við menningu maoría. Leik-
listin varð snemma ástríða
hennar og 15 ára gömul steig
hún fyrst á svið í skólaupp-
færslu á söngleiknum „South
Pacific". í upphafi sjötta ára-
tugarins var ekki litið á leiklist
sem framtíðarstarf á Nýja-Sjá-
landi og þá allra síst fyrir unga
maoríska stúlku úr sveitinni.
Rena lærði þess vegna hjúkrun,
en fékk svo útrás í pönkbylgj-
unni í upphafi níunda áratugar-
ins. Eirðarleysi hennar skilaði
henni brátt til London þar sem
hún reyndi fyrir sér bæði í leik-
list og tónlist, en þar ánetjaðist
hún illilega eiturlyfyum og hlaut
að lokum 8 mánaða fangelsis-
dóm í Englandi.
„Fangelsisvistin tuktaði mig
rækilega til og kenndimér
margt um sjálfa mig. Ég er
sannfærð um að innilokunin
bjargaði lífí mínu. Leikarar sem
kynnst hafa þannig lífsreynslu
eiga örugglega betur með að
túlka djúpar tilfinningar," segir
leikkonan.
Skömmu eftir að Rena losnaði
úr fangelsinu fékk hún hlutverk
með ný-sjálenskum leikflokki í
London, en einnig hóf hún af
krafti störf með Clean Break-
leikhópnum, sem einbeitir sér
að kynningu og uppsetningu
leikverka í kvennafangelsum.
Hún flutti svo aftur til Nýja-Sjá-
lands árið 1988 og er hún nú
búsett í höfuðborginni Welling-
ton, þar sem hún starfar sem
leikari í leikhúsum og sjón-
varpi. Þá hefur hún einnig skrif-
að og leikstýrt nokkrum leikrit-
um.
Rena telur að konur um allan
heim geti sett sig í spor Beth í
kvikmyndinni „Once Were
Warriors". „Beth er greind kona
og viljasterk, en fer samt út i
lífið með stjörnur í augunum.
Raunveruleikinn er þó allur
annar og ofbeldið setur fljótt
mark sitt á hjónaband hennar.
Þótt Beth líti út fyrir að vera
sterk og yfirgefi að lokum eig-
inmann sinn er hún sviðin og
mörkuð djúpum sárum. Hún á
mikla baráttu fyrir höndum og
verður að rífa sig upp, ekki ein-
göngu hennar sjálfrar vegna
heldur bamanna ekki síður,“
segir Rena.
I kjölfar velgengni „Once
Were Warriors" hefur Rena
ferðast heimshoma á milli og
víða heimsótt kvennaathvörf og
rætt við þolendur heimilisof-
beldis ogkynferðislegs ofbeldis.
Hún segir marga hafa sagt sér
að þeir þekki persónur úr mynd-
inni af eigin raun og raunveru-
leikinn sé oft grimmari en fram
kemur í myndinni. Þá hafi hún
einnig heyrt að myndin hafi
hjálpað konum til að rísa upp
og losa sig úr samböndum þar
sem ofbeldi er daglegt brauð
og segir leikkonan að það hafi
glatt sig nýög.
„Once Were Warriors" hefur
hlotið mikla gagnrýni fyrir lýs-
inguna á stöðu maoría á Nýja-
Sjálandi, en flestir leikaranna í
myndinni em maoríar. Þeir
hafa á ýmsan hátt átt undir
högg að sækja og segir Rena
að hún vitfi veg kynþáttar síns
meiri.
„Margir vom á þeirri skoðun
að ekki ætti að draga upp svona
mynd af maoríum, en þeir sem
vijja ekki horfast í augu við (jót-
leika eigin kynþáttar staðna og
komast ekkert áfram. Við emm
öll bæði slæm og góð, við erum
mannleg og enginn er fullkom-
inn. En ofbeldisþáttur myndar-
innar gæti gerst hvar sem er.
Þótt fátækt sér bakgrunnurinn
í myndinni hef ég komist að
raun um að margir verstu of-
beldisseggir heimsins em
klæddir í sérsniðin jakkaföt.
Þetta gerist í öllum þjóðfélags-
hópum,“ segir hún.
Frammistaða Renu Owen í
„Once Were Warriors“ hefur
orðið til þess að stærstu kvik-
myndaframleiðendur Banda-
ríkjanna og Bretlands hafa bor-
ið víurnar í hana, en hún hefur
hins vegar ýtt frá sér öllum
kvikmyndahandritum úr þeim
áttum og þótt þau klisjukennd
og léttvæg. Segist hún aðeins
vera til viðræðu um „alvömhlut-
verk“ sem komi til móts við list-
rænan metnað hennar, en engu
að síður kitli peningamir því
leikarar á Nýja-Sjálandi ríði
ekki feitum hesti frá leiklistinni.
Næsta kvikmynd Renu verður
tekin í Astralíu og heitir hún
„Your Man from Venus“, en í
myndinni leikur Rena karlmann
sem fer í kynskiptiaðgerð. Leik-
syóri myndarinnar er landi
hennar Stewart Main, en hann
leikstýrði einnig hinni sérstæðu
kvikmynd „Desperate Remedi-
es“, sem sýnd var í Regnbogan-
um síðastliðið haust.
Sjá viðtal bls. 6B